Morgunblaðið - 29.01.1999, Page 68
MORGUNBLAÐIÐ
:§8 FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1999
FÓLK í FRÉTTUM
KVIKMYNDIR/REGNBOGINN, Sambíóin Álfabakka og Borgarbíó Akureyri hafa tekið til
sýningar spennumyndina The Siege, Umsátrið, með Denzel Washington, Annette Bening
og Bruce Willis í aðalhlutverkum.
New York hernumin
ANNETTE Benning leikur CIA-njósnara með leynileg sambönd við
hryðjuverkamenn.
BRUCE Willis leikur hershöfðingjann, sem fær það verkefni að
framfylgja herlögum á götum New York.
Frumsýning
Alríkislögreglumað
UR, njósnari fyrir CIA og
hershöfðingi í Bandaríkja-
her vinna öll sama embættiseiðinn,
þann að styðja og verja stjórnar-
' skrá Bandaríkjanna. Þegar strætis-
vagn er sprengdur í loft upp í
Brooklyn ríður hryðjuverkaalda yf-
ir stórborgina og þá fær þessi eiður
nýja merkingu í augum löggæslu-
fólksins.
Anthony Hubbard (Denzel Was-
hington) er yfirmaður lögi-eglu-
sveitar sem berst gegn hryðjuverk-
um og hann fær það verkefni að
tryggja öryggi borgaranna gegn
þeirri hryðjuverkaógnun, sem
stöðugt virðist færast í aukana.
Hann þarf að leita samstarfs við
Elise Kraft (Annette Bening), sem
vinnur leynileg verkefni fyrri CIA,
og hefur mikilvæg tengsl inn í sam-
félag Bandaríkjamanna af arabísk-
' um uppnma en þar er talið að hina
grunuðu hryðjuverkamenn sé að
finna.
En ástandið í New York þykir al-
varlegra en svo að lögreglunni sé
einni treyst til að leysa vandann.
Forseti Bandaríkjanna kallar út
herinn og felur William Devereaux,
hershöfðingja (Bruce Willis) að
halda uppi lögum og reglu. Hers-
höfðingjanum er ekki vel við það en
hann tekur að sér að framfylgja
herlögum á strætum borgarinnar
>án þess að spyrjast fyi’ir um rétt-
mæti þeirrar aðgerðar.
A hermanninn, lögreglumanninn
og njósnarann leita spumingar um
það hve langt megi ganga í því að
skerða réttindi borgaranna í því
skyni að tryggja öryggi í samfélag-
inu.
Leikstjóri myndarinnar er Ed
Zwick. „Ég hafði ekki áhuga á að
gera enn eina myndina um hryðju-
verk,“ segir hann. „Umsátrið er
ekki um hryðjuverk heldur um okk-
ur Bandaríkjamenn, hver við erum
og hvaða hlutskipti við veljum okk-
ur. Myndin spyr áleitinna spurn-
inga á borð við: hvemig bregðumst
við við árás innanfrá og hver erum
við þegar til á að taka? Auðvitað
skiptir samt máli að myndin
skemmti fólki og ég vona að það
hafi tekist.“
Zwick er gamall vinur Denzels
Washingtons og stýrði honum í ósk-
arsverðlaunahlutverkinu í Glory og
svo aftur í myndinni Courage under
Fire. Þeir vinna nú saman í þriðja
skipti. „Því oftar sem ég vinn með
Denzel, því meira dáist ég að hon-
um,“ segir leikstjórinn.
Denzel, ein skærasta kvikmynda-
stjarna Bandaríkjanna um þessar
mundir, segir að auk þess að vinna
með Zwick, vini sínum, hafi hann
laðast að myndinni vegna þess að
hún sé hasarmynd með boðskap.
„Myndin skoðar hvernig FBI og
CIA starfa og sýnir fram á það að
stofnanirnar vinna ekki endilega að
sameiginlegu markmiði. Hún fjallar
líka um þjóðfélagið; hve langt vilj-
um við ganga til að vernda stjórnar-
skrárákvæði og mannréttindalög-
gjöfina þegar við stöndum kannski
frammi fyrir því að hryðjuverka-
menn nota þessi ákvæði í stríði við
okkur.“
Denzel gekk í skóla til alríkislög-
NEW York hernumin.
DENZEL Wasliington fer með
hlutverk lögregluforingjans,
sem ber ábyrgð á rannsókn
hryðjuverkanna.
reglumanna og erindreka CIA til að
kynnast heimi þeirra og því álagi
sem þeir starfa undir.
Annette Bening, úr Mars
Attacks! og American president,
sem leikur CIA-njósnarann Elise
Kraft, leitaði einnig heimilda hjá
löggæslustofnunum. „Það heillaði
mig að leika CIA-foringja,“ segir
hún. „Mér fannst frábært að leika
konu, sem á við mikil vandamál að
stríða og býr yfir leyndarmálum.
Það var áskorun að koma til skila
hennar innra stríði og þeirri sið-
ferðilegu stöðu, sem fólk í hennar
starfi lendir gjarnan í.“
Hlutverk hershöfðingjans, sem er
aukahlutverk í myndinni, tók stór-
stjarnan Bruce Willis að sér.
í faðmi
s
Isfirðinga
ÞJÓÐSÖNGUR ísfirðinga
hljómaði svo undir tók í Sólar-
kaffí Isfirðingafélagsins á
Broadway síðastliðið föstu-
dagskvöld og ekki síður lagið I
faðmi blárra fjalla. Magnús Jó-
hannesson sló á létta strengi í
hátíðarræðu og ekki síður
söngelski þingmaðurinn Árni
Johnsen.
Á meðal annarra sem komu
fram voru Ómar Ragnarsson,
Púkabandið, Rúnar Þór og
Bergþór Pálsson. Að loknu
borðhaldi lék Hljómsveit Stef-
áns P. fyrir dansi fram á rauða
nótt.
BERGÞÓR Pálsson skemmti
Isfírðingum.
káfttírkj) freyðivítamín
Þegar gæðin skipta öllu máli
Kynning í Ingólfsapóteki um helgina
INGÓLFS
APÓTEK
GÆÐIÍ
HVERJUM
DROPA
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
JÓNA Magnúsdóttir og Árni Sigurðsson gæddu sér á pönnukökunum.
SAMÚEL J. Samúelsson var veislustjóri og tekur hér undir söng
systranna frá Bjargi og Árna Johnsen sem stendur á sviðinu.
Stutt
Hjónin
þekkjast
varla
►NÝGIFT hjón sem höfðu gift sig
eftir blint stefnumót báðu um frið
fyrir ijölmiðlum þegar þau lögðu
af stað í brúðkaupsferðina til
Karíbahafsins, en hjónin höfðu
verið hundelt af fjölmiðlum frá
því vígslan fór fram.
Parið var valið úr 200 þátttak-
endum sem tóku þátt í keppni á
vegum útvarpsstöðvar í Birming-
ham. Var skilyrði þátttöku vilji til
að ganga í hjónaband án þess að
hafa séð makann. Fyrirsætan
Carla Germaine og sölumaðurinn
Greg Cordell létu slag standa og
giftu sig, en verðlaunin voru
brúðkaupsferð, bíll og afnot af
íbúð í eitt ár.
Fulltrúar kirkjunnar í Bret-
landi fordæmdu „fjölmiðlabrúð-
kaupið" en breskir útvarpshlust-
endur höfðu mestan áhuga á að
vita hvort hjónin hefðu sofið sam-
an á brúðkaupsnóttina. Þeirri for-
vitni var svalað þegar parið lagði
af stað í brúðkaupsferðina, en
talsmaður útvarpsstöðvarinnar,
Mike Owen, sagði parið enn ekki
hafa sængað saman og ástæðan
væri sú að þau þyrftu meiri tíma
til að kynnast. Hins vegar fullyrti
hann að hjónin væru augljóslega
hrifin hvort af öðru.
Bretar fá ekki
Viagrene
►FRAMLEIÐENDUR getuleysis-
lyfsins Viagi’a hafa stöðvað mark-
aðssetningu nýs getuleysislyfs í
Bretlandi, diykkjarins Viagi-ene.
Dómarinn Jonathan Parker kvað
upp úrskurð þess efnis að Eurof-
ood-Link, sem framleiðir Viagrene,
yrði að hætta við sölu drykkjarins á
þeirri forsendu að auglýsingar og
kynning séu of líkar auglýsingum
Pfizer Inc., sem framleiðir Viagra.
Á flösku lyfsins er miði sem svipar
mikið til bláu getuleysispillunnar
Viagra og sum auglýsingaslagorð
fyrirtækisins þykja enduróma aug-
lýsingar Viagra-töflunnar.
Lögfræðingur Eurofood-Link,
Adrian Speck, gagnrýndi stjórnend-
ur Pfizer fyrir pafsakanlega seinkun
málsins sem fór fyrir rétt aðeins
viku áður en sala diykkjarins skyldi
hefjast.
Ögrandi klæðn-
aður lögreglu
►LÖGREGLUÞJÓNN í Flórída,
sem sagt hafði verið upp störfum
vegna þess að hann klæddist bol,
sem á stóð „Brjóstagildra", á
námskeiði gegn kynferðislegri
áreitni, fékk vinnu sína aftur eftir
að hann liafði kært uppsögnina.
Eftir að borgin Fort Lauder-
dale hafði þurft að bera kostnað
vegna máiaferla út af kynferðis-
legri áreitni starfsmanna var
ákveðið að senda alla starfsmenn
borgarinnar á námskeið um
áreitni. Lögreglumaðurinn Ant-
liony Fernandez mætti á nám-
skeiðið í ofannefndum bol og
sögðu borgarfulltrúar að hann
hefði brotið allar reglur í hefð-
bundnum klæðaburði lögreglu-
manna til þess eins að ögra nám-
skeiðshöldurum og lýsa yfir fyrir-
litningu sinni.
Fyrir dómi var komist að þeirri
niðurstöðu að klæðaburður Fern-
andez á námskeiðinu bæri vott
um slæman smekk og ónærgætni
en hann liefði þó engin lög brotið.
Því var borgaryfirvöldum gert að
taka Fernandez aftur inn í sínar
raðir og skyldi hann fá greidd
laun frá uppsögninni. Eftir dóms-
úrskurðinn ákvað lögreglustjór-
inn A1 Lamberti að harðari reglur
skyldu gilda í framtíðinni um
klæðaburð lögregluinanna.