Morgunblaðið - 29.01.1999, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1999 13
Alþýðusambandið um skerðingu barnabóta
Lækkun frá 1995
tveir milljarðar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sj óvarnargarður
reistur við Suðurnes
ÞVÍ er haldið fram í forsíðugrein í
nýjasta tölublaði Vinnunnar, blaðs
Alþýðusambands Islands, að kaup-
máttur barnabóta sé 23% lægri í
ár en hann var árið 1995. I grein-
inni segir að á þessu kjörtímabili
hafi ríkið sparað 2,2 milljarða kr.
með því að skerða barnabætur.
Þessi upphæð samsvari ríflega
helmingi þeirrar upphæðar sem
fer í greiðslu barnabóta á árinu
1999.
„Arið 1996 var útgjaldaaukning
ríkisins vegna barnabóta og barna-
bótaauka um 32 milljónir (á verð-
lagi 1999). Síðan hafa útgjöldin
lækkað, um 291 milljón árið 1997,
um 775 milljónir árið 1998 og
stefna í að lækka um 1.181 milljón
á þessu ári miðað við árið 1995. Sé
þetta lagt saman erum við alls að
tala um 2.215 milljónir króna. Það
er dágóð upphæð, ekki síst þegar á
það er litið, að alls er áætlað að
verja 3.950 milljónum króna til
greiðslu barnabóta og barnabóta-
auka á árinu. á kjörtímabilinu hef-
ur því sparast sem nemur upphæð
barnabóta í meira en hálft þetta
ár. Að sögn Eddu Rósar Karls-
dóttur, hagfræðings ASI, er hér
um að ræða bein áhrif tekjuteng-
ingarinnar. „Þetta þýðir í raun, að
fólk sem á börn fær minni kjara-
bætur en þeir sem ekki eiga börn.
Það stangast á við það sjónarmið
að barnabætur séu stuðningur við
fólk vegna þess að það á börn. Það
kemur í staðinn þannig út að
barnabætur séu stuðningur við
fólk sem hefur litla peninga milli
handa,“ segir í Vinnunni.
Verður fylgt eftir við
endurnýjun kjarasamninga
Grétar Þorsteinsson, forseti
ASÍ, segir í samtali við Morgun-
blaðið að það sé þekkt í nágranna-
löndum að greiddar séu barnabæt-
ur án tillits til þess hvemig efna-
hag, launum eða eignum er háttað
hjá viðkomandi. „Þau viðhorf eru
æði rík hér í hreyfíngunni að
þannig eigi að meðhöndla bama-
bætur en það era svo sem fleiri við-
horf uppi í því,“ sagði hann.
Grétar sagðist eiga von á að
þessu máli yrði fylgt eftir í tengsl-
um við endumýjun kjarasamning-
anna á næsta ári. „Væntanlega
nota menn tímann til þess að und-
irbúa það,“ sagði hann.
FRAMKVÆMDIR við sjóvarnar-
garð standa nú yfír við golfvöll
Seltirninga á Suðurnesi. Þetta er í
fyrsta skipti sem tekist er á við
landbrot vegna sjávargangs með
skipulegum hætti á þessum stað,
en fyrir nokkrum árum var grjóti
ekið utan í ströndina til bráða-
birgða. Nú verður hins vegar
reistur sjóvarnargarður eftir for-
skrift og hönnunarreglum frá
Siglingastofnun, þar sem efni og
aðferð er lýst. „Fyrst er keyrt ut-
an í ströndina fínu grjóti, svoköll-
uðum kjarna," segir Hrafn Jó-
hannsson, tæknifræðingur hjá
Seltjarnarnesbæ. „Þar á utan
kemur lag af milligrjóti frá
200-1000 kg að þyngd og yst
kemur lag af steinum sem eru 1-3
tonn.“ Garðurinn verður sjö metr-
um ofan við meðalstórstraums-
fjöru og lengd hans um 1 kíló-
metri. Reiknað er með að ljúka
500 metrum á þessu ári og af-
ganginum á því næsta. I fyrra var
reistur 800 metra langur garður á
vesturhlið Suðurnessins og stefnt
er að því að endar nái saman á
næsta ári. Kostnaður við verkið á
þessu ári er 10-15 milljónir, sem
bæjarsjóður greiðir.
Vindmyllur á landi umdeildar í Danmörku og hefur verið bannað
að reisa fleiri í einu sveitarfélagi
Hyggjast fullnægja helmingi
orkuþarfar með vindafli
Danir hafa verið í fararbroddi að reisa
vindaflsstöðvar. Nú er komin fram mót-
staða við vindmyllur á landi, en engu að
síður hyggjast Danir fullnægja helmingi
orkuþarfar sinnar með vindafli á næstunni.
Þeir ætla að setja upp 100 metra háar
vindmyllur á hafí úti.
DANIR hafa verið ötulir við að
setja upp vindaflsstöðvar undan-
farin ár, en nú er komið bakslag og
andstöðu farið að gæta við þessi
fyrirbæri, sem óneitanlega setja
svip á landslag í Danmörku. I júní
á liðnu ári höfðu 5.002 vindmyllur
verið reistar í Danmörku og hafði
þá fjölgað um 40% á fímm áram.
Menn era ekki á eitt sáttir um
ágæti þeirra. Nú síðast lét skipu-
lagsdeild danska umhverfis- og
orkumálaráðuneytisins boð út
ganga um að stemma þyrfti stigu
við fjölgun vindmylla á landi. Danir
era hins vegar með miklar áætlanir
á prjónunum um að reisa fjölda
vindmylla á hafí úti og hyggjast
þannig fullnægja helmingi orku-
þarfar sinnar.
Vindmyllur komust á blað í olíu-
kreppunni á áttunda áratugnum
sem fýsilegur kostur í stað olíu og
gass. Síðan hefur framleiðsla vind-
mylla til orkuframleiðslu breyst
mikið og er nú um stórfelldan iðn-
að að ræða. Samkvæmt umhverfis-
og orkumálaráðuneytinu er fram-
leiðslugeta vindaflsstöðva í Dan-
mörku nú 1.133 megawött og er því
farin að nálgast 1.500 megawatta
takmarkið, sem ríkisstjómin hafði
einsett sér að ná ái'ið 2005.
I dreifíbréfí frá ráðuneytinu seg-
ir að það geti haft óheillavænleg
áhrif á náttúra og umhverfi að
halda áfram að reisa vindmyllur og
því verði að fara fram rækileg
skipulagning þar sem tekið sé tillit
til allra þátta nýtingar landsins.
Ottast framleiðendur vindmylla að
með þessum orðum sé verið að búa
til flöskuháls, sem standa muni
frekari vexti í þessum geira fyrir
þrifum. Þeir segja að skelfing hafi
gripið um sig og tugir milljarða
króna séu í húfí.
Nú era vindmyllur að jafnaði 650
til 700 megawött og 70 til 90 metr-
ar á hæð og 100 metra háar vind-
myllur era ráðgerðar. Upprana-
lega vora vindmyllumar hins vegar
35 til 45 metrar á hæð. Skógar- og
náttúrastjórn Danmerkur telur að
vindmyllurnar séu orðnar nógu
áberandi í dönsku landslagi eins og
er.
Eðlilegt að ríkið hafí
hönd í bagga
Dönsku Náttúruverndarsamtök-
in styðja stjórnina og segja að ekki
sé óeðlilegt að ríkið, sem veiti 7,5
milljarða króna árlega til að
styrkja vindmylluiðnaðinn, fái að
hafa hönd í bagga með uppsetn-
ingu aflstöðvanna.
Samkvæmt skoðanakönnunum
Reuters
VINDAFLSSTÖÐVAR eru svar
við kröfunni um orku án meng-
unar. Á umhverfisráðstefnunni
í Buenos Aires í nóvember settu
umhverfissamtökin Greenpeace
upp borða með áletruninni
„Hreina orku nú þegar“ fyrir
framan þrjár vindmyllur.
telja um 60% Dana að vindmyllum-
ar falli vel inn í landslagið og meiri-
hluti listamanna og arkitekta er
þeirrar hyggju að þær þjóni ekki
aðeins umhverfissjónarmiðum
heldur einnig fagurfræðilegum.
Skoðanakannanir segja hins vegar
ekki alla söguna. Fólk er ekki jafn
opið þegar vindmyllan er komin
inn á gafl hjá því. Arlega berast
mörg hundruð kvartanir frá fólki
vegna hávaða eða þess hvernig
spaðarnir á myllunum skera ljós.
Þá grípa íbúar oft og tíðum til mót-
mælaaðgerða þar sem reisa á myll-
urnar.
Eignir falla í verði
Sumir hafa leitað til dómstóla
vegna traflana af vindmyllum í
næsta nágrenni við þá. I fyrra féllu
dómar í tveimur prófmálum. Nið-
urstaða dómstólsins var sú að fólk
yrði að sætta sig við vindmyllur að
því tilskildu að þær væru innan há-
vaðamarka eða 45 desibela. Gilti
einu þótt umræddar eignir hefðu
fallið í verði um hálfa til eina millj-
ón króna samkvæmt mati.
A einum stað hafa yfirvöld gripið
til aðgerða vegna andstöðunnar við
vindmyllur. Sveitarstjórnin í
Trehoje lýsti yfir því í desember að
ekki yrðu reistar fleiri vindmyllur í
sveitarfélaginu. Kvaðst sveitar-
stjórnin vera að drakkna í umsókn-
um og bar því við að niðurgreiðsla,
sem nemur 27 krónum á hvert
kílówatt, gerði að verkum að allt of
vænlegt væri að reisa vindafls-
stöðvar. 18 vindmyllur era í sveit-
arfélaginu og hafa borist umsóknir
um 21 myllu til viðbótar. Sagt er að
þrjú eða fjögur sveitarfélög til við-
bótar hyggist nú feta í fótspor yfir-
valda í Trehpje.
Vindmylluþyrpingar
á hafí úti
Nú er þrýst á að myllur verði
reistar á iðnaðarsvæðum eða á hafi
úti og reyndar verður á næstunni
lögð áhersla á síðari kostinn. Stefnt
er að því að reisa fjórar mylluþyrp-
ingar á landgranninu við Læsp,
Blávandshug, Falster og Skælskor.
Vindmyllur þessar eiga að verða
100 metrar á hæð og framleiða 1,5
megawött hver. Samanlagt er
stefnt að því að þær sjái fyrir
helmingnum af orkuþörf Dana, en
nú era aðeins milli sex og sjö af
hundraði hennar framleidd með
vindafli.
Heimild: Jyllandsposten.
Samfylkingin á Suðurlandi
Tillaga um
Margréti í
efsta sæti
SVOKÖLLUÐ níu manna nefnd, A-
flokkanna og Kvennalistans, á Suður-
landi er að leggja lokahönd á fram-
boðslista Samfylkingarinnar í kjör-
dæminu.
Samkvæmt tillögum nefndarinnar
skipar Margrét Frímannsdóttir, al-
þingismaður og formaður Alþýðu-
bandalagsins, efsta sæti listans og
Lúðvík Bergvinsson, alþingismaður
og fulltrúi Alþýðuflokksins annað
sætið. Katrín Andrésdóttir dýralækn-
ir er tilnefnd af fulltrúum Kvennalist-
ans í hið þriðja. Katrín er reyndar
ekki „flokksbundin“ Kvennalistakona
og fer því, að eigin ósk, í þriðja sætið
undir merkjum óháðra.
Alþýðuflokkurinn, Alþýðubanda-
lagið og Samtök um kvennalista
fengu samtals tvo þingmenn kjöma á
Suðurlandi í síðustu alþingiskosning-
um, þ.e. þau Margréti og Lúðvík.
Gert er ráð fyrir því að níu manna
nefndin gangi endanlega frá listanum
um eða eftir helgi.
Einstakar raddii-, einkum innan Al-
þýðuflokksins, hafa gert kröfu um að
prófkjör fari fram hjá Samfylking-
unni á Suðurlandi, en að sögn Drífu
Kristjánsdóttur, fulltrúa Kvennalist-
ans í níu manna nefndinni í kjördæm-
inu, hefur prófkjörsleiðin ekki verið
rædd innan nefhdarinnar. Strax á
fyrsta fundi hefði verið samstaða um
þá leið að handraða á listann.
Margrét Frímannsdóttir tekur
undir þetta og kveðst ekki vita til
annars en að það sé mjög góð sam-
staða milli A-flokkanna og Kvenna-
listans um uppstillingu á Suðurlandi.
Hún tekur á hinn bóginn fram að það
hafi aldrei staðið á sér að samþykkja
prófkjör á Suðurlandi, en það yrði þá
að vera opið prófkjör og án svokall-
aðra girðinga við ákveðin sæti.
--------------------
Bocuse d’Or
Islendingur í
fímmta sæti
STURLA Birgisson, yfirkokkur í
Perlunni, lenti í fimmta sæti í mat-
reiðslukeppninni Bocuse d’Or í Lyon í
Frakklandi á miðvikudag, en hún er
virtasta matreiðslukeppni sem haldin
er. Norski kokkurinn Terje Neff sigr-
aði í keppninni og næst komu mat-
reiðslumenn frá Frakklandi, Belgíu
og Kanada.
Sturla segir að hann sé gífurlega
ánægður með árangurinn og segja
megi að búið sé að koma Islandi á
kortið í matreiðsluheiminum. „Það
gekk allt upp hjá mér og við fengum
raunar mikið hrós fyrir fagmannleg
vinnubrögð," segir Sturla. Hann segir
að yfirdómarar hafi komið til hans og
hrósað honum sérstkalega og einnig
hafí Bocuse sjálfur gengið til hans og
hvíslað að hann myndi fá mjög háa
einkunn fyrir frammistöðuna.
Nokkrir tugir íslendinga fylgdust
með keppninni og segir Sturla að
mikil stemmning hafi verið á áhorf-
endapöllunum og íslendingar vakið
mikla athygli fyrir vaska framgöngu
„klappliðsins".
------♦-♦-♦-----
Hönnunarsýning
göngustafa í
Skotinu
í SKOTINU, sýningaraðstöðu
aldraðra í Hæðargarði 31, verður
opnuð sýning á göngustöfum, í dag,
fóstudag. Síðastliðið haust var opin
samkeppni í hönnun göngustafa
innan félagsstöðva aldraðra í
Reykjavík og er þessi sýning
afrakstur hennar. Ekki var
nauðsynlegt að stafirnir hefðu
notagildi, en þeim mun meira lagt
upp úr frumleika og skapandi
hugsun, segir í fréttatilkynningu.
Dómnefnd mun veita viðurkenningu
fyrir góða hönnun og frumleika
þegar sýningu lýkur, 23. febráar nk.
Sýningin er opin alla virka daga
frá kl. 9-16.30.