Morgunblaðið - 26.08.1998, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 26.08.1998, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Jim Smart Ný biðskýli að komast í gagnið UPPSETNINGU 120 biðskýla víða í Reykjavíkurborg miðar vel. Danskir verktakar vinna að uppsetningunni og á verk- inu að ljúka í lok september. Að sögn Þórhalls Guðlaugsson- ar, markaðs- og þróunarstjóra hjá SVR, lítur út fyrir að sú áætlun muni standast. Ekkert skýli er fullbúið nú, en búið er að steypa milli 40 og 50 grunna fyrir þau. Lokafrágangur hefst í næstu viku en þá verður m.a. gler sett í skýlin. Umfjöllun um Island í ævisögu Friedman-hjónanna Töfrandi dag- ar á Islandi ÍSLANDS er getið í nýlegum æviminningum Miltons Friedmans, nóbelsverðlaunahafa í hagfræði og eiginkonu hans, Rose D. Friedman. Friedman-hjónin fjalla um heim- sókn sína hingað til lands árið 1984 þegar Friedman hélt opinberan fyrirlestur í Reykjavík, á eftirfar- andi hátt: „Á leið á fund Mont Pelerin-sam- takanna í Cambridge í Englandi, eyddum við nokki-um töfrandi dög- um á íslandi. Reykjavík reyndist indæl borg, tandurhrein og and- rúmsloftið hreint og tært, þökk sé nægu framboði af heitu vatni til að hita upp húsin. Einmana en áhrifamikill veijandi fijáls markaðar Gestgjafí okkar var Hannes Gissurarson, sem þá var fremur einmana en afskaplega áhrifamik- ill verjandi frjáls markaðar og tak- markaðra ríkisafskipta á íslandi. Hið yfírlýsta tilefni heimsóknar okkar var það að ég átti að halda opinberan fyrirlestur. Ástæða þess að við þekktumst boðið var að þarna gafst tækifæri til að koma til Islands, þessa litla lands, sem á sér langa sögu, sem einkum er merkileg vegna íslendingasagn- anna, sem skrifaðar voru á þrett- ándu og fjórtándu öld. Það jók áhuga okkar að sonur okkar, Da- vid, er mikill aðdáandi íslendinga- sagnanna. Hann hefur skrifað greinina „Private Creation and Enforcement of Law: A Historical Case,“ þar sem hann rannsakar ylagalegar og pólitískar stofnanir á Islandi frá tíundu öld til þrettándu aldar“. Greinin er orðin nánast klassískt lesefni frjálshyggju- manna. Hannes kom því svo fyrir að við hittum Vigdísi Finnbogadóttur forseta og fleiri ráðamenn, hann kom á laggirnar umræðufundi okkar með fræðimönnum og fylgdi okkur á afskaplega gefandi ferð Mil.TON akd ROS-F Ð. FFUEDMAN M E M O I íi S MYND af Rose D. og Miltons Friedmans prýðir bókarkápu „Two Lucky People". um áhugaverðustu staðina á fs- landi. Við hina fornu sögu, sem við höfðum heyrt um frá David, bætt- ust umræður um vandamál og deiluefni líðandi stundar. Órofíð samhengi í þúsund ár.“ Ævisaga Friedman-hjónanna heitir „Two Lucky People" og er gefin út af The University of Chicago Press. Á kápu bókarinnar rita m.a. umsögn George P. Shultz, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Steve Forbes, auð- kýfíngur og forsetaframbjóðandi, Jack Kemp, öldungardeildarþing- maður og forsetaframbjóðandi, James Buchanan, nóbelsverð- launahafí í hagfræði, og William E. Simon, fyrrverandi fjármálaráð- herra Bandaríkjanna. Áhrifamikil og umdeild Á bókarkápunni segir ennfrem- ur að Friedman-hjónin hafí verið áhrifamikil og umdeild en hafi smám saman unnið sér viðurkenn- ingu. Friedman hlaut Nóbelsverð- launin í hagfræði árið 1976. Hann starfaði sem ráðgjafi forsetanna Richards M. Nixons og Ronalds Reagans og á bókarkápunni segir að hann og kona hans séu þekkt fyrir að hafa breytt andrúmsloft- inu í opinberri orðræðu í Banda- ríkjunum og víða um heim með fastheldni á þá skoðun að frelsi einstaklingsins sé æðstu gæði í efnahagsmálum, stjórnmálum og félagsmálum. Margar gerðir, ótal möguleikar Fást í raftækja- verslunum hársnyrtistofum og stórmörkuðum um allt land DREIFINGARAÐIU I.GUBMUNÐSSONehf. —--------------_i___1___I Sími: 533-1999, Fax: 533-1995 Ráðstefnur um sjálfboðastörf Siöræn gildi liggja að baki sjálfboðastörfum Sigrún Júlíusdóttir DAGANA 28. og 29. ágúst verður hald- in norræn ráð- stefna á Hótel Loftleiðum sem ber yfirskriftina Sjálf- boðastörf, reynsla og skip- an. Hún er haldin á vegum Norrænna sjálfboðasam- taka FRIA, Rauða kross íslands og félagsráðgjafar við Háskóla íslands. Um leið er haldin nor- ræn rannsóknarráðstefna um sjálfboðastörf. Hún verður haldin í Odda í samvinnu Félagsvísinda- stofnunar Háskóla Islands og Norræns rannsóknar- nets um sjálfboðavinnu. Yfirskrift þeirrar ráð- stefnu er Sjálfboðavinna í norðri, lýðræði, samfé- lagsþátttaka og velferð. Sigrún Júlíusdóttir dósent flytur opnunarerindi á faglegu ráðstefnunni og hefur um- sjón með rannsóknarráðstefnunni af hálfu Félagsvísindadeildar HI. - Hvíið verður fjallað um á ráð- stefnurmi? „Fyrri ráðstefnan er hugsuð fyrh' fræðimenn og fagfólk. Þar verður kynnt upphaf og staða sjálfboðastarfa á íslandi, fjallað um gildi gæðamats á sjálftioða- störfum og hvort það tengist spurningunni um opinbert eftirlit og að sjálfboðastörf tryggi nægi- leg gæði. Fjallað verður um sjálfboða- geirann svokallaðan, hagsveiflur og rannsóknir, mannúð, samhjálp og fagmennsku.“ Norræna rannsóknarráðstefnan segir Sigrún að sé ætluð háskóla- kennurum og öðrum vísindamönn- um. Megin viðfangsefni hennar er þríþætt, rannsóknir á sögu sjálf- boðastarfa, rannsóknir á forsend- um sjálfboðastarfa og rannsóknir á sjálfboðastörfum í íþróttahreyf- ingunni. - Stunda margir sjálfboða- vinnu? „Sjálfboðastörf hafa farið vax- andi þrátt fyrir aukið framlag vel- ferðarkerfisins til heilbrigðis- og félagsmála. Það segir okkur heil- mikið um þetta jákvæða af! í manneskjunni. Þeir sem búa við jöfnuð og félagslegt réttlæti virð- ast vera tilbúnari að láta gott af sér leiða, eru aflögufærir og láta sig náungann varða. Um leið eru önnur öfl að verki í okkar samfé- lagi sem birtast í afskiptaleysi. Rannsóknir hafa sýnt að um 25% að meðaltali taka þátt í sjálfboða- starfi. Langhæst er hlutfallið í Hollandi og Belgíu þar sem fram- lagið er um 34%.“ Sigrún segir að í Svíþjóð sé hlutfallið 32% og í Danmörku 28%. - Hvar stendur ísland í þess- um samanburði? „Island var ekki með í þessum rannsóknum en fyrir nokkrum árum var gerð rannsókn á vegum Félagsvísindastofnunar Háskólans á lífsgildum Islendinga og viðhorf- um þeirra til marvís- legra málefna þar á meðal til sjálf- boðastarfs. í Ijós kom að íslend- ingar eru ekki á neinn hátt minna áberandi í félagsstarfi en aðrar þjóðir og athyglisvert að um þriðj- ungur Islendinga er í hópum og samtökum sem tengjast íþróttum og tómstundastarfi. Þá segist um það bil fjórðungur íslendinga vinna ólaunuð sjálfboðastörf fyrir líknarfélög, góðgerðarsamtök, eða þjónustuklúbba. Um 40% íslend- inga vinna fyrir íþróttafélög. Eng- ►Sigrún Júlíusdóttir er fædd í Hrísey árið 1944. Hún lauk námi í félagsráð- gjöf, stundaði framhaldsnám í hjóna- og fjölskyldumeðferð til MA-prófs í Bandaríkjunum 1978. Sigrún lauk doktorsprófl í félagsráðgjöf frá háskólanum í Gautaborg árið 1993 með ís- lenskar íjölskyldur sem rann- sóknarsvið. Hún er dósent í félagsráðgjöf við Háskóla íslands og starfar á eigin stofú, Tengsl sf. Eiginmaður hennar er Þor- steinn Vilhjálmsson prófessor. Hún á tvo syni og þrjú sljúp- börn. in sjálfstæð rannsókn hefur verið gerð hérlendis um umfang og eðli sjálfboðastarfa, þar er ísland enn- þá eftirbátur Norðurlandanna.“ - Þú munt kynna norræna rann- sókn þína og Sigurveigar H. Sig- urðardóttur um sjálfboðastarf hér á landi? „Árið 1994 hófst norræn rann- sókn sem Island tók þátt í og ég ásamt Sigurveigu H. Sigurðar- dóttur sá um. Fyrr á þessu ári kom rannsóknin út á bók: „Hvers vegna sjálfboðastörf?" Markmið þeirrar rannsóknar er að greina þarfir, áform og forsendur sem liggja að baki því að fólk gerist sjálfboðaliðar og að skilja þær þarfir sem sjálfboðaliði vill full- nægja með því að vinna sjálfboða- vinnu.“ Sigrún segir að sú ástæða sem rannsóknin leiddi í ljós að vegi þyngst sé gildismat eða siðræn gildi eða að vilja láta gott af sér leiða. Því næst kemur skilnings- þörf eða það að vilja setja sig inn í aðstæður og læra um fólk. Þetta á einkum við um ungt fólk sem er að afla sér reynslu. Þriðji þátturinn er sjálfsvirðing eða þörfin fyrir að finnast maður sjálfur hafa vægi í samfélaginu og það er áhugavert að í okkar niðurstöðum virðist eldra fólk í sjálf- boðavinnu talsvert stýrast af þessari ástæðu. Fjórði þátturinn er fé- lagsþörfin eða væntingar um- hverfísins. Að lokum koma völd og framaþörf. Sá þáttur hefur ekki mikið vægi.“ - Eru þetta svipaðar niðurstöð- ur og annars staðar? „Heildarmynstrið er mjög sam- hljóma því sem er á hinum Norður- löndunum og ekki marktækur munur. Niðurstöður af þessu tagi geta auðveldað sjálfboðasamtökum að velja „rétt fólk“ á réttan stað.“ Þeir aflögu- færu geta látið gott af sér leiða

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.