Morgunblaðið - 20.08.1998, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 20.08.1998, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1998 AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ Svend Asmussen kvartettinn heimsækir Akureyri Ferðafélag Akureyrar Ferð í Ólafsfjörð og Hvanndali FERÐAFELAG Akureyrar stend- ur fyrir ferð í Ólafsfjörð og Hvann- dali helgina 22.-23. ágúst nk. Upp- haflega átti að fara þessa ferð um síðustu helgi en henni var frestað um viku vegna veðurs. Lagt verður af stað kl. níu á laug- ardagsmorgun með rútu frá skrif- stofu Ferðafélagsins að Strandgötu 23 og ekið út að Ytriá í Ólafsfirði. Gengið verður út í Fossdal uppi á Hvanndalabjargi og þaðan í Hvann- dali, þar sem verður gist. Á sunnu- dag er gengið yfir Víkurbyrðu í Héðinsfjörð og um Rauðskörð aftur til Ólafsfjarðar. Þá stendur Ferðafélagið fyrir dagsferð í Kóngsstaðadal og Vatns- dal á laugardag. Þar er um að ræða um 20 km innansveitarleið milli Skíðadals og Svarfaðardals og tek- ur sú ferð um 8-9 klst. Lagt verður af stað frá skrifstofu félagsins kl. átta. Morgunblaðið/Vernharður Linnet SVEND Asmussen og félagar hans á tónleikum á Hótel Sögu. Norðlendingum gefst nú kærkomið tækifæri að hlýða á þá félaga á tónleikum á Akureyri. Morgunblaðið/Bjom Gislason Minjasafnskirkjan Söngvökum að ljúka I SUMAR hafa verið haldnar Söngvökur á þriðjudags- og fímmtudagskvöldum í Minjasafns- kirkjunni á vegum Minjasafnsins á Akureyri. Á Söngvökunum eru flutt sýnishorn íslenskrar tónlistarsögu, svo sem rímur, tvíundarsöngur, sálmar og eldri og yngri sönglög. Flytendur eru Rósa Kristín Bald- ursdóttir og Hjörleifur Hjartarson, hið þekkta söngfólk úr Tjamar- kvartettinum, og hefur góður rómur verið gerður að flutningi þeirra. Nú þegar líður að hausti fer Söngvök- unum fækkandi og einungis eru þrjár slíkar eftir í kvöld, fímmtu- daginn 20. ágúst, og á þriðjudag og fimmtudag í næstu viku. Dagski-áin hefst kl. 21 og stendur í um klukku- stund. Miðaverð er 700 krónur. Á myndinni eru Rósa Kristín og Hjörleifur að flytja dagskrá sína fyrir gesti i Minjasafnskirkjunni sl. þriðjudagskvöld. DANSKI fíðlusnillingurinn Svend Asmussen og félagar hans halda tónleika f Samkomuhúsinu á Akureyri sunnudaginn 23. ágúst nk. kl. 20.30. Fáir djassleikarar hafa verið vinsælli á Islandi en Svend Asmussen, enda hefur tón- list hans hljómað í íslensku út- varpi í rúma hálfa öld. Svend er nú 82ja ára gamall og hefur leikið djass í nær sjötíu ár. Þó er engin ellimörk á honum að finna og tónlist hans jafn fersk og sveifla hans jafn sterk og fyrrum. Svend Asmussen er lif- andi goðsögn og fyrsti norræni djassleikarinn sem verður alþjóð- Ieg stjarna. Hingað kemur hann nú með kvartett sinn í þriðja sinn en Tónleikar í Samkomu- húsinu kvartettinn var nýstofnaður er Svend kom í fyrsta skipti til ís- lands árið 1993. Hann skipa auk Svends þeir Jacob Ficher gítar- leikari, Jesper Lundgaard bassa- leikari, og Aage Tanggaard trommari. Snjallir hljóðfæraleikarar Jacob Ficher er rétt þrítugur að aldri og einn fremsti gítar- isti Norðurlanda. Þetta er fímmta íslandsheimsókn hans. Jesper Lundgaard þarf vart að kynna en segja má að hann hafi tekið við hlutverki Niels- Hennings í dönskum djassi og leikið með óteljandi banda- rískum djassstjörnum. Aage Tanggaard er í hópi fremstu trommuleikara Dana af yngri kynslóðinni og hann hefur leikið með fjölda hljómsveita um alla Evrópu. Á efnisskrá Svends Asmussens er jafnt nýtt efni sem klassískt svíng, brasih'skar sömbur og nor- ræn þjóðlög. Forsala á tónleik- ana í Samkomuhúsinu fer fram í Bókvali en miðaverð er 1.200 krónur. Áhugasöm börn í umferð- arfræðslu Ráðstefna um gæðastjórnim í menntakerfínu í Menntaskólanum á Akureyri Að hvaða ár- angri er stefnt í skólastarfí? RÁÐSTEFNA um gæðastjórnun í menntakerfinu, undir yfírskriftinni, Að hvaða árangri er stefnt í skóla- starfi?, verður haldin í Menntaskól- anum á Akureyri dagana 21. og 22. ágúst nk. Forseti Islands, herra Olafur Ragnar Grímsson er vernd- ari ráðstefnunnar og mun hann ávarpa ráðstefnugesti við setningu hennar kl. 9.00 á morgun, fóstudag- inn 21. ágúst. Tveir erlendir gestafyrirlesarar Þetta er önnur ráðstefnan sem haldin er um gæðastjórnun í ís- lensku menntakerfi á vegum Há- skólans á Akureyri, Verkmennta- skólans á Akureyri, Menntaskólans á Akureyri, Skólaþjónustu Eyþings og Gæðastjórnunarfélags Norður- lands. Það er fátítt ef ekki einsdæmi að ráðstefnan nær til allra skóla- stiga. Búist er við allt að 200 ráð- stefnugestum af öllum skólastigum en þess er einnig sérstaklega vænst að fulltrúar allra sveitastjórna, skólanefnda og foreldrafélaga sæki ráðstefnuna. Tveir erlendir gestir verða aðal- fyrirlesarar, þeir David Hargrea- ves, prófessor við Háskólann í Cambridge á Englandi og John MacBeath, prófessor við Háskólann í Strathclyde í Skotlandi. David Hargreaves, sem er virtur fræði- maður á sviði skólaþróunar og skólamenningar, hefur starfað í ýmsum nefndum og ráðum á vegum breskra skólayfirvalda. Hann á nú sæti í nefnd á vegum breska menntamálaráðherrans sem fjallar um staðla og gæðamál innan breska skólakerfisins. John MacBeath hefur mikla reynslu af starfi fyrir skoska menntamálaráðuneytið auk starfa innan ýmissa fjölþjóðlegra stofnana eins og UNESCO og Evrópusam- bandsins. McBeath vinnur nú að umfangsmikilli rannsókn á umbóta- starfi í áttatíu skólum en hann er sérfræðingur á sviði gæðamats í skólakerfinu. Yfír 20 fyrirlestrar Eftir hádegi á morgun föstudag og fyrir hádegi á laugardag verða fluttir a.m.k. 24 fyrirlestrar samtím- is í 3-4 sölum. Meginmarkhópar þeirra fyrirlestra verða skólastigin fjögur auk þess sem fjallað verður um árangursstjórnun. Það er stjórnunarstefna sem er mjög að ryðja sér til rúms í opinberri þjón- ustu hérlendis, bæði á vegum ríkis og sveitarfélaga. Fyrirlestrarnir um árangursstjórnun eiga því erindi við alla og er því ekki beint að sérstök- um markhópi. Pallborðsumræður I lok ráðstefnunnar verða pall- borðsumræður sem dr. Guðmundur Heiðar Frímannsson, forstöðumað- ur kennaradeildar HA stýrir. Til pallborðsumræðnanna verða fengn- ir fulltrúar allra skólastiga auk þess sem erlendu fyrirlesararnir tveir, Hargreaves og McBeath, munu taka þátt í þeim. Pallborðsumræð- urnar fara fram á ensku og er ætlað að vera nokkurs konar samantekt á efni ráðstefnunnar og tækifæri til að horfa til framtíðar. Skráningu á ráðstefnuna lýkur í dag, 20. ágúst en skráning fer fram í síma 463-0560. Hafnarstjóri Hafnasamlags Eyjafjarðar BS Morgunblaðið/Björn Gíslason Sjö umsóknir bárust SJÖ umsóknir bárust um starf hafnarstjóra Hafnasamlags Eyja- fjarðar BS. en umsóknarfrestur rann út fyrir helgina. Umsækjendur eru; Eggert Bolla- son, Gunnþór Eyfjörð Sveinbjöms- son, Hallgrímur Pétursson, Helgi Sigfússon, Jóhann Ólafsson, Sigurjón Sigurjónsson og Om Gunnlaugsson. Hafnarstjóri hefur daglegt eftirlit með rekstri og stjórnun þeirra hafna innan hafnasamlagsins sem em á Ólafsfirði, Dalvík, Árskógs- sandi, Hauganesi og Hrísey. 1Í«sT»Snu Sýnt á RenniáerkstœSinu Akureyri Á sama tíma að ári föstud. 21/8 kl. 20.30 laugard. 22/8 kl. 20.30 Fjögur hjörtu fimmtud. 27/8 kl. 20.30 föstud. 28/8 kl. 20.30 laugard. 29/8 kl. 20.30 MIBASALA ÍSÍMA 1)61-3690 UMFERÐARSKÓLINN stendur fyrir námskeiðum í umferðar- fræðslu fyrir 5 og 6 ára börn í Eyja- firði þessa dagana. Umferðarskól- inn er samstarfsverkefni Umferðar- ráðs, lögregiu og sveitarfélaga og unnin í samvinnu við starfsfólk leik- skóla og grunnskóla. Kennslan er í höndum lögreglu- manna og leikskólakennarara og hvert námskeið stendur í um eina klukkustund, tvo daga í röð. Á myndinni eru áhugasöm börn í um- ferðarfræðslu í Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit. Senn líður að hausti og þá hefja 6 ára börn skólagöngu auk þess sem slysahætta eykst þá vemlega. Og því miður slasast mög böm í um- ferðinni ár hvert. AKSJÓN Fimmtudagur 20. ágúst 21.00^-Sumarlandið Þáttur fyrir ferðafólk á Akureyri og Akureyr- inga í ferðahug.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.