Morgunblaðið - 14.10.1998, Page 1
STOFNAÐ 1913
233. TBL. 86. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Guðrún Katrín Þorbergsdóttir forsetafrú látin
, Avann sér velvild og
virðingu þjóðarinnar“
GUÐRÚN Katrín Þorbergsdóttir forsetafrú lést á
sjúkrahúsi í Seattle í Bandaríkjunum skömmu fyrir
miðnætti í fyrrakvöld 64 ára að aldri. Hún hafði barist
við illvígan sjúkdóm í rúmlega eitt ár. Herra Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti íslands, var við sjúkrabeð
konu sinnar ásamt dætrum þeirra þegar hún lést.
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra tilkynnti þjóðinni um lát for-
setafrúarinnar í sjónvarpsútsend-
ingu kl. 10 í gærmorgun.
„Pau tvö ár sem Guðrún Katrín
Þorbergsdóttir stóð við hlið manns
síns voru viðburðarík. Hún ávann
sér velvild og virðingu þjóðarinnar,
ekki síst vegna fágaðrar framkomu
og einlægs áhuga á velferð lands og
þjóðar. Þjóðin mun þvi syrgja mjög
hina látnu forsetafrú,“ sagði for-
sætisráðherra i ávarpi sínu.
Vakti aðdáun hárra sem lágra
Alþingismenn minntust Guðrún-
ar Katrínar á Alþingi í gær. Ólafur
G. Einarsson, forseti Alþingis,
flutti minningarorð og sagði að
andlát hennar væri harmsefni fyr-
ir íslenska þjóð.
„Fyrir rúmum tveimur árum
tók Guðrún Katrín við ábyrgðar-
miklu og vandasömu starfi hús-
móður á forsetasetrinu á Bessa-
stöðum og bjó þá að þroska og lífs-
reynslu til að rækja það. Því hlut-
verki, sem henni var fengið við
hlið forseta íslands, gegndi hún
með sannri prýði og vakti aðdáun
hárra sem lágra,“ sagði Ólafur í
minningarorðum.
Guðrúnar Katrínar var minnst
við upphaf kirkjuþings í gær. Síð-
degis var bænastund í Háteigs-
kirkju þar sem forsetafrúarinnar
var minnst og beðið var fyrir fjöl-
skyldu hennar. Messa var enn-
fremur sungin í Kristskirkju í
Landakoti þar sem Guðrúnar
Katrínar var minnst.
fslenski fáninn blakti við hálfa
stöng um allt land í gær vegna
andláts forsetafrúarinnar. For-
sætisráðherra óskaði eftir að fáni
yrði dreginn í hálfa stöng við op-
inberar stofnanir og mæltist til
þess að almenningur gerði slíkt
hið sama.
Forseta íslands og fjölskyldu
hans bárust fjölmargar kveðjur í
gær þar sem forsetafrúarinnar var
minnst.
Guðrún Katrín fæddist í Reykja-
vík 14. ágúst 1934. Foreldrar henn-
ar voru Guðrún Símonardóttir
Beeh húsmóðir og Þorbergur Frið-
riksson skipstjóri. Guðrún Katrín
lauk prófí frá MR 1955 og starfaði
síðan sem fulltrúi á Náttúrufræði-
stofnun íslands til ársins 1963. Hún
nam síðar fomleifafræði við Gauta-
borgarháskóla og þjóðfélagsfræði
við Háskóla íslands. Frá 1979-1996
að þremur árum undanskildum var
Guðrún Katrín framkvæmdastjóri
Póstmannafélags Islands. Hún var
bæjarfulltrúi á Seltjarnamesi frá
1978-1994.
Guðmn Katrín giftist Ólafi
Ragnari Grímssyni árið 1974 og
eignuðust þær tvær dætur, Guð-
rúnu Tinnu og Svanhildi Döllu.
Guðrún Katrín eignaðist tvær
dætur í fyrra hjónabandi sínu,
Erlu og Þóru.
■ Guðrún Katrín/6 og 7
Morgunblaðið/RAX
Fánar í hálfa stöng
FÁNAR blöktu við hálfa stöng víða um land í gær vegna andláts
Guðrúnar Katrínar Þorbergsdóttur forsetafrúar. Á heimili henn-
ar á Bessastöðum var fáni dreginn í hálfa stöng
Samkomulag afstýrir loftárásum NATO
Fylgzt með
efndum Serba á
landi og úr lofti
Belgrad, Washington. Reuters.
LOFTÁRÁSUM Atlantshafsbandalagsins á hemaðarlega mikilvæg
skotmörk í Júgóslavíu, sambandsríki Serbíu og Svartfjallalands, var
afstýrt í gær - að minnsta kosti um sinn - með því að Slobodan
Milosevic, forseti Júgóslavíu, komst að samkomulagi við Richard
Holbrooke, erindreka Bandaríkjastjórnar, um að stjórnvöld í
Belgrad myndu hlíta kröfum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um að
bundinn skuli endi á valdbeitingu Serba í Kosovo-héraði.
Meðal þess sem kveðið er á um í
samkomulaginu er að Öryggis: og
samvinnustofnun Evrópu, ÖSE,
muni senda 2.000 manna lið til að
hafa eftirlit með því að Serbar upp-
fylli skuldbindingar sínar, og að
Belgrad-stjómin heimili flugvélum
NATO að stunda eftirlitsflug yfir
Kosovo. Auk þess er kveðið á um
skuldbindingu Júgóslavíustjórnar til
að leita varanlegrar samningslausn-
ar á pólitískri framtíð héraðsins.
Kosningar innan níu niánaða?
Júgóslavneska Tanjug-fréttastof-
an greindi frá því í gærkvöldi, að
Milan Milutinovic, forseti Serbíu,
hefði tilkynnt að innan níu mánaða
yrði efnt til kosninga í Kosovo, þar
sem kosið yrði til þings og sveitar-
stjórna. Einnig stæði til að verða við
öðrum kröfum SÞ; héraðið fengi aft-
ur fyrri sjálfstjórnarréttindi, komið
yrði á fót lögregluliði í Kosovo óháðu
yfirvöldum í Belgrad og skæruliðar
aðskilnaðarsinna yrðu ekki sóttir til
saka.
■ Langt í frá ljóst/19
Fj ármálamarkaðir
Uppsveifi-
an stöðvuð
New York. Reuters.
HLUTABRÉF hættu að
hækka í verði í kauphöllinni á
Wall Street í gær, eftir að hafa
tekið töluvert stökk upp á við á
föstudag og mánudag. Gengi
dollarans gagnvart japanska
jeninu hélt áfram að hækka
vegna efasemda um að áætlun
japanskra stjómvalda um stór-
tækar aðgerðir til hjálpar
bankakerfi landsins skiluðu til-
ætluðum árangri. Dollarinn
lækkaði aftur á móti gagnvart
þýzka markinu, sem var rakið
til áframhaldandi áhyggna af
samdrætti í efnahagskeifi
heimsins.
■ Milljörðum dælt/21
Prodi falin
sljdrnar-
myndun
Rdm. Reuters.
OSCAR Luigi Scalfaro, forseti ítal-
íu, fól í gær Romano Prodi að leita
nýs meirihlutastuðnings á þingi til
myndunar 56. ríkisstjórnar landsins
frá stríðslokum.
Scalfaro kallaði Prodi, sem gegnt
hefur forsætisráðherraembættinu til
bráðabirgða frá því stjórn hans féll
naumlega sl fóstudag, á sinn fund
eftir að hafa síðustu tvo daga átt við-
ræður við helztu stjórnmálaleiðtoga
landsins, sem miðuðu að því að finna
lausn á stjórnarkreppunni eins fljótt
og auðið er.
Er talið líklegt að miðju-vinstri-
flokkarnir, sem stóðu að hinni follnu
stjórn Prodis, leiti nú eftir stuðningi
miðjuflokksins UDR, sem er í
stjórnarandstöðu, til að ekki þurfi að
leita samstarfs á nýjan leik við
kommúnista sem gengu úr skaftinu
fyrir viku vegna deilu um fjárlög
næsta árs.
-------------
Netanyahu
útilokar
samkomulag
Jerúsalem. Reuters.
BENJAMIN Netanyahu, forsætis-
ráðherra Israels, sagði í gær að úti-
lokað væri á þessu stigi að friðar-
samningai- við Palestínumenn yrðu
undh-ritaðir á fundi leiðtoga þjóð-
anna í Bandaríkjunum síðar í vik-
unni, í kjölfar þess að ísraelskur
maður var skotinn til bana og annar
særður lífshættulega í skotárás í
Jerúsalem í gær.