Morgunblaðið - 29.01.1999, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1999 25
Hleranir vestrænna stofnana staðfesta að yfírvöld
í Belgrad fyrirskipuðu fjöldamorðin í Kosovo
Arásin í Racak var
ákveðin í reiðikasti
Oeirðir 1 Aþenu
SKIPUNIN um fjöldamorðin í
bænum Racak í Kosovo var gefin á
æðstu stöðum í Belgrad í Serbíu,
að því er fullyrt er í Washington
Post í gær. Segir blaðið að hleranir
ónefndra vestrænna stofnana og
ríkja hafi leitt í ljóst að háttsettir
serbneskir embættismenn hafi fyr-
irskipað fjöldamorðin. Þeir hafi
verið reiðir vegna dauða þriggja
serbneskra hermanna í Kosovo og
fyrirskipað stjórnarhermönnum að
„fara af krafti“ inn í Racak og leita
uppi þá sem hefðu drepið her-
mennina.
45 dóu í Racak
Alls voru 45 manns myrt þann
15. janúar sl. í Racak, flest karl-
menn en þó voru tvær konur og
tólf ára gamall drengur á meðal
hinna látnu. Fundust líkin í fjalls-
hlíð skammt frá bænum og voru
með skotsár á höfði er bentu til
þess að fólkið hefði verið tekið af
lífi. I blaðinu segir að þegar
serbneskum stjórnvöldum hafi ver-
ið ljós fjöldi þeirra sem létu lífið í
Racak og hin hörðu viðbrögð á
Vesturlöndum, hafi Nikola Sa-
inovic, aðstoðarforsætisráðherra
Júgóslavíu, sambandsríkis Serbíu
og Svartfjallalands, og Sreten
Lukic, yfirmaður serbneska herafl-
ans í Kosovo, reynt á skipulegan
Skipulögð
leigubíla-
rán í Ósló?
LÍKUR benda nú til að í
tveimur tilvikum vopnaðra
rána á leigubflstjórum í Ósló
síðastliðnar þrjár vikur hafi
sami maður (eða menn) ver-
ið að verki. Aðfaranótt
þriðjudags var 24 ára gamall
leigubflstjóri myrtur undir
stýri á bfl sinum, eftir að
hafa ekið farþega frá Solli-
torgi í Ósló út í Nittedal.
Eftir því sem Dagbladet
segir frá er margt líkt með
þessu morði og morðtilraun
á öðrum leigubflstjóra fyrir
þremur vikum. Þá tók
óþekktur maður leigubfl á
Solli-torgi og lét aka sér út í
Svartaskóg við Oppegárd,
en það er eins og Nittedal
fáfarinn staður utan Óslóar.
Þar nam bflstjórinn staðar
að beiðni farþegans þegar
ljós Benz kom fram úr þeim
og stanzaði fyrir framan
leigubflinn. Farþeginn fór út
og talaði við þijá menn sem
voru í Benzinum. Þá var
skotið íjórum skotum að bfl-
sljóranum, sem tókst með
naumindum að komast und-
an. Bæði í Svartaskógi og
Nittedal var skotið í gegn
um framrúðuna í átt að
höfði bflstjórans. í síðara til-
vikunu varð það bflstjórans
bani.
Ekki er vitað hvernig
Nittedal-morðinginn komst
af vettvangi, en Wiggo Jo-
hansen, forstjóri Oslo Taxi-
leigubflastöðvarinnar, veltir
því fyrir sér hvort morðing-
inn hafi menn í liði með sér,
sem reyni að gera út á leigu-
bflarán. „Þá væri fjandinn
laus,“ hefur Dagbladet eftir
Johansen.
hátt að fela hvað hafi raunverulega
átt sér stað þar.
Tengiliður Vesturvelda
og Milosevics
Lukic hefur yfirumsjón með
hernaðaraðgerðum Serba í Kosovo
og hefur verið viðstaddur flesta
samningafundi Serba og vest-
rænna stjórnvalda. Telja vestræn-
ir stjórnarerindrekar að hann gefi
Slobodan Milosevic, forseta Jú-
góslavíu, skýrslu beint um málefni
Kosovo, og að hann sé helsti
tengiliður stjómvalda í Belgrad og
þeirra sem fara með stjórnina í
Kosovo.
I einu símtala Lukic og Saino-
vic, 15. janúar, spyr sá síðamefndi
hve margir séu látnir í Racak og
veit greinilega að árásin hefur
verið fyrirskipuð. Svarar Lucik
því að 22 Albanar séu fallir. I sam-
tölum þeima næstu daga lýsa báð-
ir áhyggjum vegna hinna hörðu
viðbragða Vesturveldanna og
ræða hvernig sé hægt að bæta
stöðuna. Leggur Sainovic til að
landamærunum að fyrrverandi
júgóslavneska lýðveldinu Maked
óníu verði lokað, svo Louise
Arbour, yfirmaður stríðsglæpa-
dómstóls Sameinuðu þjóðanna,
komist ekki til Racak og rannsaki
morðin.
Þá vill Sainovic að herflokkar
innanríkisráðuneytisins serbneska
nái svæðinu á sitt vald, en það var
eitt af vígjum Frelsishers Kosovo,
KLA, og nái líkunum í sínar hend-
ur. Daginn eftir réðust serbneskar
hersveitir á bæinn, náðu honum á
sitt vald og fluttu líkin til Pristina.
Þá ræddu Sainovic og Lukic
hvort kenna mætti óháðum flokki
vopnaðra manna um morðin en
þeim fyrrnefnda þótti það óráð-
legt. Því ákváðu Serbar að fullyrða
að til átaka hefði komið, þvert á yf-
irlýsingar þorpsbúa og alþjóðlegra
eftirlitsmanna sem komu til Racak
daginn eftir morðin.
Krufningar staðfesta
orð vitna
Finnskir réttarlæknar, sem
rannsakað hafa líkin frá Racak áttu
að ljúka störfum í gær. Mun
skýrsla þeirra liggja fyrir í næstu
viku en í Washington Post var full-
yrt að bráðabirgðaniðurstöður
hennar styddu lýsingar manna sem
komust lifandi úr hildarleiknum.
Þeir segðu að mönnunum hafi verið
skipað að standa á gilbarmi og síð-
an hafi verið hafin skothríð á þá.
Segja vitni að á meðal þeirra sem
stóðu að aftökunum hafi verið lög-
reglumenn á staðnum og óbreyttir
serbneskir borgarar.
GRÍSKUR námsmaður fleygir
bensínsprengju að óeirðalög-
reglu fyrir utan Tækniháskólann
í Aþenu í gær. Kom til nokkurra
átaka milli þúsunda námsmanna
og lögreglu í göngu sem þeir
fyrrnefndu efndu til í því augna-
miði að mótmæla fyrirhuguðum
breytingum stjórnvalda á
menntalöggjöf landsins.
RMtiit tklpUnt HKinmtf
ðiyui I ■lþIA<av(ttvan(l
Cvrópumilin i iagtkrl
HupH tll haftakUr
ÞORRATEITI JAKOBS FRÍMANNS á HÓTEL B0R6 í kvöld kl. 20:00.
Sökkat ásamt rafmagnaðri hljómsveit, Þóra Einarsdöttir öperusöngkona, Björn
Jðnsson öperusöngvari og píanóleikarinn Claudio Ricei. Grettir Björnsson
harmonikkuleikari, skáldmæringar, mætir lýðsöngvarar og vandaðir skemmtikraftar.
Veislustjöri: Ásgrímur Sverrisson leikstjöri.
Miðasala á Hótel Borg, sími 551 1247 og á kosningastöð Jakobs Frímanns,
Templarasundi 3, sími 562 6825. Miðaverð kr. 2.500.
r*jal<oI>.co*i«