Morgunblaðið - 20.08.1998, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1998 37
AÐSENDAR GREINAR
Sölumaður
kemur heim
FRAMLEIÐANDI: Kári Stef-
ánsson og erlendir fjárfestar.
Höfundur: Kári Stefánsson.
Leikstjórn: Kári Stefánsson.
Handrit: Kári Stefánsson, ýmis
ráðuneyti og fjölmiðlar. Tónlist:
Kári Stefánsson: „Þrálátur ein-
leikur á þjóðarsál.“ Leikendur:
Kári Stefánsson, ráðherrar,
þingmenn, fjölmiðlafólk og lækn-
ar. Leiksvið: Alþingi, ráðuneyti
og íslenskir fjölmiðlar. Áhorf-
endur: Islenska þjóðin, íslenskir
og erlendir fjölmiðlar.
Um þessar mundir hefur hinn
tragíkómíski farsi, Sölumaður
kemur heim, verið sýndur mánuð-
um saman á hinum ýmsustu leik-
sviðum þjóðlífsins. Sumir lands-
menn hafa séð farsaun margsinnis,
að hluta til eða í heild sinni, og eru
margir þeirra þegar orðnir dauð-
leiðir á stykkinu. Aðrir ein enn
áhugasamir og bíða næsta þáttar
með óþreyju. Og með sérstöku til-
liti til þehTa síðarnefndu þykir rétt
að taka saman það helsta úr þeim
þáttum, sem þegar hafa verið
sýndir.
í fyrsta þætti farsans sjáum við
hvar Sölumaðurinn er kominn
heim. Hann er þá þegar í forsvari
fyrir nýju íyrirtæki, sem ætlar sér
stórvirki á sviði heilbrigðismála
heimsins. Meðal annars að rétta af
allan hallarekstur í heilbrigðisþjón-
ustu á Islandi. Og stuttu síðar birt-
ist sjálfur forsætisráðherrann okk-
ar á senunni, til að votta viðstödd-
um virðingu sína og stuðning, þeg-
ar Sölumaðurinn undirritar tíma-
móta-stórsamning við erlenda auð-
Farsi á heilbrigðissviði
og „trafflkómedía“ eru
heiti, sem Gunnar Ingi
Gunnarsson gefur um-
ræðunni um gagna-
grunninn.
jöfra. Með undirskrift sinni veitir
Sölumaðurinn erlendum lyfjarisa,
Hófman og Rok, óhindraðan að-
gang að væntanlegu miðlægu
einkasafni sínu, þar sem gejmidar
verða dýrmætar og dulgerðar upp-
lýsingar um alla samansafnaða
eymd íslensku þjóðarinnar. Og fyr-
ir þetta fær Sölumaðurinn fúlgur
fjár. í öðrum þætti er okkur sýnt,
hvemig gera á Alþingi íslendinga
að afgreiðslustofnun fyrir utanað-
komandi og aðsent lagafrumvarp,
þar sem verðandi einkaleyfíshafi á
væntanlegu sjúkdómasafni biður
um flýtimeðferð á frumvarpinu, til
að uppíylla skuldbindingar sínar
gagnvart þeim Hófman og Rok,
sem bíða spenntir og óþolinmóðir
eftir genasúpu hins miðlæga einka-
banka Sölumannsins. En þá verður
allt vitlaust.
Og í þriðja þætti sjáum við
hvernig Læknamafían setur undir
sig afturfætm-na og mótmælir öllu
saman. Og svipað gera margir aðr-
ir. Sölumaðurinn og heilbrigðisráð-
herrann þjóta forviða fram á sviðið
og flytja blessunarorð. Segja frek-
ari umfjöllun um málið vera óþarfa,
enda frágengið og komið í tíma-
Haustsprengja
Heimsterða til
Costa del Sol
2. og 9. sept.
frá kr. 29.932
Tryggðu þér síðustu
sætin í haust
á ótrúfegu verði
Nú getur þú tryggt þér hreint ótrú-
legt tilboð Heimsferða í haustsólina
til Costa del Sol. Við höfum nú
tryggt okkur viðbótargistingu í september á einum
aðalgististað Heimsferða á hreint frábæmm kjörum. Hér getur þú notið
alls hins besta við frábærar aðstæður og valið um að búa í studio eða
íbúð með einu svefnherbergi. Á hótelinu er stór og fallegur garður, tvær
sundlaugar, tennisvellir, líkamsrækt, veitingastaðir og verslun. Tryggðu
þér síðustu sætin í sólina í haust á frábæri verði og á meðan á dvölinni
stendur nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða allan tímann.
Verð kr.
29.932
M.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára,
vikuferð El Pinar, 2. eða 9. sept. íbúð
m. 1 svefnh.
Verð kr.
39 932 \ k, 39.960
M.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára,
2 vikur E1 Pinar, 2. eða 9. sept. fbúð
m. 1 svefnh.
M.v. 2 í íbúð, vikuferð, 2 eða 9.sept.
E1 Pinar, studio.
Austurstræti 17, 2. hæð ♦ sími 562 4600
þröng. Að þeir Hófman
og Rok séu alveg að
missa áhugann á kóln-
andi súpunni og að
þeir meini bissniss
strax. Læknamafían
og aðrir mótmælendur
heimta samt fundi um
frumhlaupið og heil-
brigðisráðherrann
veifar hvítu flaggi. Pax
vobis cum! Let’s talk!
Hér er gert hlé.
Fjórði þáttur byrjar
með fúkyrðum. Mót-
mælandi læknar eru
kallaðir aurasjúkir öf-
undarmenn, afbrýði-
samir afturhaldsseggir
og annað það, sem talið
er til þess aumasta í sköpunarverk-
inu. Argumentum ad hominem, eins
og á tímum Cícerós. Hér er Sölu-
manninum greinilega misboðið.
Hann mótmælir því, að einkabanki
hans muni eyðileggja til frambúðar
hið viðkvæma samband læknis og
sjúklings, og hinu einnig, að ný
kennitala dugi ekki til að fela aum-
ingjagenin í einkabankanum fyrir
tölvuþrjótum og Ríkisendurskoð-
anda. Hann segir bankann sinn
meira að segja bæta núverandi
ástand, þar sem sjúkraskýrslur
liggi frammi á biðstofum lækna - til
aflestrar. Og sjálfur ráðherrann
segir, að einkaleyfið sé alls ekki
bara handa Sölumanninum einum.
Það sé misskilningur. En að hann
sé hins vegar frumkvöðull að utan,
og eigi því auðvitað að fá góssið. Og
að hitt sé líka misskilningur, að
Gunnar Ingi
Gunnarsson
einkaleyfi Sölumanns-
ins útiloki aðra vísinda-
menn frá því að kom-
ast í genasúpuna. Allir
aðrir muni geta komist
í öll hólf bankans -
alltaf. Að einkaleyfið
gangi aðeins út á það
að koma reglu á
biðraðir við bankann. í
fimmta þætti eru við-
urkennd alvarleg mis-
tök við gerð fyrstu út-
gáfu lagafrumvarpsins
og þar kemur síðar
fram endurforritaður
heilbrigðisráðherra,
sem veifar nýju og
endursömdu plaggi
handa þeim Hófman
og Rok og Alþingi Islendinga. Um
miðbik þáttarins stöðvar tölvupabbi
tvívegis allan rekstur Sölumannsins
á Nóatúnssvæðinu og skammast út
í það, að menn hafi farið strákslega
með nokkur afvötnuð alkagen frá
SÁA. Og enn mótmæla Læknamafí-
an og kompaní. I lok þáttarins kem-
ur fram, að flestallir núlifandi og
heilsuhraustir Islendingar dái og
styðji Sölumanninn og vilji því endi-
lega selja Hófman og Rok sem mest
af upplýsingum um alla aumingja
landsins á hvaða verði sem er.
Þannig væri loks hægt að hafa eitt-
hvað upp úr landlægri eymdinni. Og
að á meðal þessara stuðningsmanna
Sölumannsins, segir Gallúp, séu þau
20% landsmanna, sem í fyrri skoð-
anakönnunum hefðu talið, að Is-
lendingar væra í ESB.
I sjötta og síðasta þætti - að
sinni - eru allmargir áhorfendur
famir að þreytast á farsanum. En
þá kemur óvænt fram á sviðið út-
valinn fulltrúi andstæðinga Sölu-
mannsins. Genetískur rannsóknar-
læknir. Og þreyttir áhorfendur
hressast við, reisa sig í stólunum og
telja að nú muni eitthvað fara að
gerast. En svo gerist alls ekkert
annað en það, að sjálfur Sölumað-
urinn, fulltrúi ríldsstjómarinnar og
að minnsta kosti 20% þjóðarinnar,
samanber Gallúp, auk Alþingis,
sest innan á sjónvarpsskerma
landsmanna og endurtekur skila-
boð sín og ríkisstjómarinnar svo
hátt og snjallt, að hinn genetíski
fulltrúi öfundsjúkrar Læknamafí-
unnar missir sjónar á öllu saman og
starir út í sal þar til einhver slekk-
ur á tækinu. Og flestir verða því
fegnir, því það er skollið á myrkur.
Og þannig er staða farsans í dag.
Tragíkómedían rúllar áfram og
sumir bíða en aðrir ekki. Sölumað-
urinn heldur fund með eigendum
sínum og skoðar spilin. Síðan kem-
ur framhaldið.
Kómedían í farsanum er auðskil-
in, en hefur samt alls ekki náð til
fjöldans ennþá.
En sjálf tragedían, sem er auð-
vitað alvörahlið farsans, mun ekki
koma að öllu leyti í ljós fyrr en eft-
ir allra síðasta þáttinn. En þá mun
heildartragedía farsans liggja fyrir
og tjónið verða metið. Slíkt verður
því miður ekki umflúið, úr því sem
komið er, því Sölumaðurinn er
kominn heim og farinn að selja.
Höfuadur er læknir.
MÁRKADSTORG^.
Bestu plöntukaupin
Hnausplöntur afgreiddar eftir pöntun
REYNIR
ÍPOTTI
Áður kr. 650-
—--------
Nú aóeins
kr. 200-
HNAUSPLONTUR
75-200 cm
Verðdæmi:
Alaskaösp 151 -175 cm
áður kr. 1600
nú(kr. 80Í)
Birki 100-125 cm
áður kr. 1080
núCknTÍd)
Ilmreynir 125-150 cm
áður kr. 1780
nú(kr. 880)
50% afsláttur af
pllum hnausplöntum
MORG FRABÆR TILBOÐ
LÍTTU VIÐ
PLÖNTUSALAN í FOSSVOGI
Fossvogsbletti 1 (fyrir neban Borgarspítala) Opiö kl. 10 -19. helgar kl. 10 -18.
Slml 564 1777 Veffang: http://www.centrum.is/fossvogsstodin
LEIÐBEININGAR - RÁÐGJÖF - ÞJÓNUSTA FYRIR ÞIG
L