Morgunblaðið - 26.08.1998, Page 6

Morgunblaðið - 26.08.1998, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Tveir menn og drengur hætt komnir er bát hvolfdi á Þingvallavatni Kölluðum þangað til við vorum að verða máttlausir Morgunblaðið/Guðbjartur Vilhelmsson BÁTURINN, sem hvolfdi, var dreginn upp á land eftir að mönnunum hafði verið bjargað í land. „VIÐ vorum úti á vatni að veiða og vorum á leiðinni í land þegar drapst á mótornum. Þegar ég fór að reyna að koma honum aftur í gang uppgötvaði ég að aftasta hólfið af þremur var orðið fullt af vatni. Ég fór strax að reyna að róa í land en bátnum hvolfdi skömmu síðar. Við fórum í vatn- ið, köstuðum stráknum strax upp á kjölinn og komumst svo þangað sjálfir," segir Kjai*tan Guðjóns- son sem var bjargað ásamt fé- laga sínum og tíu ára dreng af kili báts á Þingvallavatni á sunnudagskvöld. Kjartan og félagi hans höfðu verið að veiða á vatninu ásamt tíu ára dreng. Myrkur var að skella á þegar atvikið átti sér stað klukkan rúmlega tíu, og fyr- ir einstaka heppni heyrðu hjón í bústað skammt frá neyðarópin í þremenningunum. „Það kom augnablik sem mað- ur var hræddur, en svo var ekk- ert annað en að reyna að vera já- kvæður. Báturinn er ósökkvan- legur þannig að hann hefði aldrei farið í kaf. En það var bara spurning um tíma hvenær við myndum finnast og alveg brjáluð heppni að þetta fólk skyldi hafa heyrt í okkur. Við kölluðum og kölluðum þangað til við vorum að verða máttlausir,“ segir Kjartan. Heyrðu ógreinileg óp „Stofuglugginn var opinn og við heyrðum mjög ógreinileg óp. Við fórum út og heyrðum þau aftur en mjög ógreinilega. Eg hafði áður séð bátinn úti á vatn- inu og sá nú að hann var horfinn, en það var orðið töluvert dimmt. Af því að báturinn var horfinn reiknaði ég með að mennirnir væru í vatninu. Ég, konan mín og Hörður Guðmannsson, föður- bróðir minn, sem býr á bæ þarna við hliðina, stukkum um borð í bátinn okkar og sigldum beint út á vatn, en svo vel vildi til að hann var tilbúinn á vatninu," segir Guðmann Reynir Hilmarsson sem var í sumarbústað við vatn- ið. Sigldu þau út á vatnið og komu fijótt auga á mennina á kili bátsins, renndu upp að hlið þeirra og tóku þá um borð. „Þeir voru nokkuð kaldir enda kalt að lenda í vatninu. Við komum þeim sem snöggvast í land, fórum svo aftur út, náðum í bátinn og dróg- um hann í land,“ segir Guðmann. Á meðan Guðmann og Hrönn Ægisdóttir, eiginkona hans, voru að koma sér út á vatn sátu Kjart- an og félagar á kili bátsins og sáu bílljós á hreyfingu. Það vakti með þeim von um að einhver væri á leiðinni þeim til bjargar, en bfiljósin hurfu skömmu síðar. Stuttu eftir það heyrðu þeir hins vegar í mótor og þremur til fjór- um mínútum síðar var báturinn kominn til þeirra. „Við vorum rosalega fegnir þegar við heyrð- um í bátnum og sáum hann koma í áttina til okkar. Ég veit ekki hvernig við getum þakkað fyrir þessa björgun, hún verður seint fullþökkuð," sagði Kjartan að lokum. Guðmann segir að báturinn hafi verið í um 500 metra fjar- lægð frá hólmum sem eru í vatn- inu, en í 1,5 km fjarlægð frá landi. Hann segir að það hafi ver- ið farið að hvessa og vatnið að ýfast, og þá hafi bátinn getað rekið mun lengra út á vatn. Því hafi sannarlega farið betur en á horfðist. Morgunblaðið/Þorkell ALFREÐ Þorsteinsson, formaður stjórnar veitustofnana, afhendir námsstyrkina. Fyrir miðju er Eva Illi'n Dereksdóttir og Anna Margrét Arnadóttir tók við styrk fyrir hönd Sigríðar systur sinnar. Konur styrktar til náms í verkfræði Nemendur úr MHI fá iðnhönnunarverðlaun Viðurkenning fyrir raun- sæjustu hugmyndina Pressens Bild SIGRÍÐUR H. Pálsdóttir, ein verðlaunahafanna, við stjórtæki verðlaunabflsins. STJÓRN veitustofnana afhenti í gær námsstyrki Vatnsveitu Reykja- víkur til kvenna. Styrkurinn, 300.000 kr., skiptist jafnt milli Evu Hlínar Dereksdóttur og Sigríðar Ólafar Ámadóttur. Stjórn veitustofnana samþykkti vorið 1997 að stofna til námsstyrkja í verkfræði- og tæknigreinum. Til- gangur þeirra er að stuðla að ÍSLENSKUR karlmaður, Ólafur Bragi Bragason, fertugur að aldri, er handtekinn var í Þýskalandi í lok júlí vegna gruns um þátttöku á inn- flutningi á 1870 kg af hassi í Túnis, er nú í vörslu þýsku lögreglunnar. Alþjóðalögreglan Interpol í Túnis hafði leitað að Ólafl Braga um langt skeið og krefjast yfirvöld þar í landi framsals hans. Samkvæmt fréttum Ríkisútvarpsins er hann grunaður um að tilheyra glæpasamtökum í Evrópu. Eins og fram kom í frétt Morg- unblaðsins í gær herma heimildir að Ólafur Bragi hafi beðið íslensk stjórnvöld að fara fram á að hann verði ekki framseldur til Túnis. Framsalssamningur hefur verið breyttu námsvali kvenna í ljósi langtímamarkmiða um að jafna kynjaskiptingu í sérhæfðum störf- um hjá Vatnsveitu Reykjavíkur. Alls bárust 10 umsóknir um styrki. Akvörðun stjórnar veitu- stofnana tók mið af því að styrkþeg- arnir hafa sýnt glæsilegan námsár- angur og farið ótroðnar slóðir í námsvali sínu. milli Þýskalands og Túnis í um þrjá áratugi en þar er gert ráð fyrir að hægt sé að hafna framsali af mann- úðarástæðum. Ríkisútvarpið greindi frá því í gærkvöldi að ólíklegt væri að þýsk yfirvöld neituðu að framselja hann til Túnis. Talsmaður þýska dóms- málaráðuneytisins telur útilokað að framsalsbeiðni frá íslenskum stjórnvöldum ^geti breytt einhverju um framsal Olafs til Túnis vegna þess að Þjóðverjar telji mikilvægt að staðið sé við samninginn. Islend- ingar verði því að semja beint við yfirvöld í Túnis. Andvirði fíkniefn- anna er talið nema 2,8 milljörðum króna. HÓPUR nemenda úr Myndlista- og handíðaskóla íslands hlaut verðlaun í gær í samkeppni milli nemenda í iðnhönnunarskólum á Norðurlöndum um hönnun og smíði húsbíla. Verðlaunin voru veitt í Stokkhólmi. Þar höfðu bíl- arnir í samkeppninni verið sýndir undanfarið, en þeir voru þrettán talsins. Tvenn verðlaun voru veitt, annars vegar fyrir frumleg- ustu hugmyndina og þau hlaut hópur frá Danmörku og hins veg- ar fyrir raunsæjustu hugmyndina og hlaut íslenski hópurinn þau. Hvor hópur fékk, ásamt viður- kenningunni, tvö hundruð þúsund króna peningaverðlaun. Keppnin er haldin í tengslum við hátíða- höld í Stokkhólmi sem er menn- ingarborg Evrópu 1998. Boðið á fleiri sýningar „Verðlaunaafhendingin fór fram í Hagaparken og hér voru líka skemmtiatriði og ræðuhöld. Okkur hefur verið boðið að taka þátt í sýningum í Svíþjóð og Þýskalandi og við munum halda áfram að sýna hann. Við höfum líka fengið tilboð um samstarf um áframhaldandi þróun og það verður allt skoðað. Við setjum bíl- inn núna í gám og geymum hér í Svíþjóð og komum sjálf heim. Við munum ræða málin í rólegheit- um,“ sagði Jón Örn Þorsteinsson, einn hönnuðurinn, í samtali við Morgunblaðið í gær. Hann sagði hópinn mjög stoltan enda mikil vinna búin að fara í hönnun bíls- ins og smíði frá áramótum. Voru búin að sigra fyrirfram Hjálmar Árnason sem er for- maður nefndar um nýtingu inn- lendra orkugjafa á vegum iðnað- arráðuneytisins fylgdist með sýn- ingunni og verðlaunaafhending- unni í Stokkhólmi í gær. Nefndin hefur m.a. skoðað möguleika á notkun rafmagnsbíla og hafði milligöngu um að útvega raf- magnsbílinn sem húsbíll hópsins er byggður á. Hjálmar segir bíl- inn hafa hlotið langmestu fjöl- miðlaumfjöllunina af öllum verk- efnunum. „Bíllinn hefur vakið alveg ótrú- lega athygli hérna, bæði meðal almennings og fjölmiðlafólks. í mínum huga er ekki nokkur vafi að þau voru búin að vinna keppn- ina áður en verðlaun voru afhent, það er aldrei að vita hvernig dómnefndir hugsa en viðbrögð og áhugi gesta og fjölmiðla hafa gert þau að sigurvegurum burtséð frá verðlaunum," sagði Hjálmar í samtali við Morgunblaðið í gær. Bíllinn sem hópurinn fékk verðlaun fyrir er húsbíll og fyrir utan að hægt er að aka um á hon- um er hægt að sofa, borða, vinna, baða sig og fara á salernið í hon- um. Hægt er að breiða úr bílnum þegar ekki er verið að aka honum og eykst þá rýmið mikið. Hug- myndavinnan hófst upp úr ára- mótum og var miðað að því að hanna náttúruvænan húsbíl. Samkvæmt lokahönnun á bíllinn að vera knúinn vetnismótor en er núna rafknúinn. Bflasmiðimir og verðlaunahaf- arnir eru allir í MHI og heita Guðmundur Lúðvík Grétarsson, Guðrún Margrét Jóhannsdóttir, Kari Siltala, Þorgerður Jörunds- dóttir, Sigi-íður H. Pálsdóttir, Þórdís Aðalsteinsdóttir og Jón Örn Þorsteinsson. Verkefnis- stjórar vora Sigríður Heimisdótt- ir iðnhönnuður og Sigurjón Páls- son húsgagnahönnuður. Islenskur fíkniefnasmyglari í haldi þýsku lögreglunnar Talinn tilheyra glæpasamtökum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.