Morgunblaðið - 20.08.1998, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 20.08.1998, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1998 15 LANDIÐ Morgunblaðið/Davíð Pétursson GUÐMUNDUR Bjarnason landbúnaðarráðherra ók í fararbroddi forndráttarvéla um svæðið á gömlum Farmall A árg. 1945. Fjölmeimi sótti D-dag’inn á Hvanneyri Aðalfundur Landssambands sauðfjárbænda á Sauðárkróki Gerð nýs búvörusamn- ings aðalmál fundarins Grund - Á annað þúsund gesta heim- sótti Hvanneyri 15. ágúst sl. á degi dráttarvélanna sem haldinn var í til- efni þess að nú eru 80 ár liðin síðan fyrsta dráttarvélin var flutt til lands- ins. Dagskráin var fjölbreytt. Kl. 13.30 var hátíðin formlega sett af Guðmundi Bjarnasyni landbúnað- arráðherra. Að loknu ávarpi steig hann upp í gamlan Farmall A árg. 1945 og ók í fararbroddi forndráttar- véla um svæðið. Búvélainnflytjendur sýndu nýjustu dráttarvélarnar og einnig var á staðnum stórbakkavél, kornþreskivél og fleiri nýjar búvélar. Vörubílaeigendur úr Fornbíla- klúbbnum komu í heimsókn og gladdi það margan gestinn að sjá slíka kostagripi endurborna. Einnig var á staðnum Land Rover árg. 1964, sem var svo vel uppgerður að hann var betri en nýr að margra áliti og Willy’s árg. 1946 var einnig mættur á staðinn. Islandsmótið í dráttarvélaakstri fór fram. Keppendur voru 8 og sigur- vegari varð Oddur Grétarsson með 115 stig. Annar varð Jón Kr. Guð- mundsson með 111,5 stig og þriðji vai'ð Isgeir Kr. Guðmundsson með 96,5 stig. Umsjónarmaður keppninn- ar var Bjami Guðmundsson en keppnisstjóri var Lárus Pétursson. Sigurvegararnir fengu verðlaun frá Globus-Vélaveri en keppt var á drátt- arvél frá því umboði. Ágóði rann til búvélasafnsins Allur ágóði af D-deginum rann til búvélasafnsins á Hvanneyri en brýn þörf er á að koma upp nýju húsi til að hýsa það safn. Búvélasafnið er vísir að tæknisafni landbúnaðarins. Safnið er í eigu Hvanneyrarskóla en Bú- tæknideild Rannsóknastoftiunar landbúnaðarins tekur einnig þátt í rekstri þess. Safninu er ætlað að bregða Ijósi á þróun tækni í landbún- aði með því að varðveita ýmsar bú- vélar og verkfæri sem komið hafa við sögu í íslenskum sveitum, svo og aðr- ar heimildir um þróun bútækninnar. Safnið á að vera almenningi heim- ild um þennan gilda þátt búnaðarsög- unnar. Pá er safnið mikilvægur stuðningur við kennslu, nám og rann- sóknir við Hvanneyrarskóla. Rekja má sögu safnsins allt aftur til ársins 1940 er ákveðið var með lögum um rannsóknh' í þágu land- búnaðarins að „safni af landbúnaðar- verkfærum" skyldi komið upp við Bændaskólann á Hvanneyri. Sökum fjárskorts varð þá lítið úr fram- kvæmdum. Frá skólastjóratíð Hjart- ar Snorrasonar á Hvanneyri vai- til safn verkfæra frá Torfa Bjarnasyni í Ólafsdal. Úr búi Halldórs Vilhjálms- sonar skólastjóra hafa og varðveist ýmis tæki, m.a. dráttarvélar frá frumskeiði þeirra hér á landi. Þá afl- aði Guðmundur Jónsson skólastjóri safninu merkra tækja og áhalda. Landbúnaðarráðherra færði safn- inu 500.000 kr. í tilefni dagsins og er vonandi að sem flestir einstaklingar, stofnanh' og fyrirtæki leggi málinu lið. Gamlir nytjahlutir mega aldrei glatast, samfélaginu ber skylda til að varðveita sýnishorn. Sauðárkróki - Aðalfundur Lands- sambands sauðfjárbænda var hald- inn á Sauðárkróki 17. og 18. ágúst sl. og sóttu fundinn 43 af 44 fulltrú- um sem rétt höfðu til fundarsetu. Fundarstörf hófust eftir hádegi á mánudag og að lokinni fundarsetn- ingu, kosningu starfsmanna fundar- ins, afgreiðslu kjörbréfa og laga- breytingum var flutt skýrsla stjóm- ar og ávörp gesta. Eftir kaffihlé fór fram nefndaskipun en síðan fluttu einndi Steinþór Skúlason, Bryndís Hákonardóttir og Bergþóra Þor- kelsdóttir um markaðsmál innan- lands og utan, síðan fjallaði Jón Við- ar Jónmundsson um nýtt kjötmat og kynbótastarf og að lokum Jó- hannes Ríkharðsson sem fjallaði um framkvæmd sauðfjárræktarsamn- ings og hugmyndir að þeim næsta. Að afloknum framsöguerindum fóru fram fyrirspurnir og umræður. Nefndastörf hófust þegar klukk- an átta árdegis á þriðjudagsmorgni og stóðu til hádegis en þá var tekið til við afgreiðslu mála frá nefndum. Frá Allsherjar- og félagsmálanefnd voru samþykktar tillögur sem fjöll- uðu um reglur um atkvæðagreiðslu vegna samnings um framleiðslu sauðfjárafurða, um nýtt merki sam- takanna, um lausagöngu búfjár við vegi landsins og samvinnu við Vega- gerð ríkisins varðandi þetta. Frá Fagráðs- og sauðfjárræktar- nefnd voru samþykktar tillögur varðandi aukna þekkingu og kynn- ingu á fóðrun og meðferð fleir- lembna, um þjálfun kjötmatsmanna og samræmingu á reglum um kjöt- mat, um styrld til afkvæmarann- sókna sem byggist á nýju kjötmati og ómmællingum ásamt mati á ull- argæðum. Meira fé fari til umhverfisverkefna Frá Umhverfísnefnd voru sam- þykktar tillögur sem fjölluðu um að óbreytt eða meira fjármagn í nýjum búvörusamningi færi til umhverfis- verkefna og möguleika á að tak- marka stuðning til jarða sem ekki hafa viðunandi beitarþol sé ekki fjármagn til þess verkefnis og síðast en ekki síst um hvatningu til sem flestra bænda og sláturleyfishafa til að afla sér vistvænnar vottunar á framleiðslu sína sem allra fyrst. Þá skorar fundurinn á þá bændur sem hafa til þess aðstöðu að fara út í líf- ræna framleiðslu, telji þeir það hag- kvæmt. Frá Framleiðslunefnd voru sam- þykktar tillögur um að stjórn sam- takanna gefi út viðmiðunarverð fyr- ir sauðfjárafurðir, að felld verði nið- ur útflutningsskylda á kjöti af full- orðnu fé, að útflutningshlutfall dilkakjöts verði 15%, svo og að slát- urleyfishafar flýti söluuppgjöri kindakjöts þannig að bráðabirgða- tölur liggi fyrir íyrstu viku eftir hver mánaðamót. Síðasta nefndin var Markaðs- og kjaranefnd og frá henni voru sam- þykktar tillögur varðandi afnám reglugerðar um innheimtu verð; skerðingargjalds og stærri hlut úr verðjöfnunarsjóði til markaðsað- gerða, um fullnýtingu innanlands- markaðar fyrir sauðfjárafurðir og um að ekki verði dregið úr því fjár- magni Verðjöfnunarsjóðs sem varið er til flutnings sláturfjár svo og að það fjármagn sem fæst með hag- ræðingu við sameiningu sláturhúsa skili sér til bænda í lækkuðum kostnaði við flutning á sauðfé. Þá var tekin til umræðu gerð næsta búvörusamnings og viðraði Kristinn Guðnason fimm leiðir þar að lútandi. Mjög miklar umræður spunnust um þessi mál og komu fram mörg sjónarmið. Arnór Karls- son hvatti til þess að reynt yrði til þrautar að marka stefnu sem full sátt gæti náðst um og lagði fram til- lögu þar að lútandi. Margir tóku til máls um tillögu Ai'nórs og voru lagðar fram breytingar- og viðauka- tillögur við hana sem teknar voru til afgreiðslu og að lokum var eftirfar- andi tillaga samþykkt samhljóða: ,Aðalfundur LS haldinn á Sauðár- króki dagana 17.-18. ágúst 1998 leggur áherslu á að þegar verði far- ið að undirbúa nýjan búvörusamn- ing í sauðfjárrækt. Leggur fundur- inn áherslu á eftirfarandi atriði: Gerður verði samningur til 5-10 ára, tryggja að stuðningur verði ekki lakari en í núverandi samningi, halda ullargreiðslum og greiðslum vaxta og geymslugjalda í svipuðu formi og verið hefur-, opna fyrir til- færslu á greiðslumarki milli sauð- fjárbænda á sem kostnaðarminnst- an hátt fyrir bændur, sjá til þess að eðlileg nýliðun og framþróun verði í sauðfjárbúskap. Líta beri á hana sem alvöru atvinnugrein, auka vægi umhverfisverndar og vistvænnar framleiðslu í sauðfjárbúskap. Stefnt skal að því að flest sauðfjárbú í landinu verði vistvæn vottuð í lok samningstímans og að lokum að framleiðslustengja stuðninginn með einhverjum hætti þannig að þeir sem eru að framleiða sauðfjárafurð- ir njóti hans og að líta beri á greiðslurnar sem niðurgreiðslu á kjöti til neytenda." Þar sem dagskrá var nú tæmd og komið vel fram yfir áætlaðan fund- artíma þakkaði Áðalsteinn Jónsson, formaður, fundarmönnum góða fundarsetu og gott fundarstarf og sleit fundi. Rýmingarsala á Ijósri Notaðu tækifærið og sparaðu igs verður haldin útsala í Heimilistækjum á W M-mmm Frá fimmtudegí tíl notuðum Ijósritunarvélum og sýnishornum, einnig faxtækjum, símkerfum, tölvuskjám og símtækjum. um verð Notaðar Ijósritunarvélar, verð frá.. kr. 15.000 Ljósritunarvélar sýnishorn, verð frá kr. 59.900 Tölvuskjáir..................v........kr. 9.900 Faxtæki, verð frá..............á......kr. 15.900 Símtæki, verð frá.....................kr. 1.290 Heimilistæki hf SÆTÚNI 8 SÍMI 5691500 www.ht.is opið virka daga frá kl. 9-18 laugardaga frá kl. 10-16 PHILIPS ,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.