Morgunblaðið - 29.01.1999, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 29.01.1999, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ t Qddviti Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn Telur fundarstjórn borg- arstjóra undantekningu INGA Jóna Pórðardóttir, oddviti minnihluta Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn, segist líta á fundar- stjórn borgarstjóra á fundi borg- arráðs á þriðjudag sem undan- tekningu, en meirihluti Reykja- víkurlista samþykkti á fundinum að fela borgarstjóra fundarstjórn- ina. Húnbogi Þorsteinsson, ráðu- neytisstjóri í félagsmálaráðuneyt- inu, segir að úrskurður ráðuneyt- isins byggi á gömlu sveitarstjórn- arlögunum og að ekki sé að vænta viðbragða ráðuneytisins. í upphafi fundar var úrskurður félagsmálaráðuneytisins lagður fram, þar sem felld er úr gildi samþykkt borgarstjómar frá því í júlí sl. um að fela borgarstjóra fundarstjórn í borgarráði. „Við bókuðum mótmæli á fundinum,“ sagði Inga Jóna, „þannig að ég ætla að bíða og sjá til. Ég hlýt að draga þá ályktun að þau ætli að Ekki að vænta við- bragða félags- málaráðuneytis haga sér í samræmi við úrskurð- inn og þurfi tíma til að laga sig að því.“ Gripið verður til aðgerða „Ef ætlunin er að hafa fundar- stjórnina framvegis með þessum hætti þá verður gripið til aðgerða og þess freistað að staðið verði við úrskurð ráðuneytisins og hann látinn gilda en ég lít á þetta sem undantekningu og ætla ekki að draga frekari ályktanir á þessu stigi málsins." Vegna tengsla Sigrúnar Magn- úsdóttur formanns borgarráðs við félagsmálaráðherra vék hann sæti og var utanríkisráðherra falið að úrskurða um kæru minnihluta. Húnbogi Þorsteinsson, ráðuneyt- isstjóri í félagsmálaráðuneytinu, segir að ráðuneytið muni ekki grípa til neinna aðgerða. „Þessi úrskurður var felldur á grundvelli gömlu sveitarstjórnarlaganna en núna eru komin ný lög,“ sagði hann. „Ég hygg að ráðuneytið bregðist ekki við nema beiðni um slíkt berist því með formlegum hætti.“ Sagði hann að ráðuneytið hlypi ekki til þó að ágreiningur kæmi upp og að félagsmálaráðu- neytið hafi ekki séð neitt um mál- ið nema í fjölmiðlum. Aðspurður um hvort utanríkisráðuneytið ætti að hafa eftirlit með framkvæmd úrskurðarins ítrekaði hann að úr- skurðurinn hafi verið kveðinn upp á grundvelli gömlu sveitarstjórn- arlaganna og að nýju lögin ættu við það sem nú hefði gerst. Samtök um betri byggð á höfuðborgarsvæði Vilja flugvöll- inn burt Samtök um betri byggð á höfuðborg- arsvæðinu verða stofnuð í byrjun febrúar. Tilgangur samtakanna er að móta nýjar hugmyndir um umhverfis- og byggðamál með sérstakri áherslu á þéttingu og endurnýjun byggðar. Fjöldi fólks stendur að þessum fyrirhuguðu sam- tökum. Talsmaður þeirra er Örn Sigurðsson arki- tekt. Hvert verður fyrsta verkefni hinna nýju sam- taka? - Það verður að hafa áhrif á framtíðar landnotkun í Vatnsmýrinni. Akvörðun um landnotkun þar hefur mjög mikil áhrif á vinnu við svæðaskipulag á höf- uðborgarsvæðinu, sem er um þessar mundir að hefjast. Það er óhætt að segja að flugvöllurinn sem byggður var þar sem hern- aðarmannvirki á stríðsárunum, að öllum hér forspurðum og ekki skeytt um afleiðingar, hafi frá upphafi síns tíma verið ráðandi um þróun allrar byggðar í Reykjavík og síðari áratugina hefur hann ráðið miklu um þróun byggðar á höfuðborgarsvæðinu öllu. - Hvers vegna hefur hann ráðið svona miklu? - í fyrsta lagi tekur flugvöllurinn upp mjög verðmætt land, meira en helminginn af breidd nessins, og kemur þannig í veg fyrir upp- byggingu stofnbrautarkerfis. Hann tekur upp land sem hefði verið hið eðlilega útþenslusvæði miðborgar ef hann hefði ekki komið til. Af vellinum stafar sjón- og hávaðamengun og hætta er því samfara að hafa flugvöll inni í miðri borg. Aðflugið liggur yfir olíugeyma í Örfirisey, Al- þingishús, Ráðhús og Dómkirkj- una og síðan forsetaskrifstofuna rétt fyrir lendingu. Einnig yfir íbúðarbyggð í Kvosinni og versl- unarhverfi þar. Þegar aðflugið er úr hinni áttinni þá er fiogið yfir þétta íbúðarbyggð í Kópavogi. - Yrði stór byggð á þessu svæði ef flugvöllurinn yrði lagður nið- ur? - Við teljum að það hljóti að verða þama töluvert þétt byggð á íslenskan mælikvarða. Eftir lauslega athugun telst okkur til að þarna gæti búið a.m.k. 25 þús- und manns. Þess ber að geta að allt í kringum Vatnsmýrina era útivistarsvæði, Öskjuhlíðin til austurs, Nauthólsvíkin og Skerjafjarðarströnd í suðri og náttúruvemdarsvæði Vatnsmýr- arinnar og háskólasvæðið í vestri. I norðri er Tjarnarsvæði og hljómskálagarðurinn og sjálf Kvosin. Auðvitað er það gömul hugmynd og ný að halda áfram með Tjarnarsvæðið og fram- lengja þann ás beint til suðurs, allt að Nauthólsvík. Talið er hagkvæmt að byggja þétta byggð í Vatns- mýrinni vegna þess að þar er djúpt á fast- “ an grunn og slík byggð þarf yfir- leitt á því að halda að hafa nægt kjallararými, t.d. tvöfalda bíla- kjallara og þess háttar. Að auki er nýtt holræsakerfi meðfram strönd Skerjafjarðar og í næsta nágrenni eru allar helstu um- ferðaræðar nú þegar fyrir hendi. Þannig að litlu þarf til að kosta til að tengja þetta kerfi við rest- ina af borgina, ólíkt því sem þarf Örn Sigurðsson ►Örn Sigurðsson er fæddur 9. júní 1944 í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi árið 1962 frá Menntaskólanum í Reykjavík og lauk arkitektaprófi frá Tækni- háskólanum í Braunschweig í Þýskalandi árið 1972. Hann starfaði í fjögur ár í Þýskalandi en kom til íslands í árslok 1975 og hóf þá störf hjá Gesti Ólafs- syni arkitekt. Frá 1980 hefur hann starfað sjálfstætt að mestu leyti sem arktitekt. Hann er kvæntur Auði Sigurðardótt- ur bókasafnsfræðingi, þau eiga hvort um sig tvö börn frá fyrri hjónaböndum. Flugvöllurinn hefur ráðið miklu um þró- un byggðar einatt að gera í nýju byggingai-- landi upp til heiða, sem er fjarri öllum þessum veitu- og gatna- kerfum. - Hafíð þið uppi hugmyndir um nýtt skipulag á öðrum svæðum borgarinnar? - Nokkrir af þeim sem standa að fyrirhuguðum samtökum mót- mæltu á sínum tíma aðalskipu- lagi Reykjavíkur og komu með tillögur að flugvelli í Skerjafirði og landfyllingum fyi-ir nýja byggð við Akurey. Þarna væri hægt að byggja hverfi sem rúm- að gæti tugi þúsunda íbúa og ýmiss konar atvinnustarfsemi. Þessi tillaga gerir ráð fyrir að tvær hafnir séu við þessa nýju uppfyllingu, ný hafsldpahöfn að norðanverðu við Engeyjarsund í stað fyrirhugaðrar hafnar við Geldinganes en að sunnanverðu, andspænis Seltjarnarnesi, er gert ráð fyrir lystihöfn fyrir skemmtibáta, skútur og þess háttar. Þarna væri líka gei-t ráð fyrir mikilli íbúðarbyggð við ströndina. - Er hagkvæmt að breyta slcipu- lagi á þennan hátt? - Ef tekið er dæmi af þéttri byggð í Vatnsmýri annars vegar og flugvallargerð í Skerjafirði hins vegar er hægt að setja fram einfalt reikningsdæmi sem gæti varpað ljósi á hag- kvæmnina. Miðað við núverandi gjaldskrá Reykjavíkurborgar má reikna með að af þessari byggð í Vatns- mýri innheimtist a.m.k. tíu milljarðar í gatnagerð- argjöldum. Vegna einstakrar legu svæðisins og nálægð við umferðar- og holræsakerfi borg- arinnar má eins og fyrr sagði gera ráð fyrir hagkvæmri gatna- gerð. Þannig er talið líklegt að fjármagna megi flugvöll í Skerjafirði með fimm milljörðum króna sem afgangs yrðu af gatnagerðargjöldunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.