Morgunblaðið - 26.08.1998, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 26.08.1998, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1998 HESTAR MORGUNBLAÐIÐ Vondar fréttir? „Það skiptir ekki máli hvort þetta er satt; þetta er frétt, efhún spyrst út verða allir að birta hana. “ „Wag the Dog“ — E Eftir Kristján Arngrímsson RU íréttirnar af framhjáhaldi og meintu misferli Bills Clintons Banda- ríkjaforseta vondar? Það er að segja, eru þær dæmi um lélega fréttamennsku? Byrjum á því sem blasir við: Það er munur á atburði, annars vegar, og frétt, hins vegar. Þessi munur kemur glögglega í ljós þegar maður segir að frétt sé um atburð. Stundum er hnýtt í fjöl- miðla með því að segja þá „búa til“ fréttir. Það er reyndar alveg rétt, að strangt til tekið búa fjöl- miðlar til fréttir. En fjölmiðlar búa yfirleitt ekki til atburðinn sem fréttin er VIÐHORF Um. (Þótt þess séu reyndar dæmi.) Fréttaflutn- ingur af at- burðum á erlendum vettvangi setur íslenska fjölmiðla í dálítinn vanda, vegna þess að fæstir hafa þeir efni á að hafa eigin frétta- menn á vettvangi þessara at- burða. íslenskir fjölmiðlar verða því að reiða sig á erlenda fjöl- miðla, og þess vegna eru íslensk- ir fjölmiðlar oftar en ekki að segja fréttir um fréttir, fremur en fréttir um atburði. Þetta er þó alls ekki algilt, sumir íslenskir fjölmiðlar leggja metnað sinn í að hafa sitt eigið fólk „á staðnum". En ef nánar er að gáð eru það alls ekki bara íslenskir fjölmiðlar sem oft segja fréttir af fréttum. Það er alsiða í fréttamennsku að vitna í aðra fjölmiðla, þetta gera fréttastofur á borð við Reuters og dagblöð á borð við The New York Times. En það breytir ekki því, að atburðurinn sjálfur er kominn einu skrefi fjær. Þessi aðferð, að segja fréttir af fréttum, hefur í umfjölluninni um Bill Clinton og Monicu Lewinsky hafist í alveg nýjar og áður óþekktar hæðir. Áhugi frétta- mannanna á málinu er slíkur að þeir virðast oft missa sjónar á áð- urnefndum greinarmun á frétt og atburði og það að einhver fjöl- miðill greini frá einhverju er oft höndlað sem atburður. Það er að segja, fréttir verða fréttnæmar. Það verður ekki séð að frétta- menn geri sér mikla rellu út af þessari þróun starfsgreinarinnar. Menn verða alvariegir á svip og skella skuldinni á nýjasta alls- herjarblóraböggulinn: of harða samkeppni. Og frjáls samkeppni er heilög kýr, þannig að hvað getur maður gert nema dansað með? En svo er líka hitt, að fjöl- miðlar líta á það sem skyldu sína að greina frá sögusögnum ef ske kynni að það reynist fótur fyrir þeim. Þetta minnir svolítið á þá rök- semdafærslu (ef röksemdafærslu skyldi kalla) að það sé betra að trúa á Guð, jafnvel þótt maður sé ekki viss, ef hann skyldi eftir alltsaman reynast vera til. Þannig komist maður hjá því að verða hankaður á vantrúnni. Kannski stafar þetta af því að Lewinsky-málið er „stórt“, í þeim skilningi að það snýst um áhrifa- mikinn mann, en um leið eru af- skaplega fáir atburðir í því sem vitað er fyrir víst að hafi gerst. Flestir „atburðirnir" sem fjöl- miðlar hafa greint frá eru taldir hafa gerst. Umfjöllun fjölmiðla, bæði innlendra og erlendra, um Lewinsky-málið hefur verið svo víðtæk að fátt stenst samanburð, og ef tillit er tekið til þess hversu fáar staðreyndir eru þekktar í málinu stenst áreiðanlega ekkert samanburð. Svona gagnrýni er yfirleitt svarað með því að benda á að gíf- urleg eftirspurn sé eftir upplýs- ingum um þetta mál. Þótt fólk segist vera búið að fá nóg eru sjónvarpsstöðvar enn að hala inn metáhorf á Lewinsky. Þarna er sannarlega á ferðinni þversögn, en það er vafasamt af fjölmiðlum að skjóta sér á bak við hana, því að það er margt sem bendir til þess að í nafni þjónustu við áhorfendur/lesendur hafi fjöl- miðlar brugðist þeirri grundvall- arskyldu sinni að greina aðeins frá því sem þeir vita vera sannast og réttast. Menn hafa þó reynt að gera sitt besta, en staðreyndir í Lewinsky-málinu hafa verið svo sjaldséðar að fjölmiðlar hafa seilst í ótrúlegustu áttir eftir því litla sem er að hafa. Skyndilega var það orðin frétt að kjóllinn hennar Monicu var dimmblár, og svo fór eins og eldur í sinu um heiminn að kjóllinn hafi verið keyptur í GAP-verslun. Þetta verður að fréttum, ekki vegna þess að þetta séu lykilupplýsing- ar, heldur vegna þess að þetta eru staðreyndir í málinu og þar af leiðandi fágæti. Svo gerði Clinton árás. Ekki gagnárás á herskáa fjölmiðlunga, heldur sprengjuárás á stöðvar hryðjuverkamanna í Afganistan og Súdan. Af kaldhæðni sem fátt kemst í hálfkvisti við höguðu ör- lögin því svo að þegar fregnir bánjst af árásunum voru frétta- mennirnir í fylgdarliði forsetans að horfa á kvikmyndina „Wag the Dog“ (Að dilla hundinum), sem segir af Bandaríkjaforseta sem sviðsetur stríð til að draga athygli fjölmiðla frá kynlífs- hneyksli sem hann er flæktur í. Ekki svo að skilja að kvik- myndin segi „sannleikann" í „Lewinsky/Afganistan-málinu“. En myndin vekur mergjaðar spumingar, ekki hvað síst um það hvort stjórnmálamenn geti notfært sér þennan veikleika fjöl- miðla - það hversu óljós áður- nefndur greinai-munur á atburði og frétt virðist vera orðinn og glögglega hefur komið í Ijós í umfjölluninni um Lewinsky-mál- ið. Eitt af því sem byrjendur í heimspeki fá að kynnast er hug- hyggja írska biskupsins George Berkeleys, sem uppi var á 17. og 18. öld, og hélt því fram að efnis- heimurinn væri í rauninni bara til í huga mannanna og huga Guðs. Af kenningum hans er sprottin ein frægasta heim- spekispurning allra tíma: Ef tré fellur í skógi og enginn er nærri til að heyra það, kemur þá eitt- hvert hljóð? Byrjendur í heim- speki eru yfirleitt fljótir að af- greiða þetta sem bull og Berkel- ey gamla sem veruleikafirrtan. En þegar greinarmunurinn á frétt og atburði er orðinn óljós verður til nútímaútgáfa af hug- hyggju Berkeleys, og nútímaút- gáfa af spurningunni frægu gæti hljómað svona: Ef sprengja springur í Súdan og CNN segir ekki frá því, veldur hún þá ein- hverju tjóni? Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson ÁHUGAMANNAFLOKKURINN hefur sannað tilverurétt sinn og hér stilla verðlaunahafar í töltinu sér upp frá vinstri talið: Olafur og Stjörnufákur, Arndís og Riddari, Maríanna og Hlynur, Anna og Prins, Theódór og Strákur og sigurvegarinn Guðrún og Birta. OFSI frá Viðborðsseli og Vignir Siggeirsson höfðu sigur í B-flokki gæðinga en ekki náðu þeir að skáka Sigurbirni og Oddi frá Blönduósi í töltinu og urðu að gera sér annað sætið að góðu. SLAKTAUMATÖLTIÐ vex að vinsældum og nú sigraði Sveinn Ragnarsson á Brynjari frá Árgerði og sýnir hér hversu öruggur klárinn er enda verð- launin í höfn og óhætt að leika sér örlítið. DANIEL Ingi lengst til vinstri sigraði í tölti unglinga á Seiði og fara þeir hér í breiðfylkingu ásamt Eyjólfi á Gátu og Sylvíu og Djákna. Tröllaukið mót Sunnlendinga HESTAR Gaddstaðaflatir við Ilellu SAMEIGINLEGT STÓRMÓT SUNNLENSKRA HESTAMANNA TRÖLLAUKNU hestamóti sunn- lenskra hestamanna lauk á skapleg- um tima á sunnudag eftir flmm stranga daga þar sem að öllum lík- indum hefur verið sett Islandsmet í fjölda dóma á hrossum ef allt er sam- anlagt, dómar á gæðingum, íþrótta- keppnin, dómar kynbótahrossa auk kappreiða. Fram til þessa hafa Stórmótin og Suðurlandsmótin verið aðskilin en nú brugðið á það ráð að slengja þessu saman. Sýnist sjálfsagt sitt hverjum um ágæti þess en vel mátti heyra á þeim er báru hita og þunga framkvæmdarinnar að þau hefðu fengið góða útrás í þessum efnum og hefðu ekki knýjandi löngun í að standa að mótahaldi svona alveg í bráð. En mótið tókst prýðilega fyrir ut- an röskun á dagskrá suma dagana og þar á meðal tveggja tíma seinkun á dagskrá á laugardegi sem að mestu var skrifað á framkvæmd kappreiða. Það er gamalkunnug staðreynd að kappreiðar geta sett dagskráráætlun úr skorðum þegar ekki eru notaðir rásbásar. Veðrið lék við keppendur og mótsgesti allan tímann og telst það til tíðinda þegar Stórmót sunn- lenskra hestamanna er haldið í þurru veðri. Helga Guðnadóttir formaður Geysis benti hinsvegar réttilega á að rigning hefði verið þá helgi sem Stór- mótið hefði átt að vera samkvæmt hefðinni. Er því með réttu hægt að segja að snúið hafi verið á veðurguð- ina að þessu sinni. Um ágæti móts- svæðisins á Hellu þarf ekki að fjöl- yrða, fá eða engin svæði eru jafn vel í stakk búin til að afgreiða slíkt fjöl- dómamót ef svo má að orði komast. Þrír hringvellir þar sem fjarlægðir á milli eru hóflegai’ gera það að verk- um að hægt er að afkasta miklu á stuttum tíma. Þetta mikla mót endurspeglar vel þá grósku sem er í tamningum og þjálfun og áhuga fyrir keppni. En það endurspeglar og undirstrikai' einnig lítinn áhuga annarra en þeirra sem eru á kafi í hringiðu hestamennskunnar. Aðsókn var þokkaleg seinni part laugardagsins en í heildina ekki í neinu eðlilegu sami-æmi við umfangið. Það að skella saman tveimur fremur stór- um mótum orkar tvímælis. Það út- heimtir góða skipulagningu og út- sjónarsemi og mikinn mannafla til að láta hlutina gerast. Hugurinn og viljinn til að gera góða hluti er til staðar og er sjálfsagt á engan hallað þótt nefnt sé nafn Steinunnar Gunn- arsdóttur mótsstjóra sem sem virð- ist alltaf tilbúin að fórna sér fyrir góðan málstað sem hestamótin vissulega eru. Valdimar Kristinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.