Morgunblaðið - 20.08.1998, Side 48
48 FIMMTUDAGUR 20. ÁGÚST 1998
AFMÆLI
MORGUNBLAÐIÐ
RAFN SIGURÐSSON
Forstjórinn okkar er
alltaf hress og glaður
og góður í viðmóti,
sagði aldraður sjómað-
ur sem nú dvelur á
Hrafnistu í Hafnar-
flrði. Hann skilur
mann vel og gerir allt
til þess að fólkinu líði
sem best, sagði öldruð
sjómannsekkja, heimil-
iskona á Hrafnistu í
Reykjavík. Pannig
voru ummælin þegar
leitað var eftir áliti
fólks á húsbóndanum á
^stærstu heimilum
landsins. En húsbóndinn og for-
stjórinn Rafn Sigurðsson átti ekki
langt að sækja dugnað og dreng-
skap. Hann fæddist á Akranesi 20.
ágúst 1938 og fyllti því sjötta ára-
tuginn í dag.
Það mun hafa þótt tíðindum sæta
á Akranesi þegar spurðist að einn
nafntogaðasti og harðsæknasti skip-
stjórinn á Súgandafirði væri að
flytjast á Skagann. Þetta var árið
1926 og maðurinn var Sigurður
Hallbjarnarson, sem á næstu ára-
tugum átti eftir að setja mikinn svip
á athafnalíf á Akranesi. Hann var
um þessar mundir skipstjóri á eigin
skipi, Hermóði, 38 smál. fískiskipi.
■ Við komuna keypti hann húsið
Tungu og flutti fjölskyldan þangað
við komu á Skagann. Fjölskylda var
þá þegar stór en alls_ urðu börn
þeirra Sigurðar og Ólafar Guð-
mundsdóttur 12. Yngstur var Rafn,
næstum jafn gamall sjómannadeg-
inum.
Þarna var seltan í blóðinu til stað-
ar eins og stundum er sagt um sjó-
mannafjölskyldur. Bæði voru for-
eldrar Rafns Vestfirðingar, Sigurð-
ur ættaður frá Tálknafirði og Ólöf
frá Gelti í Súgandafirði. Það leiðir af
líkum að sjómennskan hafi verið
Rafni ofarlega í huga. Faðir hans
skipstjóri og útgerðarmaður og síð-
ar mikill athafnamaður í fiskverkun.
Bræður hans sjómenn og leikvöllur-
inn Lambhúsasundið, bryggjurnar
og fjaran. Hann fékk líka aðeins 14
ára að leysa af sem kokkur á bátum
frá Akranesi. Það atvikaðist þannig
að í Gagnfræðaskólanum á Akra-
nesi sem Ragnar Jóhannesson
stjórnaði hafði verið sett upp leikrit.
Einn leikenda var matsveinn á
Akranesbáti. Þegar svo hittist á að
leiksýningar og róðrar bátsins rák-
ust á fór Rafn, sem þá var í skólan-
um, á sjóinn en kokkur-
inn á fjalirnar.
Þessu næst fór Rafn
messadrengur á Hval 4
með Kristjáni Þoriáks-
syni skipstjóra, sem
bauð honum háseta-
pláss, en þar strandaði
málið því drengurinn
var aðeins 15 ára. Vant-
aði eitt ár upp á að geta
farið á dekkið. Rafn lét
þetta ekki á sig fá, flýtti
sér heim á Akranes og
fékk samdægurs skip-
rúm á sfldarbát sem var
á förum norður. Síðan
næsta sumar á Hval 4. Gangfræða-
prófið í höfn og næst lá fyrir að
komast að sem háseti, safna sigl-
ingatíma og fara í Sjómannaskólann.
En ýmilegt fer öðruvísi en ætlað er.
Honum bauðst starf á Lagarfossi
Eimskipafélagsins. Þar var hann
næstu ár í siglingum, fyrst messa-
drengur, þá matsveinn og búrmað-
ur. Bryti á Lagarfossi á þessum ár-
um var Konráð Guðmundsson, síðar
hótelstjóri og ferðamálafrömuður.
Góður vinskapur er með þeim alla
tíð, fyrrverandi messadrengnum og
brytanum. Það var ekki síst fyrir
áeggjan Konráðs að Rafn fór til
Kaupmannahafnar árið 1959 og
nam þar við matsveina- og hótel-
skóla. Þetta var fjögurra ára nám,
en Rafn, harður við sjálfan sig og
kappsfullur, lauk náminu á þrem ár-
um. Rafn fór beint á sjóinn að nám-
inu loknu, á Gullfossi í mörg ár, síð-
an bryti á Goðafossi og Brúarfossi.
Þegar veitingahúsið Skiphóll í
Hafnarfirði var stofnað tók Rafn
Sigurðsson þar við forstöðu uns
hann gerðist forstjóri Hrafnistu í
Reykjavík 1973. Fyrir fimm árum
tók hann einnig við forstjórastarfi
við Hrafnistu í Hafnarfirði en a
þessum tveim Dvalarheimilum aldr-
aðra sjómanna munu nú vera um
600 manns og starfsfólkið hátt í 300.
Engum sem til þekkir blandast
hugur um að þar sem forstjóri
Hrafnistu í Reykjavík og Hafnar-
firði er, þar er réttur maður á rétt-
um stað. Þessi hægláti og brosmildi
maður hefir gott samstarfsfólk og
hefir lag á að láta hlutina ganga án
hávaða en með fullum dampi.
Við Mæzý sendum Rafni og
Rannveigu og fjölskyldunni allri
hugheilar hamingjuóskir á sextugs-
afmæli húsbóndans.
Sveinn Sæmundsson.
Borðdukar
Margar gerðir
Su Brúðhjón
Allur borðbiinaður - Glæsileg gjafavara - Brriðhjónalislar
. VERSLUNIN
Langavegi 52, s. 562 4244.
fyrir
steinsteypu.
Á undan timanum
i 100 ár.
meöfærilegir
viðhaldslitlir. )
fyrirliggjandi. y
Ármúla 29. sími 553 8640
FYRIRLIGGJANDI: 6ÖLFSLÍPIVÉLAR - RIPPER ÞJÖPPUR - DJELUR
- STEYPUSRGIR - HRJERIVÉLAR - SA6ARHL0B - Viulul framleiðsla.
í DAG
VELVAKANPI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Kveðja frá
gamla SÍS
ÞEGAR Tryggingastofnun
borgaði út nú í júlí var þar
aukagreiðsla með, svo-
nefnd orlofsuppbót og allt
gott um það að segja.
Stuttu síðar kom bréf og
þegar ég sá að það var frá
SAM-lífeyrissjóðnum
hugsaði ég með mér: það
var svo sem auðvitað að
þeir sendu okkur líka ein-
hvern glaðning. Svo fór ég
að lesa og þar stóð:
„Stjórnin hefur komist að
þein-i niðurstöðu að skerða
beri um 5% öll áunnin rétt-
indi sjóðfélaga..." og ég
sem var búinn að borga í
þennan sjóð hátt í 30 ár til
að fá til baka þegar ég
hætti að vinna. Um svipað
leyti var sagt frá því að
maður sem var að hætta
að vinna fengi sem næst
400 þúsund á mánuði úr
sjóðum hjá ríkinu, en við
allir landsmenn fjármögn-
um þá sjóði með sköttun-
um okkar. Þá datt mér
svona í hug að það er ekki
sama að vera hempu-
klæddur séra Jón í þjóðfé-
laginu eða skítugur og illa
til hafður bara Jón.
Guðmundur Bergsson,
Sogavegi 178.
Skora á alla
EG skora á alla Islendinga
að lesa grein Elínar
Pálmadóttur í Morgun-
blaðinu laugardaginn 15.
ágúst.
Sigurður
Markússon.
Tapað/fundið
Morgunblaðið/Golli.
í RIGNINGUNNI í Reykjavík.
Fótbolti týnd-
ist við Lang-
holtsskóla
SELECT-fót-
bolti, með áritun
á, týndist við
Langholtsskóla
sl. mánudag. Skil-
vís finnandi hafi
samband í sima
581 1312.
Þríhjól týndist
í Hrísrima
ÞRÍHJÓL, rautt
og hvítt, týndist
frá Hrísrima í
Grafarvogi. Það
er merkt á framhjóli Rauð-
ás 21 og símanúmer. Þeii-
sem hafa orðið varir við
hjólið hafi samband í síma
567 2069 eða 587 4485.
Gullhálsmen
týndist
GULLHÁLSMEN sem er
gullkeðja með eins og pen-
ing hangandi í, svört plata
með ljóni ofan á, týndist
aðfaranótt sunnudags á
ieið frá Laufásvegi og nið-
ur á Kaffi Romanc. Skilvís
finnandi hafi samband i
síma 567 1787. Fundar-
laun.
Dýrahald
Hvítur páfagaukur
í óskilum
HVÍTUR páfagaukur er í
óskilum í Hraunbænum.
Upplýsingar í síma
567 3189.
Læða í óskilum á
Selfossi
LÆÐA, gul, svört og hvít,
er í óskilum á Selfossi.
Hún hefur verið þar frá
því í maí. Þeir sem kannast
við hana eða vilja taka
hana að sér hafi samband í
síma 482 1703.
SKÁK
IJiiisjún Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp á opnu
móti í Korintu í Grikklandi í
sumar. Srdjan Cvetkovic
(2.430), Júgóslavíu, var með
hvítt, en stórmeistarinn
Mikhail Gurevich
(2.635), Belgíu,
hafði svart og átti
leik. Hvitur lék síð-
ast 26. Dal-a3?, yf-
ii'sást hótun svarts:
26. - Df3! og hvítur
gafst upp. Hann á
engan vörn við
máthótun svarts á
hl, hvort sem hann
þiggur drottning-
arfórnina eða ekki.
Gurevich sigraði
á mótinu ásamt lítt
þekktum alþjóðleg-
um meistara,
Tamas Gelashvili
frá Georgíu. Þeir hlutu báðir
7!4 vinning af 9 mögulegum.
2-6. Kotronias og Papai-
oannou, Grikklandi, Gers-
hon, Israel og Dgebuadse,
Georgíu 7 v. o.s.frv.
Helgarskákmót hjá Tafl-
félagi Reykjavíkur hefst á
föstudagskvöld kl. 20 í fé-
lagsheimilinu Faxafeni 12.
Mótinu lýkur á sunnudags-
kvöid.
SVARTUR leikur og vinnur.
HÖGNI HREKKVÍSI
Víkveiji skrifar...
VATN er ekki alls staðar jafn-
sjálfsagður hlutur og á íslandi
og þessi sakleysislegi vökvi getur
jafnvel orðið tilefni styrjalda og
átaka. Nægir þar að líta til Mið-
Austurlanda. Þar er um fátt bitist af
jafnmikilli hörku og vatnið.
Víða í Evrópu og Bandaríkjunum
hefur skortur á neysluvatni þau
áhrif að almenningur er beðinn að
fara sparlega með það. Bent er á að
hægt sé að skrúfa fyrir vatnið með-
an maður burstar tennurnar og
sturtuna þegar glímt er við sápuna.
Víkverji dagsins var eitt sinn
staddur í íbúð í bandarískri stór-
borg þegar birtust menn frá vatns-
veitunni á staðnum og vildu skipta
um sturtuhaus og setja skilrúm í
klósettkassann. Sturtuhausinn átti
að vera helmingi sparneytnari en
sá, sem fyrir var, og skilrúmið átti
að leiða til þriðjungs sparnaðar.
Þessi aðgerð vatnsveitunnar var
viðskiptavininum algerlega að
kostnaðarlausu. Fyrirtækið var ein-
faldlega að hvetja hann til að fara
sparlega með vatnið.
Þótt maður kippi sér ekki upp við
svona aðgerðir erlendis er ekki
laust við að manni bregði í brún
þegar farið er að mælast til þess _að
maður spari vatnið hér heima á Is-
landi. Víkverji dagsins var nýlega á
ferð í sumarhúsi í Flóanum og var
þá dreift bréfi þar sem mælst var til
þess að menn notuðu vatn í hófi
vegna þurrkanna í sumar. Þessi
sending þurfti hins vegar ekki að
koma á óvart í ljósi þeirra vand-
ræða, sem vatnsveitan á Selfossi
hefur átt við að etja undanfarið.
XXX
MEÐAN hér hefur verið þurrt
(allt þar til í ágúst) hefur verið
mikil vætutíð annars staðar á Norð-
urlöndum. Því er það svo að meðan
forráðamenn Landsvirkjunar sjá
ekki fram á að geta annað eftir-
spurn er offramleiðsla á rafmagni í
Noregi og Svíþjóð og hríðlækkar
það í verði.
Þetta er meira að segja farið að
hafa áhrif í Danmörku, en þar hefur
almennum neytendum verið sagt að
lækkað innkaupaverð muni ekki
koma þeim til góða fyrr en að ári.
Við það að heyra slíkar yfirlýsingar
kemur ósjálfrátt upp í hugann hvað
það virðist vera lítið samhengi milli
verðsins við dæluna hér á landi og
heimsmarkaðar þegar olían lækkar.
Ekki er ein báran stök.
XXX
VIRÐING Bandaríkjamanna
fyrir forsetaembættinu hefur
oft verið meiri. Tommy Hilfiger
auglýsir nú haustfatalínuna með
ungri stúlku, sem er í eggjandi
stellingum í forsetaskrifstofu Hvíta
hússins með bandaríska fánann í
baksýn. Tölvusali auglýsir að hann
sé fljótari að lækka verðið en
Bandaríkjaforseti að leysa niðrum
sig. Leiðarahöfundur The New
York Times komst að þeirri niður-
stöðu eftir að hafa hlýtt á sjón-
varpsávarp Bills Clintons í kjölfar
þess að hann bar vitni fyrir rann-
sóknarkviðdómi Kenneths Starrs,
að forustu forsetans yrði ekki sakn-
að þegar hann hyrfí úr Hvíta hús-
inu. Hins vegar er haft í flimtingum
að Bandaríkjamenn geti nú gert sér
vonir um nýjan frídag eftir allt það
sem gekk á á mánudaginn og yrði
hann kallaður vitnisburðardagur-
inn.