Morgunblaðið - 24.01.1999, Side 16
16 SUNNUDAGUR 24. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
FRJÁLSÍÞRÓTTIR/STÓRMÓT ÍR
Fjórir Evrópumeistarar reyna sig í keppni í Laugardalshöll í kvöld
Falla heims- og
Evrópcmet?
Nokkrir af þekktustu frjálsíþróttamönnum
heims reyna með sér í frjálsíþróttaveislu
IR í Laugardalshöll í kvöld. Víst er að
Stórmótið hefur aldrei verið eins vel skipað
keppendum og nú. Ivar Benediktsson
veltir hér vöngum yfír hverju má búast
við og er bjartsýnn á að árangur á heims-
mælikvarða náist.
Fjórir frjálsíþróttamenn sem hafa
orðið Evrópumeistarar í íþrótt
sinni verða á meðal keppenda á
Stórmóti ÍR sem fram fer í þriðja
sinn í Laugardalshöll í kvöld kl. 21.
Tveir þessara íþróttamanna, Erki
Nool, Eistlandi, og Úkraínumaður-
inn Anzhela Balakhonova, hafa náð
því að verða meistarar bæði innan-
húss og utan. Einn fjögurra Islend-
inga sem borið hafa þennan titil,
Vala Flosadóttir, ÍR, mætir að sjálf-
sögðu til leiks og fjórði er Norðmað-
urinn Steinar Hoen, en hann varð
Evrópumeistari í hástökki á Evr-
ópumeistaramótinu utanhúss í
Helsinki 1994. Auk þeirra verða á
meðal keppenda Jón Arnar Magn-
ússon, Tindastóli, Islandsmethafi í
tugþraut og Norðurlandamethafi í
sjöþraut og bronsverðlaunahafí í
sjöþraut á EM 1996 og á HM 1997.
Roman Sebrle, Tékklandi, ein af
rísandi stjörnum í tugþrautinni,
sem tekið hefur stórstígum framför-
um á síðustu misserum og náði m.a.
8.589 stigum í keppni sl. sumar.
Pórey Edda Elísdóttir, FH, sem
er annar besti stangarstökkvari
Norðurlanda um þessar mundir en
hún hefur eins og Sebrle tekið mikl-
um framfórum á stuttum tíma.
Einnig mætir þriðji besti stangar-
stökkvari heims í kvennaflokki,
Daninn Marie Rasmussen til leiks
og silfurverðlaunahafinn frá Sam-
veldisleikunum sl. haust, Elamarie
Gerrytz, S-Afríku.
Guðrún Arnardóttir, Ármanni,
fremsti 400 m grindahlaupari Norð-
urlanda um þessar mundir, mætir
að vanda til leiks, beint úr æfinga-
búðum í Athens í Bandarikjunum.
Mætir hún m.a. írska grinda-
hlauparanum, Susan Smith, sem
hefur verið í úrslitum á öllum stór-
mótum í 400 m grindahlaupi undan-
farin þrjú ár. Pær fá verðuga
keppni frá sænska grinda-
hlauparanum Susanna Kallur.
Vinnur Jón í fyrsta sinn?
Erki Nool er mörgum hér á landi
að góðu kunnur enda hefur hann
verið einn helsti keppinautur Jóns
Arnars á flestum mótum bæði utan-
húss og innan síðustu fjögur ár.
Nool hefur ævinlega tekist að vera
skrefi á undan Jóni, síðast á EM í
sumar er hann vann tugþrautar-
keppnina með glæsibrag. Hann
vann sjöþraut á EM innanhúss í
Gautaborg 1997 og varð annar á
HM innanhúss ári síðar. Á báðum
mótum varð Jón í þriðja sæti.
Roman Sebrle heltist úr lestinni á
EM í Valencia í fyrra, en gerði eng-
in stórvægileg mistök á EM utan-
húss í sumar og varð í 6. sæti með
8.477 stig. Sebrle er aðeins 24 ára
og án efa einn efnilegasti tugþraut-
armaður heims. Með sama fram-
haldi næstu ár er ekki ólíklegt að
hann sé líklegur til að ná lengra en
landar hans Tomás Dvorák og Ro-
bert Zmelik, sem þó hafa orðið
heimsmeistarar og Olympíumeist-
arar í tugþraut.
Príþrautarkeppni þessara þriggja
verður æsispennandi en einnig
keppir Olafur Guðmundsson, tug-
þrautarmaður frá Selfossi og
frændi Jóns Arnars. Hann er þó
ekki líklegur til að halda í við þessa
þrjá reyndu kappa.
Spurningin er bara sú hvort Jóni
takist loks að vinna Nool í einvígi.
Margt bendir til þess þegar árang-
ur þessara manna er skoðaður, en
þríþrautin er samsett úr 50 m
grindahlaupi, kúluvarpi og lang-
stökki. Jón er betri grindahlaupari
en bæði Nool og Sebrle og ætti að
óbreyttu að hrósa sigri þar. Sama
má segja um kúluvarpið, Jón ætti
að varpa kúlunni a.m.k. 16 metra,
jafnvel 16,50, en best á hann innan-
húss 16,37 metra. Sebrle fer tæp-
lega yfir 15 metra og Nool ekki
heldur sem má teljast góður með
14,50. Þriðja og síðasta greinin
verður líklega sú jafnasta og þar
ræðst hvort Jón hafi þá náð það
góðri forystu eftir greinarnar tvær
til þess að vinna í stigakeppninni.
Bæði Nool og Sebrle eru góðir lang-
stökkvarar og m.a. hefur Nool
stokkið yfir 8 metra. Sebrle hefur
farið nærri 8 metrum og sama má
segja um Jón en hann hefur samt
aldrei náð að stökkva eins langt í
þrautarkeppni og hann getur best.
Með hliðsjón af árangi'i í langstökki
á Stórmótum IR síðustu ár verður
það að teljast líklegt að ekki verði
stokkið langt umfram 7,50 metra
nema keppendur verði sérlega vel
upp lagðir. Fari svo ætti íyrsti sigur
Jóns á Erki Nool að verða stað-
reynd, Sebrle verður síðan rétt á
eftir þeim í þriðja sæti.
Einstakur viðburður
Þrátt fyrir að keppendalistinn í
þríþrautinni sé góður er ljóst að
aldrei hefur tekist jafnvel til með
keppendaval í stangarstökki kvenna
á Stórmóti ÍR og nú. Verði aðstæð-
ur réttar og fái keppendur stuðning
frá áhorfendum má búast við frá-
bærri keppni, a.m.k. bendir kepp-
endalistinn til þess að um sé að
ræða einstakan viðburð hér á landi.
Fjórir keppendanna eiga mögu-
leika á að stökkva yfir 4,30 metra
verði keppnisskapið í lagi hjá þeim.
Tvöfaldur Evrópumeistari síðasta
árs, Balakhonova frá Úkraínu hefur
stokkið 4,45 jafnt úti sem inni. Hún
er mikill keppnismaður, og gefur
sig ekki fyrr en í fulla hnefana. Hún
kom hingað til lands skömmu eftir
EM í fyrravetur og stökk þá 4,31 og
varð að bíta í það súra epli að tapa
fyrir Völu sem fór 5 cm hærra.
Balakhonova hefur æft við góðar
aðstæður í Moskvu síðustu mánuði
og ætlar sér stóra hluti á HM inn-
anhúss í Japan í mars nk. Takist
henni vel til gæti Evrópumetið, 4,48
verið í hættu.
Vala hefur æft vel í vetur og verið
laus við bakmeiðsli sem hrjáðu hana
síðari hluta síðasta sumars. Vala nær
sér ævinlega vel á strik í Höllinni
fyrir framan landa sína og hefur ekki
brugðist þeim á Stórmótum ÍR síð-
ustu ár. Vala er hins vegar eins og
aðrir keppendur að hefja keppnis-
tímabilið og því fróðlegt að sjá hvar
hún stendur. Hún er líklegust til
þess að veita Balakhonovu keppni og
mun eflaust selja sig dýrt.
Elamarie GeiTytz frá S-Afríku er
örlítið óskrifað blað, en miðað við
árangur hennar utanhúss á hún að
geta farið sömu hæð innanhúss.
Hún er hins vegar eitt af nýju nöfn-
um í íþróttinni sem hefur verið að
skjótast upp á stjörnuhimininn í
stangarstökki kvenna.
Þórey Edda hefur æft í Svíþjóð
frá því í haust í samvinnu við Völu
og undir stjóm Pólverjars Slan-
islavs Szczybra. Þórey bætti sig um
tugi cm utanhúss í sumar og hefur
stokkið 19 cm hærra úti en inni og
verður eflaust fljót að nálgast 4,30
innanhúss, svo hver veit hvað gerist
í kvöld?
Rasmussen hin danska á a.m.k.
að stökkva fjóra metra og kannski
fellur danska metið í Höllinni.
Fer Einar Karl yfir 2,20 m?
Eitt er víst að í hástökkskeppn-
inni fellur vallarmetið í Laugardals-
höll, 2,16 metrai' sem Einar Karl
Hjartarson setti í febrúar í fyi-ra er
hann sló 10 ára gamalt íslandsmet
Gunnlaugs Grettissonar innanhúss.
Norðmaðurinn Steinar Hoen hefur
hæst stokkið 2,36 metra innanhúss
og þó vart sé að búast við því að
hann fari svo hátt í kvöld má vonast
eftir því að hann fari yfir 2,30 m
sem yrði frábær árangur og svo
sannarlega á heimsmælikvarða.
Burtséð frá öllum stórgóðum afrek-
um á heimsmælikvarða sem reikna
má með að sjáist í Höllinni að þessu
sinni myndi koma Hoens ein og sér
nægja til að gera sér leið á mótið.
Islandsmethafinn, Einar Karl
Hjartarson, hefur æft vel og stökk
m.a. 2,15 metra í Kringlunni við fá-
brotnar aðstæður um síðustu helgi.
Fastlega má búast við því að hann
geri tilraun til að verða fyrstur ís-
lendinga til að stökkva yfir 2,20 og
með góðum stuðningi ætti honum
að takast það.
Keppni Guðrúnar, Smith og Kall-
ur í 50 m grindahlaup og 50 m
hlaupi verður spennandi enda eiga
þær allar mjög líka tíma í 100 m
grindahlaupi og 100 m hlaupi. Guð-
rún hefur æft m.a. með Smith í At-
hens í Bandaríkjunum í vetur og er
eflaust í mjög góðri æfingu nú þar
sem hún hyggur á að keppa í Evr-
ópu í 400 m hlaupi á næstu dögum, í
því skyni að ná lágmarki fyrir
heimsmeistaramótið í Japan sem
fram fer í mars.
Það verður semsagt boðið upp á
mikla frjálsíþróttaveislu í Laugar-
dalshöllinni í kvöld, ósvikna
skemmtun þar sem fremstu frjálsí-
þróttamenn heims reyna með sér.
Slíkur viðburður er ekki daglegt
brauð hér á landi og ætti að vera
landsmönnum hvatning til að koma
og hvetja keppendur til dáða. Evr-
ópumet og heimsmet hafa fallið í
Höllinni á þessum mótum síðustu
ár. Hver veit nema það gerist
einnig nú, möguleikinn er a.m.k.
góður.
Morgunblaðið/Kristinn
JÓN Amar Magnússon ætlar sér sigur í keppni við Erki Nool og Roman Sebrte en úrslitin gætu ráðist ■
langstökkinu, en þeir þremenningar hafa allir stokkið um átta metra.