Morgunblaðið - 20.08.1998, Blaðsíða 24
24 FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1998
MORGUNB LAÐIÐ
-1-
FERÐALÖG
Skotist
vestur
á fírði
Auglýsingaflaumurinn
og tilboðin hér á höfuð-
borgarsvæðinu eru svo
yfírþyrmandi að það má
segja að þeir sem hér
búa séu í raun orðnir
NÁTTÚRUFEGURÐIN er mikil hvert sem horft er úr eynni.
fangar í frítíma sínum,
skrifar Friðrik A.
Brekkan. Auglýst eru
tilboð á alls kyns neyzlu-
vörum og opnunar „há-
tíðir“ hér og þar og
ókeypis pylsur og gos.
ÞETTA glepur vitaskuld margan
fjölskyldumanninn og veldur því að
æ fleiri höfuðborgarbúar missa af
því að kynnast landsbyggðinni, því
hver frítímamínúta er afar verð-
mæt. En ef viljinn er fyrir hendi er
alveg hægt að skella sér út á land
og upplifa marga skemmtilega hluti
Glæsilegyr
frístunda-
fatnaður
ÚTIVISTARBÚÐIN
við Umferðarmiðstöðina.
Sími 551 9800
http://www.mmedia.is/sportleigan
á aðeins einum degi. Ég hef komið á
Vestfirði tíu-tólf sinnum, stundum
sem leiðsögumaður og stundum í
einkaerindum og ávallt horft hýru
augu til Vigurs, en aldrei komist
þangað.
Kyrrðin í Vigur
Ég lét mig hafa það um daginn
að fara vestur á firði dagstund til
þess að koma í eyjuna Vigur. Það
tókst. Siglt er annað hvort frá ísa-
firði eða Súðavík og í þetta sinn var
það frá Súðavík. Átakanlegt var að
skoða þann hluta Súðavíkur sem
stendur tómur eftir snjóskriðuna
miklu og er erfitt að gera sér grein
fyrir umfanginu eingöngu í gegn-
um sjónvarpsfréttir. Menn verða
að fara og sjá þetta til þess að
skilja, og sama gildir um öli tómu
húsin í Hnífsdal.
Ferðin út í Vigur tekur um hálf-
tíma og þegar þangað er komið tek-
ur bóndinn í eynni á móti ferðalöng-
um og er hann leiðsögumaður góður
sem gengur með hópa og einstak-
linga um eyna. Mikil kyrrð ríkir og
náttúrufegurðin og stressleysið ai-
gjört. Að aflokinni göngu um eyna
er gott að koma við í gömlu bæjar-
húsunum sem hafa verið gerð upp
og þiggja þar kaffi og meðlæti hjá
húsfreyjunni.
Bátar liggja fyrir framan húsin
og æðarfuglinn lætur í sér heyra í
fjarlægð, Tjaldurinn vappar um
fjöruna í eftirlitsferðum og mávar
íljúga um. Ég sat drykklanga stund
Ógleymanlegt
ævintýri!
Stórhvalaskoðun
frá Ólafsvík
Fuglaparadís
Skelveiði og smökkun
Stykkishólmi, s. 438 1450
SIÐSUMAR DAGAR
ÍPARÍS
A ótrúlegu verði
meö franska
flugfélaginu Corsair
Brottför 23., 26. og 30.
ágúst til Parísar - heim
26/8, 30/8 og 2/9
Verð kr. 22.740 með
sköttum
Hafðu samband við
Ferðamiðstöð Austurlands
Stangarhyl 3a, 129 Reykjavík, sími 587 I 91 9.
BÆJARHUSIN og veitingastaðurinn í Vigur.
í fjörunni og horfði niður í gegnum
hið tæra vatn og minnti sú sjón mig
helzt á tærleika Adríahafsins, en við
Vigur var vatnið reyndar nokkrum
tugum gráðum kaldara, en samt
freistandi til baða. Öll ævintýri taka
sinn enda og dvölinni í Vigur lauk
þegar Konráð, hrefnuveiðimaðurinn
mikli, kom og sótti okkur á bát sín-
um og flutti til Súðavíkur. Þaðan
var haldið til ísafjarðar og síðan til
Ósvarar, gömlu verbúðarinnar, sem
gerð hefur verið upp andspænis
Bolungarvík. Yndisleg stemmning
ríkir þar og er umsjónarmaðurinn
með fróðari mönnum á íslandi og í
flokki með Þórði Tómassyni í minja-
safninu að Skógum að kunnáttu, að
öllum öðrum sagnamönnum ólöst-
uðum.
Einnig er hægt að skoða margt á
Isafirði en ef menn ætla að ná því
að renna aðeins í gegnum jarðgöng-
in flnu áður en flugvélin fer aftur til
Reykjavíkur verða menn að hafa
hraðan á. Jarðgöngin ei-u mikið og
merkilegt mannvirki og heilmikil
samgöngubót og það er þess virði
að fara akandi vestur til þess að
kynnast þeim betur af eigin raun.
Hótelið á Isafirði tekur við gestum
og veitir góðan viðurgjöming kjósi
menn að dvelja lengur enn einn dag.
Hótelið reka þau ágætishjón Ólafur
og Áslaug og hafa gert um árabil.
Það er vel þess virði að athuga
dagsferð til Vestfjarða.
Höfundur starfar sem leiðsögumað-
ur og ráðgjafi.
Nýtt rit um gönguleiðir á Kili
Fótgangandi um fjallasali
FERÐAFELAG Islands
hefur, auk árbókar sinnar,
staðið fyrir útgáfu smárita
með fræðsluefni um sögu,
náttúrufar, göngu- og
ferðaleiðir um landið. Nú
er út komið sjötta ritið
með slíku efni og nefnist
það Fótgangandi um
fjallasali, 12 gönguleiðir á
Kili.
Kjölur nýtur sívaxandi
vinsælda meðal útivistar-
fólks sem göngusvæði. Þar
á Ferðafélag Islands fímm sæluhús
á fjórum stöðum og Biskupstungna-
hreppur á þar tvö sæluhús, eins og
segir í fréttatilkynningu frá Ferða-
félaginu. í þessum sæluhúsum get-
ur göngu- og ferðafólk fengið gist-
ingu.
Kjölur er aðgengilegur vegna
Kjalvegar sem liggur sunnan frá
Gullfossi og norður í Blöndudal. Ut
frá honum eru ótal möguleikar á
skemmtilegum gönguleið-
um til allra átta.
Höfundur að hinu nýja
Kjalriti Ferðafélagsins er
Arnór Karlsson, bóndi í
Arnarholti í Biskupstung-
um, en hann er nákunnug-
ur öllum staðháttum á Kili
eftir fjölmargar ferðir sínar
um svæðið síðustu fjóra
áratugi, m.a. við fjárleitir. I
ritinu lýsir Arnór tólf
áhugaverðum gönguleiðum
°g fylgja öllum lýsingum
myndir og staðfræðikort. Um teikn-
ingu kortanna sá Guðmundur Ó.
Ingvarsson, en prentsmiðjan Stein-
dórsprent-Gutenberg sá um prentun
ritsins sem er 32 blaðsíður að stærð.
Það er von Ferðafélags íslands
að þetta fræðslurit verðu göngufólki
kærkomin leiðsögn um forvitnilegar
slóðir. Ritið er til sölu á skrifstofu
Ferðafélagsins og í helstu bóka-
verslunum.
NYTT rit um
gönguleiðir á Kili.
• JVIöguIeíkí á ævintýraferð í Flatey ag auka gistinótt á
Hótel Húsavik á aðeins 4.900 pr. mann.
■ Pantið tímanlega í síma 464 1220