Morgunblaðið - 29.01.1999, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1999 33
Fjórar samískar
listakonur í Nor-
ræna húsinu
NY STENDUR yfir sýning á verk-
um eftir fjórar listakonur frá
Samalandi í sýningarsölum Nor-
ræna hússins. Sýningin heitir á
samísku „Geaidit“ sem mætti þýða
sem sjónhverfingar. Verkin hafa
vísan til uppnma þeirra sem Sama,
en listakonurnar eru allar þekktar
í heimalandinu og utan þess og
hafa kynnt samíska menningu og
listir á Norðurlöndum og víðar,
segir í fréttatilkynningu. Listakon-
urnar eru Britta Marakatt Labba
og Maj-Lis Skaltje frá Svíþjóð,
Ingunn Utsi frá Noregi og Marja
Helander frá Finnlandi.
Britta Marakatt Labba sýnir
textílverk og segir í verkum sín-
um sögur með því að sauma þær
með litríku garni í efni. Hún
stundaði nám í Sunderby lýðhá-
skólanum, listadeild 1971-73,
Listiðnaðarskólanum, Gautaborg-
arháskóla - textíl- og handverks-
deild 1974-78. Hún hefur gert
skreytingar í opinberum bygging-
um og verk hennar eru í eigu
listasafna á Norðurlöndum. Hún
hefur haldið einkasýningar og
tekið þátt í samsýningum á Norð-
urlöndum og víðar.
Maj-Lis Skaltje hóf myndlistar-
feril sinn að afloknu háskólaprófi
og starfaði m.a. við svæðisútvarp
Sama í Svíþjóð. Hún lauk
Fil.pol.mag. frá Uppsala háskóla
ái-ið 1966. Hún stundaði nám í Nor-
ræna listaskólanum í Kokkola árin
1989-91 og í Myndlistaskólanum í
Helsingfors 1991. Maj-Lis hefur
haldið einkasýningar og tekið þátt í
samsýningum. Hún notar ýmsa
tækni við myndverk sín, m.a. skinn
og tölvugrafík.
Ingunn Utsi á að baki langan
myndlistarferil og hefur sýnt á
Norðurlöndum og víðar. Hún sýnir
teikningar og skúlptúra unna úr
rekavið og notar ýmis efni önnur
til að fullkomna verkið. Hún
stundaði nám í Listaskólanum í
Þrándheimi árin 1973-75 og 1977.
Hún hefur gert skreytingar í opin-
berum byggingum og verk hennar
eru í eigu listasafna í Noregi og
Svíþjóð.
Marja Helander stundar nám í
ljósmyndun við listatækniháskól-
ann í Helsinki. Hún hefur verið til-
nefnd til FotoFinlandia verðlaun-
anna og hefur tekið þátt í mörgum
Ijósmyndasýningum. Marja
Helander kannar ætt sína og þjóð
með hjálp heimildaljósmynda. Þar
sameinast sjónræn mannfræði,
samískt landslag og nýjustu að-
ferðir og tækni við gerð ljósmynda.
í bakgrunni landslagsmyndanna er
svipmót foi-föður samískrar ættar
hennar, Kajda-Nilla, sem hlekkur á
milli fortíðar og nútíðar.
SIIDA samasafnið í Inari í
Norður Finnlandi og Náttúru-
stofnun Lapplands höfðu umsjón
með sýningunni.
Sýningin er opin kl. 14-18 alla
daga nema mánudaga. Henni lýkur
14. febrúar.
EIN kvenmynda Gunnars Þjóðbjörns.
U í
Kona” í
Bílar & list
LISTAMAÐURINN Gunnar
Þjóðbjörn Jónsson opnar sýningu
á verkum sinum í bflar & list að
Vegamótastíg 4 á morgun, laug-
ardag, kl. 16. 011 verkin eru unn-
in með olíu á striga og er þema
sýningarinnar „Kona“.
Gunnar lauk námi frá
Glermesterskolen ved Holbæk f
Danmörku árið 1996 og frá mál-
aradeild Myndlista- og handíða-
skóla íslands árið 1993. Sýn-
ingin er opin virka daga frá
10-18 og laugardaga 10-16.
Valin til þátttöku í alþjóð-
legri málverkasamkeppni
VERK eftir Ernu G. Sigurðar-
dóttur, Guðrúnu E. Ólafsdóttur,
Sigrúnu Eldjárn, Soffíu Sæ-
mundsdóttur og Þorstein Helga-
son voru valin til að keppa íýrir
íslands hönd í alþjóðlegri mál-
verkasamkeppni sem myndlistar-
vörufyrirtækið Winsor & Newton
stendur fyrir í tilefni aldamót-
anna.
Þátttakendur í keppninni eru
frá 54 löndum og er þetta stærsta
málverkasamkeppni sem haldin
hefur verið og er það skráð í
heimsmetabók Guinness. Valin
eru fimm bestu málverkin í
hverju þátttökulandi og verða
þau send til London þar sem
lokakeppnin fer fram. Líkur eni
á að Karl Bretaprins muni opna
sýningu á þessum verkum í
London en hún verður einnig sett
upp í Brussel, Stokkhólmi og
New York, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Skipuð var þriggja manna
dómnefnd frá Pennanum, Hallar-
múla og veitir Winsor & Newton
verðlaun fyrir 12 bestu málverkin
í lokakeppninni. Þær myndir
verða síðan prentaðar á dagatal
fyrir árið 2000 sem gefið verður
út af Winsor & Newton.
skólans, þá í Myndlista- og handíða-
skólann 1994-’97 og að lokum í sjálf-
stætt nám við Academie Výtvamich
Umeníe Myndlistaakademíuna í
Prag 1998.
Sýningin stendur til föstudagsins
19. febrúar.
-------------------
Heklu. Einar mun ganga út frá
fullyrðingunni: „Listin hermir eft-
ir náttúrunni".
Gabríela með
innsetningu í
Galleríi
Sævars Karls
GABRÍELA Friðriksdóttir opnar
sýningu í Galleríi Sævars Karls á
morgun, laugardag, kl. 14.
Gabríela er stúdent frá MR 1992,
var í myndlistaskólanum RYMI
‘92-’93, fór í fomámsdeild Mynd-
lista- og handíðaskólans ‘93—’94,
sumarið ‘94 í tréiðnaðardeild Iðn-
Námskeið
osf fyrirlestrar
hjá MHÍ
LEIFUR Þorsteinsson ljósmynd-
ari heldur námskeið í myndbreyt-
ingu í tölvu-“photoshop“ í tölvuveri
MHÍ í Skipholti vikuna 8.-12. febr-
áur. Unnið er með breytingar og
lagfæringar á tónum og litum.
íslensk myndlist í eina öld er yf-
irskrift námskeiðs sem Aðalsteinn
Ingólfsson listfræðingur sér um og
hefst 8. febrúar. Kennt verður í
Skipholti 1.
Halldór Björn Runólfsson list-
fræðingur heldur fyrirlestur um
samtímamyndlist tímabiisins
1960-95, innanlands og utan, í
Skipholti 1, og hefjast fyrirlestr-
arnir 9. febrúar.
Einar Garibaldi Eiríksson
myndlistarmaður heldur fyrirlest-
ur í Laugarnesi mánudaginn 1.
febrúar, er nefnist Flogið yfir
Sýningum lýkur
Nýlistasafnið
SÝNINGIN Norðurleið - Suður-
leið lýkur nú á sunnudag. A sýn-
ingunni eru verk eftir Ulrich Dúr-
renfeld, Ulrike Geitel og Ralf
Werner frá Köln, Erwin Herbst og
Joachim Fleischer frá Stuttgart og
Dominique Evrard frá Frakklandi.
Sýningin er opin daglega nema
mánudaga frá kl. 14-18.
-------------
Tónlistar- og
menningarkvöld
í Þorlákskirkju
TÓNLISTAR- og menningarkvöld
verður í Þorlákskirkju á sunnudag
kl. 20.30. Skólakór Kársnesskóla
syngur undir stjórn Þórunnar
Björnsdóttur og Marteinn Hunger
Friðriksson dómorganisti leikur
orgelverk. Þá mun Söngfélag Þor-
lákshafnar syngja undir stjórn Ró-
berts Darlings. Ræðumaður
kvöldsins verður biskup Islands,
hr. Karl Sigurbjörnsson.
Þóra
Björnsdóttir
Einsöngvara-
próf Þóru
Björnsdóttur
ÞÓRA Björnsdóttir og Kolbrún Sæ-
mundsdóttir píanóleikari halda ein-
söngstónleika í Tónleikasal Söng-
skólans, Smára, Veghúsastíg 7,
Reykjavík, á morgun, laugardag kl.
14.30. Tónleikarnir
eru lokaáfangi
burtfararprófs
Þóru frá Söngskól-
anum í Reykjavík.
A efnisskránni
eru m.a. íslenskir
Ijóðasöngvar eftir
Pál ísólfsson og
Jón Asgeirsson og
„Der Hirt auf dem
Felsen“ eftir
Schubert, þar sem Ármann Helga-
son klarinettleikari verður þeim til
fulltingis, ljóð Grieg og Fauré.
Einnig verða fluttar aríur og atriði
úr óperum m.a. atriði Paminu og
drengjanna þriggja úr Töfraflaut-
unni eftir Mozart. Þórunn Día
Steinþórsdóttir, Guðríður Þ. Gísla-
dóttir og María Mjöll Jónsdóttir
syngja hlutverk drengjanna.
Þóra Björnsdóttir hóf tónlistar-
nám við Tónlistarskólann á Akra-
nesi og stundaði söngnám einn vet-
ur við Tónlistarskólann í Hafnar-
firði. Haustið 1991 hóf hún nám hjá
Katrínu Sigurðardóttur við Söng-
skólann í Reykjavík og lauk 8. stigi
vorið 1995. Þaðan lá leiðin í Bostaon
Conservatory þar sem hún nam
undir leiðsögn Sarah Goldstein.
Undanfarin tvö ár hefur hún stund-
að framhaldsnám við Söngskólann í
Reykjavík hjá Ólöfu Kolbrúnu
Harðardóttur. Hún tók burtfarar-
próf (Advanced Certificate) sl. vor.
Þóra tók þátt í uppfærslu Nem-
endaóperu Söngskólans á Töfra-
heimi prakkarans eftir Ravel og
Oklahoma eftir Rodgers. Hún hefur
komið fram sem einsöngvari við
ýmsi tækifæri og er félagi í Kór ís-
lensku óperunnar.
------♦♦♦-------
Jojok-tónleik-
ar á Samaviku
FINNSKI tónlistarmaðurinn
Wimme Saari heldur tónleika ásamt
hljómsveit sinni í Non-æna húsinu á
morgun, laugardag kl. 20.30. Hann
kemur hingað til landsins ásamt
hljómsveit sinni, Wimme. I hljóm-
sveitinni eru Matti Wallenius,
Tapani Rinne og Jari Kokkonen.
Þeir hafa áður leikið saman, m.a. í
hljómsveitinni Rinne Radio. Tónlist
Wimme hefur verið skilgreind á
marga vegu, m.a. sem nútíma-jojk,
ambiant-jojk, technó-jojk. Jojkið er
í fyrirrúmi og hljóðfærin gefa lit og
undirstrika stefið, en jojk er gamall
hefðbundinn söngmáti Sama.
Aðgangseyi'ir er 1.000 kr.
Tvö tríó
klassíska
tímabilsins í
Hásölum
TÓNLISTARSKÓLI Hafnar-
fjarðar heldur tónleika í Há-
sölum á morgun, laugardag
kl. 16. Þar koma fram þrír
kennarar skólans, þau Petrea
Óskarsdóttir, flautuleikari,
Martin E. Frewer fiðluleikari
og Þórhildur Jónsdóttir selló-
leikari. A tónleikunum leika
þau tvö tríó klassíska tíma-
bilsins: Lundúnatríóið eftir J.
Haydn og Tríó op. 87 eftir L.
van Beethoven.
Martin E. Frewer lærði
bæði á fiðlu og píanó og fékk
snemma styrk til náms.
Hann er útskrifaður bæði
sem stærðfræðingur frá Ox-
ford University og fiðluleik-
ari frá Guildliall School of
Music and Drama. Martin
hefur leikið með Sinfóníu-
hljómsveit íslands frá árinu
1983.
Petrea Óskarsdóttir lauk
burtfararprófi á þverflautu
frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík vorið 1989 þar sem
Bemhard Wilkinson var
kennari hennar. Petra hélt
síðan til Frakklands þar sem
hún stundaði framhaldsnám í
þrjú ár við Conservatoire de
Region í Versölum þar sem
Jean-Michel Varache var
kennari hennar.
Þórhildur Jónsdóttir lauk
einleikaraprófi á selló frá
Tónlistarskólanum í Reykja-
vík árið 1992 og var Gunnar
Kvaran kennari hennar. Síðan
lá leiðin til Manchester í
Englandi þar sem hún stund-
aði nám í fjögur ár við Royal
Northern College of Music of
Manchester. í Englandi var
aðalkennari hennar Emma
Femand.
Tónleikarnir eru í röð tón-
leika sem kennarar skólans
verða með á næstu mánuðum
í Hásölum.
Bókakvöld
Sagnfræð-
ingafélagsins
ÁRLEGUR bókafundur
Sagnfræðingafélags Islands
verður haldinn í húsi Sögufé-
lags í Fischersundi á morgun,
laugardag kl. 13.30.
A fundinum verður rætt um
fjórar bækur sem komu út
fyrir jólin. Sigríður Matthías-
dóttir ræðir um Mannkyn-
bætur eftir Unni Birnu Karls-
dóttur. Ami Daníel Júlíusson
ræðir um bæði bindi af sögu
Reykjavíkur á þessari öld eft-
ir Eggert Þór Bernharðsson,
sem tilnefndur var til bók-
menntaverðlauna. Ármann
Jakobsson fjallar um ævisögu
Ái-na Magnússonar eftir Má
Jónsson og Davíð Ólafsson
um bók Eiríks Guðmundsson-
ar, Gefðu mér veröldina.
Stefán Sig-
valdi sýnir í
Gallerí Geysi
STEFÁN Sigvaldi Ki-istins-
son opnar sína fyi'stu einka-
sýningu á morgun, laugardag,
kl. 16.
Stefán Sigvaldi er fjölfatl-
aður og sýnir bæði teikningar
og olíumálverk. Sýningin
stendur til 14. febrúar og er
opin virka daga kl. 8-22,
föstudag til kl. 19 og um helg-
ar frá kl. 12-18.