Morgunblaðið - 29.01.1999, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 29.01.1999, Blaðsíða 44
44 FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1999 MORGUNB LAÐIÐ UMRÆÐAN/PRÓFKJÖR Jafnaðarmenn inn í nýja öld TIL PESS að Sam- fylking jafnaðarmanna og félagshyggjufólks fái umboð til að leiða þjóðina inn í nýja öld þarf hún að uppfylla fá- ein skilyrði. I skoðanakönnunum birtist sú staðreynd að helmingur þjóðarinnar ^myndi kjósa Sjálfstæð- isflokkinn ef þingkosn- ingar væru í dag. Þýðir það að helmingur þjóð- arinnar telji sig til hægri í stjórnmálum? Ekki endilega. Reyndin er sú að flestir telja sig vera fyrir miðju í stjórnmálaskoðunum og hafa skömm á öllum öfgum til hægri eða vinstri. Til þessa breiða hóps kjósenda þarf Samfylkingin að höfða, eigi hún að ná árangri í kosningunum í vor. Það gerir hún með því að hlusta á vilja þjóðarinnar í sambandi við tengsl við aðrar vestrænar þjóðir. Meirihluti þjóðarinnar vill, segir Magnús Árni Magnússon, að aðild að Evrópusambandinu verði skoðuð nánar. Þannig vill meirihluti þjóðarinnar að ísland sé í NATO. Meirihluti þjóðarinnar vill að aðild að Evrópu- sambandinu verði skoðuð nánar. Samfylkingin þarf að sýna skiln- ing á gi-undvallarlögmálum hag- fræðinnar og gera upp við þá rang- hugmynd sósíalismans að góð póli- tík þurfí alltaf að hanga saman við vonda hagfræði. Þannig er hægt að reka þjóðfélag sem lætur sér annt um velferð borgaranna án þess að hindra frjáls viðskipti þeirra í milli. Markaðslögmál verða að fá að ráða dreifíngu fjármagnsins, annars sóar þjóðfélagið miklum verðmætum sem annars nýttust til að byggja upp betra samfélag. Samfylkingin þarf að standa vörð um velferðarkerfið og að öllum sé tryggður jafn aðgangur að heil- brigðisþjónustu, menntun og félagslegri þjónustu án tillits til efnahags. Hún þarf jafnframt að taka þá afstöðu að standa ekki í vegi fyrir sókn borg- aranna í betra líf. Þannig á hún ekki að sjá ofsjónir yfír því að sumir geti auðgast á því að vera útsjónar- samir í viðskiptum. All- ar þjóðir þurfa á dug- miklum frumherjum að halda til að skapa borg- urunum ný tækifæri til að nýta hæfileika sína. Allt þetta hefur vinstri hreyfíng í nágrannalöndum Evrópu komið auga á. Þetta er grundvöllur hinna stóru sigra jafnaðarmannaflokka Evrópu undanfarin misseri. Þetta er það sem hefur gert þá það sem kallað er „kjósanlega“. Þeir hafa aðlagað sig nýrri þekk- ingu á hagfræði og efnahagslögmál- um, nýjum og breyttum þjóðfélags- aðstæðum og svarað hægri bylting- unni sem kennd er við Margaret Thatcher með gagnsókn. Gagnsókn inn á miðju stjórnmálanna. Eg er 30 ára gamall og tók sæti á Alþingi um áramótin. Mig langar til að taka þátt í mótun nýrrar vinstri hreyfingar á íslandi og leggja mitt af mörkum til að færa hana í þá átt sem ég hef tíundað að ofan. Ef þú vilt kynnast enn nánar sjónarmið- um mínum í stjórnmálum þá hef ég ritað fjölda pistla og greina á vef- síðu mína, www.althingi.is/mam, síðan vorið 1995. Ég býð mig fram í þriðja sætið í hólfí Jafnaðarmanna í prófkjöri Samfylkingarinnar og vona að þú hafir mig í huga, ef þú hefur í hyggju að leggja þitt af mörkum í mótun nýrrar aldar með þátttöku í prófkjörinu. Höfundur er 15. þiiifpnnður Reykvík- inga og gefur kost á sér i 3. sætið í liólfi Jafnaðannmina í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík. Magnús Árni Magnússon , Samfylkingin eða Sjálf- stæðisflokkurinn Á ÞEIM þrem vikum sem liðnar eru síðan kynning hófst fyrir prófkjör jafnaðarmanna í Reykjavík hef ég lagt áherslu á að verkefni Samfylkingarinnar í vor sé að koma Sjálfstæðis- flokki Davíðs Oddsson- ar frá völdum og mynda nýja jafnaðarstjórn. Ég hef bent á nokkur af meginverkefnum slíkrar stjórnar. Brýn- ' ’“ast er að tryggja þjóð- areign á fiskimiðunum með veiðileyfagjaldi og koma á svipaðri skipan um aðrar helstu auðlind- Mörður Árnason í prófkjörinu veljum við í sigurlið Samfylk- ingarínnar, segir Mörð- ----3--------------------- ur Arnason. Við getrnn _________unnið.___________ ^ ir okkar. Ný jafnaðarstjóm á að • gæta þess að hálendinu og ósnort- inni náttúru verði ekki spillt vegna meintra stundarhagsmuna. Hún þarf að nýta góðærið til frambúðar þeim í hag sem standa höllustum fæti, og einbeita sér að lausnum . á vanda millihópanna sem nú bæta sér upp vítahring láglauna og jaðarskatta m. með sífellt meiri vinnu og lántökum. Og ný stjórn verður að starfa í þeim anda að menntir og menning eru mikilvægustu at- vinnu- og efnahagsmál hinnar nýju aldar. Einnig hef ég vakið at- hygli á því að það sé sögulegt verkefni okk- ar kynslóðar að tryggja framtíð íslensku á þeim alþjóðlegu upplýsinga- tímum sem nú eru runnir upp. Á næstu misserum - og ekki eftir þarnæstu kosningar - ráðast úr- slit í þessum átakamál- um og ýmsum öðrum. Þess vegna er nauðsynlegt að það sé Samfylkingin en ekki Sjálfstæðis- flokkurinn sem ræður ferðinni á al- þingi og í stjórnarráðinu. í prófkjörinu á laugardaginn velj- um við í sigurlið Samfylkingarinnar - það fólk sem dugar í kosningabar- áttunni við hagsmunaíhaldið og get- ur staðið vaktina á þingi næsta kjör- tímabil. Ég býð mig fram til þeirra verka og vonast til að stutt en snörp prófkjörsbarátta hafí sýnt að það framboð er djúp alvara. Við eigum að vinna - og við getum unnið. Höfundur er (slenskufræðingur og vnruþingnmður í Þingflokki jnfnnðnrnmnnn. Prófkjör Útdráttur greina um prófkjör vegna alþingiskosninga vorið 1999. Greinarnar eru birtar í heild á Netinu www.mbl.is Guðmundur Árni - góður leiðtogi Tryggvi Harðarson bæjarfulltníi í Hafnarfirði, skrifar: VIÐ SEM höfum verið þeirra ánægju aðnjótandi að starfa með Guð- mundi Árna vitum að hann er góður leiðtogi, djarfur til verka, sanngjarn en um fram allt hreinn og beinn. Hann hefur flesta þá kosti sem prýða góðan stjórn- málamann, en umfram allt, hann hefur hugsjónir, hann hefur póli- tíska framtíðarsýn, hann hefur skoðanir á hvers konar þjóðfélagi við viljum búa í. Þrátt fyrir að Guðmundur Árni sé enn ungur að árum hefur hann öðl- ast mikla reynslu af stjórnmála- störfum. Guðmundur Árni hefur hvarvetna verið í fylkingarbrjósti og jafnan skipað sér í sveit þar sem baráttan er hörðust. Hann gengur ótrauður fram á vígvöllinn til að berjast fyrir almannaheill og tekur jafnan málstað þeirra sem eiga und- ir högg að sækja í lífsbaráttunni. Ég styð Guðmund Áma í 1. sæti samfylkingarinnar í Reykjaneskjör- dæmi vegna mannkosta hans og skora á aðra að gera slíkt hið sama. Hann er verðugur framtíðarforingi sameinaðra jafnaðarmanna á íslandi sem eru að hefja öfluga fí'amfara- sókn nú við upphaf nýrrar aldai-. Ungan mann I efsta sætið Guðrún Ágústsdóttir, forseti borgar- stjórnar Reykjavíkur, skrifar: ÞEGAR kostur gefst á að grípa hann. Árni Þór Sig- urðsson gefur kost á sér í efsta sæti samfylkingarinnar og í efsta sæti okk- ar. Hann hefur sýnt að hann kem- ur hlutunum í verk. Það sést best á leikskólabyltingunni í Reykjavík. Það sést líka á öðrum verkum hans til dæmis á vegum ráðuneyta; eins og hjá Lánasjóði íslenskra náms- manna þegar hann var þar formað- ur. Hann er alvörumaður sem geng- ur í verkin og skilar þeim í höfn. Ég skora á þá sem vilja traustan, ungap mann til forystu að fylkja sér um Áma Þór Sigurðsson. Hann er maður sem má treysta; það þekki ég af eigin raun. Guðmund Árna í forystu Ingvar Viktorsson bæjarfulltrúi og fyrrum bæjarstjöri, Hafnarfírði, skrifar: ÞAÐ ER gott að vinna með mönnum sem eru röskir til starfa og ákvarð- ana, en gefa sér jafnframt ráðrúm til að hlusta og íhuga lífsins gang - og þá ekki síst ábendingar og skoðanir annarra. I pólitísku starfi skiptir þetta ekki síst máli. I prófkjöri Samfylkingar í Reykjaneskjördæmi eigum við slík- an mann. Það er Guðmundur Ámi Stefánsson alþingismaður og fyrr- um bæjarstjóri í Hafnarfirði. Ég hefi setið í bæjarstjóm Hafn- arfjarðar í 12 ár og þar af 8 ár í sam- íngvar Viktorsson Guðrún Ágústsdóttir Tryggvi Harðarson starfi við Guðmund Árna Stefánsson. Það voru góð ár. Það var gott að starfa með Guðmundi Árna í sókn og vörn. Við jafnaðarmenn unnum og enda góða sigra í Firðinum á þeim áram; fengum á bilinu 36-48% fylgi i kosningunum 1986-1994. Guðmundur Ami hefur framtíð- arsýn og skýr stefnumið, er hreinn og beinn í samskiptum og vaskur til verka. Hann er vel til forystu fall- inn. Það er góður og glæsilegur hópur sem gefur kost á sér í próf- kjörinu og ég er viss um að listinn verður vel skipaður. En miklu skiptir hvernig foiystu verður hátt- að. Hin nýja Samfylking i Reykja- neskjördæmi er í góðum höndum með mann eins og Guðmund Árna í fylkingarbrjósti. Jón Gunnars- son í 2. sæti Sigurður Kristinsson, hreppsnefndar- maður í Vatnsleysustrandarhreppi skrifar: í PRÓFKJÖRI samfylkingar Al- þýðuflokks, Al- þýðubandalags og Kvennalista sem fram fer 5. og 6. febrúar n.k. hefur Jón Gunnarsson fr amkvæmdastj óri í Vogum gefið kost á sér í 2. sæti list- ans. Jón á fullt erindi á Alþingi, hann hefur yfirgripsmikla reynslu í sveitarstjórnarmálum, var oddviti í Vatnsleysustrandarhreppi í 8 ár og hefur setið í fjölmörgum nefndum og stjórnum á vegum sveitarfélag- anna á svæðinu. Eftir að hafa jafn- framt rekið fyrirtæki hér á Suður- nesjum á sama tíma, þá hefur Jón einstaka þekkingu á málefnum Suð- urnesjanna, þekkingu sem mun vafalítið nýtast honum vel á Alþingi. Ég hef þekkt Jón Gunnarsson til fjölda ára og veit að hann er ákveð- inn og baráttuglaður, maðm' hug- sjóna og framkvæmda. Hann vand- ar alltaf til verka sinna hvort sem er í stóru eða smáu og nær árangri í því sem hann tekur sér fyrir hend- ur. Ég styð Jón Gunnarsson í 2. sæti á lista Samfylkingar og hvet alla til að gera það líka. Sigurður Kristinsson Ingibjörg Pétursdóttir Astu Ragn- heiði í 2. sæti Ingibjörg Pétursdóttir, Lindai-braut 6, Seltjarnarnesi, skrifar: ÉG HVET alla Reykvíkinga sem láta sig velferðar- mál varða til að stuðla að áfram- haldandi þingsetu Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur með því að taka þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar og kjósa hana í annað sæti á lista Alþýðuflokksins. Ásta Ragnheiður er ötull málsvari þeirra sem standa höllum fæti í samfélaginu. Hún hefur verið óþreytandi í baráttu sinni fyrir bættum kjörum og réttindum sjúk- linga, fatlaðra og aldraðra. Um það vitna fjölmargar fyrirspumir, frum- vörp og þingsályktanir hennar í gegnum árin. Asta Ragnheiður sýndi einnig og sannaði í starfi sínu sem deildar- stjóri hjá Tryggingastofnun ríkisins að hún vildi hag skjólstæðinga stofnunarinnar sem bestan. Athygli vakti hve hún sinnti því hlutverki sínu að upplýsa fólk um þann rétt sem það átti samkvæmt lögum og ráðgjöf þar að lútandi. Auk þess að vera reyndur stjórnmálamaður og þingmaður býr Ásta Ragnheiður því yfir dýrmætri reynslu og þekk- ingu á málefnum öryrkja og aldr- aðra. Það væri mikill skaði fyrir okkur öll ef Ásta Ragnheiður hyi'fi af Al- þingi. Valþór á þing! Guðmundur Oddsson, skólastjóri í Kópavogi, skrifar: í PRÓFKJÖRI samfylkingarsinna í Reykjaneskjör- dæmi mega menn kjósa þvert á öll flokksbönd og eiga fyrst og fremst að hugsa um að stilla upp sterkum og góðum lista. I Kópavogi gekk samstarf þeirra flokka sem mynd- uðu Kópavogslistann í síðustu kosn- ingum afar vel. Einn þeirra sem gekk hvað ötullegast fram í því að Kópavogslistinn komst á koppinn var Valþór Hlöðversson bæjarfull- trúi. Undirritaður hefur síðustu 12 ár- in setið með honum í bæjarstjórn Kópavogs og telur sig þekkja pilt- inn mæta vel. Valþór er afar traust- ur liðsmaður samfylkingar með mikla og góða pólitíska reynslu úr sveitarstjórninni. Ég vil skora á alla stuðningsmenn samfylkingarinnar í Reykjaneskjördæmi að tryggja Val- þóri Hlöðverssyni góða kosningu í prófkjörinu 5. og 6. febrúar nk. Valþór þriðji Helgi J. Hauksson, stjórnmálafræðing- ur, framhaldsskólakennari og hönnuð- ur, skrifar: KJÓSUM Val- þór, næst á eftir Rannveigu og Guð- mundi Arna. Nú á að innsigla sögu- lega breytingu á ís- lensku stjórnmála- kerfi. Bæði eru Guðmundur Árni og Rannveig gull af manni. Hvorugt megum við missa. Það ættu stuðn- ingsmenn þeiiTa beggja að hafa í huga um hitt. Þetta tækifæri vil ég nota til að hvetja alla jafnaðarmenn til að styðja næstan Valþór Hlöðversson fv. bæjarfulltrúa. Val- þór er trúr fulltrúi hugsjóna sinna og einkar góður samstarfsmaður annarra jafnaðarmanna, svo vart brá skugga á í þau tólf ár sem hann sat í bæjarstjórn. Ómálefnaleg óvild og fordómar hafa aldrei þvælst fyrir Valþóri. Við myndun Kópavogslist- ans fyrir ári hélt hann sig til hlés þegar hann hefði allt eins getað gert tilkall til þess að leiða listann. Val- þór er einkar eftirsóknai-verður samstarfsmaður. Allir ættu að draga með sér aðra til prófkjörsins. Valþór er traustsins verður Björn Kristjánsson, múrarameistari, skrifar: ÉG VIL skora á sem flesta að taka þátt í opnu próf- kjöri Samfylkingar á Reykjanesi sem fram fer 5.-6. febr- úar nk. Þar biður Valþór Hlöðvers- son um stuðning í 2. sæti listans. Ég hef ákveðið að verða við þeirri ósk. Verk Valþórs á pólitískum vett- vangi hingað til er nægjanleg trygg- ing fyrir því að hann mun reynast góður liðsmaður okkar á þingi. Ég hef fylgst með honum sem forystu- manni í flokkstarfi Alþýðubanda- lagsins í Kópavogi sl. tólf ár og treysti honum fullkomlega til að gegna störfum á Alþingi. Valþór er heiðarlegur maður og starfssamur og hefur náð að skapa sér traust og virðingu, langt út fyrir fiokksraðir. Slíkir menn eiga erindi á Alþingi. Björn Kristjánsson HelgiJ. Hnuksson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.