Morgunblaðið - 26.08.1998, Side 52

Morgunblaðið - 26.08.1998, Side 52
NIVEA VISAGE Drögum næst HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS pIiiiirgiuuiMaliiíí MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 MIÐVIKUDAGUR 26. ÁGÚST 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Nýstárleg brú í Kverk- fjöllum FERÐAMENN á hálendi ís- lands eru ýmsu vanir. Þegar engar eru brýrnar er öðrum ráðum beitt til þess að hægt sé komast leiðar sinnar. I þessu tilviki var álmastur lagt þvert yfir ána við Kverkfjöll þar sem hún kemur undan íshelli skrið- jökulsins. Hópur franskra ferðamanna á vegum Ferðamið- stöðvar Austurlands hafði gengið á Kverkfjöll og var á leið aftur í Sigurðarskála þegar ljósmyndari Morgunblaðsins rakst á hann klifrandi „lárétt upp mastrið". Svo virðist sem ferðamenn 'leggi leið sína í auknum mæli inn í Kverkfjöll en þar hefur orðið mikil aukning á gistinótt- um í sumar. Nú þegar voru þær orðnar 3.100 en voru 2.700 í fyrra, að sögn skálavarða. Morgunblaðið/Einar Falur Dánartíðni vegna krans- æðastíflu stórlækkar EKKI hefur tekist að sýna fram á beint samband milli hjartasjúkdóma og áhættuþátta á borð við reykingar og blóðfitumagn í umfangsmestu rannsókn á hjartasjúkdómum sem sögur fara af í heiminum. Meðal niðurstaðna í rannsókninni, sem gerð var að frumkvæði Alþjóða- heilbrigðisstofnunarinnar, er að dán- artíðni af völdum kransæðastíflu hér á landi lækkaði um 50% hjá körlum og 40% hjá konum meðan rannsókn- in stóð yfir, á árunum 1981 til 1994. Þá hefur tíðni hjartasjúkdóma af völdum reykinga, blóðfitu og blóð- þrýstings lækkað að sama skapi. Hins vegar er offita meira vandamál hér á landi en áður. Efasemdir/4 --------------- Léleg grásleppuvertíð Aldrei jafnmikill kennaraskortur í grunnskólum Reykjavíkur Ráðnir verði leiðbeinendur fáist ekki réttindakennarar EIRÍKUR Jónsson, formaður Kennarasambands Islands, segir að verði ekki gerð bragarbót á launum kennara stefni í hrun skólakerfisins á næstu árum. Eiríkur segir að aldrei fyrr hafi verið jafnmikill skortur á kennurum með réttindi í grunnskólum Reykjavíkur. Enn vanti 29 réttindakennara til starfa. Á fundi með skólastjórum nýlega beindu fræðsluyfirvöld í Reykjavík þeim tilmælum til skólastjórnenda að þeir réðu leiðbeinendur fengjust ekki réttindakennarar til starfa. Það hefur ekki gerst fyrr, að því talið er, að leiðbeinendur séu ráðnir til um- sjónarkennslu í grunnskólum í Reykjavík. Eiríkur segir að viðvarandi kenn- araskortur hafi verið úti á landi und- anfarin ár en hann sé meiri nú en áður. Allt að fjórðungur leiðbeinendur „Þegar tekin var ákvörðun um að einsetja skólana og fjölga vikulegum kennslustundum var í raun um leið tekin ákvörðun um fjölga kennara- stöðum. En það hefur ekkert vit- rænt verið gert til að hindra það að skortur á kennurum aukist með hverju ári,“ segii- Eiríkur. Hann segir að neyðarástandi sé viðhaldið í skólakerfinu með því að halda niðri launum kennarastéttar- innar, menntastofnanir búi við fjársvelti með þeim afleiðingum að útskrifuðum kennurum fjölgi ekki þrátt fyrir einsetningu skólanna. Þá hafi fjöldi kennara fundið sér betur launuð störf og síðustu kjara- samningar hafi ekki skilað fleiri kennurum til starfa. Byrjunarlaun kennara, sem hafa nýlokið þriggja ára háskólanámi, fyrir fullt starf við grunnskóla, séu nú um 100.000 kr. á mánuði. Eiríkur segir að verði ekki gerð veruleg bragarbót í launamál- um kennara leysist þetta mál aldrei. „Kjarasamningar kennara eru ekki lausir fyrr en í árslok 2000 og verði ekki gripið inn í þetta mál hið snarasta verður skólakerfið hrunið þá,“ segir Eiríkur. Hann segir að fyrir nokkrum ár- um hafi 90% kennara í Reykjavík haft kennararéttindi en hann telur að nú sé hlutfallið jafnvel komið nið- ur í um 75%. „Ég held að leiðbeinendum fjölgi ekki aðeins í vetur heldur verði menntun þeirra jafnframt minni en áður,“ segir Eii-íkur. Grásleppu- hrogn lækka GRÁSLEPPUVERTÍÐINNI er lokið. Heildaraflinn er um 6.480 tunnur sem er meira en helmingi minni afli en fékkst á vertíðinni í fyira þegar veiddust um 13.400 tunnur. Meðalgrásleppuveiði síðustu 10 ára er um 10.500 tunnur. Afla- verðmæti grásleppuhrogna hefur lækkað um 70% frá síðustu vertíð. Grásleppuveiðin í ár er sú léleg- asta í áratug. Um 500 bátar hafa grásleppuveiðileyfi en líklegt er að aðeins um 300 bátar hafi nýtt það í ár. Um 400 bátar nýta leyfið í meðal- ári. Grásleppuveiði í nágrannalönd- unum var einnig með lakasta móti í ár. Heildarveiði Kanadamanna, Norðmanna, Grænlendinga og Dana á vertíðinni er um 17.500 tunnur en hún var tæpar 49.000 tunnur í fyrra. Meira en helmingi/Bll Fyrstu verðlaun fyrir hönnun *■ KARIN Fischer afhendir Guð- rúnu M. Jóhannesdóttur fyrstu verðlaun í Stokkhólnú í gær en hún er í hópi nemenda við Myndlista- og handíðaskóla Is- lands, sem vann fyrstu verðlaun í samkeppni milli nemenda iðn- hönnunarskóla á Norðurlönd- um um hönnun og smíði hús- bfla. Guðrún tók við verðlaun- unum fyrir hönd þeirra Kari Siltala, Jóns Arnars Þorsteins- sonar, Þórdísar Aðalsteinsdótt- ur, Sigríðar Pálsdóttur, með soninn Hauk Pál Halvarsen, Þorgerðar Jónsdóttur og Guð- mundar Lúðvíks Grétarssonar að viðstöddum þeim Sigríði Heimisdóttur verkefnisstjóra og Hjálmari Árnasyni þing- manni. Viðurkenning fyrir/6 Atlanta semur um breiðþotur við Boeing Viðræður sagðar vera á lokastigi VIÐRÆÐUR hafa staðið yfir að undanförnu milli flugfélagsins Atl- anta og Boeing verksmiðjanna í Bandaríkjunum um kaupleigu eða kauprétt flugfélagsins á tveimur Boeing 747 breiðþotum. Samningar hafa ekki verið undirritaðir en munu vera á lokastigi. Amgrímur Jóhannsson, forstjóri Atlanta, varðist allra frétta er Morgunblaðið innti hann eftir stað- festingu á umræddum samningi í gærkvöldi. Sagði hann viðræður hafa farið fram en samningur væri ekki í höfn og ekkert hægt að segja þar sem málið væri á viðkvæmu stigi. Viðræðurnar við Boeing verk- smiðjurnar tengjast síðan viðræð- um um verkefni fyrir þoturnar tvær en ekki fengust nánari fregnir af hugsanlegu umfangi þeirra. Atlanta rekur í dag 16 þotur og er helmingur þeirra í eigu félagsins og helmingurinn á leigu. Clinton fékk íslenskan lax BILL Clinton Bandaríkjaforseti dvelst nú á eynni Martha’s Vine- yard ásamt HiIIary Clinton for- setafrú. í frétt í dagblaðinu New York Post í gær segir að forset- inn hafi á mánudag snætt hádeg- isverð með Vernon Jordan, lög- fræðingi sínum og vini, í sumar- húsi Jordans. Hvíta húsið gaf út tilkynningu um að á borðum hefði verið íslenskur lax, aspas og kartöflur. Að sögn Orra Vigfússonar var laxinn veiddur í Hofsá fyrir nokkru. Veiðimennirnir voru Jim Utaski og Dick Foster, sem hing- að koma á hverju ári. Foster á hús á Martha’s Vineyard og mun laxinn, sem forsetinn snæddi, vera frá honum kominn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.