Morgunblaðið - 26.08.1998, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 26.08.1998, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1998 33 + Klara ísfold Jónatansdóttir var fædd á Skálá, Fellshreppi í Skaga- firði 21. júlí 1918. Hún andaðist á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð í Grindavík þann 1. ágúst síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Jónatan Jónatansson og Björg Guðný Jóns- dóttir. Eiginmaður hennar var Ketill Hilmar Símonars- son frá Kaðlastöðum á Stokks- eyri, f. 5.7.1919. Hann lést þann 11. júní síðastliðinn. Börn þeirra eru 1) Víktoría Kolfínna, f. 10.6. 1946, gift Guðjóni Þorlákssyni frá Vík, Grindavík. 2) Hildur Þyrí, f. 30.7. 1947, gift Halldóri Með nokkrum orðum langar okkur systurnar að minnast elsku- legrar ömmu okkar sem dó þann 1. ágúst s.l. í Víðihlíð. Loksins fékk hún hvíld frá þjáningum sínum sem höfðu hrjáð hana mjög lengi. Samt sem áður syrgjum við hana og söknum hennar. Einungis leið u.þ.b. 1 Vs> mánuður milli andláts hennar og afa, sem dó þann 11. júní, og er því stórt skarð í fjöl- skyldu okkar sem ekki verður fyllt. Amma talaði aldrei mikið um bam- æsku sína en frá því litla sem hún sagði þá mátti draga af því að hún hefði ekki átt mjög auðvelda daga. Hún átti 11 hálfsystkini samfeðra, einn albróður sem lést ungur að ár- um, og tvær systur sammæðra, Hrefnu og Valdísi sem eru á lífi. Hún ólst upp hjá Franz, hálfbróður sínum, og konu hans, í Málmey á Skagafirði. Þar gekk vinnan fyrir öllu og amma byrjaði ung að gera allt það sem þurfti að gera, þar sem allt var nýtt sem hægt var bæði til sjós og lands. Hana dreymdi um eitthvert ann- að og betra líf og þegar hún var um tvítugt dreif hún sig burt og fór ein með skipi suður, án þess að þekkja þar nokkra sálu. Hún fór á Laugar- vatnsskóla þar sem hún fékk inn- göngu, en hún hafði fengið kennslu frá fóstra sínum og hálfbróður, Franz, sem var kennari. Á Laugar- vatni var hún í tvo vetur og síðan í Samvinnuskólanum, sem þá var í Reykjavík. Hún vann fyrir námi sínu sjálf, með störfum á myndar- heimili í Reykjavík, hjá Klöru og Jóni í Fatabúðinni á Skólavörðu- stíg, þau reyndust henni afar vel og ríkti alltaf mikil vinátta þar á milli síðan. Eftir námið fór hún með skóla- systur sinni á Selfoss til starfa á skrifstofu Kaupfélags Árnesinga og þar kynntist hún afa fljótlega. Hún átti bömin á árunum 1946^9 og var heimavinnandi til 1960 eða þar um bil. Þá fór hún aftur að vinna hjá K.Á. og starfaði þar á meðan heilsa og þrek entist til 1981. Eftir það hallaði undan fæti, veikindi ýmiss konar, læknisvitjan- ir, rannsóknir og uppskurðir, en alltaf versnaði heilsa hennar. Þau fluttu suður til Grindavíkur 1981 á neðri hæðina hjá okkur. Það kom okkur systrunum afar vel á marg- an hátt. Og í gegnum skólagöngu okkar þá fylgdist hún ævinlega vel með því það var henni svo mikil- vægt að við menntuðum okkur. Hún hafði sjálf þráð það og lagt mikið á sig til að ganga í skóla og öðlast menntun, og vissi hvers virði það var að hafa einhverja menntun til að komast áfram í lífinu. Alltaf lásu hún og afi yfir ritgerðir okkar og aðstoðuðu okkur fyrir próf með því að fara yfir námsefnið. Það skilaði sér mjög vel. Við hlupum líka alltaf fyrst niður til þeirra þeg- ar við feangum einkunnirnar í hendur. Það gladdi þau mikið að sjá að okkur gekk vel. Þorlákssyni frá Vík, Grindavík. Dætur þeirra eru: Klara Sigrún, f. 20.3. 1973, sambýlismað- ur hennar er Gísli Jóhann Sigurðsson, og Þuríður, f. 8.6. 1974. Dóttir Hall- dórs og stjúpdóttir Hildar er Jóhanna Helga, f. 19.2. 1968. 3) Baldur Símon, f. 15.9. 1949. Klara og Ketill byggðu sér hús í Smáratúni 6 á Sel- fossi og bjuggu þar uns þau og Baldur flytja til Grindavíkur 1981 þar sem báðar dæturnar eru búsettar. títför Klöru hefur farið fram í kyrrþey frá Grindavíkurkirlqu að ósk hinnar látnu. Vissulega var erfitt að fara frá Selfossi og yfirgefa húsið í Smára- túninu og fallega garðinn sem þau höfðu komið upp. Amma var alltaf mikil blómakona og hafði græna fingur eins og garðurinn bar vitni um, með stórum grenitrjám og öðrum háum trjám, ásamt miklu af blómum. Fuglarnir gerðu sér hreiður í trjánum en henni var annt um þá. Bölvaði hún því þegar kettir voru að læðast inn í garðinn og raska ró fuglanna. Hún var nú samt alltaf mikill dýravinur, kannski óhætt að segja að hún hafi verið sérlegur vinur smælingj- anna. Við systurnar vorum ólatar við að koma inn með hrakta ketti eða villiketti sem við höfðum fund- ið, mýs eða fugla. Alltaf vorum við með kött á heimilinu og í gegnum árin hafa þeir verið nokkrir. Henni þótti alltaf vænt um þá og varð ekki síður sorgmædd en við þegar eitthvað amaði að þeim. Oft kom það fyrir að kettir væru að þvælast fyrir utan húsið og amma stalst þá til að gefa greyjunum ef henni fannst þeir eiga eitthvað bágt. Á veturna gaf hún svo smáfuglunum korn og fylgdist með þeim er þeir komu í stórum hópum á lóðina. Amma fór ekki mikið út eftir að þau fluttu til Grindavíkur, aðeins þá í kringum húsið til að gefa smá- fuglunum sínum eða að gá að kett- inum. Síðustu árin í lífi hennar átti læðan Sandra stóran þátt í dag- legu amstri ömmu, hún sá um að hún fengi nóg að borða og fannst okkur og afa stundum nóg um dekrið á kettinum, en það var auð- vitað góðlátlegt grín. Kötturinn var vissulega mikilvægur á marg- an hátt, því umstangið í kringum hana gerði að verkum að amma hafði eitthvað fyrir stafni og um eitthvað annað að hugsa en veik- indin sem sífellt hrjáðu hana, en enginn vissi iyrir víst hver voru. Tónlist var henni afar hjartfólgin og hennar uppáhald var klassísk tónlist. En hún hlustaði þó á flest annað. Hún bar sig alltaf vel og kvart- aði ekki mikið. En við vissum að henni leið ekki vel. Hún talaði oft um að hún vildi fá að deyja en hjartað í sér væri svo sterkt og það kom á daginn. Hún fór á hjúkrunarheimili aldraðra í Víði- hlíð síðla árs 1997 þar sem afi sá sér ekki lengur fært að annast hana með góðu móti. Þar fékk hún alla þá aðhlynningu sem hún þurfti og við gátum heimsótt hana þegar við vildum. Henni leið vel þar og fannst starfsstúlkumar þar mjög yndislegar og hlýjar. Smátt og smátt fór að draga af henni og eft- ir að afi dó var eins og lífslöngunin hyrfi með öllu, það slokknaði á ein- hverju innra með henni. Eftir það var aðeins spursmál hvenær hún fengi að fara. Líf hennar var ekki alltaf dans á rósum en það virtist aðeins gera hana að meiri persónu. Hún minnt- ist einhvem tímann á það að ef ævisaga hennar yrði skrifuð þá yrði það eins og spennandi skáld- saga. Með þessum orðum kveðjum við ástkæra ömmu okkar og vitum að henni líður vel núna hjá afa. „Þegar ég leystur verð þrautunum frá, þegar ég sólfagra landinu á, lifi og verð mínum lausnara hjá, það verður dásamleg dýrð handa mér. (Lárus Halldórsson.) Klara og Þuríður. + Sonur okkar og bróðir, ÍVAR EINARSSON, lést á sjúkrahúsinu í Valberg, Svíþjóð, föstudaginn 31. júlí. Minningarathöfn fórfram í S:T Jörgens kapellu fimmtudaginn 13. ágúst. Jarðsett var í Malmö föstudaginn 14. ágúst. Þökkum auðsýnda samúð. Kristrún Kirrý Halldórsdóttir, Arnar Árnason, Árni Einarsson, Sonja Arnarsdóttir, Silja Arnarsdóttir, Sara Arnarsdóttir, Hjálmar Brjánn Vilhjálmsson, Unnur Kristinsdóttir. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, LILJA GUÐMUNDSDÓTTIR, elli og hjúkrunarheimili Grund, áður til heimilis Hlíðargötu 24, Sandgerði, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur aðfaranótt föstudagsins 14. ágúst. Útförin hefur farið fram i kyrrþey samkvæmt ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Grundar fyrir einstaka umönnun. Þökkum auðsýnda samúð og vináttu. Sigríður Jakobsdóttir, Kristján Vernharðsson, Þorsteinn Jakobsson, Steinunn Anna Guðmundsdóttir, ísleifur Jakobsson, barnabörn og barnabarnabarn. KLARA ÍSFOLD JÓNA TANSDÓTTIR + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRA ÞÓRÐARDÓTTIR, Skriðustekk 14, Reykjavík, lést á Vífilsstaðaspítala mánudaginn 24. ágúst. Kristján A. Kjartansson, Hrafnhildur Guðmundsdóttir, Ingþór Kjartansson, Elísabet G. Árnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AUÐUR MAGNÚSDÓTTIR, Langagerði 78, lést á Landspítalanum laugardaginn 22. ágúst. Jarðsett verður frá Bústaðakirkju mánudaginn 31. ágúst kl. 13.30. Ásmundur Ólafsson, Hilmar Ólafsson, Aðalheiður Helgadóttir barnabörn og barnabarnabörn. + JENS SKARPHÉÐINSSON frá Oddsstöðum, Austurbrún 4, Reykjavík er látinn. Fyrir hönd aðstandenda, Edda Magnúsdóttir. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, ÓLÖF ÞÓRUNN SVEINSDÓTTIR, Lágabergi 5, Reykjavfk, sem andaðist á hjartadeild Sjúkrahúss Reykja- víkur fimmtudaginn 20. ágúst sl., verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 27. ágústkl. 15.00. Þeir, sem vildu minnast hennar, eru beðnir um að láta Hjartavernd njóta þess. Haraldur Lýðsson, Haraldur D. Haraldsson, Hanne Fisker, Friðgeir S. Haraldson, Ragna Rut Garðarsdóttir, Inga Þóra Haraldsdóttir og barnabörn. + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, KATRÍN SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR, Akbraut, Holtum, verður jarðsungin frá Marteinstungukirkju, Holtum, laugardaginn 29. ágúst kl. 14.00. Jón Ingileifsson, Þóra M. Magnúsdóttir, Jón L. Magnússon, Guðrún L. Magnúsdóttir, Gísli Þ.G. Magnússon, Árni S. Magnússon, Daníel Magnússon, Sigrún J. Magnúsdóttir, Bjarni P. Magnússon, barnabörn og barnabarnabörn Gísli Helgason, Þórunn I. Reynisdóttir, Guðrún B. Ólafsdóttir,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.