Morgunblaðið - 29.01.1999, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1999 45 .
I
■
I-
Mætum öll í prófkjör Samfylking-
ar og veljum Valþór í 2. sæti listans.
Ég styð Valþór
Ýr Gunnlaugsdóttir, veislunarmaður,
skrifar:
VALÞÓR Hlöð-
versson, sem tekur
þátt í prófkjöri
Samfylkingar á
Reykjanesi dagana
5.-6. febrúar nk.
hefur sett baráttu
fyrir náttúruvemd
og virðingu fyiir
landinu okkar í for-
grunn sinnar kynn-
ingar undir kjörorðunum „Við eig-
um bara eitt land“.
Við þurfum alþingismenn sem sjá
til þess að náttúran verði sett ofar
stundarhagsmunum í orkumálum.
Við verðum að fá tryggingu fyrir
því að alltaf fari fram umhverfismat
áður . en stórframkvæmdir vegna
virkjana á hálendinu hefjast og að
Alþingi sjái til þess að allir lands-
menn fái tækifæri til að hafa áhrif á
það hvernig við nýtum hálendið,
óháð búsetu sinni.
Reyknesingar! Tökum þátt í opnu
prófkjöri dagana 5.-6. febrúar nk.
og kjósum Valþór Hlöðversson í 2.
sæti Samfylkingar.
Bryndisi
Hlöðversdótt-
ur í 1. sæti
Sigi-ún Elsa Smáradóttir, varaborgar-
fulltrúi, skrifar:
NÆSTKOM-
ANDI laugardag
velja kjósendur í
Reykjavík forystu-
sveit samfylkingar-
innar fyrir kom-
andi Alþingiskosn-
ingar í prófkjöri.
Sú aðferð að fá al-
menna kjósendur
til að raða fram-
bjóðendum á lista er samfylking-
unni til sóma.. Ti-aust og örugg for-
ysta óttast ekki lýðræðið heldur
fagnar því og er tilbúin að leggja
störf sín í dóm umbjóðenda sinna.
Bryndís Hlöðversdóttir alþingis-
maður er fremst í flokki þeirra for-
ystumanna sem barist hafa fyrir
sem opnustu prófkjöri, heiðarleiki,
réttsýni, dugnaður og málefnaleg
umfjöllun er það sem við stuðnings-
menn Bryndísar virðum hana fyrir.
Nú vil ég biðja þig um að sýna
stuðning þinn við samfylkinguna í
verki með því að mæta á kjörstað
og kjósa Bryndísi Hlöðversdóttur
til áframhaldandi forystustarfa í
þágu okkar allra.
Róttækan
mann til for-
ystu - Árna
Þór i fyrsta
sæti
Haukur Már Haraldsson, framhalds-
skólakennari, Rcykjavík, skrifar:
í KOSNINGUM í
vor býður Samfýlk-
ing félagshyggju,
jöfnuðar og kven-
frelsis fram í fyrsta
skipti. Mikið er í
húfi og áríðandi að
til forystu veljist
fólk sem hægt er
að treysta til þess
að vinna af einurð
og heiðarleika að því réttláta þjóð-
félagi sem Samfylkingin stefnir að.
Árni Þór Sigurðsson hefur gefið
kost á sér í fyrsta sæti Alþýðu-
bandalagsins og þar með til að leiða
lista félagshyggju, jöfnuðar og
kvenfrelsis í Alþingiskosningunum.
Þegar nú Svavar Gestsson hverfur
af vettvangi landsmála skilur hann
eftir pláss sem erfitt er að fylla. En
Arni Þór er að mínu mati sá maður
sem best er treystandi til þess;
hann er heilsteyptur sósíalisti með
þá réttlætiskennd og víðsýni sem
Haukur Már
Haraldsson
Ýr
Gunnlaugsdóttir
nauðsynleg er í forystustarfi nýrrar
hreyfíngar.
Stuðlum að glæsilegri kosningu
glæsilegs fulltrúa sósíalískra lífs-
gilda réttlætis og bræðralags. Kjós-
um Arna Þór Sigurðsson í 1. sæti.
Eining um
frausta for-
ystu
Lovísa Einai-sdóttir, bæjarfulltrúi,
Garðabæ, skrifar:
ÓBILANDI kjark-
ur og bjartsýni var
það í fari Rann-
veigar Guðmunds-
dóttur sem vakti
athygli mína á
henni. Þessir eigin-
leikar ásamt hæfi-
leikum til að sam-
eina öfl og sýna
lagni í málamiðlun
eru hennar aðalsmerki. Um þetta
eru jafnvel andstæðingar hennar
sammála. A þessum tímamótum er
það lykilatriði að velja trausta og
sterka forystu í nýrri samfylkingu.
Stjómmálamaður þarf að búa yfir
miklum mannkostum. Vil ég helst
nefna réttlætiskennd, ræktarsemi
og það að vera fylginn sér í þeim
málaflokkum sem við er að fást
hverju sinni. Það er mikilvægt að
gefast aldrei upp - missa ekki
kjarkinn né þrautseigjuna eða vilj-
ann til að bæta þjóðfélagið. Rétt
eins og íþróttamaðurinn sem nær
árangri með aga og festu. Víðtæk
reynsla Rannveigar í stjórnmálum
sannfærir mig um að hún sé hæfust
til forystu á lista samfylkingarinnar
í Reykjaneskjördæmi.
Magnús í 3.
sæti
Jón Þór Sturluson hagfræðingur
skrifar:
PRÓFKJÖR
Samfylkingarinnar
snúast ekki einung-
is um uppröðun á
lista. Ekíd bara um
vel bólstruð sæti
við Austurvöll. Þau
snúast fyrst og
fremst um val á
forystu nýrrar
fjöldahreyfingar.
Það er engin þörf fyrir gamaldags
stjónmálamenn með uppæfðan
vandlætingar- og kvörtunartón.
Hins vegar er nauðsynlegt að skapa
sterkan hóp hugsjónafólks, sem er
tilbúið til að skapa öfgalausa en þó
röggsama þriðju leið í íslenskum
stjónmálum;
Magnús Árni Magnússon, nýbak-
aður alþingismaður, á heima í þess-
um hópi. Ef hann verður valinn af
stuðningsmönnum jafnaðarmanna í
3. sæti í prófkjöri Samfylkingarinn-
ar í Reykjavík er hægt að fullyrða
eitt. Hann mun ekki verja tíma sín-
um í að kvarta og kveina, innan eða
utan dagskrár, um óforskömmuð
vinnubrögð helmingaskiptaflokk-
anna. Hans tími og öll hans orka
mun fara óskipt í að undirbúa
stundina þegar ,nýtt vinstri“ tekur
við völdum á íslandi. Þegar það ger-
ist þurfum við okkar besta fólk á
réttum stað á réttum tíma. Þá þurf-
um við á fólki eins og Magnúsi Ái-na
að halda.
► Meira á Netinu
Ásta Ragn-
heiður vinnur
með hjartanu
Ragnheiður Davíðsdóttir, Urðai-stíg
15, Reykjavík, skrifar:
ÁSTA Ragnheið-
m' Jóhannesdóttir
hefur þann fágæta
eiginleika að vinna
með hjartanu, þ.e.
hún lætur sér annt
um þá sem minna
mega sín. Hún er
boðberi réttlætis
Ragnheiður 0g lætur einskis
Daviðsdóttiv ófreistað til að
rétta hlut þeirra sem misrétti hafa
verið beittir. Á kjörtímabilinu hefur
hún beitt sér fyrir fjölda velferðar-
mála og fylgt þeim eftir af þekkingu
og áhuga. Þar nýtur hún. án efa
reynslu sinnar frá Tryggingastofn-
un ríkisins - en á meðan hún starf-
aði þar á bæ var almenningi ekki í
kot vísað - slík er þekking Ástu
Ragnheiðar; þekking sem fáir
stjórnmálamenn geta státað af. Við
höfum engin efni á að missa slíka
konu út af þingi og því hvet ég alla
talsmenn heiðarleika og dugnaðar
að kjósa hana í framvarðarsveit
samfylkingarinnar í Reykjavík.
Bryndísi
fremst í Sam-
fylkingu
Gestur Guðmundsson, Skólavörðustíg
21, skrifar:
BRYNDÍS Hlöð-
versdóttir er í senn
ung og reynd í
stjómmálum, og
hún hefur allan
sinn stjómmálafer-
il barist ötullega
fyrir Samfylking-
unni. Á þingi hefur
hún unnið mark-
visst að þeim mál-
um sem nú sameina jafnaðarmenn.
Hún hefur lagt áherslu á jöfn tæki-
færi og félagsleg réttindi allra
landsmanna og barist gegn úthlut-
un sérréttinda. Hún hefur hafnað
forsjárhyggju og viljað nota mark-
aðinn sem tæki til hagsældar en
ekki sem trúarbrögð eða leið til að
mynda einokun. Á þingferli sínum
hefur hún forðast pytti hentistefnu
og glamurs en leitast af skynsemi
við að útfæra þá stefnu að „frjáls
þróun einstaklinga er skilyrði fyrir
frjálsri framþróun heildarinnar."
Besti stuðningurinn við hugsjón
Samfylkingar er að kjósa Bryndísi
Hlöðversdóttur í fyrsta sæti í próf-
kjörinu.
Kjarkaða konu
á þing
Sigurbjórg Ásgeirsdóttir, Fjólugötu
25, 101 Reykjavík, skrifar:
ÞAÐ ER fátítt
að alþingismenn
leggi fram frum-
varp um efni sem
lítið hefur verið
rætt í þjóðfélaginu
og taki þar með
forystu í umræðu
um brýn samfé-
lagsmál. Þó eru til
undantekningar.
Ein slík er Guðný Guðbjörnsdóttii-
sem rauf á þessu kjörtímabili þagn-
armúrinn um kynferðislega áreitni.
Þessu vandamáli hafði lítill gaumur
verið gefinn en snýst um óvelkomna
kynferðislega hegðun sem hefur
áhrif á sjálfsvirðingu kvenna og
karla á vinnustað. Það er því okkur
sem áhuga höfum á mannréttindum
og verkalýðsmálum mikilvægt að
eiga góða talskonu á Alþingi í slíku
máli sem ki-efst víðsýnnar og vand-
aðrar umfjöllunar með hag þoland-
ans að leiðarljósi.
Þess vegna kýs ég Guðnýju í 1.
sæti í hólfi Kvennalistans í prófkjöri
Samfylkingarinnar 30. janúar.
Fleiri konur á
Alþingi
Bryndís Kristjánsdótiir, formaður
Sambands Alþýðuflokkskvenna, skrif-
ar:
EITT AF þeim
markmiðum Sam-
fylkingarinnar sem
hafa verið skýr og
óbreytt frá upphafi
er að stuðlað skuli
að auknu jafnrétti á
öllum sviðum. Nú,
þegar prófkjör
Samfylkingarinnar
um fólk til að skipa
listana til Alþingiskosninga í vor,
eru að bresta á gefst kærkomið
tækifæri til að sýna viljann í verki.
Jón Þór
Sturluson
Sjgurbjörg
Ásgeirsdóttir
Brvndís
Kristjinsdóttir
Það þarf ekki að fjölyrða um það
hversu erfítt konur hafa átt upp-
dráttar í kosningum sem þessum né
að konur eru aðeins 26% alþingis-
manna, á meðan konur á hinum
Norðurlöndunum eru 40 - 50 %.
Ekki þarf heldur að minna á það
hversu nauðsynlegt það er að rödd
kvenna á Alþingi sé jafn sterk rödd-
um karla þannig að málefni þau sem
konur setja á oddinn, s.s. velferðar-
, mennta- og heilbrigðismál, fái það
vægi sem þjóðfélagið krefst. Þetta
vitum við öíl.
►Meira á Netinu
Bryndísi
Hlöðversdótt-
ur i fyrsta
sæti
prófkjörs. A
70% fulltrúa
Kristinn Karlsson félagsfræðingur
skrifar:
NÚ ER tækifæri
að tryggja kjör
konu í fyrsta sæti
Samfylkingarinnar í
Reykjavík. Það er
vandi okkar að
mega ekki velja úr
hópi allra frambjóð-
enda. Bryndis hefur
ein fárra alltaf kraf-
ist lýðræðislegs
landsfundi vildu yfir
alþýðubandalagsfólks
undir forystu Margrétar Frímanns-
dóttur ganga til samfylkingar. Bi-yn-
dís hefur verið fremst í flokki stuðn-
ingsmanna formannsins.
Biyndís hefur á Alþingi verið öfl-
ugur málsvari vinnandi fólks og
jafnréttis kynjanna, og andstæðing-
ur einkaleyfastefnu stjómarinnar.
Hún hefur víðtæka reynslu, var
skrifstofumaður er hún hóf laganám
undir þrítugt og að loknu námi
starfaði hún á vegum verkalýðs-
hreyfingarinnar. Hún er góður sam-
nefnari félagshyggju, jafnaðar-
stefnu og jafnréttis. Endurnýjum
forystuna með þeirri blöndu reynslu
og stefnu nýrrar aldar.
Kjósum Rann-
veigu í 1. sæti
Guðmundur Oddsson, skólastjóri í
Kópavogi, skrifar:
NÚ LÍÐUR að
prófkjöri samfylk-
ingarinnar í
Reykjaneskjör-
dæmi, en það verð-
ur haldið dagana 5.
og 6. febrúar.
Rannveig Guð-
mundsdóttir al-
þingismaður hefur
verið forystumaður
Alþýðuflokksins í kjördæminu á því
kjörtímabili sem senn er liðið.
Rannveig hefur öðlast mikla og dýr-
mæta reynslu í pólitíkinni, bæði í
bæjarstjórn Kópavogs og síðan á
Alþingi. Rannveig hefur frá fyrstu
tíð unnið af fullum krafti við að ná
fram þeirri samfylkingu sem náðst
hefur. Við sem þekkjum Rannveigu
vitum, að hún er heiðarlegur og
traustur stjórnmálamaður, sem gott
er að vinna með. Það skiptir okkur
miklu máli hver leiðir listann, og að
mínu mati er Rannveig Guðmunds-
dóttir besti kosturinn. Ég skora því
á kjósendur í Reykjaneskjördæmi
að fjölmenna í prófkjörið og tryggja
Rannveigu glæsilega kosningu í 1.
sæti. Traustur foringi er gulls ígildi
Ásta Ragn-
heiður tryggir
réttindi barna
Jólianna Vigdís Guðmundsdóttir, bók-
menntafræðingur, skrifar:
ÁSTA Ragnheið-
ur Jóhannesdóttir
er fyrsti flutnings-
maður þingmáls
sem miðar að því
að tryggja börnum
rétt til umgengni
við báða foreldra.
Jóhanna vigdis Rettindi barna eru
Guðmundsdóttir mjög takmörkuð af
Guðmundur
Oddsson
eðlilegum ástæðum, en í nútíma-
samfélagi telst þó eðlilegt að þau
njóti ákveðinna lágmarks mannrétt-
inda. Það er hlutverk kjósenda, og
Alþingis í umboði þeirra, að tryggja
þessi réttindi.
Börnum verður að tryggja besta
mögulega undirbúning undir lífið og
þar bera báðir foreldrar ábyi-gð.
Gildandi lög og reglur mótuðust út
frá samfélagi sem nú er horfið inn í
fortíðina, ásamt því sem kallað var
„hin hefðbundna fjölskylda“, því
meirihluti íslenskra barna býr utan
þeirrar stofnunar, þ.e. ekki með
báðum foreldrum sínum.
Ástu Ragnheiði verður því að
tryggja öruggt sæti ofarlega á lista
samfylkingarinnar. Eina leiðin til
þess er að kjósa hana í eitt þriggja
efstu sætanna í hólfi Alþýðuflokks-
ins í prófkjörinu í dag.
►Meira á Netinu x*
Ástu Ragn-
heiði áfram
á þingi
Katrín Magnúsdóttir og Gunnar
Helgason, Heimsreisufarar,
Nökkvavogi 38, skrifa:
Katrín
Magnúsdóttir
Gunnar
Helgason
VIÐ hjónin höf-
um notið leiðsagnar
og fararstjórnar
Ástu Ragnheiðar
bæði í Heimsreis-
um og í sólarlönd-
um. Hún er frábær
foringi, góður
stjómandi og
skemmtilegur fé-
lagi. Hún er bæði
röggsöm og úr-
ræðagóð, en við
höfum einmitt notið
þeirra eiginleika
hennar erlendis.
Við nutum einnig
aðstoðar hennar
þegar hún var hjá
Tryggingastofnun
ríkisins.
Hún hefur frá
því hún tók sæti á Alþingi fyrir tæp-
um fjórum árum verið mjög dug-
mikill þingmaður og látið að sér
kveða í mörgum þjóðþrifamálum.
Við viljum biðja alla ferðafélaga
okkar úr Heimsreisunum og aðra
sem notið hafa fararstjómar hennar
að koma og styðja hana til áfram-
haldandi starfa á Alþingi. Prófkjör-
ið á laugardaginn er opið öllum sem
eiga lögheimili í Reykjavík. Ferða-
félagar, tryggjum Ástu þá 2. sæti á
lista jafnaðarmanna.
Tryggjum Sig-
ríði Jóhannes-
dóttur áfram
þingsæti
Ólafur Jónsson fyrrv. form. Landssam-
bands eldri boigara skrifan
SIGRÍÐUR Jó-
hannesdóttir kenn-
ari hefur verið
varaþingmaður Al-
þýðubandalagsins í
Reykjaneskjör-
dæmi í tvö kjör-
tímabil og tók sæti
Olafs Ragnars
Grímssonar á Al-
þingi þegai' hann
var kosinn forseti lýðveldisins árið
1996. Á Alþingi hefur hún verið öt-
ull málsvari kennara og annama
láglaunahópa í þjóðfélaginu og var-
að við láglaunastefnu stjórnvalda
sem nú hefur leitt til upplausnar
meðal starfsfólks á mörgum heil-
brigðisstofnunum og í menntakerf-
inu. Auk þess hefur Sigríður verið
ötull talsmaður í öllum hagsmuna-
málum aldraðra á Alþingi og hafa
aldraðir nú tækifæri til að launa
henni stuðninginn með því að setja
hana í fyrsta sæti Alþýðubandalags-
ins í prófkjöri Samfylkingai'innar í
Reykjaneskjördæmi.
Sigríður er einlægur stuðnings-
maður samfylkingar vinstri flokk-
anna sem nú er að myndast í öllum
kjördæmum landsins. Það staðfesti
hún með framboði sínu í 2. sæti á
framboðslista Samfylkingarinnar.
►Meira á Netinu «J"
Ólafur
Jónsson