Morgunblaðið - 26.08.1998, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Hagnaður Búnaðarbankans nam 309 milljónum á fyrri árshelminffl
Heildarfjármagn hefur auk-
ist um 56% á tveimur árum
Ur milliuppgjöri
1. janúartil 30. júní
Úr rekstri Milljónir króna 1998 1997 Breyting
Vaxtatekjur 3.331 2.768 +20%
Vaxtagjöld 1.890 1.540 +23%
Hreinar vaxtatekjur 1.441 1.228 +17%
Aörar rekstrartekjur 815 764 +7%
Hreinar rekstrartekjur 2.256 1.992 +13%
Önnur rekstrargjöld 1.663 1.466 +13%
Framlög í afskriftareikning 284 220 +29%
Hagnaður fyrir skatta 309 306 +1%
Skattar 67 104 ■36%
Hagnaður tímabilsins 242 202 +20%
i
Efnahagsreikningur 30.júní 1998 31/12 '97 Breyting
| Eignir: \ Milljónir króna
Sjóður, ríkisvíxl. og kröfur á lánast. 7.263 8.006 ■9%
Útlán 55.760 48.578 +15%
Markaðsverðbréf og eignarhl. í fél. 10.718 7.646 +40%
Aðrar eignir 3.543 3.137 +13%
Eignir alls 77.284 67.367 +15%
| Skuldir og eigið fé:
Skuldir við lánastofnanir 3.546 3.770 ■6%
Innlán 44.708 40.424 +11%
Lántaka 22.619 17.217 +31%
Aðrar skuldir 610 1.225 ■50%
Reiknaðar skuldbindingar 311 324 -4%
Eigið fá 4.713 4.407 +7%
Skuldir og eigið fé samtals 77.284 67.367 +15% —
HEILDARFJÁRMAGN Búnaðar-
banka íslands hf. jókst um tæpa 10
milljarða á fyi-ri árshelmingi þessa
árs eða 16% og var heildarfjármagn
bankans í lok júní 77,3 milljarðar til
samanburðar við 67,4 milljarða í
ársbyrjun. Um mitt ár 1996 var
heildarfjármagn bankans 49,5 millj-
arðar og hefur það því á undanfórn-
um tveimur árum aukist um tæpa
28 milljarða eða 56%, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu frá bank-
anum.
Hagnaður Búnaðarbankans
fyrstu sex mánuði ársins nam 309
m.kr. en að teknu tilliti til reiknaðs
tekjuskatts nam hagnaður tímabils-
ins 242 m.kr. Fyrir sama tímabil í
fyrra var hagnaður fyrir skatta 306
m.kr. og hagnaður eftir skatta 202
milljónir. Aukning hagnaðar eftir
skatta er 20% og er raunarðsemi
eigin fjár 14,4% en 11,2% að teknu
tilliti til reiknaðs tekjuskatts. Þessi
rekstramiðurstaða er í samræmi
við rekstraráætlanir og endurspegl-
ar traustan rekstur bankans, segir í
tilkynningunni.
15% aukning útlána
Útlán bankans í lok júní voru 55,8
milljarðar og jukust um 7,2 millj-
arða frá áramótum eða 15%. Sam-
kvæmt bráðabirgðatölum frá Seðla-
banka Islands hafa útlán viðskipta-
banka og sparisjóða aukist um rúm
7% á sama tíma. Útlánaaukning
Búnaðarbankans er, samkvæmt
fréttatilkynningunni, því tvöföld á
við vöxt markaðarins og hefur
markaðshlutdeild bankans aukist til
samræmis. Hún er nú 21,4% til
samanburðar við 19,5% á sama tíma
í fyrra.
Innlán Búnaðarbankans á fyrri
helmingi þessa árs jukust um 4,3
milljarða sem er tæp 11% aukning.
Verðbréfaútgáfa jókst um rúma 1,7
milljarða sem er 41% aukning.
Aukning bankans í innlendum
sparnaði er því 14%. Markaðshlut-
deild Búnaðarbankans í innlánum
er nú 21,6% en til samanburðar við
21,4% á sama tíma í fyrra. Erlendar
lántökur jukust um 3,1 milljarð á
tímabilinu eða um rúm 23%.
Skipulagsbreytingar
í ársbyrjun voru gerðar ákveðnar
skipulagsbreytingar innan Búnað-
arbankans. Bankanum var skipt
upp í 5 svið: fyrirtækjasvið, verð-
bréfasvið, einstaklingssvið, útibúa-
svið og rekstrarsvið.
„Skipulagsbreytingin var í sam-
ræmi við stefnumörkun bankans
um skýrari skil milli þjónustu við
einstaklinga og fyrirtæki.
Aukning umsvifa bankans á öllum
sviðum má að mörgu leyti rekja til
umræddra breytinga og þá ekki síst
fyrirtækjasviðsins, en umfang fyrir-
tækjaviðskipta bankans hefur auk-
ist verulega og hafa mörg sterk fyr-
irtæki bæst í viðskiptamannahóp
hans,“ segir í fréttatilkynningunni.
Fyrir rétt tæpum tveimur árum
stofnaði Búnaðarbankinn verð-
bréfasvið innan bankans undir nafn-
inu Búnaðarbankinn Verðbréf og,
samkvæmt tilkynningunni, hefur
starfsemi þess sviðs gengið mjög
vel. Á Verðbréfaþingi Islands var
verðbréfasvið bankans aðili að um
35% allra viðskipta með hlutabréf
og 38% allra skuldabréfaviðskipta.
Þennan góða árangur má að hluta
til rekja til þess að fyrr á árinu lýsti
bankinn sig viðskiptavaka í 10 af 15
stærstu hlutafélögum á VÞÍ auk
þess sem bankinn hefur í ríflega ár
verið með umsvifameiri viðskipta-
vakt á skuldabréfum en aðrir aðilar
á markaði. Á hverjum degi leggur
bankinn i'eglulega fram bindandi
100 milljóna kr. kaup- og sölutilboð
í stærstu flokka spariskírteina og
húsbréfa. Verðbréfaútboð í umsjón
bankans jukust einnig umtalsvert
eða um 225% og útvegaði bankinn
fyrirtækjum sem og sveitarfélögum
alls 3,7 milljarða með sölu bréfa á
markaði.
Aukin umsvif
Stefán Pálsson, aðalbankastjóri
Búnaðarbankans, segist reikna með
því að seinni helmingur ársins verði
ekki lakari en sá fyrri.
„Það er mikil aukning í bankan-
um og við gei'um einnig ráð fyrir
aukningu á seinni hluta ársins.
Aukningin nam 15% á fyrri hluta
ársins en áætlanir gera ráð fyrir
20% aukningu fyrir árið í heild,“
segir Stefán.
Hann segir umsvif hafa aukist
mjög mikið og segir hlutdeild
bankans á fjármálasviði mjög vax-
andi. „Það er líka feikna uppgang-
ur á verðbréfasviði bankans og
stöðug aukning þar. Þó er sam-
keppni einnig mjög vaxandi en
þrátt fyi'ir að vaxtamunur hafi
lækkað úr 4,41% á síðasta ári í
3,98% núna, erum við samt með
meiri hagnað nú en á sama tímabili
í fyrra.“
Fosshotel
Viðræður
um yfírtöku
á hótelinu
á Laugum
UNNIÐ er að samningum um að
Fosshótel taki við rekstri sumar-
hótelsins í Framhaldsskólanum á
Laugum í Þingeyjarsýslu. For-
sendan fyiár því er að leyfi fáist til
að byggja nýja gistiálmu við skól-
ann en hún yrði þá nýtt í þágu
skólastarfs yfir veturinn.
Hugmyndir eru uppi um að
stofna hlutafélag sem eigendur
Fosshótelanna og heimamenn
stæðu að um byggingu gistiálmunn-
ar, á svipaðan hátt og gert var á
Hallormsstað. Ólafur Þorgeirsson,
framkvæmdastjóri Fosshótelanna,
segir að í gistiálmunni verði 29 her-
bergi, öll með baði. Framkvæmdum
á að vera lokið fyiir næsta sumar.
Jafnframt er fyrirhugað að breyta
14 herbergjum í skólanum og útbúa
þau með baði en ráðist verður í þá
framkvæmd haustið 1999. Eftir
þessar framkvæmdir yrðu 86 her-
bergi á hóteljnu, þai' af 43 með baði.
Að sögn Ólafs eru þessar fram-
kvæmdir forsenda þess að Foss-
hótelin geti tekið við rekstri hótels-
ins vegna þess að það þurfi að hafa
meirihluta herbergja sinna með
baði.
Vantar hótel
á Suðurlandi
Fosshótel reka nú ellefu hótel,
eftir að Fosshótel Björk, áður
Hótel Óðal, bættist í hópinn á
Akureyri. Hins vegar missir keðj-
an hótelið í Kjarnaskógi við Akur-
eyri þegar byrjað verður að breyta
því í dvalarheimili aldraðra í haust
og því verður væntanlega ellefta
Fosshótelið opnað á Laugum
næsta vor. Fleiri gætu bæst við því
að sögn Ólafs hefur fyrirtækið
mikla þörf fyrir að tengjast hóteli á
Suðurlandi. Ekkert hótel er á veg-
um fyrirtækisins frá Vatnajökli að
Reykjavík og eru stjórnendurnir
þess vegna að leita fyrir sér á því
svæði.
Ólafur segir að rekstur hótel-
anna hafi gengið vel í sumar, ekki
síst á Akureyri og í Reykjavík, þar
sem mesta gistiframboðið er.
Athugasemdir Olís hf. við grein um árs-
hlutareikninga olíufélaganna
Afskriftir innifald-
ar í þjónustutaxta
VEGNA greinar í Morgunblaðinu í
síðustu viku þar sem fjallað var um
útkomu í árshlutareikningum Olíufé-
laganna vill Einar Benediktsson, for-
stjóri Olís, koma að athugasemdum
vegna misskilnings sem hann segir að
komi fram í ummælum Kristins
Björnssonar, forstjóra Skeljungs hf.
í greininni er sagt að ýmsir hafi
bent á að Olíufélagið og Olís skili betri
afkomu en Skeljungur m.a. sökum
þess að félögin njóti hagræðingar í
gegnum Olíudreifingu hf. sem sér um
allan innflutning og dreifingu á olíu-
birgðum fyrirtækjanna sameiginlega.
Kristinn segir m.a. að fyrir afskriftir
og fjármagnsliði megi sjá að hagnaður
Oh's nemi 187 m.kr. á meðan Skeljung-
ur er með hagnað upp á 205 m.kr.
„Það sem breytir stöðunni er að af-
skriftir þeirra eru mun minni en okkar
sem skýrist af því að bæði þeir og 01-
íufélagið geta fært ákveðnar eignir yf-
ir á Oh'udreifinguna og koma þar af
leiðandi bókhaldslega betur út en ella.
Af þessu má ljóst vera að ef rekstur
félaganna er borinn saman á sömu
nótum, án reiknaðra liða eins og af-
skrifta, þá er munurinn á þeim Utill.“
Einar Benediktsson segir að mis-
skilningurinn liggi í því að afskriftir
Olíudreifingar á tækjum og búnaði,
öðrum en birgðastöðvum, sem fyrir-
tækið notar til dreifingar eldsneytis
eru innifaldar í þjónustutaxta Olíu-
dreifingar, og kemur því inn í dreif-
ingarkostnað Olís. „Þannig að hagn-
aður af í-eglulegri starfsemi olíufélag-
anna er fullkomlega sambæiTlegur.
Hins vegar þýðir þetta að Olís gi-eiðir
í raun afskiiftimar út í peningum til
Olíudreifingar sem þýðir að veltufé
frá rekstri verður minna og ekki sam-
bærilegt við sjóðstreymi Skeljungs,"
sagði Einar.
Hann sagði að uppgjör Olíudreif-
ingar byggðist þannig á þeirri for-
sendu að félagið selji þjónustu sína á
kostnaðarverði þannig að niðurstaða
rekstrarreiknings verði á hverjum
tíma sem næst núlli eftir afskriftir.
„Veralegan mismun á afskriftum
félaganna má hins vegar aðallega
rekja til þess að mun meiri fyrnanleg-
ir fastafjármunir eru bundnir á bak-
við veltu Skeljungs en Ohs en óvera-
legur munur er á veltu félaganna,"
sagði Einar.
KENNETH Peterson,
stofnandi og eigandi Col-
umbia Ventures Cor-
poration, hefur tekið við
stöðu forstjóra Norður-
áls hf. Peterson, sem
verið hefur stjómarfor-
maður Norðuráls, tekur
við starfinu af Gene
Caudill sem upphaflega
var ráðinn til að koma
fyrsta áfanga álversins á
laggimar.
CaudiU tekur við yfir-
stjóm byggingarfram-
kvæmda Norðuráls sem
eftir eru af fyrsta áfanga
og stjómun á uppsetn-
ingu á tækjabúnaði
ásamt prófunum.
Að sögn Kenneths Petersons var
ákveðið að skipta um forstjóra til að
Gene Caudill gæti einbeitt sér að
stjómun lokaframkvæmda við bygg-
ingu fyrsta áfanga álverksmiðjunnar.
„Við erum í dálítið sérstakri að-
stöðu, erum bæði að byggja verk-
smiðjuna og að hefja ft'amleiðslu í
henni og því er mikið að
gera hjá okkur.
Þar sem ég er ekki
verkfræðingur að
mennt en Gene aftur á
móti sérfræðihgur á
þessu sviði, auk þess að
hafa unnið við verk-
smiðjuna frá upphafi,
var ákveðið að gefa
honum svigrúm til að
einbeita sér að því að
ljúka framkvæmdun-
um. I staðinn tek ég við
stöðu forstjóra verk-
smiðjunnar til að létta
af honum ábyrgðinni af
framleiðsluþættinum,"
sagði Peterson í samtali
við Morgunblaðið en
hingað til hefur Gene haft umsjón
með hvorutveggja, byggingarfræm-
kvæmdum og framleiðslu.
Byggir bjálkakofa
Peterson sagði að nú væru um
tveir mánuðir þangað til framkvæmd-
unum við fyrsta áfanga ætti að Ijúka.
Hann sagði að líklega færi Gene
Caudell aftur til Bandaríkjanna
þegar byggingarfræmkvæmdum
væri lokið og möguleikar væru á að
hann færi að vinna við önnur störf
hjá Columbia Ventures eða hyrfi
tímabundið til annarra verkefna.
„Ég veit að hann hefur verið með
tvö verkefni í bið mjög lengi og ann-
að af þeim er að byggja bjálkakofa
fyrir sig og fjölskyldu sína,“ sagði
Peterson.
Hann sagði óráðið þvort Caudell
kæmi aftur til starfa á Islandi. Sjálfur
hyggst hann gegna stöðu forstjóra út
þetta ár, í það minnsta, en brátt mun,
að hans sögn, hefjast leit að forstjóra
sem gegna muni stöðunni til fram-
búðar.
„Ég hef ekki í hyggju að sitja í
stól forstjóra til lengdar og því verð-
ur fljótlega farið að leita að forstjóra
fyrir verksmiðjuna ,“ sagði Peter-
son.
Peterson mun verða búsettur hér
á landi til áramóta en fjölskylda
hans mun ekki flytja hingað til
lands.
Gene Caudill lætur af starfi forstjóra Norðuráls og
Kenneth Peterson tekur við
Caudill einbeitir sér að
að lokaframkvæmdum
Kenneth
Peterson