Morgunblaðið - 29.01.1999, Page 28
28 FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1999
ERLENT
MORGUNB LAÐIÐ
Clinton vinnur hálfan sigur í réttarhaldi öldungadeildarinnar
„Forsetinn verður ekki
sviptur embættinu“
OLDUNGADEILD Banda-
ríkjaþings hafnaði í fyrra-
dag tillögu um að ákærun-
um á hendur Bill Clinton
forseta yrði vísað frá og samþykkti
síðan að stefna þremur vitnum, m.a.
Monicu Lewinsky, td að bera vitni
fyrir luktum dyrum. í báðum tilvik-
um féllu atkvæðin nær algjörlega
eftir flokkslínum, eða 56 gegn 44, og
aðeins einn demókrati, Russ Fein-
gold, þingmaður frá Wisconsin,
snerist á sveif með repúblikönum.
Feingold tók þó fram að með
þessu hefði hann ekki gefið til kynna
að hann myndi greiða atkvæði með
því að Clinton yrði sviptur embætt-
inu þegar réttarhaldinu lýkur. Hann
hefði ekki tekið ákvörðun um það og
aðeins viljað tryggja að saksóknarar
fulltrúadeildarinnar fengju tækifæri
til að sanna mál sitt.
Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar
um frávísunartillöguna er verulegur
sigur fyrir forsetann að einu leyti.
Hún bendir til þess að 44 demókrat-
ar séu staðráðnir í að greiða atkvæði
gegn því að Clinton verði vikið úr
embættinu hvað sem vitnin kunni að
segja í eiðsvömum vitnisburði sín-
um. Tveir þriðju þingmanna öld-
ungadeildarinnar, eða 67, þurfa að
samþykkja sakfellingu og embættis-
sviptingu, þannig að Clinton þarf að-
eins 34 atkvæði til að halda embætt-
inu. Jafnvel hörðustu andstæðingar
forsetans meðal repúblikana telja
nánast útilokað að tólf þingmenn
demókrata snúist gegn honum og
samþykki að honum verði vikið úr
embættinu.
Demóki’atar lýstu því yfir að at-
kvæðagreiðslan í fyrradag sýndi svo
ekki yrði um villst að niðurstaða rétt-
arhaldsins lægi nú þegar fyrir og
hvöttu til þess að endi yrði bundinn á
það þegar í stað. „Forsetinn verður
ekki sviptur embættinu," sagði Tom
Daschle, leiðtogi demókrata.
Repúblikanar sögðu hins vegar að
það væri skylda þingsins að halda
réttarhaldinu áfram.
Óvissa um hvenær
vitnin verða yfirheyrð
Forystumenn repúblikana og
demókrata reyndu í gær að ná sam-
komulagi um réttarhaldinu yrði lok-
ið fyrii- 12. febrúar, afmælisdag
Abrahams Lincolns, þegar hlé vei’ð-
ur gert á störfum þingsins.
Trent Lott, leiðtogi repúblikana í
öldungadeildinni, kvaðst vongóður
um að það tækist. Stefnt væri að því
að saksóknararnir og lögmenn
Clintons yfirheyrðu Lewinsky og
hin vitnin tvö fyrir luktum dyi-um í
I3ICMIE GA
Fólínsýra
Takist fyrir þungun
og á meðgöngu.
Fæst í næsta apóteki.
Þótt Bill Clinton hafi ekki náð því fram
sem hann vildi í atkvæðagreiðslum öld-
ungadeildar Bandaríkjaþings í fyrradag er
niðurstaða þeirra sigur fyrir forsetann að
því leyti að hún sýnir að ekki er nægur
stuðningur fyrir því að að hann verði
sviptur embættinu.
Vernon Monica Sidney
Jordan Lewinsky Blumenthal
Reuters
BILL Ciinton horfir til konu sinnar Hillary en þau vox’u í gær viðstödd
minningarathöfn um Lawton Chiles, fyrrverandi öldungadeildarþing-
mann, sem lést í desember.
Washington á sunnudag og mánu-
dag. CNN-sjónvarpið sagði hins
vegar að ekki væri víst að það væri
hægt þar sem eitt vitnanna, Vernon
Jordan, lögfræðingur og gamall vin-
ur Clintons, væri ekki í Washington,
auk þess sem aðallögfræðingur
þriðja vitnisins, Sidneys Blument-
hals, aðstoðarmanns forsetans,
þyrfti að verja annan skjólstæðing
sinn í réttarhöldum sem eru að hefj-
ast í Baltimore.
Talsmenn Jordans sögðu að hann
væri væntanlegur til borgarinnar á
næstu dögum en heimildarmaður
CNN í stai-fsliði hans sagði að hann
kynni að óska eftir því að fá meiri
tíma til að undirbúa vitnisburðinn.
Gei-t er ráð fyrir að vitnisburður
þremenninganna verði tekinn upp á
myndband og að allir þingmennirnir
fái upptökurnar og aftit af vitnis-
burðinum áður en þeir greiða at-
kvæði um hvort kalla eigi vitnin fyr-
ir öldungadeildina sjálfa. Stefnt er
að því að sú atkvæðagi-eiðsla verði í
næstu viku. Öldungadeildin þarf þá
einnig að ákveða hversu mikið svig-
rúm lögfræðingar Clintons fái til að
kalla fleiri vitni fyrir öldungadeild-
ina.
Minni áhersla á
meinsærisákænma
Þegar réttarhaldið í máli Clintons
hófst fyrir þrem vikum höfðu sak-
sóknarar fulltrúadeildarinnar gert
ráð fyrir því að allt að fimmtán vitn-
um yrði stefnt. Margir þingmenn
repúblikana í öldungadeildinni vildu
hins vegar að vitnin yrðu eins fá og
mögulegt væri og saksóknararnir
féllust á að fækka vitnunum, fyi-st í
fimm og síðan þrjú.
Saksóknaramir sögðust í fyxra-
dag hafa valið þau þrjú vitni sem
væru líklegust til að renna stoðum
undir ákæruna um að forsetinn
hefði lagt stein í götu réttvísinnar til
að leyna sambandi sínu við við Mon-
icu Lewinsky. Þegar réttai’haldið
hófst vonx þeir hins vegar sannfærð-
ir um að líklegra væri að Clinton
yrði sakfelldur fyrir hina ákæi’una,
þ.e. fyrir að hafa framið meinsæi'i
þegar hann neitaði því eiðsvarinn að
hafa átt í kynferðislegu sambandi
viðLewinsky.
Ástæðan fyrir þessari áherslu-
bi'eytingu er sú að margir þingmenn
öldungadeildainnnar telja nú að
meinsærisákæran tengist um of
kynlífi og skilgreiningu forsetans á
því hvað teljist kynferðislegt sam-
band. Mun Iíklegra sé nú að Clinton
verði sakfelldui' fyrir að leggja stein
í götu réttvísinnar.
Sú ákæra snýst einkum um það
hvort Clinton hafi hvatt Lewinsky
til að bera ljúgvitni og leyna gjöfum
sem hann gaf henni. Forsetinn hefur
einnig verið sakaður um að hafa
beðið Jordan að útvega Lewinsky
starf til að tryggja að hún þegði um
sambandið og að hafa logið að að-
stoðarmönnum sínum, m.a. Blu-
menthal, til að hafa áhrif á vitnis-
bui'ð þeirra.
Lögfræðingar Clintons hafa sagt
að þeii' áskilji sér rétt til að stefna
eigin vitnum og leggja fi'am ný skjöl
fyrir öldungadeildina til að verja
forsetann og það gæti tafið réttar-
haldið í marga mánuði. Joe Lock-
hai-t, fjölmiðlafulltrúi forsetans,
sagði að aðstoðarmenn hans ættu
einnig að fá tækifæi-i til að lesa
56.000 síðna málsskjöl, sem fulltrúa-
deildin safnaði saman þegar hún
x-annsakaði ásakanii'nar á hendur
forsetanum. Þessi skjöl ei-u enn
leynileg.
Þótt verjendur Clintons hafi hót-
að að tefja réttarhaldið getur öld-
ungadeildin knúið fram ákveðin
tímamöi-k. Auk þess hafa mai'gir
repúblikanar sagt að þessi hótun
vei'jendanna sé ekkert annað en
blekking, því ekki sé vitað um nein
vitni sem geti sannað sakleysi for-
setans, þannig að ólíklegt sé að lög-
fi-æðingar hans kalli fleii-i vitni fyrir
öldungadeildina.
Einn aðstoðarmanna Clintons
sagði í gær að of snemmt væri að
fullyrða nokkuð um hvox-t vei'jend-
urnir myndu krefjast eigin vitna og
að þeir héldu öllum möguleikum
opnum. Hann viðui'kenndi ennfrem-
ur að meginmarkmið verjendanna
væri enn að réttai'haldið yrði leitt til
lykta sem fyrst.
Fréttastofan AP hafði einnig eftir
í-áðgjafa Clintons að vei'jendur hans
hefðu rætt við Daschle í gær um
möguleikann á að því að þeir
stefndu ekki eigin vitnum. Þeir
hefðu sagt að það kæmi til greina ef
engar nýjar upplýsingar kæmu fram
í vitnisbui'ði þremenninganna. Þeir
hefðu einnig krafist þess að öld-
ungadeildin hafnaði því að vitnin
þrjú yrðu kölluð fyrir öldungadeild-
ina og lagst gegn þeixri hugmynd
repúblikana að forsetinn yrði sak-
felldur en ekki sviptur embættinu.
Sakfelling án
embættissviptingar?
Nú þegar flest bendir til þess að
Clinton verði ekki vikið úr embætti
leggja margir þingmenn í báðum
flokkunum kapp á að finna mála-
miðlunarlausn sem tryggir að for-
setinn sleppi ekki alveg við refsingu.
Þeir eru sammála um að þingið
verði að fordæma framferði Clintons
en þá gi-einir á um með hvaða hætti
það verði gert.
Demókratar unnu í gær að álykt-
unardrögum þar sem kynferðislegt
samband Clintons við Lewinsky er
fordæmt en forsetinn ekki fundinn
sekur um lögbrot sem réttlæta emb-
ættissviptingu. Repúblikanar ræddu
hins vegar tillögur um að réttar-
haldinu lyki með tveimur atkvæða-
greiðslum, annars vegar um hvort
Clinton hefði gerst sekur um mein-
særi og tilraun til að hindra fram-
gang réttvísinnar og hins vegar um
embættissviptingu.
Daschle sagði að demókratar
væru „mjög andvígir" þessari hug-
mynd. Forystumenn flokksins óttast
að hún geti orðið til þess að nokkrir
demókratar snúist á sveif með
repúblikönum og greiði atkvæði með
sakfellingu, vitandi að það leiði ekki
sjálfkrafa til embættissviptingar.
Repúblikanar hafa hins vegar sagt
að það geti einnig orðið til að margir
repúblikanar greiði atkvæði gegn því
að Clinton verði sviptur embættinu.
Margir bandarískir lögspekingar
telja að sakfelling án embættissvipt-
ingar samræmist ekki stjórnarskrá
Bandaríkjanna. „Refsiákvæði sak-
fellingar er embættissvipting," hef-
ur The Washington Post eftir John
C. Jeffries lagaprófessor við Virgin-
íu-háskóia. „Það er skýlaus krafa
stjórnarskrárinnar.“
Flugskeyt-
um skotið
á Irak
BANDARÍSKAR herþotur
skutu í gær þremur flugskeyt-
um að flugskeyta- og loftvarn-
arbyssuhreiðri á flugbanns-
svæðinu yfir Norður-írak, að
sögn talsmanna bandaríska
vamarmálaráðuneytisins. Héldu
þeir því fram að skotið hefði
verið í sjálfsvörn en Irakar
munu hafa fest herþoturnar í
skotmiði sínu.
Snéru allar þotumar til bæki-
stöðva sinna í Incirlik í Tyrk-
landi heilu og höldnu en ekki var
ljóst hversu mikill skaði hafði
orðið á jörðu niðri, eða hvort
nokkrir Irakar hefðu fallið.
MD-11 vélar
í rannsókn
BANDARÍSK stjórnvöld fyrir-
skipuðu í gæi' rannsókn á öllum
MD-U flugvélum sem skráðai-
eru í Bandaríkjunum en áhyggj-
ur hafa vaknað um raf-
magnstengingar í fiugklefa MD-
11 vélanna í kjölfar Swissah'-
flugslyssins undan ströndum
Kanada í fyrra þegar 229 manns
fórast. Orsakh’ slyssins era enn
óþekktar en rannsókn leiddi í
ijós að ekki var allt með felldu í
rafmagnstengjum milli flugklefa
og farþegarýmis.
Mandelson
selur hús
PETER Mandelson, fyrrver-
andi iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra Bretlands, lagði í gær
grunninn að því að snúa aftur í
eldlínu stjórnmálanna þegar
hann tilkynnti að hann hygðist
selja húsið sem olli því að hann
glataði ráðhemastólnum. Hafði
Mandelson fengið stórfé að láni
frá milijónamæringnum Geof-
frey Robinson, sem þá var að-
stoðarráðherra í fjármálaráðu-
neytinu, en Robinson var til
rannsóknar í viðskiptaráðuneyti
Mandelsons. Hyggst Mandelson
selja húsið til að endurgreiða
Robinson lánið.
írar til liðs við
NATO-áætlun
BERTIE Ahern, forsætisráð-
herra írlands, sagði í gær að
írsk stjórnvöld stefndu að því að
taka þátt í Samstarfi til friðar,
samstarfsáætlun sem Atlants-
hafsbandalagið (NATO) rekur,
strax á þessu ári. Háværar
gagnrýnisraddir hafa heyrst á
Irlandi gegn aðild að þessu
samstarfi en því er haldið fram
að það muni kippa fótunum
undan hlutleysisstefnu Ira.
Hótun í garð
Ukraínu
milduð
EVRÓPURÁÐIÐ mildaði í gær
afstöðu sína til úkraínskra
stjórnvalda en þeim hafði verið
hótað brottvikningu úr ráðinu
stæðu þau ekki að fullu við
skuldbindingar sínar hvað varð-
ar lýðræðisþróun og mannrétt-
indi. Sögðu talsmenn Evrópu-
ráðsins í gær að Úkraínu yrði
einungis vikið úr ráðinu kæmi í
ljós að hún hefði ekki tekið
skref í lýðræðisátt. Hefur Úkra-
ína m.a. verið gagnrýnd fyrir að
lög um dauðarefsingar skuli enn
vera í gildi þar í landi.