Morgunblaðið - 29.01.1999, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1999 27
ERLENT
Fjársvikamál Kurts Thorsens teygir anga sína víða í Danmörku
Lögfræðingar deila
um hver eigi sökina
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
„ÉG ER ekki viss um að öll kurl séu
komin til grafar,“ sagði Svend As-
ger, nýr stjórnarformaður í PFA líf-
eyrissjóðnum, en sjóðurinn vai-
notaður í fjársvikamáli er snýst um
að minnsta kosti 200 milljarða ís-
lenskra króna. Vii'tir lögfræðingar
og aðrir, sem flækst hafa í svika-
myllu hins hugmyndaríka umsvifa-
manns Kurt Thorsens reyna nú að
koma sökinni hver á annan, meðan
milljónakröfur frá bönkum og öðr-
um, sem alíta sig hlunnfarna,
streyma inn. Nú er einnig komið í
ljós að lögfræðingur á stofu, sem
Thorsen skipti við, rauf trúnað sinn
og kom grun sínum um misferli á
framfæri við kauphöllina. Sú stofa á
nú yfir höfði sér málsókn frá tveimur
bönkum vegna málsins. Það sem
vekur undrun er að virðulegar lög-
fræðistofur og frammámenn í
dönsku viðskiptalífí skuli svo
auðveldlega hafa gengið til samstarf
við Thorsen, sem átti þegar að baki
ski-autlegan feril í dönsku fjármála-
lífí. Tvö fyrirtæki hans eru nú í
greiðslustöðvun, en rætur þeirra eru
á Jómfrúareyjum. Dönsk blöð bii-ta
daglega nýjar hliðar málsins, sem
enn bera þó keim af getgátum.
Hinn nýi stjórnarformaður PFA
undirstrikaði í gær að sjóðurinn gæti
ekki ábyrgst að allar falskar lána-
tryggingar í nafni sjóðsins væru
komnar í ljós. Nafn sjóðsins hefði
verið notað án vitundar stjórnarinn-
ar, en það var gert af Rasmus Trads,
varaforstjóra sjóðsins, sem nú situr í
gæsluvarðhaldi vegna málsins.
Dönsku síðdegisblöðin hafa gert því
skóna að þessi 53 ára lögfræðingur
og fjölskyldufaðir hafi reynt að fyrir-
fara sér í fangelsinu.
Lögfræðingur kom upp um
svikamylluna
Vangaveltur hafa verið uppi um
hvernig svikamylla Thorsens hafí
komist upp. I vikunni tilkynnti
Jörgen Plesner, lögfræðingur hjá
Plesner & Gronborg, að hann hefði
sagt nágranna sínum, fi’amkvæmda-
stjóra kauphallarinnar, að Thorsen
hefði logið til um fjármögnun hluta-
fjárkaupa í tveimur dönskum fjár-
festingarsjóðum. Thorsen segði féð
koma frá öðrum löndum, en í raun
kæmi það frá PFA, sem Plesner áleit
að hefði ekki heimild til að gefa
tryggingu eins og Thorsen hefði
fengið. Upp úr því fór boltinn að
rúlla og bæði Thorsen og Trads sitja
nú í gæsluvarðhaldi.
Jorgen Molvang, sem hætti sem
stjórnarformaður PFA, ásakai' nú
Poul Schluter fyrir að hafa leynt því
að hafa vitað af svindlinu, en því
hafnar Schluter eindregið. Mölvang
ásakar einnig annan mektarlög-
fræðing, Robert Koch-Nielsen, fyrir
að hafa haldið verndarhendi yfír
Thorsen, en Koch- Nielsen vann á
áðurnefndri stofu. I síðustu viku
sagðist hann undrandi yfir ásökun-
um á hendur Thorsen, sem hann áliti
dugandi og hæfan mann.
Robert Koch-Nielsen er einn
helsti skattasérfræðingur Dana.
Þessi miðaldra, stutti og feitlagni
lögfræðingur hefur bæði verið snjall
að finna smugur í skattalöggjöfinni
til að koma fé undan skatti, en auk
þess verið ráðgjafi stjórnarinnar á
því sviði. Koch-Nielsen vann með
Thorsen og dönsk blöð leiða að því
getum að hugmyndin hafi verið að
spila á nýtt gat í skattalöggjöfinni.
A hans vegum fullvissaði hann
LGT bankann í Liechtenstein og
Sparbank Vest um að trygging PFA
væri góð og gild. Sparbanken lánaði
55 milljónir danski-a króna út á
þessa pappíra og LGT var tilbúinn
að lána honum 1,75 milljarða
danskra króna. Koch Nielsen hefur
sagt sig úr lögfræðistofunni vegna
málsins, LGT stefnt stofunni vegna
málsins og Sparbank Vest áskilið sér
rétt til hins sama. Forsvarsmenn
lögfræðistofunnar hafna kröfunum,
þar sem bankarnir hafí haft eigin
lögfræðinga í málinu, en þeir ekki
séð neitt athugavert við pappírana.
Fleii-i lögfræðingar eru í klemmu
vegna málsins, meðal annars lög-
fræðingai-, sem hafa séð um fyrir-
tæki Thorsens á Jómfrúareyjum.
Menn velta nú fyrir sér hversu
mikla peninga Thorsen hafi komist
yfir og eru ýmsar tölur nefndar. Auk
áðurnefndra upphæða er Thorsen að
byggja 5.500 íbúðir á Benidorm á
Spáni. Banki þar hefur lánað honum
850 milljónh- danskra króna, en af
því hefur hann fengið út um 185
milljónir. Allt bendh- til að sagan um
Thorsen eigi efth- að verða fram-
haldssaga í dönskum fjölmiðlum
langa hríð enn.
Höldum
bílatryggingum
lágum!
StyÖjum baráttu FÍB
Skráning í síma
562 9999
...á tandurhreinu
tilboðs
TTT
I
PHIUCOW
Philco þvottavél
49.900 kr.
4- 1247 frípunktar
Verð áður 69.900 kr.
Tekur 5 kg af þvotti. 1200 snúninga vinda.
Ryðfrítt stál í ytri og innri belg.
Philco þvottavél
og þurrkari
59.900 kr.
+ 1497 frípunktar
Tekur 5 kg í þvott og 2,5 kg í þurrkun.
1000 snúninga vinda. Ryðfrítt stál
í ytri og innri belg.
Philco þurrkari
29.900 kr.
+ 748 frípunktar
MUNIÐ FRIKORTIÐ
fSliÍSlÉll
HAGKAUP
Meira úrval - betri kaup