Morgunblaðið - 29.01.1999, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Golli
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra ásamt Jóni Baldvini Hannibalssyni sendiherra, Gustavo Iruegas (lengst t.v.) sendiherra Mexíkó á íslandi með aðsetur í Ósló, og gestgjafanum, Ernesto
Zaragoza, í sal á heimili hins síðastnefnda, sem skreyttur var aragrúa uppstoppaðra veiðidýra frá öllum heimshornum. Zaragoza hefur sjálfur fellt öll dýrin. A myndinni til hægri eru
Bryndís Schram, Ástríður Thorarensen, Davíð Oddsson, Carlos Zaragoza og Brynjólfur Bjarnason að virða fyrir sér stórfisk í fiskvinnslunni Nautico.
'
Ánægja í Sonora-fylki með samstarfíð við íslensku fyrirtækin
Ahersla lögð á
persónuleg tengsl
Davíð Oddsson forsætisráðherra heimsækir þessa dagana
ásamt fylgdarliði íslensk fyrirtæki í Mexíkó. Opinber heimsókn
Davíðs hefst á mánudag. Kristján Jónsson blaðamaður og Kjart-
an Þorbjörnsson ljósmyndari fylgjast með heimsókninni.
RÁÐAMENN í fylkinu Sonora í
Mexíkó lýsa yfir ánægju sinni með
samstarfið milli íslensku fyrirtækj-
anna Granda og Þormóðs ramma/Sæ-
bergs við þarlenda aðila um rekstur
útgerðar og fiskvinnsluhúss.
„Það hefur verið mjög gefandi og
ánægjulegt að starfa með ykkur ís-
lendingum og ég legg sérstaka
áherslu á þau persónulegu tengsl
sem hafa myndast,“ sagði Emesto
Zaragoza, sem er einn af mestu
áhrifamönnum í atvinnulífi Gu-
aymas, í kvöldverðarboði til heiðurs
Davíð Oddssyni forsætisráðherra og
eiginkonu hans, Ástríði Thoraren-
sen. Zaragoza-fjölskyldan rekur m.a.
samsteypuna Cozar sem á helmings-
hlut í sjávarútvegsfyrirtækin Sigló-
Nautico á móti íslensku aðilunum.
Guaymas er nokkru stærri en
Reykjavík og eru fiskveiðar mikil-
væg atvinnugrein þar en bátamir yf-
irleitt litlir enda stunda þeir ein-
göngu veiðar á Kalifomíuflóa. Kvik-
myndin The Mask of Zorro var tekin
í og við borgina og bjuggu Anthony
Hopkins og fleira stórmenni þá á
hóteli rétt fyrir utan hana.
Samstarfið við Cozar byrjaði 1995
og var í fyrstu eingöngu um að ræða
veiðar á stórri rækju með tíu bátum.
En síðar var farið að vikka út sviðið,
meðal annars farið að veiða risa-
smokkfisk og hvítfisk. Haustið 1997
var svo tekið í notkun nýtt frystihús
sem er hið fullkomnasta í Mexíkó.
Húsið er rúmlega 5.000 fermetrar,
að mestu byggt eftir íslenskum
teikningum og mikil áhersla lögð á
vöravöndun og hreinlæti. Plötufryst-
ingin var sú fyrsta sinnar tegundar í
öllu landinu. Þar era nú í föstu starfi
um 60 manns en geta verið allt að
200 þegar mest er að gera. Húsið
kostaði nær 300 milljónir króna,
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna hef-
ur séð um sölu og markaðssetningu á
öðrum afurðum Nautieo en rækju.
Rækjan á Bandaríkjamarkað
íslensku starfsmennimir hjá
Nautico eru Vilhjálmur Mar Guð-
mundsson sem hefur verið á staðn-
um frá 1997 en einnig er þar nú að
störfum tímabundið Svavar Svavars-
son, framleiðslustjóri hjá Granda,
vegna undirbúnings fyrir væntan-
lega sardínufrystingu og saltfisk-
vinnslu. Notaður verður Alaska-
þorskur og er þá eitt af markmiðun-
um að komast inn á markaði í Brasil-
íu. Aðstoðarmaður Vilhjálms er
Ubaldo Benitez Hernandez sem
vann á Islandi í tíu mánuði í fyrra og
lærði þá svo mikla íslensku að hann
getur vel bjargað sér. Mun hann
taka að sér stjórn saltfiskvinnslunn-
ar en hann er menntaður í efnaverk-
fræði. Lítil rannsóknastofa er í
frystihúsinu.
Svo vel hefur tekist til við gæðaeft-
irlitið að rækjan stenst kröfur á
Bandaríkjamarkaði og er öll seld
þangað. Smokkfiskurinn fer til Spán-
ar og Japans og segir Brynjólfur
Bjarnason að beita þurfi flóknum að-
ferðum til að sneiða hráefnið niður
þannig að það henti kaupendum.
Togskipið Arnames var sent til
borgarinnar 1997 og er það notað til
veiða og rannsókna en lítið er vitað
um stofna og veiðimöguleika á þess-
um slóðum. Er Arnamesið eina fiski-
skipið í Mexíkó sem getur togað á
meira en 100 faðma dýpi. Brynjólf-
ur segir mikilvægt að virða hefðir á
staðnum þegar menn til dæmis kynni
nýjar hugmyndir um veiðarfæri í von
um að nýta betur skip og mannskap.
„Samvinnan við Zaragoza-feðgana er
lykilatriðið, þeir þekkja menninguna
á staðnum og vita hvemig á að leysa
málin. Okkur hefur sem dæmi tekist
það sem Suður-Kóreumönnum og
öðrum hefur mistekist, að fá leyfi til
að stunda togveiðar með stóra skipi,“
segir Brynjólfur.
I dag, föstudag, heldur forsætis-
ráðherra og föraneyti hans áleiðis til
borgarinnar Mazatlan en þar era fyr-
irtækin J. Hinriksson og Netagerð
Vestíjarða með rekstur.
Áhugi á tvíhliða
samstarfi í
sjávarútvegi
Halldór Asgrímsson utanríkisráðherra er í
opinberri heimsókn í Taflandi. Kjartan
Magniísson blaðamaður er í för með honum.
SAMSTARF íslendinga og Taílend-
inga í sjávarútvegi og samvinna á
sviði alþjóðamála var meðal þeirra
mála sem Halldór Ásgrímsson utan-
ríkisráðherra ræddi við varaforsæt-
isráðherra og utanríkisráðherra Ta-
ílands í gær en hann er nú staddur
þar í opinberri heimsókn ásamt ís-
lenskri viðskiptasendinefnd. Góð
þátttaka var á fundi sem sendinefnd-
in átti með aðilum í taílenska versl-
unarráðinu í gær.
I gærmorgun hitti Halldór Surin
Pitsuwan, utanríkisráðherra Ta-
ílands, og að fundi loknum snæddu
þeir saman hádegisverð. Á fundinum
kom fram mikill vilji til að auka tví-
hliða samstarf ríkjanna, sérstaklega
á sviði sjávarútvegs. Halldór segir að
þeir hafi einnig rætt um að auka
samskipti EFTÁ og ASIAN, efna-
hagsbandalags Suðaustur-Asíuríkja
en Taílendingar munu taka við for-
mennsku þess í júlí nk. Á fundinum
bauð Halldór taílenska utanríkisráð-
herranum til Islands og þekktist
hann boðið.
Síðdegis hitti Halldór Supachai
Panitchpakdi varaforsætisráðherra
sem einnig fer með viðskiptamál.
Panitchpakdi er í framboði til emb-
ættis aðalframkvæmdastjóra Al-
þjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO)
og hafa Islendingar Iýst stuðningi
við framboð hans. Á fundinum árétt-
aði Halldór stuðninginn og ræddi um
áherslur Islendinga í alþjóðavið-
skiptum en búist er við því að næsta
samningalota WTO hefjist á næsta
ári. Ráðherrarnir ræddu einnig leið-
ir til að auka samskipti ríkjanna á
næstu árum.
Ráðherrarnir voru sammála um að
landbúnaðarmál, sem sjávarútvegur
heyrir undir hjá WTO, myndu skipta
miklu máli í komandi samningalotu
'
Morgunblaðið/Lárus Karl
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, heilsar að hætti innfæddra við höllina niiklu (Great Palace) í Bang-
kok í Taílandi.
og yrðu raunar eitt stærsta framtíð-
arverkefni stofnunarinnar. Panitchp-
akdi sagði spennandi tíma framund-
an í alþjóðaviðskiptum; það yrði
hlutverk WTO á að stuðla að auknu
frelsi í heimsviðskiptum.
Halldór segist vera ánægður með
viðræður sínar við taílenska ráða-
menn og vonar að þær eigi eftir að
skila sér í betra samstarfi á milli
landanna. „Fundirnir voru afar
gagnlegir og hjá ráðherrunum kom
fram einlægur áhugi á að auka sam-
stai-f við íslendinga á ýmsum svið-
um. Það e.r ánægjulegt að utanrikis-
ráðherrann skuli hafa áhuga á að
koma til íslands og ég vona að hann
komi fljótlega," segir Halldór.