Morgunblaðið - 20.08.1998, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1998 45
Kynslóðaskipti í
íslenska
Olympíuliðinu
Hannes Hlífar
Stefánsson
Helgi Áss
Grétarsson
Þröstur
Þórhallsson
Jón Viktor
Gunnarsson
Jón Garðar
Viðarsson
Björgvin
Jónsson
SKAK
Elista 26. sept — 13.
okt. 1998
ÓLYMPÍUSKÁKMÓTIÐ
Islenska landsliðið sem keppir á
Ólympíuskákmótinu í Elista í
Rússlandi í haust hefur verið val-
ið. ___________
SKÁKSAMBAND íslands hef-
ur nú ákveðið liðsskipan íslenska
liðsins fyrir Olympíumótið í skák
sem fram fer 26. september til 13.
október nk. Töluverðar breyting-
ar hafa orðið frá síðasta Olympíu-
móti og segja má að mestu kyn-
slóðaskipti í 20 ár hafi átt sér stað.
Liðsmenn íslenska liðsins verða
þessir:
1. Hannes Hlífar Stefánsson SM 2535
(26 ára), 2. Þröstur Þórhallsson SM
2495 (29 ára), 3. Helgi Áss Grétarsson
SM 2480 (21 árs), 4. Jón Viktor Gunn-
arsson AM 2445 (18 ára), 5. Björgvin
Jónsson AM 2395 (34 ára), 6. Jón Garð-
ar Viðarsson FM 2375 (35 ára).
Tveir nýliðar eru nú í liðinu,
þeir Jón Viktor Gunnarsson og
Jón Garðar Viðarsson, sem er ald-
ursforseti liðsins.
Þrír úr síðustu Olympíusveit
gáfu ekki kost á sér. Þeir Jóhann
Hjartarson og Margeir Pétursson
eru hættir atvinnumennsku í skák
og Helgi Olafsson gaf heldur ekki
kost á sér.
I liðinu nú eru þrír atvinnumenn,
þeir Hannes Hlífar, Þröstur og
Helgi Áss. Björgvin Jónsson rekur
eigin lögmannsstofu, Jón Garðar
starfar í Búnaðarbankanum og Jón
Viktor er menntaskólanemi.
Meðalstig íslensku sveitarinnar
nú eru þau lægstu um langt árabil
og ljóst að liðið mun eiga við
ramman reip að draga í Elista.
Það er þó engin ástæða til að van-
meta þetta unga og ferska lið,
sem hefur þegar hafið æfingar.
Hrói höttur hreppti gullið
Hrói höttur sigraði eftir spenn-
andi keppni á 13. Borgarskákmót-
inu. Mótið var haldið í ráðhúsi
Reykjavíkurborgai- á 212. afmælis-
degi borgarinnar hinn 18. ágúst sl.
Hrói mætti reyndar ekki í eigin
persónu, en sendi Jón Garðar Við-
arsson fyrir sína hönd, enda er
Borgarskákmótið firmakeppni,
þar sem skákmenn tefla fyrir fyr-
irtæki sem þeir velja af handahófi
úr styi’ktaraðilum við upphaf
mótsins. Keppnin var æsispenn-
andi og enduðu 5 fyi-irtæki jöfn og
efst með 6 vinninga og þurfti að
beita stigaútreikningi til að skera
úr um innbyrðis röð þeirra. Auk
Hróa hattar fengu eftirtaldir aðil-
ar 6 vinninga: Borgarskjalasafn
(Davið Olafsson), Dressmann á Is-
landi (Sævar Bjarnason), ITR
(Bragi Halldórsson), EJS (Hall-
dór Grétar Einarsson).
Taflfélag Reykjavíkur og Tafl-
félagið Hellir stóðu sameiginlega
að undirbúningi og framkvæmd
Borgarskákmótsins. Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri í
Reykjavík, lék fyrsta leiknum í
skák sigurvegarans frá síðasta
ári, Aimars E. Gunnarssonar
(Samvinnuferðir-Landsýn) sem
tefldi við Hörpu Ingólfsdóttur
(SPRON). Úrslit Borgarskák-
mótsins urðu sem hér segir:
1. Hrói Höttur (Jón G. Viðarsson) 6 v.
2. Borgarskjalasafn (Darið Ólafsson) 6 v.
3. Di’essmann á íslandi (Sævar Bjama-
son)6 v.
4. ÍTR (Bragi Halldórsson) 6 v.
5. EJS (Halldór Gétar Einarsson) 6 v.
6. Arnaldur Loftsson 5V4 v.
7. -15. Fasteignasalan Frón (Sigurður
Ólafsson), Hard Rock Café (Þorsteinn
Þorsteinsson), Sjóvá-Almennar (Stefán
Briem), Samvinnuferðir-Landsýn (Am-
ar E. Gunnarsson), Morgunblaðið (Am-
grímur Gunnhallsson), Grand Rock
(Stefán Kristjánsson), Suzuki-bflai’
(Magnús Öm Ulfarsson), Málning (Kri-
stján Eðvarðsson), Hitaveita Reykjavík-
ur (Bergsteinn Einarsson) 5 v.
16.-23. Kaffi París (Björn Lárusson),
Rafmagnsveitur ríkisins (Jón Torfason),
Blámi (Andri Áss Grétarsson), Nýherji
(Birgir Berndsen), Þröstur Þráinsson,
Gunnar Bjömsson, Jónas Jónasson,
Vatnsveita Reykjavíkur (Daði Öm
Jónsson) m v.
24.-37. Magnús Magnússon, 25. Félag
bókagerðarmanna (Sigurður Páll Stein-
dórsson), 26. íslandsbanki (Júlíus Frið-
jónsson), 27. Landsbanki íslands (Óm-
ar Þór Ómarsson), 28. Gámaþjónustan
(Sveinn Þór Wilhelmsson), 29. Kiinglu-
kráin (Gunnar Gunnarsson), 30. Versl-
unarmannafélag Reykjavíkur (Sól-
mundur Kristjánsson), 31. Skákhúsið
(Jóhann Örn Sigurjónsson), 32. Kiist-
ján Halldórsson, 33. VISA-ísland
(Hjörtur Þór Daðason), 34. Malbikun-
arstöðin Höfði (Sigurður G. Daníels-
son), 35. SÍF (Guðfinnur R. Kjai-tans-
son), 36. ESSO (Magnús V. Pétursson),
37. Staðarskáli (Svemir Unnarsson) 4
v. o.s.frv.
Skákstjórar voru Ólafur H. Ólafsson
og Ríkharður Svéinsson, alþjóðlegir
skákdómarar.
Jón Viktor og Brági Þorfínns-
son á Spáni
Tveir ungir og efnilegir íslensk-
ir skákmenn, Jón Viktor Gunnars-
son og Bragi Þorfmnsson, taka um
þessar mundir þátt í mjög sterku
alþjóðlegu unglingamóti í Avilés á
Spáni. Frammistaða þeirra hefur
verið með ágætum fram að þessu.
Eftir 5 umferðir hefur Jón Viktor
4'Æ vinning og er í 1.-4. sæti. Bragi
er með 4 vinninga. Bragi var
reyndar afar óheppinn í fimmtu
umferð þegar hann féll á tíma með
hrók og kóng á móti kóngi and-
stæðingsins. Skákin var dæmd
jafntefli þar sem andstæðingur
Braga átti enga möguleika á að
vinna skákina.
Þátttakendur á skákmótinu eru
113, en þátttökuréttur takmarkast
við unglinga 18 ára og yngri.
Stigahæstu þátttakendurnir eru:
1. Peter Acs (Ungverjal.) 2500
2. Adam Hoi"vath (Ungverjal.) 2455
3. Jón Viktor Gunnarsson 2445
4. Bojan Vuckovic (Júgósl.) 2435
5. Spike Ernst (Holland) 2420
6. Csaba Kerek (Ungverjal.) 2365
7. Alexander Danilovic (Júgósl.) 2360
8. Jesus Baron Rodriguez (Spánn)
2350
9. Paulo Dias (Portúgal) 2295
10. Anita Gai-a (Ungverjal.) 2290
11. Daniel Paz Ladron de G. (Spánn)
2290
12. Ivan Andres Gonzalez (Spánn) 2270
13. Yaroslav Prizant Rusia 2260
14. Ticia Gara (Ungverjal.) 2245
15. Daniel Sanchez Repullo (Spánn)
2240
16. Leonardo Andrade (Portúgal) 2235
17. Bragi Þorfinnsson 2235
o.sirv.
í sjöttu umferðinni í gær átti Jón
Viktor að tefla við Adam Horvath.
Helgarskákmót hjá TR
Helgina 21.-23. ágúst fer fram
helgarmót í félagsheimili Taflfé-
lags Reykjavíkur. Samkvæmt
venju eru tefldar þrjár atskákir á
föstudagskvöldið frá kl. 20:00. Á
laugardaginn verða tefldar tvær
kappskákir, sem hefjast kl. 10:00
og kl. 17:00. Síðustu tvær umferð-
irnar verða síðan tefldar á sunnu-
deginum. Alls verða því tefldar 7
umferðir eftir Monrad-kerfi með
umhugsunartímanum VA klst. á
30 leiki og síðan 30 mín. til að
ljúka skákinni. Verðlaun eru
12.000 kr. fyrir 1. sæti, 8.000 kr.
fyrir 2. sæti og 5.000 kr. fyrir 3.
sæti. Fyrir hverja 20 þátttakend-
ur umfram 35 bætast við 5.000 kr.
á hvert sæti. Dagskráin er sem
hér segir:
Föstud. 21.8. kl. 20-23, l.-3.umf.
Laugard. 22.8. kl. 10-14, 4. umf.
Laugard. 22.8. kl. 17-22, 5. umf.
Sunnud. 23.8. kl. 10:30-14:30, 6. umf.
Sunnud. 23.8. kl. 17-22, 7. umf.
Þátttökugjald fyrir 16 ára og
eldri er 1.500 kr. (2.300 kr. fyrir
utanfélagsmenn). Fyrir 15 ára og
yngri er þátttökugjaldið 1.000 kr.
(1.500 kr. utanfél.). Öllum er
heimil þátttaka.
Margeir Pétursson
Daði Örn Jónsson
Ráðstefna SUS um
erfðarannsóknir og
gagnagrunna
SAMBAND ungra sjálfstæðis-
manna (SUS) boðar til ráðstefnu
um erfðarannsóknir og gagna-
grunna laugardaginn 22. ágúst kl.
14 í Valhöll, Háaleitisbraut 1.
Ráðstefnan er liður í þeirri við-
leitni SUS að auka umræðu um at-
vinnutækifæri ungs fólks hér á
landi og forsendur íyrir hærri laun-
um. Markmiðið er að bjóða fyrir-
lestra sem eiga að vera innlegg í
umræður um þessi mál næstu vikur.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
flytur ávarp, Sigríður Guðmunds-
son, læknir og formaður vísinda-
siðanefndar, fjallar um vísindasið-
fræðileg álitamál, Þorgeir Örlygs-
son, prófessor og formaður Tölvu-
nefndar, ræðir persónuvernd og
gagnagrunna, Gylfi Magnússon hag-
fræðingur, fjallar um spuminguna
hvenær einkaleyfi eigi rétt á sér,
Kári Stefánsson, forstjóri Islenskrar
erfðagreiningar, ræðir um Islenska
erfðagreiningu, Bemhai’ð Pálsson
prófessor fjallar um tækifæri í þróun
líftækni á íslandi og Björn Bjama-
son menntamálaráðherra um niður-
stöður og framtíðarsýn. ^
Ráðstefnustjóri er Ásdís Halla
Bragadóttir, formaður SUS. Ráð-
stefnan er öllum opin.
Fimmvörðu-
háls, Þórs-
mörk og
hringferð að
Fjallabaki
ÞÓTT langt sé liðið á sumar
er enn eftir góður tími til
ferðalaga innanlands og
framundan er fjölbreytt úrval
helgai’ferða í boði hjá Ferða-
félagi Islands.
Um helgina er farið í hring-
ferð að Fjallabaki þar sem far-
ið verður bæði nyrðri og syðri
Fjallabaksleið og er gist í
sæluhúsum félagsins við
Álftavatn og í Landmanna-
laugum. Brottför er fóstu-
dagskvöldið 21. ágúst kl. 20 og
komið til baka á sunnudag.
Gönguferð yfir Fimm-
vörðuháls er á laugardags-
morgninum kl. 8 og þá er
einnig farin Þórsmerkurferð.
Gist er S Skagfjörðsskála
Ferðafélagsins í Langadal.
Brottför í ferðirnar frá BSÍ,
að austanverðu, en farmiðar
þarf að taka á skrifstofunni
að Mörkinni 6.
Á laugardaginn 22. ágúst kl.
8 er gönguferð á Stóra-
Björnsfell sunnan við Þóris-
jökul og á sunnudaginn 23.
ágúst kl. 13 er sveppaferð í
Heiðmörk í samvinnu við
Náttúrufræðifélagið. Brottför
er frá BSÍ, austanmegin.
Sumarferð Al-
þýðuflokksins
ÁRLEG sumarferð Alþýðuflokks-
ins verður laugardaginn 22. ágúst.
Brottför verður kl. 10 frá Alþýðu-
húsinu, Hvei-fisgötu.
Farið verður um Vesturlands-
kjördæmi - Akranes, Borgarnes
og Snæfellsnes. Veitingar í boði og
skemmtidagskrá. Verð 1.500 kr.
Skráning á skrifstofu Alþýðu-
flokksins. Allir jafnaðarmenn vel-
komnir.
Nýr eigandi hár-
snyrtistofu
EIGENDASKIPTI hafa orðið á
hársnyrtistofunni Arnarbakka 2
sem áður hét Olduberg. Nýi eig-
andinn er Eiín Huld Hartmanns-
dóttir, hárgreiðslumeistari.
Boðið er upp á alla almenna hár-
snyrtiþjónustu. Stofan er opin alla
virka daga frá kl. 9-18.
Verðlaun
afhent á
Laugavegi
í TENGSLUM við opnun endur-
gerðs Laugavegs 25. júlí var efnt til -
samkeppni um nafn á tveimur torg-
um sem á götunni eru við Laugaveg
59 og Laugaveg 77.
Fjölmargar tillögur bárust og nú
á að upplýsa um nöfn torganna og
afhenda verðlaun fyrir bestu hug-
myndirnar. Borgarstjórinn í
Reykjavík Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir mun afhenda verðlaunin í dag
kl. 16 fyrst við Laugaveg 59 og síð-
an Laugaveg 77. Lúðrasveit verka-
lýðsins mun leika í tilefni dagsins og
eins munu fjöllistamenn skemmta.
LEIÐRÉTT
Undarlegur áhugi kirkjumanns ’
í GÆR, miðvikudag 19. ágúst, var
birt bréf til blaðsins frá Þorsteini
Guðjónssyni, undh’ yfirskriftinni
„Um falsspámenn.“ Bréfið var svar
við predikun Sigurbjöms biskups
Einarssonar í Þingvallakirkju, sem
birt var hér í blaðinu 5. ágúst sl.
undir yfirskriftinni Varist falsspá-
menn. Þorsteinn telur að betm’
hefði farið á því að setja yfir bréf
hans: „Undarlegur áhugi kirkju-
manns.“ Biður hann lesendur, sem
vai’ðveita greinar hans, að gjöra
svo.
Rangt föðurnafn
RANGT var farið með föðurnafn
nemanda, sem var að sækja
stundatöfluna sína í Fjölbrautar-
skólanum í Breiðholti, 1 Morgun-
blaðinu í gær. Hann heitir Ingvar
Barkarson. Beðist er velvirðingar á
þessu. f