Morgunblaðið - 26.08.1998, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 26.08.1998, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1998 MORGUNB LAÐIÐ FRÉTTIR Þýsk Dornier herflugvél gerð upp í flugskýli við Reykjavfkurflugvöll DAGFINNUR og Jón við mælaborðið sem Jón hefur verið að ganga frá síðustu daga. . Morgunblaðið/Jón Júlíusson FLUGVELIN var ekki burðug áður en liafist var handa við endurbæturnar. „Verð- ur betri en ný“ ÞÝSK Dornier DO 27 A herflug- vél, byggð árið 1960, er nú óðum að taka á sig upprunalega mynd í flugskýli út við Reykjavíkurflug- völl. Hún verður betri en ný eftir endurbæturnar að sögn eigand- ans, Dagfinns Stefánssonar. Hann og Jón H. Júlíusson byrj- uðu fyrir rúmum þremur árum að gera vélina upp og segjast ekkert vera að flýta sér eða setja sér tímamörk. Þeir vinni í vélinni þegar það henti þeim og hafi gaman af verkinu. Báðir fiugu þeir hjá Fiugieiðum og Loftleið- um og hafa lifað og hrærst í flug- inu áratugum saman. Jón er flugvirki og segir Dag- finnur að hann hafi haft yfirum- sjón með verkinu, hann sé búinn að vinna mjög vandlega og vélin verði betri en ný þegar endurbót- unum verði lokið. Þeir rifu allt innan úr vélinni og eru búnir að þrífa alla hluta hennar upp og mála. Mikill tími og fyrirhöfn hafa farið í að hafa upp á ýmsum varahlutum og þeir hafa fengið nokkrar sendingar frá Þýska- landi. Dagfinnur segir verkið orðið kostnaðarsamara en hann hafi grunað í fyrstu og segist ekki vilja hugsa til þess hver heildar- kostnaðurinn sé orðinn. Verið er að bólstra flugmannssætin og verða þau stillanleg en uppruna- legu sætin voru föst, að sögn Dagfinns, þannig verði margt fullkomnara og betra í vélinni en upphaflega var. Hann segir þá hafa fengið aðstoð margra flug- virkja og völunda við endurgerð- ina og margir bíði spenntir að sjá hvernig til takist. Síðast flogið fyrir rúmlega 20 árum Vélin var smfðuð 1960 í Friedrichshafen í Þýskalandi fyr- ir þýska flugherinn og segja þeir vélina af'fyrstu flugvélategnnd- inni sem smíðuð var í Þýskalandi eftir seinni heimsstyijöldina. Vél- in er með 275 hestafla mótor og í henni voru sæti fyrir átta manns að flugmönnum meðtöldum, hún var útbúin til að taka ljósmyndir en var einnig mikið notuð í sjúkraflug og bendir Dagfinnur á vængina og skýrir út að vegna lögunar þeirra þurfi hún mjög stuttar flugbrautir bæði til að taka á loft og lenda. „Svona vél þarf ekki nema 100 metra fyrir flugtak og hægt er Morgunblaðið/Þorkell DORNIER vélin er að verða sem ný eftir þrjú ár í höndum Jóns H. Júlíussonar og Dagfinns Stefánssonar. HREYFILL vélarinnar kominn í stand. að festa á hana skíði og lenda á jöklum eða í snjó, svo hún var hentug í sjúkraflug þar sem oft þarf að Ienda við erfíðar aðstæð- ur.“ Vélin var svo notuð um tíma í Belgíu til að æfa fallhlifarstökk og kom hún þaðan hingað til ís- lands, en var búin að vera hér einhvern tíma áður en Dagfinnur keypti hana. Vélin er sú eina sinnar tegund- ar á landinu en um leið og hún var flutt til landsins kom önnur vél, nokkuð yngri, með samskon- ar byggingu en tveggja hreyfla en vél Dagfinns er eins hreyfils. Tveggja hreyfla vélin kom í góðu ásigkomulagi en vélin sem Dag- finnur keypti kom öll í pörtum. Vélinni var síðast flogið 1977 samkvæmt skráningarbók og fór síðast í skoðun 1978. Komin í loftið fyrir aldamót Upp á sfðkastið hefur Jón ver- ið að koma mælaborðinu í lag og ekki er langt í að vélin verði til- búin til flugtaks. „Það er gaman að sjá þetta skríða saman og þær eru margar stundirnar sem bún- ar eru að fara í þetta, en þetta er skemmtilegt," segir Jón og Dag- finnur tekur undir það og segir þá vera farna að hugsa um hvaða della gæti tekið við eftir þetta. Þeir segja að fljótlega sjái fyr- ir endann á verkinu, vélin gæti jafnvel verið tilbúin til flugtaks í haust en þeir ætla ekki að setja sér nein tímamörk en vélin er nú skrásett hér sem TF-LDS. „Ætli hún verði nú samt ekki ábyggi- lega komin í loftið fyrir aldamót, ég held að það sé óhætt að segja það,“ segir Dagfinnur. Snýst allt í kringum flugið Þegar þeir fara að finna sér nýtt verkefni eftir að þessu verð- ur lokið er ekki ólíklegt að það tengist fluginu á einhvern hátt því báðir hafa þeir haft áhuga á því frá unga aldri og segja allt meira og minna hafa snúist um flugið hjá sér. Þeir flugu báðir hjá Loftleiðum og síðar hjá Flug- leiðum, Dagfinnur var flugsfjóri þar til 1988 og Jón flugvélstjóri til 1991. Dagfinnur segist hafa heillast af fluginu sem strákur, „maður leit upp til flugkappanna en á þeim tíma þótti það firra að ætla í flugnám, en ég sá ekkert annað og fór 19 ára gamall til Banda- ríkjanna til að læra flug,“ segir Dagfinnur. Síðan má segja að hann hafi meira og minna verið í loftinu og eftir að hann hætti að fljúga hjá Flugleiðum flaug hann í rúm tvö ár á vél skráðri í Bandaríkjunum sem flaug milli staða í Suður-Ameríku og Suð- austur-Asíu. Dagfinnur flaug henni í sjálfboðastarfi. „Um borð í vélinni var full- komin augnlækningastofa og læknar sinntu sjúklingum þar og kenndu læknum á þessum stöð- um, þarna urðu stundum mörg kraftaverk á dag,“ segir Dag- finnur. Hann segist alltaf hafa verið mikið fyrir að ferðast og sjá nýja staði og fari gjarnan í siglingar, svo hann notar fleiri farartæki en bara flugvélar. Jón og Dagfinnur eru svo báð- ir í flugklúbbnum Þyt, en félagar í klúbbnum eiga saman fjórar litlar vélar. Þess verður svo væntanlega ekki langt að bíða að þeir fljúgi þýsku Dornier flugvél- inni um loftin blá.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.