Morgunblaðið - 29.01.1999, Blaðsíða 76
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLANI, 103 REYKJAVIK, SÍMI569 1100, SÍMBRÉF5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/RAX
Vindmyllur
hagkvæmar
á Selfossi og
í Eyjum
FYRSTU niðurstöður rannsóknar-
verkefnis danska ráðgjafarfyrirtæk-
isins Knudsen og Sorensen benda til
þess að hagkvæmt geti orðið að setja
upp vindaflsstöðvar í Vestmannaeyj-
um og á veitusvæði Selfossveitna.
A þessum stöðum höfðu áður far-
ið fram vindmælingar sem stuðst
var við í rannsókninni. Einkum
beinast sjónir manna að 600 kW-
vindaflsstöðvum sem framleiddar
eru af danska fyrirtækinu Vestarás.
Kostar slík stöð um 50 milljónir kr.
Niðurstöður rannsóknanna verða
kynntar á ráðstefnu um nýtingu
vindorku á íslandi, sem Samorka
stendur að ásamt bæjarveitum
Vestmannaeyja og Selfossveitum á
Grand Hóteli 26. mars nk.
Guðmundur Valsson hjá Samorku
segir að vindaflsstöðvar séu orðnar
þriðja stærsta útflutningsvara Dan-
merkur.
■ Vindmyllur á landi/13
Afloga-
hundar
á Jörfa
Penguin Press gefur út tíu bækur með íslendingasögum
Viðamesta útgáfa Is-
lendingasagna á ensku
HUNDARNIR á Jörfa í Kol-
beinsstaðahreppi í Hnappadals-
sýslu lentu í gær í blóðugum
slagsmálum. Daníel Einarsson,
sem fyrstur kom að, gat ekki
skilið þá að og kallaði í Guð-
björgu Jóhannesdóttur bónda.
Tóku þau í rófuna á hundunum
og toguðu í en þeir héngu fast-
ir. Stærri hundurinn hafði náð
hálstaki á þeim eldri, sem
reyndar er faðir hans, og var
svo illur að hann neitaði að
sleppa.
Sá eldri náði að glefsa í son-
inn og náði að lokum að bíta sig
fastan á haus hans. Að lokum
varð að grípa til óbrigðuls ráðs
í svona tilvikum, að skvetta
köldu vatni á hundana. Það
gerði Anna systir Guðbjargar
og hættu þeir áflogunum sam-
stundis.
Annar hundurinn var þó lok-
aður inni, til öryggis, ef aftur
slettist upp á vinskapinn.
BRESK-bandaríski útgáfurisinn
Penguin Press undirritar næstkom-
andi þriðjudag samning við Bókaút-
gáfu Leifs Eiríkssonar um útgáfu á
tíu bókum með Islendingasögum.
Um er að ræða stærsta samning um
útgáfu á Islendingasögunum sem ís-
lenskir aðilar hafa gert og mun hann
tryggja íslendingasögunum meiri
útbreiðslu í enskumælandi löndum
en aður þekkist.
A sjöunda áratugnum gaf Penguin
út þýðingar Hermanns Pálssonar,
Magnúsar Magnússonar o.fl. á nokkr-
um Islendingasögum. I fyrra kom út
hjá Leifi Eiríkssyni heildarútgáfa ís-
lendingasagnanna á ensku í fimm
bindum, nýjar þýðingar sem þrjátíu
þýðendur unnu að og mun útgáfa
Penguin nú byggjast á þeirri útgáíú.
Viðar Hreinsson var aðalritstjóri
þeirrar útgáfu ásamt Robert Cook,
Terry Gunnell, Kenevu Kunz og
Bernard Scudder. Kostnaður við þá
útgáfu nam um 60 milljónum króna.
Ritstjórn í íslenskum höndum
I kjölfar þeirrar útgáfu hófust
samningaumleitanir við erlend fyrir-
tæki um útgáfu á þessum nýju þýð-
ingum í kiljum, safnritum eða með
öðrum hætti. Þær umleitanir leiddu
til áðurgreinds samnings og verður
hann undirritaður í byrjun næstu
viku. Útgáfustjóri Penguin, Alastair
Rolfe, kemur hingað til lands af því
tilefni, ásamt því að semja um hvaða
verk verði birt í útgáfu fyrirtækisins.
„Við viljum með þessari útgáfu
nýta eftir fóngum alla þá möguleika
sem opnast til að koma miklu fleu-i
sögum á framfæri en áður hefur verið
gert, þekktum sögum í bland við þær
sem eru óþekktar en verðskulda
meiri lestur,“ segir Ömólfur Thors-
son íslenskufræðingur sem unnið hef-
ur að samningum við Penguin fyrir
hönd Bókaútgáfu Leifs Eiríkssonar.
Útgáfa Penguin hefst í haust með
innbundnu úrvali íslendingasagna og
kemur það ári síðar í kilju. A næsta
ári koma síðan út þrjár bækur í þess-
um flokki undir yfirskrift Penguin
Classics-ritraðarinnar, þrjár bætast
við árið 2001 og tvær til viðbótar árið
2002. „Við erum verulega stoltir yfir
að Penguin fól okkur að annast rit-
stjóm bókanna og umsjón, því þá
getum við tryggt að útgáfan standist
ýtrustu kröfur, hvort sem bækurnar
era ætlaðar almennum lesendum eða
sem kennsluefni í skólum,“ segii' Jó-
hann Sigurðsson, sem stofnaði Bóka-
útgáfu Leifs Eiríkssonar ásamt Sig-
urði Viðari Sigmundssyni.
„Bókaútgáfan hér mun fyrir vikið
ganga frá ítarefninu, allt frá formál-
um yfir í skýringar, landakort og
ættartölur, nafnaskrár og annað það
sem okkur dettur í hug að setja í
bækurnar til að gera þær aðgengi-
legar fyrir lesendur, þannig að þeir
kynnist þessum heimi og hrífist af
með viðeigandi hætti.“
Vonir um mikla útbreiðslu
Að sögn Jóhanns hyggst Penguin
með væntanlegri útgáfu efna til
átaks til að stórefla útbreiðslu sagn-
anna og sækja fram af enn meiri
styrk en þeir hafa gert áður. Útbúin
verður sérstök heimasíða þar sem
útgáfan er kynnt og hún sett í önd-
vegi í kynningarefni þvi sem Pengu-
in sendir víða um heim. „Okkur
skilst að útgáfan bindi miklar vonir
við að þessar bækur nái mikilli út-
breiðslu," segir Jóhann.
Ognaði og sló fímm-
tán ára afgreiðslustiilku
RÁN var framið í lítilli matvöru-
verslun við Stórholt í Reykjavík um
klukkan hálfátta í gærkvöldi. Ræn-
inginn, sem huldi andlit sitt með
hettu, ógnaði fimmtán ára gamalli
afgreiðslustúlku og sló hana og
hafði á brott með sér 7-8 þúsund
krónur úr peningakassa verslunar-
innar. Stúlkunni varð ekki meint af.
Lögregla leitaði ræningjans í ná-
grenni verslunarinnar í gærkvöldi.
Afgreiðslustúlkan, sem ekki vill
láta nafns síns getið, segir að mað-
urinn hafi verið nokkra stund inni í
versluninni áður en hann lét til
skarar skríða. „Hann var með hettu
og húfu þannig að það sást ekki
nema í augun á honum. Eg spurði
hann hvers vegna hann væri svona
klæddur og hann sagði að það væri
vegna þess hversu kalt væri úti.“
Að nokkram tíma liðnum tók mað-
urinn upp græna plastleikfangabyssu
og sagði stúlkunni að leggjast á gólf-
ið. „Fyrst hló ég að honum og hélt að
hann væri að grínast,“ segir stúlkan.
„Þá barði hann mig í höfuðið, ekki þó
þannig að það væri mjög sárt.“
Maðurinn ógnaði stúlkunni áfram
með hnefanum og hún beygði sig
niður meðan hann tæmdi peninga-
kassann. „Hann sagðist þurfa á pen-
ingunum að halda, að einhver væri
að reyna að drepa sig og talaði um
að sumir væru fátækari en aðrir.
Hann bað mig líka margfaldlega af-
sökunar á því sem hann væri að
gera en ég öskraði á móti að ég tæki
afsökunina ekki til greina."
Samkvæmt upplýsingum frá af-
greiðslustúlkunni og vitnum sem
sáu manninn hlaupa út vai' hann inn-
an við tvítugt, 170-175 cm að hæð,
brúneygður og með þykkar, dökkar
augnabrúnir. Hann var klæddur í
svonefnd skopparafót, dökkar, víðar
buxur, dökka hettupeysu, lambhús-
hettu og þykka græna vettlinga.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
LÖGREGLUMENN yfirheyra vitni í tengslum við ránið.