Morgunblaðið - 20.08.1998, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1998 23
ERLENT
Verstu flóðin í Kína í áratugi
Opinberar dánartölur
þykja tortryggilegar
Peking. Reuters.
TVÆR vikur eru nú liðnar síðan kínversk
stjórnvöld gáfu síðast út dánartölur vegna
flóðanna í sumar, og hefur það vakið grun um
að mun fleiri en tvö þúsund manns hafí látið
lífíð, eins og yfirvöld halda fram, ekki síst
vegna þess að í Kína er löng hefð fyrir því að
stjórnvöld falsi opinberar tölur.
Haft hefur verið eftir kínverskum blaða-
mönnum, sem fylgst hafa með flóðunum, að
yfír tíu þúsund manns hafí látist eftir að flóð-
garðar brustu í Jiangxi-héraði fyrr í sumar.
Einnig þykir það tortryggilegt að yfirvöld
hafa meinað vestrænum blaðamönnum að
ferðast um þau svæði sem verst hafa orðið úti.
Fréttaflutningur kínverskra ríkisfjölmiðla
þykir renna stoðum undir þessar grunsemdir.
Lítið hefur verið gert úr dauðsföllum og tjóni
af völdum flóðanna, en megináhersla verið
lögð á dugnað hermanna við björgunarstörf
og heimsóknir fyrirmanna á flóðasvæðin.
Sun Shaopin, háttsettur embættismaður í
kínverska innanríkisráðuneytinu, vísaði öllum
slíkum vangaveltum á bug á þriðjudag. Hann
sagði að jafnvel þótt flóðin í ár væru þau
Reuters
VERKAMENN reyna að bjarga vélabúnaði
frá eyðileggingu í flóðum í Jilin í NA-Kína.
mestu í áratugi hefðu tiltölulega fáir látið lífið,
vegna þess að vatnsmagn í Jangtse-fljóti hefði
aukist hægt, og þvi hefði gefist nógur tími til
að rýma hættusvæði. Aðspurður hversvegna
ráðuneytið hefði ekki gefíð út nýjar dánartöl-
ur í tvær vikur svaraði hann að senn yrði boð-
að til blaðamannafundar.
Kínversk stjórnvöld
alræmd fyrir falsanir
Stjórnvöld í Kína eru alræmd fyrir að falsa
opinberar tölur. Aðstoðarforsætisráðherrann
Wen Jiabao viðurkenndi jafnvel í júní sl. að
embættismenn hefðu orðið uppvísir að því að
hagræða tölfræðiupplýsingum. Frægasta
dæmið um slíkar falsanir mun vera þegar
hungursneyð gekk yfir Kína í upphafi 7. ára-
tugarins, í kjölfar þess að Maó fonnaður skip-
aði bændum að hætta að rækta akra sína en
einbeita sér þess í stað að stálframleiðslu. Op-
inberar tölur gáfu þá til kynna að uppskera
væri með mesta móti, á sama tíma og milljón-
ir manna dóu úr hungri.
Reuters
Kohl berst í
Bæjaralandi
HELMUT Kohl, kanzlari Þýzka-
lands, strýkur klút yfir andlitið
áður en hann hélt ræðu í gamla
kastalanum í Bayreuth í Bæjara-
landi í gær. Ræða kanzlarans
markaði upphaf lokaspretts kosn-
ingabaráttu flokks hans, Kristi-
legra demókrata, og bæverska
systurflokksins CSU fyrir kosn-
ingarnar til Sambandsþingsins 27.
september og til þings Bæjara-
lands tveimur vikum fyrr.
Kohl ávarpaði 1.500 manna
kosningafund í Bayreuth, sem er
einna kunnust fyrir Wagner-há-
tíðina sem þar fer fram ár hvert,
en hann hyggst troða upp á sam-
bærilegum fundum út um allt
Bæjaraland á næstu dögum.
Systurflokkur CDU í Bæjara-
landi, CSU, berst fyrir því að við-
halda hreinum meirihluta á þingi
sambandslandsins, sem flokkur-
inn hefur haft í áratugi. Kohl vís-
aði í ávarpi sínu til „rauðu hætt-
unnar“, sem að hans sögn fylgdi
því að gefa jafnaðarmannaflokkn-
um SPD atkvæði sitt, þar sem
dæmin sýndu að hann gerði sér
að góðu samstarf við arftakaflokk
austur-þýzkra kommúnista, PDS,
ef þannig bæri undir.
BOMRG
Gæði á góðu verði!
Skútuvogi 12A, s. 5681044.
xpert
- fagmannlegur!
• sendibíll eöa 9 manna smárúta
• 4m3 flutningsrými og 815 kg burðargeta
• 1900 cc dísilvél, loftpúði, fjarstýrðar samlœsingar,
rafmagn í rúðum o.fl.
Verð frá aðeins kr. 1.522.891 án vsk.
Verð kr. 1.896.000 með vsk.
oxer
til
slaginn!
1 sendibíll
1 3 lengdir og hár eða lágur toppur
1 2.0 lítra bensfnvél eða 2.5 lítra dfsilvél með túrbínu
* framdrif og loftpúði sem staðalbúnaður
1 fjórhjóladrif, ABS-bremsur, vinstri hliðarhurð, gluggar
o.fl. sem aukabúnaður
Verð frá aðeins kr. 1.574.297 án vsk.
Verð kr. 1.960.000 með vsk.
• grlndarbfll meö einföldu eða tvöföldu húsi
• 3 lengdir
• 2.0 lítra bensínvél eða 2.5 lítra dísilvél með túrbínu
• framdrif og loftpúði sem staðalbúnaður
• fjórhjóladrif, ABS-bremsur o.fl. sem aukabúnaður
Verð frá aðeins kr. 1.358.233 án vsk.
Verð kr. 1.691.000 með vsk.
PEUGEOT
LJÓN á VEGINUM!
Sendlbílarnir frá Peugeot eru rúmgóðir og hafa mikla burðargetu. Mikið er
lagt upp úr góöum aðbúnaði ökumanns og vönduðum sœtum því góð
vinnuaðstaða tryggir betri líðan og aukin afköst. V innubílarnir frá Peugeot
hafa fengið mjög góða einkunn fyrir gott aðgengi, stórar hurðirog einstaklega
góða vinnuaðstöðu. Peugeot er framtíðarvinnustaður.
Veidu rétta vinnufélagann, láttu Ijónlð vinna með þér. Veldu Peugeot.
Ljónviljugir
vinnufélagar!
ir \/inni ifólnni Innrf nr*i \/prn trni Kti ir nn
Góður vinnufélagi þarf að vera traustur og
áreiðanlegur. Hann þarf að vera Ijónsterkur
og snöggur og vinna eins og Ijón
Góður vinnufelagi er gulls ígildi.
’artner
vinnur með þér!
• 3m3 flutningsrými og 600 kg burðargeta
• 1100 cc bensínvél eða 1800 cc dísilvél
• loftpúði, blaðahaldari í mœlaborði og niðurfellanlegt
farþegasœti sem eykur flutningsgetu og getur nýst
sem skrifborð o.fl.
Verð frá aðeins kr. 947.791 án vsk.
Verð kr. 1.180.000 með vsk.
oxer
grunni!