Morgunblaðið - 13.02.1999, Blaðsíða 1
36. TBL. 87. ÁRG.
LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Öldungadeild Bandaríkjaþings sýknar Bill Clinton forseta af tveimur ákærum til embættismissis
„Tími sátta runninn upp“
Forsetinn harmar það álag sem
málsóknin á hendur honum olli
Bandaríkjaþingi og þjóðinni
Washington. Reuters.
TIMI sátta og endumýjunar er runninn upp í Bandai-íkjunum>“ sagði Bill
Clinton, forseti Bandaríkjanna, er öldungadeild Bandaríkjaþings hafði
sýknað hann af tveimur ákærum til embættismissis í gær. Að lokinni al>
kvæðagreiðslu í öldungadeildinni ávai-paði forsetinn fréttamenn stuttlega í
Rósagarði Hvíta hússins. Hann baðst aftur afsökunar á orðum sínum og
gjörðum er leiddu til málsóknar til embættismissis á hendur honum.
„Ég harma að gjörðir mínar
skyldu leiða til málsóknar, sem lagði
þunga byrði á herðar þings og þjóð-
ar,“ sagði Clinton og bætti við: „Ég
finn fyrir auðmýkt og þakklæti
vegna fyrirbæna og stuðnings millj-
óna Bandaríkjamanna við mig á
liðnu ári. Nú bið ég landsmenn alla
að gefa sig að nýju að störfum til
heilla og þjónustu fyrir þjóð vora og
framtíðina.“
Er forsetinn hafði lokið að lesa
ávarpið bjóst hann til að ganga inn í
Hvita húsið en sneri við þegar einn
fréttamannanna kallaði til hans:
„Herra forseti, getur þú í hjarta þínu
fyrirgefið og gleymt?“ Clinton svar-
aði: „Þeir sem beiðast fyrirgefningar
verða sjálfir að geta fyrirgefið.“
Forsetinn sýknaður af báðum
ákærum til embættismissis
William Jefferson Clinton var
sýknaður af tveimur ákærum til
embættismissis í öldungadeiid
Bandaríkjaþings. Dómforsetinn,
William Rehnquist hæstaréttardóm-
ari, lýsti niðurstöðu öldungadeildai'-
innai- að lokinni atkvæðagreiðslunni
sem var sjónvarpað beint víða um
heim um miðjan dag í gær og lauk
þar með réttarhöldum er staðið
höfðu í fimm vikur.
Atkvæðagreiðsla fór fram um
hvora ákæru fyrir sig. Ákæra um
meinsæri var felld með 55 atkvæðum
gegn 45, og greiddu 10 repúblikanar
atkvæði með demókrötum gegn
henni. Atkvæði féllu jöfn í atkvæða-
greiðslunni um kæruna á hendur for-
setanum um að hann hefði hindrað
framgang réttvísinnar, og greiddu
fimm öldungadeildai’þingmenn
repúblikana atkvæði gegn henni.
Niðurstaðan áfall fyrir
forystu repúblikana
Til þess að sakfella forsetann
hefði þurft að samþykkja báðar
kærumar með tveimur þriðju hluta
atkvæða öldungadeildarinnar. Sú
staðreynd að ekki skyldi vera ein-
faldur meirihluti með báðum ákær-
um í öldungadeildinni þykir áfall
fyrir repúblikana, sem hafa meiri-
hluta í deildinni. Niðurstaðan er
einnig talin senda skýr skilaboð til
leiðtoga Repúblikanaflokksins í full-
trúadeild Bandaríkjaþings, sem
fóru fremstir í málsókninni á hend-
ur forsetanum í þinginu, að því er
fram kemur í fréttaskeyti frá As-
sociated Press.
Atkvæðagreiðslan í öldungadeild-
inni í gær bindur enda á þrettán mán-
aða langt ferli sem hófst fyrir rúmu
ári er Bill Clinton lýsti því yfir opin-
berlega að hann hefði ekki átt í kyn-
ferðislegu sambandi við Monicu
Lewinsky, sem um tíma var lærlingur
í Hvíta húsinu. Lewinsky-hneykslið
hefur lamað störf forsetaembættisins
og tröllriðið bandarískum fjölmiðlum
og þjóðlífi allt síðastliðið ár.
Tillaga um vítur var
ekki tekin á dagskrá
Öldungadeildin hafnaði því að taka
tillögu um vítur á forsetann fyi-ir að
lokinni atkvæðagreiðslunni í gær.
Dianne Feinstein, öldungadeildar-
þingmaður frá Kaliforníu, fór fyrir
demókrötum sem vildu samþykkja
Gallabuxna-
dómi mót-
mælt
ÞRJÁR ítalskar þingkonur
íklæddar gallbuxum tóku sér
stöðu fyrir utan þinghúsið í
Róm til þess að mótmæla ný-
fóllnum sýknudóini í nauðgun-
armáli, þar sem dómarinn
komst að þeirri niðurstöðu að
konu í gallabuxum væri ekki
hægt að nauðga vegna þess að
hana væri ekki hægt að færa
úr buxunum hjálparlaust. Dóm-
urinn hefur vakið hörð við-
brögð og er hann sagður áfall
fyrir ítalska kvennabaráttu.
Þingkonurnar á myndinni eru
Simona Prestigiacomo,
Alessandra Mussolini og Crist-
ina Matranga. Á spjöldunum
Reuters
sem þær halda á stendur:
„Gallabuxur: afsökun fyrir
nauðgun."
Reuters
BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna, ávarpar fréttamenn í Rósagarði Hvíta hússins að lokinni
atkvæðagreiðslu í öldungadeild Bandaríkjaþings í gær.
vítur á forsetann með þeim rökum að
þótt forsetinn hefði ekki verið kærð-
ur hefði hann flekkað embætti sitt og
það skyldi ekki látið óátalið. Clinton
er 42. annar forseti Bandaríkjanna
og annar maðurinn sem því embætti
gegnir sem Bandaríkjaþing höfðar
mál gegn til embættismissis.
Ólíklegt þykir að tillaga um að víta
forsetann verði tekin upp á ný fyrst
hún fékkst ekki tekin á dagskrá í
gær. „Mig langar ekki að taka þetta
upp aftur. Málinu er lokið og kominn
tími til að taka sér annað fyrir hend-
ur,“ sagði John Kerry, demókrati og
öldungadeildarþingmaður fyrir
Massachusetts. Fleiri flokkssystkin
hans tóku í sama streng að lokinni
atkvæðagreiðslunni í gær.
Fréttamenn í þinghúsinu sögðu að
heyra hefði mátt saumnál detta á
meðan að atkvæðagreiðslan fór fram
í öldungadeildinni. Clinton fylgdist
MADELEINE Albright, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, tekur þátt
í friðarviðræðum um Kosovo-hérað
í dag. Albright ákvað í gær að fara
til Parísar og taka sjálf beinan þátt í
viðræðunum til þess að fá gleggri
mynd af gangi þeirra. Viðræðumar
á milli serbneskra stjórnvalda og
forystumanna Kosovo-Albana hafa
gengið illa í vikunni. Fulltrúar
Serba krefjast þess að albönsku
fulltrúamir undirriti lista yfir 10
ófrávíkjanleg grundvallarskilyrði,
að öðrum kosti muni Serbar ekki
halda viðræðum áfram.
Fregnir bárust af því í gær að
ekki með atkvæðagreiðslunni í sjón-
varpi en notaði tímann til þess að
undirbúa yfirlýsinguna, sem hann
las að fenginni niðurstöðu.
Tíu repúblikanar greiddu atkvæði
gegn ákæranni um meinsæri. Þeir
vora: Slade Gorton frá Washington-
ríki, Susan Collins og Olympia
Snowe, báðar frá Maine, John
Chafee frá Rhode Island, James Jef-
fords frá Vermont, Richard Shelby
frá Alabama, Arlen Specter frá
Pennsylvaníu, Ted Stevens frá
Alaska, Fred Thompson frá Tenn-
essee og John Warner frá Virginíu.
Fimm þeirra, þau Collins, Chafee,
Jeffords, Snowe og Specter, greiddu
einnig atkvæði gegn ákæra á hendur
forsetanum um að hann hefði hindr-
að framgang réttvísinnar.
■ Monica Lewinsky/27
■ Helstu valdastofnanir/39
skæruliði úr Frelsisher Albana
(KLA) hefði fallið og tveir
serbneskir lögreglumenn særst í á
árás KLA á lögreglubíl í eftirlits-
ferð vestur af héraðshöfuðborginni
Pristina.
Jiri Dienstbier, sérstakur ráð-
gjafi Sameinuðu þjóðanna í málefn-
um Júgóslavíu fyiTverandi, sagði í
gær að yrði ekki samið um að
Kosovo-hérað yrði áfram innan
Júgóslavíu væri mikil hætta á að
Bosnía skiptist upp á milli þjóðar-
brotanna sem byggja hana.
■ Viðræður um frið/28
Stjórn-
arslit í
Þýska-
landi?
Bonn. Reuters.
ÞÝSKIR fjöhniðlar héldu því
fram í gær að sambúð stjómar-
flokkanna, jafnaðarmanna og
græningja, færi versnandi og
væru vaxandi líkur á að upp úr
samstarfi þeirra slitnaði.
Dagblaðið Die Welt hélt því
fram í gær að hugsanlega yrðu
teknar upp viðræður um stjórn-
arsamstarf milli jafnaðarmanna
og frjálsra demókrata, sam-
starfsflokki Helmuts Kohls og
kristilegra demókrata um langt
skeið. Oskar Lafontaine, fjár-
málaráðherra, vísaði því á bug í
gær en viðurkenndi þó að sam-
starfið við græningja gengi ekki
alveg að óskum.
Vangaveltur um framtíð
stjómarsamstarfsins komu upp
er jafnaðarmenn og græningjar
misstu meirihluta sinn í kosning-
um í Hessen um síðustu helgi og
þá um leið meirihluta í sam-
bandsráðinu eða efri deild þjóð-
þingsins. Kenndi Schröder
græningjum um ósigurinn og
sakaði þá um að spilla tíma
stjórnarinnar með alls konar
„smámálum“. Græningjar era
óánægðir með að Schröder skuli
hafa drepið ýmsum baráttumál-
um þeirra á dreif, til dæmis að
rekstri kjamorkuvera skuli hætt
og að setja sérstakan skatt á
eldsneyti.
Friðarviðræður vegna Kosovo í París
Albrig’ht liðsinnir
samningamönnum
Washington. Reuters.