Morgunblaðið - 29.01.1999, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1999 61
Ráðstefna
um félags-
starf
FFA - fræðsla fyrir fatlaða og að-
standendur stendur fyrir ráðstefnu
um félagsstarf, tómstundir og fé-
lagslega liðveislu fatlaðra ung-
menna. Ráðstefnan verður haldin í
Menningarmiðstöðinni Gerðubergi,
laugardaginn 30. janúar og stendur
frá kl. 9-15. FFA eiga Landssam-
tökin Proskahjálp, Sjálfsbjörg,
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra
og Styrktarfélag vangefínna.
Meðal erinda sem flutt verða eru:
Félagsleg liðveisla hjá Reykjavíkur-
borg, Árni Stefán Ragnarsson, Soff-
ía Pálsdóttir kynnir stefnu og starf-
semi ÍTR í félagsstarfí fatlaðra.
Kynnt verður unglingastarf Sjálfs-
bjargar. Þá verða Umræðuhópar
Ataks - félags þroskaheftra kynntir
og Anna Karólína Vilhjálmsdóttir
segir frá íþróttastarfi fatlaðra.
Helgi Hróðmarsson segir frá starfi
nefndar sem fjallar um menningu
og félagsstarf fatlaðra. Pallborðum-
ræður verða að loknum erindum.
Ráðstefna þessi er sérstaklega
hugsuð fyrir ungt fatlað fólk, að-
standendur þeirra og annað áhuga-
fólk um þennan málaflokk. Þátt-
tökugjald er 1.000 kr. og skráning
er á skrifsotfu Landssamtakanna
Þroskahjálpar.
Árleg Edin-
borgarsam-
koma
I MEIRA en tvo áratugi hefur um
þetta leyti árs verið haldin
skemmtisamkoma á vegum Edin-
borgarfélagsins á Islandi til þess að
minnast fæðingardags Roberts
Burns, þess ástsæla skoska skálds
Skota. Samkoman er nefnd Burns
Supper, þ. e. Kvöldverður Burns,
sem hefð er fyrir í Skotlandi, þar
sem fólk kemur saman til þess að
snæða haggis, sem er einn helsti
þjóðan-éttur Skota.
Samkoman í ár verður haldin á
morgun, laugardaginn 30. janúar, í
sal Veisluþjónustunnar „Dúndurs",
Dugguvogi 12 í Reykjavík. Haggis
beint frá Edinborg verður borinn
fram við hátíðlega athöfn með
sekkjapíputónlist. Haggisinn verður
vígður á hefðbundinn hátt með
hnífsstungu skota í skotapilsi undir
lestri hans á kvæði Burns „Address
to a haggis“.
Veislustjóri verður Fríður Egg-
ertsdóttir, ljósmyndari, minni
Burns flytur Sigríður Jóhannes-
dóttir, veflistakona, ræðumaður
kvöldsins verður Örnólfur Thorlaci-
us, fyrrverandi rektor, og Stuðgæj-
ar leika fyrir dansi.
Fagnaðurinn hefst kl. 20 og
stendur til kl. 2 eftir miðnætti. Að-
gangseyrir er kr. 3.000.
Málþing um söfn
og sýningar á
nýrri öld
FELAG íslenskra safnmanna
stendur fyrir málþingi laugardaginn
30. janúar í Kornhúsinu í Árbæjar-
safni milli klukkan 13.30 og 16.30.
Á þinginu verður velt upp spurn-
ingum er varða söfn við upphaf
nýrrar aldar. Málþingið hefst á því
að formaður Félags íslenskra safn-
manna setur fundinn og formaður
Þjóðminjaráðs flytur ávarp.
Erindi flytja: Guðmundur Magn-
ússon, forstöðumaður Safnahússins
við Hverfisgötu, Guðrún Kristins-
dótth’, safnstjóri Minjasafnsins á
Akureyi-ij Helgi M. Sigurðsson, safn-
vörður, Árbæjarsafni, Hannes Sig-
urðsson, forstjóri art.is og fulltrúi
frá Þjóðminjasafni Islands. Að því
loknu verða almennar umræður. Áll-
ir velkomnir og aðgangur er ókeypis.
FRÉTTIR
Námskeið um
hryggikt og
bakvernd
NÁMSKEIÐ verða haldin á Gigtar-
miðstöðinni 3. 10. og 17. febrúar og
fræðslufundur 4. febrúar um
hi-yggikt og bakvemd.
Gigtarfélag Islands er að fara af
stað með slökunarnámskeið sem
verður þrjá miðvikudaga, 3. 10. og
17. febniar, frá kl. 20-22. Áhersla
verður lögð á að fínna muninn á
spennu og slökun og farið verður í
gegnum mismunandi slökunarað-
ferðir. Ragnheiður Yr Grétarsdótt-
ir, sjúkraþjálfari, leiðbeinir á nám-
skeiðinu. Skráning á námskeiðið er
á skrifstofu Gigtarfélags íslands,
Ármúla 5.
Gigtarfélag íslands boðar til
fundar um hryggikt og bakvernd á
Grand Hóteli Reykjavík, salur Gall-
erí, Sigtúni 38, fímmtudaginn 4.
febrúar kl. 20. Árni Jón Geirsson,
gigtarsérfræðingur, verður með er-
indi um hryggikt og Ragnheiður Ýr
Grétarsdóttir, sjúkraþjálfari, verð-
ur með erindi um bakvernd.
Heldur þú að |
C-vítamm sé nóg ? a
NATEN 1
_______- er nóg l_>
ynömbl.ÍS
-ALLTAf= e/THTH\SA£? NÝTT
Barátta FÍB hefur
sparað ísiendingum
milijarða kréna
í tryggingaiðgjöldum
Höidum vöku okkar
Skráning í síma
562 9999
;ortsins
Dregið var íTengileiknum þann 20. janúar. Þátttakan
í leiknum var frábær eins og við mátti búast enda er
ávinningurinn af því að nota Safnkort eða greiðslukort
tengd því umtalsverður.
Vinningshafar:
Ferðavinningur frá Samvinnuferðum-Landsýn að verðmæfi 100.000 kr.
Björn Auðunn Magnússon, Vesturbergi 140,111 Reykjavík
Daewoo reiðhjól frá Fálkanum að verðmæti 30.650 kr.
Ásmundur Bjarnason, Uppsalavegi 20, 640 Húsavík
Halldór Valdemarsson, Seiðakvísl 31,110 Reykjavík
Richard Ásgrímsson, Álfatúni 25, 200 Kópavogur
Auður Júlfusdóttir, Dalhúsum 101,112 Reykjavík
Jóhann Sigurður Ólafsson, Fögrukinn 18, 220 Hafnarfjörður
Bensín- eða olíuúttekt hjá ESS0 fyrir 25.000 kr.
Anna S. Karlsdóttir, Suðurgötu 62,220 Hafnarfjörður
Kristin Georgsdóttir, lllugagötu 73, 900 Vestmannaeyjar
Einar Magnússon, Þrastarima 22,800 Selfoss
Skúli Guðmundsson, Brekkuseli 5,109 Reykjavík
Rebekka Jóhanna Pálsdóttir, Hafraholti 6,400 ísafjörður
Bensín- eða olíuúttekt hjá ESS0 fyrir fyrir 3.000 kr.
Árni Snæbjörnsson, Heiðargerði 2,108 Reykjavík
Baldvin Einar Skúlason, Bollasmára 5, 200 Kópavogur
Guðrún K. S. Thorstensen, Heiðarlundi 6, 210 Garðabær
Marta Sigurgeirsdóttir, Reyðarkvísl 10,110 Reykjavík
Gunnar Jón Árnason, Bæjargili 111,210 Garðabær
Einar Sigurgeir Helgason, Sveinskoti, 225 Bessastaðahreppur
Kristbjörg Hallsdóttir, Holtsgötu 28, 260 Njarðvík
Stefanía Þorgrímsdóttir, Sundlaugavegi 8,105 Reykjavík
Jóhanna Kristín Steinsdóttir, Hrísrima 21,112 Reykjavík
Við óskum hinum heppnu til hamingju með vinningana
og hvetjum þá sem ekki hafa fengið sér Safnkort eða tengt það
að gera það sem fyrst. Ávinningurinn er bæði sparnaður
AUK k15d23-1227 sia.is