Morgunblaðið - 20.08.1998, Page 10
10 FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Þriggja ára rannsókn á lífríki Elliðaáa stendur yfír
Rekstur rafstöðvarinnar
endurskoðaður næsta vor
Greinaröð
um Miiruvet
Basaran
TYRKNESKA dagblaðið Sabah
birtir um þessar mundir greina-
röð þar sem fjallað er um tyrk-
nesku konuna Miiruvet Basaran
Meyer, sem kom hingað til lands
með ásamt syni sínum, sem á ís-
lenskan fóður.
Að sögn Ahmets Özays blaða-
manns birtir blaðið greinar um
þessi mál fjóra daga í röð og í
dag átti að fjalla um heimsókn
mæðginanna á Bessastaði í boði
Ólafs Ragnars Grímssonar for-
seta.
Einnig er fjallað um þátt utan-
rikisráðuneytisins í máli Miiru-
vet, sem gekk að eiga barnsföður
sinn, Þráin Meyer, eftir að hún
kom hingað til lands, en fjöl-
skyldan býr nú í Þýskalandi.
Özay sagði að í greinunum væri
meðal annars greint frá því
hvernig fátæk, tyrknesk kona
fékk fjármagn hjá íslenskum að-
ilum tíl að geta gengið í hjóna-
band og haldið upp á það i fín-
asta hóteli Reykjavíkur.
HUGSANLEGT er að tekin verði
ákvörðun um að hætta rekstri raf-
stöðvarinnar við Elliðaár næsta
vor. Það veltur þó á niðurstöðum í
viðamikilli rannsókn sem nú stend-
ur yfir á lífríki ánna en laxgengd
og -veiði í Elliðaám var með
minnsta móti í fyrra og horfur fyrir
þetta ár eru svipaðar. Aðalsteinn
Guðjohnsen rafveitustjóri segir að
hagnaður hafi verið af rekstri
stöðvarinnar. Verði henni lokað
tapi Rafmagnsveitan 27 milljónum
kr. á ári.
Laxgengd í ánum hefur að með-
altali verið 2.760 laxar á ári frá ár-
inu 1933. Rekstur rafstöðvarinnar
hófst árið 1921 og var hún komin í
fulla stærð árið 1930.1 fyrra gengu
1.100 laxar í árnar og útlit er fyrir
svipaða laxgengd á þessu ári. Þetta
er í fjórða sinn sem kemur niður-
sveifla í gengd og veiði í ánum.
Fleiri seiðum sleppt
og vatnsrennsli aukið
Á fundi í stjórn veitustofnana í
gærmorgun var samþykkt tillaga
Rafmagnsveitu Reykjavíkur um að
rafstöðin verði rekin áfram næsta
vetur. Rafmagnsveitan hefur sleppt
á hverju ári 7.500 gönguseiðum í
Elliðaárnar samkvæmt sérstakri
fiskiræktaráætlun. Stjórn veitu-
stofnunar samþykkti tillögu Raf-
magnsveitunnar um að ala einnig
upp svokölluð sumaralin seiði í
göngustærð og sleppa þeim í árnar
á næsta ári. Þannig verði sleppt alls
12 þúsund seiðum að þessu sinni.
Einnig samþykkti stjórn veitu-
stofnunar að auka vatnsrennsli frá
stíflunni að rafstöðinni. Aðalsteinn
sagði að þetta hefði tap í för með
sér fyrir Rafmagnsveituna. Loks
samþykkti stjórnin að auk þessara
aðgerða verði gætt ýtrustu var-
færni þegar hleypt er úr lóninu á
vorin en gagnrýnt hefur verið að of
miklu vatni hafi verið hleypt í árnar
í einu þegar starfsemi stöðvarinnar
er lögð niður yfir sumartímann.
I samþykkt stjórnarinnar segir
ennfremur að við ákvörðun um
áframhaldandi rekstur stöðvarinn-
ar verði tekið mið af niðurstöðum
rannsókna á lífríki Elliðaá sem
staðið hafa yfir síðastliðin þrjú ár.
Niðurstöðumar eiga að liggja fyrir
næsta vor.
Aðalsteinn telur litlar líkur til
þess að niðurstöðurnar verði á þá
leið að ákveðið verði að hætta
rekstri rafstöðvarinnar. Hann
bendir á að fjölmörg önnur áreiti
önnur en rafstöðin séu við árnar,
t.a.m. hafnarmannvirki við árósana,
uppfyllingar við strönd, iðnaðar-
svæði beggja vegna ósanna, vega-
mannvirki, afrennsli af götum í árn-
ar og fleira.
„Eg tel því að meiri líkur séu til
þess að stöðin verði rekin áfram en
látum okkur sjá hvað þessi mikla
rannsókn sýnir okkur næsta vor,“
segir Aðalsteinn.
Jarðskjálftar í nágrenni Grindavíkur
Stærsti kippur frá 1975
JARÐSKJÁLFTI sem mældist 3,2
stig á Richter-kvarða og áttí upptök
sín í vesturhlíðum Fagradalsfjalls
varð skömmu eftir klukkan 1 í fyrr-
inótt. Margir smærri fylgdu í kjöl-
farið og héldu þeir áfram fram eftir
morgni.
Skjálftinn er sá stærsti í hrinu
sem hófst á mánudag norður af Keili
og síðan hefur færst til Kleifarvatns
en í gær var óróinn mestur austan til
í Fagradalsfjalli. Fannst skjálftínn í
fyrrinótt bæði í Grindavík og Svarts-
engi og einnig bárust tilkynningar
frá Keflavík og Hafnarfirði.
Búist við áframhaldandi óróa
Að sögn Ragnars Stefánssonar
jarðskjálftafræðings er þessi skjálfti
sá stærstí síðan árið 1975 á þessum
slóðum þó svo að Reykjanesskaginn
sé þekkt skjálftasvæði. Hann segir
jafnframt að þessa skjálftahrinu megi
tengja skjálftunum sem áttu sér stað
á Hengilssvæðinu í sumar. „í fram-
haldi af því varð plötuskrið á Reykja-
nesskaga sem orsakar þessa skjálfta
nú og má búast við áframhaldandi
óróleika á næstunni," sagði hann í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Morgunblaðið/Veðurstofan
ÖFLUGASTI skjálftinn átti sér stað klukkan 1.04 f gærnótt og voru
upptök hans í vesturhlfðum Fagradalsfjalls um 7 kflómetra frá Grinda-
vík. Jarðskjálftamælar Veðurstofunnar mældu hann 3,2 á Richter-
kvarða og fylgdu margir smærri í kjölfarið. Á myndinni er sýnd
skálftahrinan sem hófst á mánudaginn.
83.9“
Bætið úr bráðum vanda
„heimilislausra“
• Virðulega frú frá Vestfjörðum bráðvatar sérbýli ( Mosfellsbæ. Stað-
greiðsla í boði.
• Duglegan lagerstjóra vantar strax 4ra—5 herb. (búð I Bökkunum
(Neðra-Breiðholti).
• Ungur endurskoðandi á uppleið og frændi hans, sem er arkitekt, eru
báðir að leita að sérhæð eða sórbýli í austur- og vesturbæ á verðbil-
inu 8—12 millj. Góðar greiðslur.
• Ráöuneytisstarfsmann vantar 3ja—5 herb. (búð í Reykjavík, vestan
Elliðaáa. Verð 6-9 millj. Allt skoöað.
• Háskólaprófessor, sem hleypur mikið, leitar að einbýli eða raðhúsi f
vesturbæ eða Kópavogi. Gott úthald, góðar greiðslur.
• Einnig bráðvantar okkur fyrir nokkra aðila, sem eru búnir að selja
eignir slnar, 3ja og 4ra herb. (búðir í Grafarvogi og Hraunbæ, 4ra—6
herb. íbúöir (Selási og Kópavogi.
• Vel stæðan sægreifa frá Snæfellsnesi vantar strax einbýlis- eða rað-
hús á verði allt að 20 millj. á höfuðborgarsvæðinu frá Mosfellsbæ til
Hafnarfjarðar.
Ef þið hafið samkennd með þessu fóiki, þá hafið samband strax við
kraftmikla og eldhressa sölumenn, Bárð, Ingólf, Þórarinn eða Boga,
á Valhöll, fasteignasölu, Síðumúla 27a, sími 588 4477.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
FRÁ Netagerðinni Ingólfi, þar sem allir vinna nú fyrir Keikó,
Vinna fyrir Keikó á Þórshöfn
Þórshöfn. Morgunblaðið.
HJÁ Netagerðinni Ingólfi á Þórs-
höfn er alltaf í nógu að snúast og
er nú unnið þar við að búa til ör-
yggisgirðingu sem verður
strengd á milli Ystakletts og
Heimakletts. Ef svo óheppilega
vildi til að hvalurinn Keikó slyppi
úr búri sínu þá er girðingu þess-
ari ætlað að varna því að hann
fari út á rúmsjó.
Að sögn netagerðarmanna er
girðingin úr trollneti með 330
mm möskvastærð. Hún verður
275 metrar á lengd og 13,5 metr-
ar á dýpt svo starfsmennirnir
halda stíft áfram svo öryggi
Keikós verði tryggt þegar hann
kemur til Vestmannaeyja.
Farsímanúmer Tals
skráð í símaskrá
PÓST- og fjarskiptastofnun hefur
tilkynnt Landssíma íslands hf. að
fyrfrtækinu sé heimilt að skrá
áskrifendur í GSM-farsímakerfi
Tals hf. í símaskrá að því tilskildu
að áskrifendurnir óski þess sjálfir
skriflega. Tölvunefnd hefur sam-
þykkt þessa afgreiðslu mála.
Fyrir skráninguna skal taka
sams konar gjald og tekið er fyrir
aukalínur í símaskrá, enda sé það í
samræmi við tilkostnað. Þetta
kemur fram í fréttatilkynningu frá
Póst- og fjarskiptastofnun.
Arnþór Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri sölu- og markaðs-
sviðs Tals hf., segir að vegna mikils
munar á markaðsstöðu fyrirtækj-
anna hyggist Tal hf. af viðskipta-
legum ástæðum ekki gefa Lands-
símanum skrá yfir sína viðskipta-
vini. Hins vegar muni það hafa
milligöngu um skráningu í síma-
skrá fyrir þá viðskiptavini sem
þess óska. „Við viljum engu að síð-
ur beita okkur fyrir því að komið
verði á fót einni upplýsingaveitu
um öll símanúmer, í samstarfi við
Landssímann eða þriðja aðila.“
Hrefna Ingólfsdóttir, blaðafull-
trúi Landssímans, segir að Lands-
síminn hafi alla tíð viljað taka við
númerum Tals hf., en hafi beðið
eftir að fyrirtækið kæmi sjálft með
þau. „Við teljum eðlilegan fram-
gangsmáta að Tal hf. hafi milli-
göngu um þetta fyrir sína við-
skiptavini, en þeir hafa fram að
þessu ekki látið okkur hafa aðgang
að þessum upplýsingum. Mér
finnst eðlilegt að skráningin sé
innifalin í afnotagjaldi þeirra eins
og hjá okkur, þannig að fólk sé
ekki að borga sérstaklega fyrir
það. Þetta er ekki þjónusta sem við
rekum í hagnaðarskyni heldur er
gjaldtakan til þess að standa
straum af kostnaði sem óneitan-
lega er af henni.“
Hrefna segir að annars staðar í
Evrópu þar sem símaþjónusta hafi
verið gefin frjáls hafi stærsta síma-
fyrirtækinu verið falið að sinna
þessari þjónustu fyrir öll önnur og
ekki hafi komið upp vandamál
végria þess.
Sýknaður af
ákæru um
manndráp
ÖKUMAÐUR bifreiðar sem í
október í fyrra lenti í árekstri á
brúnni yfir Norðfjarðará, þar
sem kona á áttræðisaldri beið
bana, var í fyrradag í Héraðs-
dómi Austurlands sýknaður af
ákæru um manndráp af gáleysi
og umferðarlagabrot.
Ákærði var einn á ferð í bifreið
sinn á leið í suðurátt þegar
áreksturinn varð, en hjón voru í
hinum bílnum. Ökumennirnir
urðu ekki varir við hvor annan
fyrr en báðir voru komnir inn á
brúna.
Ákærði var sakaður um að hafa
sýnt ónóga aðgæslu þegar hann
keyrði inn á brúna, en útsýni var
takmarkað vegna sólskins úr
suðri og blindhæðar.
í niðurstöðu dómsins segir að
ekkert hafi komið fram sem bendi
tíl þess að ákærði hafi ekið of
hratt miðað við aðstæður, ekkert
hafi verið að bifreið hans sem
skert hafi getað aksturseiginleika
hennar og vafi leiki á um það
hvort hinni bifreiðinni hafi verið
ekið með ljósum.