Morgunblaðið - 20.08.1998, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1998 21
FBI
leitar á
hóteli í
Nairobi
Nairobi. Reuters.
FULLTRÚAR bandarísku alríkis-
lögreglunnar, FBI, réðust inn á hót-
el í Nairobi, höfuðborg Kenýa, og
fundu þar vísbendingar um
sprengjusmíði, eftir að hafa fengið
ábendingu frá manni sem grunaður
er um aðild að tilræðinu. Kenýska
blaðið The Nation greindi frá þessu
í gær.
Blaðið sagði að sprengjan, sem
sprakk við sendiráð Bandaríkjanna
í Nairobi, hefði verið búin til á hót-
elinu. Starfmaður Hilltop-hótelsins
staðfesti við fréttastofu Reuters að
lögreglumenn hefðu komið á hótelið
á þriðjudag og handtekið fram-
kvæmdastjóra þess, James
Ng’anga, en starfsmaðurinn kvaðst
ekki vita hvað lögreglumennirnir
hefðu fundið á hótelinu.
Hvorki FBI né kenýska lögregl-
an vildu segja nokkuð um frétt The
Nation. Blaðið hafði eftir ónafn-
greindum heimildamönnum að
sprengjan, sem varð 247 manns að
bana og særði rúmlega 5.000, hefði
verið smíðuð í tveim herbergjum á
hótelinu. Á þriðjudag hefðu 15 full-
trúar frá FBI og sex kenýskir lög-
reglumenn innsiglað hótelið og leit-
að þar dyrum og dyngjum í tvær og
hálfa klukkustund.
Hafði blaðið eftir heimildamanni
sínum að umrædd tvö herbergi
hefðu verið rannsökuð í þaula en út-
lit væri fyrir að sprengjusmiðirnir
Reuters
NOKKUR mannfjöldi var saman kominn við Hilltop-hótelið í miðborg
Nairobi í gær.
hefðu tekið vandlega til eftir sig.
Blaðið birti mynd af FBI-fulltrúa að
bera út kassa sem sagður var inni-
halda „mikilvægai- vísbendingar“.
Þrír sagðir hafa framið
sjálfsmorð í tilræðinu
Aðstoðarframkvæmdastjóri hót-
elsins sagði fréttamönnum í gær að
það væri óhugsandi að sprengjan
hefði verið smíðuð á hótelinu því
tekið væri til í herbergjunum á
hverjum degi. „Við hefðum orðið
varir við [smíðina],“ sagði hann.
Blaðið sagði að Mohammed
Saddiq Odeh, sem var framseldur
til Kenýa frá Pakistan í tengslum
við sprengjutilræðið, hefði við yfir-
heyrslu játað að hafa skipulagt til-
ræðið í Nairobi. Sprenging sama
dag við bandaríska sendiráðið í
Tansaníu varð tíu manns að bana.
Sagði blaðið að Odeh, sem væri Pa-
lestínumaður, hefði bókað sig á hót-
elið 4. ágúst, en þrír samstarfs-
menn hefðu komið þangað daginn
áður.
Sprengjan hefði verið fullbúin og
komið fyrir í flutningabíl 7. ágúst,
og þá hefðu tilræðismennirnir ekið
yfir í hinn hluta borgarinnar að
sendiráði Bandaríkjanna. Tveir
aðrir slógust í förina og þrír menn
frömdu sjálfsmorð með því að
sprengja sprengjuna í bflnum, hef-
ur The Nation eftir heimildamanni
sínum. Tveir samstarfsmenn Odehs
eru enn ófundnir.
Hlutabréf lækka í verði í Rússlandi
Skuldbreyting
skammtímalána
undirbúin
Moskvu, Tókýó. Reuters.
GENGI rússnesku rúblunnar hélt
áfram að lækka í gær og verð
hlutabréfa á markaði var það
lægsta um tveggja ára skeið. Bor-
is Fjodorov, nýskipaður aðstoðar-
forsætisráðherra, frestaði til-
kynningu um fyrirkomulag end-
urskipulagningar skammtíma-
skulda ríkisins: „Við verðum til-
búnir með áætlun um breytingu
skammtímaskulda á mánudag,“
lofaði Fjodorov í gær. Talið er að
gjaldfallnar skammtímaskuldir
ríkisins, víxlar og skuldabréf,
verði greiddar með nýjum ríkis-
bréfum sem falla í gjalddaga í lok
árs 1999.
Talsmenn erlendra banka og
lánastofnana vöruðu við hug-
myndum um að mismuna erlend-
um fjárfestum í Rússlandi með
því að greiða þeim lægra verð
fyrir gjaldfallna viðskiptavíxla en
innlendum fjárfestum.
Áukinn þrýstingur
verkalýðshreyfingarinnar
Verkalýðshreyfingin beitir nú
stjómina auknum þrýstingi vegna
ógreiddra launa og krafðist þess
að skuld ríkisins við verkafólk, að
upphæð um 710 milljarðar ís-
lenskra króna, yrði vísitölubundin
svo að tryggt væri að gengis-
lækkun rúblunnar lækkaði ekki
vanskilaskuld ríkisins við laun-
þega. „Gengisfellingin og frysting
afborgana erlendra lána sanna að
efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar
hefur beðið skipbrot," var haft
eftir Mikhafl Shmakov, forseta
sambands sjálfstæðra rússneskra
verkalýðsfélaga.
Rússneski seðlabankinn hefur
fyrirskipað að munur kaup- og
söluverðs Bandaríkjadollars megi
ekki fara yfir 15%, að sögn til
þess að koma í veg fyrir spákaup-
mennsku. Sergei Dubinin seðla-
bankastjóri gi-eindi einnig frá því
í gær að bankinn hefði á réttum
mánuði eytt jafnvirði 270 millj-
arða íslenskra króna, sem fengust
frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, til
þess að styrkja rúbluna.
Útborgun láns frá
Japan verði flýtt
Sergei Kíríjenkó forsætisráð-
herra hefur farið fram á það við
Keizo Obuchi, forsætisráðherra
Japans, að fiýta útborgun láns að
jafnvirði tæplega 57 milljarða ís-
lenskra króna. Féð á að nota til
endurskipulagningar kolanámu-
iðnaðarins í Rússlandi. Stjórn
Japans sagðist mundu taka beiðn-
ina til alvarlegrar athugunar
vegna hins slæma efnahagsá-
stands í Rússlandi.
V j ri rI - 1 ~í '
Hyundai
frá kr.
Huyndai Accent er glæsilegur og rúmgóður
fjölskyldubíll á verði smábíls. Hyundai Accent
fæst bæði með 1,3 og 1,5 vél; 3, 4 og 5 dyra.
Kynntu þér Hyundai Accent, sölumenn
okkar veita allar nánari upplýsingar
995
000