Morgunblaðið - 29.01.1999, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.01.1999, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Með full- fermi í Krossanes Básafell greiði Barða skaðabætur BÁSAFELL hf. var í gær í Hæstarétti dæmt til að greiða Barða ehf. tæpar fimm milljónir króna í skaðabætur vegna þess að síðarnefnda félagið fékk ekki notið viðbótaraflahlutdeildar á grund- velli laga nr. 105/1996 um breyt- ingu á lögum um stjórn fiskveiða. Barði hafði árið 1994 selt Eyra- sparisjóði endurnýjunarrétt báts- ins Isborgar BA, sem hafði farist skömmu áður, og var tekið fram í afsalinu að honum fylgdu engar veiðiheimildir. Aflahlutdeild báts- ins hafði Barði flutt yfir á annan bát í sinni eigu. Síðar heimilaði Barði sparisjóðnum að nýta endur- nýjunarrétt bátsins á fiskiskipið Hafrafeli IS, sem er í eigu Bása- fells hf. Með fyrrgreindum lögum var lögfest heimild til að úthluta við- bótaraflahlutdeild til skipa sem stundað höfðu línuveiðar á ákveðn- um tímabilum, enda kæmi viðbótin í stað svokallaðrar línutvöföldunar. Á gi-undvelli lagabreytinganna var skipinu Hafrafelli úthlutað viðbót- araflahlutdeild, m.a. í þorski og ýsu, sem grundvallaðist á afla- reynslu Isborgar. Þegar Básafell hf. neitaði að viðurkenna rétt Barða til aflahlutdeildarinnar krafðist síðarnefnda félagið bóta. Taldi Hæstiréttur að Barði hefði átt réttmætt tilkall til viðbótarafla- hlutdeildarinnar, þrátt fyrir að fé- lagið ætti ekki fiskiskip þegar hún kom til úthlutunar, og með því að fara á mis við hana hefði það ber- sýnilega orðið fyrir tjóni. Var Básafell því dæmt til að greiða bætur sem svöruðu til gangverðs aflahlutdeildarinnar í viðskiptum. Málið fluttu Kristinn Hallgríms- son hrl. af hálfu Básafells hf. og Jónatan Sveinsson hrl. fyrir hönd Barða ehf. NÓTASKIPIÐ Sigurður VE kom með fullfermi af loðnu í Krossa- nes í gærmorgun, eða um 1.540 tonn, og er þetta jafnframt fyrsti loðnufarmurinn sem berst til verksmiðjunnar á nýbyijuðu ári. Sigurður VE hefur verið trygg- asti viðskiptavinur verksmiðj- unnar í Krossanesi síðustu ár og séð henni fyrir stærstum hluta af þeim afla sem komið hefur þar til vinnslu. Kristbjörn Árnason skip- stjóri sagði aflann hafa fengist í 8 köstum um 55 sjómflur austur af Skrúð. Hann sagðist ekki hafa orðið var við mikið af loðnu á svæðinu og hún væri nokkuð dreifð. Morgunblaðið/Kristján Landsvirkjun lýsir áhuga á að aflað verði virkjunarheimildar í Bjarnarflagi „LANDSVIRKJUN hefur lýst áhuga sínum á að aflað verði virkj- unarheimildar í Bjarnarflagi og eiga um málið góða samvinnu við heima- menn en ennþá hefur engin niður- staða fengist í málinu,“ sagði Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjun- ar, er hann var spurður hvernig mál stæðu varðandi undh'búning hugs- anlegrar gufuaflsvirkjunar í Bjam- arflagi. Sigbjöm Gunnarsson, sveitar- stjóri Skútustaðahrepps, segir heimamenn hafa mikinn áhuga á virkjun í Bjamarflagi en þar er nú fyi'ir lítil virkjun eða rafstöð. Bora Heimamenn sýna einnig yrði nokkrar viðbótarholur til að hægt verði að nýta jarðvarmann og er gert ráð fyrir allt að 30 MW virlq- un. Sigbjörn sagði að rask yrði til- tölulega lítið, fremur yrði um hreinsun og lagfæringu að ræða á svaeðinu. Áhuga heimamanna sagði Sig- áhuga bjöm byggjast á því að auk þess sem nýrri virkjun fylgdi uppbygging og nokkm- ný störf til frambúðar myndu henni einnig fylgja nýir möguleikar í ferðaþjónustu. Þar mætti til dæmis hugsa sér að gefa ferðamönnum kost á að sjá hvernig gufuafl er vh'kjað og koma upp baðaðstöðu. Fyrsta skrefið sagði Sigbjöm vera lagaheimild til virkjunar og síð- an kæmi trúlega til umhvei-fismats. Það sem vefðist hins vegar fyrir mönnum væra ákvæði laga frá 1974 um vemdun Laxár og Mývatns. Skútustaðahreppur hefur beðið um lögfræðilegt mat á hvort þau lög fái staðist í .dag, m.a. hvort þau séu framar lögum um umhverfismat, og kvað hann það mat væntanlegt á næstunni. Varla væri hægt að taka næsta skref í þessum virkjunarmál- um iýrr en þessi staða lægi ljós fyrir en þegar þar að kæmi yrði það Al- þingis að taka á málinu. Refsað fyr- ir að taka á sig sök HÆSTIRÉTTUR dæmdi mann í þriggja mánaða óskilorðsbundið fangelsi f gær fyrir brot á 1. mgr. 142. gr. almennra hegningarlaga, sem leggur refsingu við því að bera rangt fyrir dómi. Maðurinn bar vitni í opinberu máli á hendur Franklín K. Steiner sem dæmt var í í Hæstarétti í des- ember 1997. Þar kvaðst hann eiga fikniefni sem fundist höfðu á heim- ili Franklíns. Framburðurinn þótti svo ótrúlegur að ekki var tekið á honum mark. Var Franklín þá sak- felldur og dæmdur í 20 mánaða fangelsi. I kjölfarið var höfðað opinbert mál á hendur þeim báðum og var Franklín gefin að sök hlutdeild í broti á 1. mgr. 142. gr. almennra hegningarlaga. Héraðsdómur Reykjaness sýknaði báða ákærðu. Taldi hann ekki fært að refsa mönnum fyrir að taka á sig sök fyr- ir aðra og vitnaði meðal annars til meginreglna um að sökuðum eða grunuðum mönnum verði ekki refs- að fyrir rangan framburð. Hæstiréttur féllst ekki á þessi sjónarmið. Ákærði hefði borið rangt af ásetningi í fyrra málinu. „Skiptir ekki máli um refsinæmi gerða hans, þótt þær hafi ekki leitt til rangrar úrlausnar í því máli. Verða gerðir hans heldur ekki refsilausar þótt hann hafl tekið með þeim á sig sakir annars manns,“ segir rétturinn. Hins vegar var Franklín Steiner sýknaður því ákæravaldinu hefði ekki gegn ein- dreginni neitun þein-a beggja tek- ist nægilega að sýna fram á hlut hans í broti meðákærða. Málið fluttu Bogi Nilsson ríkis- saksóknari af hálfu ákæravaldsins en skipaðir verjendur ákærðu voru Kristján Stefánsson hri. og Jón Magnússon hrl. ---------------- Vinnuslys í Kópavogi KARLMAÐUR var fluttur á slysa- deild Sjúkrahúss Reykjavíkur um sexleytið í gær eftir að hafa fallið á milli hæða í nýbyggingu við Lækj- arsmára í Kópavogi. Að sögn læknis á vakt á Sjúkrahúsi Reykjavíkur virðist maðurinn hafa sloppið við al- varleg meiðsl. Lést í bflslysi í Skagafirði MAÐURINN sem beið bana í umferðarslysi í Skagafirði í fyrrakvöld hét Hjörvar Jó- hannsson og var bóndi á Hofí í Vesturdal í Skagafirði. Hann var 54 ára að aldri. Hjörvar var ókvæntur en lætur eftir sig uppkominn son. Sérblöð í dag Á FÖSTUÐÖGUM MEÐ blaðinu í dag fylgir 6 síðna bæk- lingur frá íþrótta- og tómstunda- ráði Reykja- víkur „Allir á skíði“. Blað- inu er dreift á höfuðborgar- svæðinu og á Suðurnesjum. Ekkerl spurt um Arnar Gunnlaugsson C/1 Grindvíkingar burst- uðu KR-inga C/2 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.