Morgunblaðið - 24.01.1999, Blaðsíða 30
30 SUNNUDAGUR 24. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
„Okkur sýnist
þetta vera í fyrsta
skiptið í ein sex
eða sjö ár sem
deildin í Breiðdal
verður réttu meg-
in við núllið.“
skipulagðar voru í jólamánuðinum.
Einn daginn var kveikt á jólatrénu
með söng og harmonikkuspili, aðra
daga voru tilboð á ýmsum vörum og
kynningar og þegai- nær dró jólum
kom jólasveinn í heimsókn. Dag-
skráin vakti mikla lukku meðal bæj-
arbúa og verslun gekk mun betur
en Sif og Ingibjörg höfðu átt von á.
Þær urðu varar við að fólk hefði
þegar farið til Egilsstaða eða
Reykjavíkur að versla en endaði svo
með að kaupa jólagjafírnar í kaup-
félaginu.
Unnið eftir tilfinningn
Vinnan hófst í nóvember fyrir
rúmu ári. Strax og þær tóku við fór
verslun að aukast. „Þótt vel hafi
gengið frá því að við tókum við úti-
búinu viljum við alls ekki gera lítið
úr þeim sem áður ráku kaupfélagið.
Eg held að skýringuna á velgengn-
inni sé fremur að fínna í því að fólk
er farið að versla meira í heima-
byggð en áður og þá á kostnað
Egilsstaða, fremur en að hér sé
bein samkeppni á milli þein-a
tveggja verslana sem eni hér á
Breiðdalsvík,“ segir Sif.
Aðspurðar hvemig þær fari að
því að halda stöðugri aukningu
þakka þær markmiðunum sem þær
setja sér. „Við setjum okkur mark-
mið fyrir hvem mánuð. Síðan ger-
um við það sem þarf til að ná þeim,“
segja þær og bæta við að þær vinni
að mestu eftir tilfinningu. Þær fikri
sig áfram með það sem gengur vel
og leggi mikla vinnu í það sem þær
gera. Afgreiðslutími kaupfélagsins
er frá kl. 10 til 18 virka daga, og 10
til 13 á laugardögum, þótt oftast sé
hægt að ná tali af þeim stöllum í
húsakynnum kaupfélagsins langt
fram yfir þann tíma.
Ánægja með útibúið á Breiðdal
Friðrik Karlsson kaupfélagsstjóri
Kaupfélags Stöðfirðinga segir
stjóm kaupfélagsins vera mjög
ánægða með þann árangur sem
náðst hefur undanfarið í útibúinu á
Breiðdalsvík. „Okkur sýnist þetta
vera í fyrsta skiptið í ein sex eða sjö
ár sem deildin í Breiðdal verður
réttu megin við núllið,“ segir Frið-
rik, sem sjálfur tók við stöðu kaup-
félagsstjóra fvrir ári.
Kaupfélag Stöðfirðinga var stofn-
að árið 1931, bæði í Breiðdalsvík og
á Stöðvarfirði. Friðrik segir rekstur
þess hafa verið sveiflukenndan í
gegnum tíðina, eins og gengur og
gerist með flest kaupfélög. Hins
vegar hafi verið misjafnt hvort
reksturinn væri meiri á Stöðvarfirði
eða Breiðdal.
„Hér á ámm áður sá kaupfélagið
í Breiðdalsvík um sláturhúsið og
átti stóran hlut í frystihúsi þar, svo
á tímabili var reksturinn á Breiðdal
töluvert umfangsmeiri en á Stöðv-
arfirði. Síðar varð reksturinn meiri
á Stöðvarfirði og svona hefur þetta
gengið upp og niður í gengum árin.
Upp úr 1990 var opnuð önnur versl-
un í Breiðdalsvík sem sennilega hef-
ur haft sitt að segja með gengi
deildarinnar þar, sem við þykjumst
vera að vinna smám saman til baka
núna.
Undanfarin ár hefur skiptingin á
heildarveltunni verið 60% á Stöðv-
arfirði og 40% í Breiðdalsvík. En
það er heldur að draga saman með
verslununum núna með þessum ár-
angri á síðasta ári hjá þeim,“ segir
Friðrik.
Kaupfélag Stöðfirðinga á stóraf-
mæli eftir tvö ár og segir Friðrik að
haldið verði upp á þann áfanga með
viðamiklum hætti.
INGIBJÖRG Jónsdóttir og Sif Hauksdóttir hafa rekið útibú Kaupfélags Stöðvarfjarðar síðan
í nóvember 1997. Verslun þar hefur aukist mikið á þessum tíma.
ALLT FRÁ TÍTUPRJÓN-
UM UPP í TRAKTORA
Eftir Rögnu Söru Jónsdóttur
ÞRÁTT fyrir að slæmar
fréttir hafi borist undan-
farin misseri af atvinnuá-
standi sjávarútvegs á
Breiðdalsvík og ekki sé 100% tryggt
með framhald fiskvinnslu þar, hefur
uppbygging og uppsveifla átt sér
stað á öðrum sviðum samfélagsins.
Útibú Kaupfélags Stöðfirðinga hef-
ur gengið með eindæmum vel sl. 14
mánuði og má það þakka krafti og
elju tveggja ungra kvenna. 23%
veltuaukning varð í rekstrinum milli
áranna 1997 og 1998 og var nýliðið
ár jafnframt það íyrsta í langan
tíma sem afkoma verslunarinnar
var jákvæð.
í nóvember 1997 tóku Sif Hauks-
dóttir og Ingibjörg Jónsdóttir við
rekstri verslunar Kaupfélags Stöð-
firðinga á Breiðdalsvík og síðan hef-
ur verslun þar aukist stöðugt. Nán-
ast undantekningalaust hefur orðið
aukning frá mánuði til mánaðar
þegar litið er á árin 1997 og 1998.
35% aukning varð til dæmis á milli
desember 1997 og desember 1998
og einnig hafði orðið aukning frá því
í desember 1996.
Þær Ingibjörg og Sif buðu sig
fram til að taka við rekstri verslun-
arinnar eftir að komið hafði til tals
að loka henni vegna slæmrar af-
komu. Undanfarin ár hafði verslun-
in verið rekin án hagnaðar en
ákveðið var að reyna að breyta því.
Eins og stendur starfa þar bæði Sif
og Ingibjörg auk þriðja starfs-
manns sem er í hálfu starfi.
Takmarkið að auka
verslun í heimabyggð
Það hefur aldrei verið álitið auð-
velt verk að breyta tapi í gróða og
standast jafnframt samkeppni við
mun stærri og öflugri fyrirtæki
annars staðar á landinu. En þær
stöllur hófu rekstrinn fullar bjart-
sýni og elju og fyrstu mánuðina var
unnið hátt í 19 tíma á sólarhring.
Þær helltu sér í slaginn líkt og þær
tækju þátt í verðstríði stórmarkað-
anna í Reykjavík. Áhersla var lögð
á vöruúrval og lágt vöruverð auk
þess sem farið var af stað með alls
kyns uppákomur og kynningar.
Markmiðið var sett hátt. Tak-
þetta nú allt saman,“ segir Ingi-
björg.
Að auki gera þær samninga um
að fá að skila vörum ef þær seljast
ekki. „Ein ástæðan fyrir því að við
náum að bjóða fjölbreytt vöruúrval
er að við semjum um að fá að skila
pöntun ef hún selst ekki. Við pönt-
um inn mikið af vörum og ef þær
seljast illa megum við skila þeim.
Þetta á sérstaklega við um gjafa-
vöru. Núna fýrir jólin gerðum við
mikið af þessu svo hér var mikið
framboð af gjafavöru og annarri
vöru. Ibúarnir kunnu að meta þetta
og versluðu í heimabyggð fyrir jól-
in. Það seldist nánast allt upp hjá
okkur og fólk verslaði hér fremur
en að fara til Egilsstaða eða
Reykjavíkur. En það er staðreynd
að gjafavara hér er á lægra verði
hjá okkur en til dæmis í ýmsum sér-
verslunum í Reykjavík,“ segir Ingi-
björg.
Hátíðardagskrá fyrir jólin
Auk þess að bjóða lágt vöruverð
og gott vöruúrval leggja Ingibjörg
og Sif mikið upp úr því að skapa
notalegt andrúmsloft. í versluninni
er spiluð tónlist, þar er heitt kaffi á
könnunni og vinsamleg þjónusta.
Og eins og gengur og gerist í kaup-
félögum um allt land sest fólk niður,
fær sér kaffi og spjallar saman.
Einnig hafa þær verið með ýmsar
kynningar og uppákomur.
„Við höfum verið með kynningar
á ýmsum vörutegundum, boðið
fólki að smakka og verið með til-
boð. Fyrir jólin vorum við svo með
lukkupott þar sem mjög vegleg
matarkarfa með allt til jólahaldsins
var í vinning. Allir sem versluðu
fyrir 5.000 krónur eða meira
merktu sér strimil og settu í pott-
inn, og skömmu fyrir jól var vinn-
ingshafinn dreginn út. Þetta
heppnaðist mjög vel og mikið um
að fólk væri að koma hingað vegna
þess að eitthvað sérstakt væri að
gerast,“ segir Sif.
Verslun í desembermánuði gekk
einstaklega vel, enda mikið í það
lagt að gera hana spennandi. í byrj-
un mánaðarins vai- jóladagatal
kaupfélagsins gefið út og því dreift
á öll heimili. I því var dagskrá yfir
uppákomur og skemmtanir sem
VIÐSKIPn AIVINNULIF
ÁSUNNUDEGI
► Ingibjörg Jónsdöttir er fædd 1. nóvember 1961 á MælivöIIum
á Jökuldal. Hún Iauk gagnfræðaprófi frá Eiðum og vann lengi
við þjónustustörf á Hótel Bláfelli á Breiðdalsvík og við físk-
vinnslu á Breiðdalsvík og víðar. Ingibjörg er gift Róbert Aðal-
steinssyni og eiga þau íjögur börn.
► Sif Hauksdóttir er fædd 11. mars 1960 í Kópavogi. Hún lauk
verslunarprófi árið 1981 og tækniteiknun frá Iðnskólanum í
Reykjavík árið 1990. Sif hefur lengi starfað við skrifstofustörf,
m.a. hjá frystihúsinu á Breiðdalsvík. Sif er gift Gísla Karlssyni
og eiga þau þrjú börn.
KAUPFÉLAG Stöðfirðinga á Breiðdalsvík er ekki ýkja stórt en und-
anfarið hefur verið boðið upp á fjölbreytt vöruúrval og svipað vöru-
verð og verslanir höfuðborgarsvæðisins og Egilsstaða.
markið var að auka verslun í heima-
byggð meðal íbúa á Breiðdalsvík.
Þær könnuðu vöruverð í nágranna-
byggðum, og í stærri byggðakjörn-
um eins og á Egilsstöðum og í
Reykjavík og ákváðu að standast þá
samkeppni hvað vöruverð og vöru-
úrval varðaði. Og í dag er vöruúr-
valið ótakmarkað og verðið svipað
og í Reykjavík.
„Hjá okkur getur þú keypt allt
frá títuprjónum og upp í húsgögn.
Við leggjum okkur fram við að veita
góða þjónustu og pöntum allt sem
viðskiptavinina kann að vanta. Við
höfum til dæmis afgreitt gám af
sementi, ísskáp, sjónvarp, sófa og
svo ótal margt fleira. Hér áttu að
geta fengið allt sem þig vantar, á
sama verði og í bænum,“ segir Sif.
Gjafavara ódýrari en í ýmsum
sérverslunum í Reykjavík
„Við höfum getað boðið fólki upp
á sama vöruverð og í bænum, bæði
á gjafavöru og öðrum varningi þar
sem við höfum gert hagstæða samn-
inga við heildsölur. Annaðhvort
reynum við að fá magnafslátt eða
frían flutning austur. Þannig hefst