Morgunblaðið - 29.01.1999, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 29.01.1999, Blaðsíða 35
Fyrir árið 2000 KERFISÞROUN HF. Fákafeni 11 • Sími 568 8055 www.islandia.is/kerfisthroun Sjón er sögu ríkari |stjormnal.i*] MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1999 35 UMRÆÐAN Kjaftasögur? Jólagrautur Alþingis stofnun komin með sín 1.500 tonn handa stjórnmálamönnum að leika sér með. Það verður fróðlegt að fylgjast með hverjir fá og hverjir fá ekki. Þarfir landvinnslunnar Það sem við blasir er að stærri útgerðar- og fiskv'innslufyrirtæki í landinu eiga enga talsmenn í hópi 63 þingmanna á Alþingi íslendinga, þó svo að útgerðin og landvinnslan standi undir 75% af útflutningstekj- um þjóðarinnar. Þingmenn bregð- ast óttaslegnir við háværum kröf- um sérhagsmunahóps krókabáta- sjómanna. Aflaheimildir eru hik- laust fluttar til þeirra frá öðrum. Þessir krókabátar hefðu ekki haldið uppi vinnslu í frystihúsum landsins í haust og vetur í þem-i veðráttu sem ríkt hefur. Landvinnslan þarf öryggi í hráefnisöflun. Á íslandi mun útgerð stærri skipa ætíð standa undir veiðum og vinnslu á sjávarfangi, náttúran hefur hagað málum svo. Við erum staðsett í miðju Atlantshafí og fískinn þarf að sækja um langan veg í öllum veðr- um. Það er eins og engum þing- manna landsins sé þessi einfalda staðreynd ljós. Eina ferðina enn hafa þeir flutt aflaheimildir til sér- valinna krókabáta. Daglegar þarfir landvinnslunnar virðast léttvægar í hugum þessara þingmanna. En nú er mönnum nóg boðið. Jólagrautur- inn hlýtur að vera endapunkturinn á þessari ömurlegu vegferð. Höfundur er útgerðamiaður f Vest- mannaeyjum. Fegurðin kemur innan frá Laugavegi 4, sími 551 4473. Soknajarfur og traustur málafylgjumaður ,2.-3. sæti Alþýðubandalags. Bitlingakvóti Byggðastofnunar í bráðabirgðaákvæði nr. IV keyr- ir þó um þverbak. Þar er ákvæði um að Byggðastofnun skuli árlega hafa til ráðstöfunar aflaheimildir sem nema 1.500 þorskígildistonn- um til að styðja byggðarlög sem hafa lent í vanda vegna samdráttar í sjávarútvegi. Þetta hljómar auð- vitað ósköp fallega, en ég held að hvert einasta mannsbarn í landinu viti hvað þetta þýðir. Þetta er bein ávísun á bitlingapólitík, sem gengur þvert á grundvallarreglur kvóta- kerfisins. Á undanförnum árum hefur tekist að byggja hér upp at- vinnugrein sem stendur á eigin fót- um í harðri samkeppni á erlendum ALHLIÐA TOLVUKERFl HUGBUNAÐUR FYRIR WINDOWS Gerðuberg Miðgarður í Grafarvogi Magnús Kristinsson Kjörstaðir: Hótel Saga Grand Hótel í KJÖLFAR dóms Hæstaréttar um veiði- leyfi hefur Alþingi samþykkt ný lög um stjórn fiskveiða. Það var sérkennilegt að horfa á vinnubrögð þingmanna við setn- ingu þessara laga. Út- koman er þvílíkur grautur að sjálfur lagatextinn er ekki skiljanlegur venjulegu fólki. Útgerðir lands- ins, stórar og smáar, héldu að með dómnum væru þær allar settar við sama borð. En þingmenn þjóðarinnar, sem notuðu jólafríið til að matreiða grautinn, voru á öðru máli. Jóla- grauturinn var framreiddur á tveimur borðum. Við annað borðið á kostnað þeirra sem sátu við hitt borðið. Því miður hefur þetta oft gerst áður. Nú er mál að linni. Fleiri möndlur handa sérvöldum Þegar málið var í meðfórum þingsins var athyglisvert að hlusta á fulltrúa smábátaeigenda tjá sig í fjölmiðlum. Þeir sögðu í fyrstu að þeir hefðu ekki séð umræddan lagatexta og myndu því ekki leggja blessun sína yfir hann. Úr þeirra munni hljómaði þetta eins og þeir væru sjálfir fulltrúar í sjávarút- vegsnefnd Alþingis. Síðan tilkynntu þeir, að þeir hefðu lesið lagatextann og væru ekki ánægðir með niður- stöðuna. Þingmennirnir hrukku við og fjölguðu möndlum í diskum hinna sérvöldu. Niðurstaðan varð einhver ókræsilegasti jólagrautur sögunnar. Eg vel af handahófi tvær setningar úr 2. gr. laganna þar sem fjallað er um heimildir til að fram- sélja sóknardaga á krókabátum: „Óheimilt er að flytja hlutfallslega fleiri sóknardaga frá báti, umfram þá daga sem fluttir hafa verið til báts, en nemur hlutfallslegri nýt- ingu bátsins á úthlutuðum sóknar- dögum á fiskveiðiárunum 1996/1997 og 1997/1998. í því sambandi skal miða við meðaltal af sóknardaga- nýtingu fiskveiðiáranna." Skilur fólk þetta? Ef heildstæð hugsun er á bak við þessar setningar, þá er henni ekki komið skilmerkilega á blað. Og þetta er aðeins eitt lítið dæmi um þann grautargang sem einkenndi vinnubrögðin við þessa lagasetningu. Magnús Kristinsson, voru afhent sérvöldum hópi krókabáta. á Vestfjörðum; Tálknafirði, Bíldu- dal, Þingeyri, Flateyri og Suður- eyri. Fjölgunin var frá 7,8% upp í 14,0%. Þetta stafar m.a. af fjölgun útlendinga á þessum stöðum. Þeir eru þangað komnir til að vinna fisk. Islenska vinnuaflið fer þótt fiskur- inn sé til staðar. En nú er Byggða- vettvangi. Hér eru ekki ríkisstyrkir í sjáv- arútvegi, eins og alls staðar annars staðar, og menn hafa fagnað minnkandi afskiptum pólitíkusa af rekstrar- umhverfi greinarinnar. Þetta nýja ákvæði í lögunum er fomeskja. Aflaheimildir gufa ekki upp við að flytjast frá einum stað til annars og nýtast væntanlega betur á nýja staðnum. Þótt mikil hagræðing eigi sér stað í sjávarút- vegi er tilflutningur kvóta ekki meginorsök þess að illa gengur að halda uppi byggð á ýmsum smærri stöðum. Mesta fólksfjölgun í landinu á síð- asta ári varð í fimm sjávarplássum Möndluverðlaun, segir mocnus mcoLFSSon Kennari og stjórnmálafræðingur ALHLtÐA TOLVUKtRFI HUGBUNAÐUR FYRIRWINDOWS Upplýsingakerfi KERFISÞROUN HF. Fákafeni 11 • Simi 568 8055 www.islandia.is/kerlisthroun NAFN höfundar þessarar greinar var nefnt í ofangreindum skrifum og honum bor- ið á brýn að sverta æru íslenskra sjómanna með áburði um stór- fellt brottkast fisks í hafi og allt á grundvelli kjaftasagna. Þeim, sem lesið hafa skrif mín um þessi efni og kært sig um að skilja þau, er öldungis ijóst, að þau eru endi- löng sífelld viðleitni til málefnalegrar um- ræðu um efnið. Þar hefur ítrekað verið tekið fram, að sjómönnum eða út- gerðarmönnum verður ekki kennt um þetta brottkast á fiski. Þeir eru einungis að freista þess að hafa sem skásta lífsbjörg innan ramma þess fiskveiðistjórnarkerfis, sem þeim hefur verið gert að búa við. Það er fyrirkomulag kvótaúthlut- unarinnar, framsal hennar og ekki síst framleiga, sem setur sjómenn- Aflanýting Brottkast afla í hafi, er einn af höfuðágöllum kerfisins, segir Jón Sigurðsson, vegna skrifa Sigurbjörns Svavarssonar ina í þessa óhafandi aðstöðu. Hún er hins vegar sök þeirra, sem fyrir fiskveiðistjómarkerfinu standa og vilja viðhalda því með öllum ráðum. Sú vöm er rekin eins og stórfelldir ágallar þess séu ekki til. Brottkast afla í hafi er einn af höfuðágöllum kerfisins. Eðli máls- ins samkvæmt er þessi ágalli kerf- isins illa þekktur og aldrei verður neitt um hann sannað með ná- kvæmni. Hann er dæmdur til að vera umlukinn samsæri þagnar- innar. Það eru sameiginlegir hags- munir allra, sem hlut eiga að máli að segja ekki frá undir nafni. Eg hef rætt við einn kjarkmann, sem braut þetta samsæri og sagði frá opinberlega. Hann og aðrir sjó- menn, sem kasta fiski, vora óðara úthrópaðir af sjávarútvegsráð- herra sem „svikarar við þjóð sína“ og samsæri þagnarinnar varð þeim mun haldbetra, eins og fyrir- sjáanlegt var og þá væntanlega til ætlast. Þessi sjómaður fékk hins vegar hvergi skiprúm árum saman eftir svo slæman verknað. Eg hef farið með löndum við að reyna að gera mér grein fyrir, hversu stórfellt þetta brottkast er og þá aðallega hugleitt brottkast á þorski. Eg hef hlustað á marga greinargóða menn, sem frá fyrstu eða annarri hendi gátu greint frá því, sem raunveralega gerist. Nokkrar þeiiTa heimilda verða hér raktar. Skipstjóri norðanlands kvaðst meta þetta brottkast 17-23% af þorski, sem á skip kemur. Sé mið- talan tekin og brottkast yfirstand- andi árs reiknað þannig fyrir all- an flotann, svarar það til um 60 þús. tonna brottkasts þorsks á ári. Fyrir milligöngu manns nokk- urs fregnaði ég af merkum rann- sóknum stýrimanns á togskipi austanlands. Hann vann verkið býsna vísindalega, því hann taldi allan smáþorsk, sem fór fyrir borð á hans vöktum, heilan túr. Hann ályktaði sem svo, að brottkastið á hinni vaktinni hafi verið svipað og margfaldaði því fjöldann með tveimur. Síðan mat hann eftir bestu samvisku, að meðalþyngd þorskanna, sem í sjóinn fóra hafi verið tvö kíló. Þegar í höfn var komið landaði skipið 48 tonnum af þorski, en þannig reiknað brottkast var 25 tonn. Brottkastið var þannig meira en þriðjungur þess þorskafla, sem á skip- ið kom. Reiknað út frá yfirstandandi fisk- veiðiári eins og að framan var gert, svar- ar þetta til brottkasts á bilinu 110-120 þús. tonn. Sjómaður, sem hfði á að veiða leigukvóta suðvestanlands, sagði mér frá hvernig sá veiðiskapur fer fram. Kvótann leigði hann fyrir 80-90 kr. hvert kíló og varð því að koma einungis með verðmætasta stórþorskinn að landi. „Það gerum við, en annar hver þorskur fer aftur fyrir borð.“ Hér er annars vegar um að ræða þorsk, sem er smærri en 8-9 kíló,- en hins vegar stórþorsk, sem drepst í netunum áður en næst að blóðga hann. Ógerlegt er að áætla með neinni nákvæmni hversu hátt hlutfall brottkasts er í veiðum, sem þannig era stundaðar. Varla er það þó minna en 30% eða svo. Sterka vísbendingu um þetta má finna á fiskmörkuðum suðvestanlands. Af þeim fiski, sem þar er boðinn fram, mætti ætla, að löggjöfin um fisk- veiðistjórn hafi leitt til að smærri fiskur en 8 kíló hafi hætt að ganga í þorskanet og þorskur aukinheldur hætt að drepast í netum fiski- manna. Allar þessar frásagnh' benda í eina átt. Þessi ágalli á fiskveiði- stjórnarkerfmu er stórfelldur. Þar gildir einu hvort brottkastið er 50 eða 100 þús. tonn, að ekki sé talað um mat Hrólfs Gunnarssonar skip- stjóra. I öllu falli er sóunin millj- arðar króna. Spurningin er einung- is um, hversu margir þeir eru, 3, 6 eða enn fleiri. Þegar að því er gáð, að heildaraflaverðmæti alls þorskafla upp úr sjó er tæpast meiri en 25 milljarðar króna á ári, er ljóst hvert stórmál hér er á ferð- inni, hvaða tala sem valin er sem áætlun um verðmæti brottkastaðs afla. Sögurnar úr karfaveiðunum eru ekki síður skrautlegar að þessu leytinu. Trúir Sigurbjöm Svavarsson, að allar slíkar frásagnir gi-einargóðra manna, sem hér hafa verið raktar, séu kjaftasögur? Hafrannsóknastofnun gæti lagt leitinni að sannleikanum í þessu efni lið. Er hér með skorað á hana að birta opinberlega niðurstöður um aflann, sem fékkst í síðasta net- aralli stofnunarinnar, stærðar- dreifingu og hlut dauðblóðgaðs fisks í afla og bera saman við neta- fiskinn, sem verið var að landa inn á fiskmarkaðina um svipað leyti. Sá samanburður gæti verið forvitni- legt innlegg í leitina að sannleikan- um um þetta mál. Höfundur er fyrrverandi fram- kvæmdastjóri. Jón Sigurðsson Veiðistjórnun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.