Morgunblaðið - 20.08.1998, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 20.08.1998, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1998 47 BRÉF TIL BLAÐSINS Heyra má ég biskups boðskap Frá Jörmundi Inga Hansen: BISKUP hinnar íslensku þjóð- kirkju lýsti því yfir á Hólum nú um helgina að þjóðin stæði nú í fyrsta sinn í þúsund ár andspænis raun- verulegu vali milli kristni og heiðni. Ásatrúarmenn eru hér hjartanlega sammála biskupi. í fast að níu- hundruð ár nutu íslendingar ekki trúfrelsis. í nær fimm hundruð ár voru Islendingar skikkaðir til kaþ- ólsku og til lútersku í meira en þrjú hundruð ár. Þeir sem nálguðust um of hina fornu heiðríkju voru brenndir eða höggnir. Þá var ekk- ert val, en nú stendur íslensk þjóð í fyrsta sinn í þúsund ár andspænis vali, raunverulegu vali milli kristni og heiðni, kristinna og heiðinna lífsviðhorfa. Eigum við að halda áfram á þeirri braut sem við höfum fylgt svo sorglega lengi, eða taka upp aftur hinar fornu dyggðir; heiðarleika, umburðarlyndi, dreng- lyndi, hugprýði og virðingu fyrir náttúrunni og öllu því sem lifir? Við stöndum frammi fyrir raun- verulegu vali og nú í fyrsta sinn i þúsund ár leyfist oss að velja. Við skulum ekki vera í nokkrum vafa um það hvort við viljum sjá varða veg barna okkar og niðja. Þegar kristnir menn og heiðnir gerðu sitt sögulega samkomulag árið 999 treystu menn sér ekki til að velja á milli kristni og heiðni en fóru þann milliveg sem hinn heiðni lögsögu- maður lagði til, með þó nokkrum tilslökunum. Það versta var þó að hið forna trúfrelsi var afnumið um leið og kirkjunni óx fiskur um hrygg. Ekki var þó allt jafn viturlegt í ræðu biskups. Álfasögur og trölla eru honum dýrmætur arfur úr viskubrunni genginna kynslóða, en um leið varar hann sterklega við þeim. Einnig varar hann landsmenn við landvættum. Hann segir okkur að íslensk þjóð hafi verið vernduð og signd af Guði og og englum hans í öllum þeim hörmungum sem yfir oss hafa gengið undanfarin þúsund ár. I ljósi þessa verður það enn skiljanlegra að forráðamenn Spalar leiti til hinna fornu vætta, til að halda verndarhendi yfir Hvalfjarð- argöngunum. Allt gerir þetta okkur svo auðveldara um vik í því vali, sem biskup hvetur nú til. P.S. Samkvæmt mínum sögubók- um eru 942 ár síðan ísleifur Gizur- arson stofnaði kirkju í Skálholti, ekki þúsund ár eins og biskup virð- ist halda, en hvað munar um einn kepp í sláturtíðinni. JÖRMUNDUR INGI HANSEN, allsherjargoði. Sjúkravörur hf Verslvnin Remedh Athugið að verslunin er flutt úr Borgar- túni í eitt af bláu húsunmn við Fákafen. í dag, fimmtudag, frá kl. 12—17 er hægt að fá fría blóðsykurþols- og blóðþrýst- ingsmælingu. Einnig verður kynnt Human lyfjapróf og selt á staðnum. L
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.