Morgunblaðið - 13.02.1999, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 13.02.1999, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1999 43 MARGMIÐLUN Ávanabindandi teningaspil LEIKUR llevil IIíce Devil Dice, leikur fyrir Playstation frá THQ, sem Sony Entertainment Europe dreifir. Devil Dice er þrautaleikur með sniði sem ekki hefur sést til þessa. Leikandinn stjórnar litlum púka og púkinn stjórnar svo einum af mörg- um tugum sex hliða teninga. Mai'k- mið leiksins er að safna saman jafn- mörgum teningum og talan á þeim segir til, til dæmis að safna saman þrem teningum þar sem talan þrír er ofan á eða tveim teningum þar sem talan tveir er ofan á. Þegar töium hefur verið safnað saman byrjar teningurinn að sökkva og missa lit, á meðan hann sekkur er hægt að rúlla hvaða tening sem er að þeim og þá sekkur hann líka. Ekki er hægt að setja tvo ása saman heldur verður að rúlla þeim að sökkvandi teningum, þá hverfa allir teningai' með einn uppi á skján- um. Eins og sjá má af þessu er Devil Dice alls ekki einfaldur leikur. Hins- vegar er hann með þeim allra mest ávanabindandi leikjum er komið hafa út til þessa og þá er mikið sagt. Leyndarmálið að velgengni í Devil Dice er einfaldlega að skilja reglur teningsins og vita hversu oft þarf að snúa honum til að tala komi upp. Gott er að vita að hvaða tala sem snýi' upp á teningnum mun verða sjö þegar hún er lögð saman við töluna sem er neðan á teningn- um, þannig að ef tveir eru upp og vantar fimm til að ljúka keðju af fimmum, þarf að snúa honum tvisvar svo fimm komi upp. Ef spilandi skilur reglur eins og þessa er leikur- inn unninn. Fyrir þá sem eyða ekki mikl- um tíma í Pla- ystation og taka kannski bara leik stundum eftir vinnu eða skóla er þetta ekki rétti leikurinn, ein keppni getur staðið í 46-120 mínútur, eftir því hversu góður við- komandi er. Hægt er að velja fjórar tegundir af keppnum í leiknum: Keppni: spilandi á móti ótakmörkuðu magni af tening- um. Barátta: Þar sem keppandi keppir við tölvuandstæðing. Stríð: Margir keppendur á bilinu 1-5 eða á móti tölvunni. Púsl: Leiktegundin sem flestir munu spila með borðum sem verða erfiðari og erfiðari. Grafíkin í leiknum er ágæt miðað við þessa tegund af leikjum en mið- að við leiki eins og Fifa 99 er hún nokkuð fyi-ir neðan meðallag. Flestir ættu að hafa gaman af Devil Dice ef þeir hafa á annað borð áhuga á raðleikjum, en þeir sem eru ekki svo vissir ættu að prófa að leigja hann fyrst. Ingvi M. Árnason 3Com á toppnum ÞRÁTT FYRIR harða hríð vasa- og lófatölva sem nýta Windows CE heldur 3Com enn yílrburða- stöðu sinni á lófatölvumarkaðn- um. Sala á slíkum tölvum jókst um 61% á síðasta ári og þar er 3Com langstærst nú sem forðum. Alls telja markaðsfróðir að um 3,9 milljónir lófatölva hafi selst um heim allan, sem er ríf- lega 60% aukning frá árinu á undan. 3Com eitt seldi 1,6 millj- ónir tölva, sem útleggst sem ríf- lega 40% markaðshlutdeild. Söluaukning þar á bæ var 57% milli ára. Sharp næst söluhæst Næst söluhæsta lófatölvan var frá Sharp, sem seldi um 830.000 slíkar tölvur á árinu, sem er 67% aukning og um 20% markaðs- hlutdeild. I þriöja sæti var síðan Psion, HP í fjórða og Philips í því fimmta. Markaðsspámenn hafa lýst því að Windows CE eigi eftir að grafa undan tölvum frá 3Com, sem notar PalmOS stýrikerfið, og Psion, sem keyrir á Epoc32, en það hefur ekki komið fram enn, þó Windows CE sé nú ríf- lega ársgamalt á markaði. Fjórðungur lófatölva notaðist þó við Windows CE. Brestur í samstöðu útgáfufy rirtækj a ENN BRESTUR í samstöðu útgáfu- fyrh'tækja gegn drejfíngu á tónlist í mp3-gagnasniðinu. Áður hefur verið greint frá ákvörðun Rykodisk-útgáf- unnar um að selja plötur og lög í mp3-sniði, en fyrir skemmstu lýsti Dreamworks þehri ætlun sinni að gefa áhugasömum kost á að heyra lög með nýjum hljómsveitum sem íyrir- tækið er að reyna að koma á fram- færi. Universal-risinn dreifir plötum sem Dreamworks gefur út og hefur verið fremst í flokki þeiira sem hafn- að hafa því algjörlega að gefa mp3- lög, enda segja talsmenn fyrirtækis- ins að með því sé verið að gera lítið úr tónlist. Dreamworks-stjórar ei-u greinilega á öðru máli, því þeim fínnst það hið besta mál að kyn na hljóm- sveit með því að gefa áhugasömum kost á að sækja sér lag með sveitinni og hlusta á án þess að greiða fyi-ir ki’ónu. Þetta geiTr Dreamworks í samvinnu við Diamond Multimedia, fyrirtækið sem markaðssetti vestan hafs fyrsta mp3-spilarann, Rio, sem notið hefur mikilla vinsælda. Di- amond hefm’ komið sér upp sérstöku vefsetri til að hampa mp3-skrám og tækni, www.rioport.com/, og leggur áherslu á að á því setri verði ekki að fá nema löglegar mp3-skrár, þai' á meðal lög frá Dreamworks. Sjóræningjar af hugsjón Helsti þymh' í augum höfundar- réttareigenda er hversu auðvelt er að dreifa mp3-ski'ám yfir Netið. Um- fangsmikið net dreifingaraðila er um allan heim og eiga allir það sameigin- legt að taka ekkert fyrir viðvikið; segja má að sjóræningjastarfsemi af þessu tagi sé hugsjónastarf líkt og warez-dreifing. Þeir sem snuðrað hafa á Netinu og leitað að reklum og allskyns ski'ám reyndar þekkja vel fyrirbæri sem kallast FTP Seai-ch, sem er norskt leitarforrit sem heldur gagnagnmn yfh' ski'ái' á ftp-setrum um heim all- an. Mikið og vinsælt þaiTaþing þeim sem kynnst hafa, en ekki er langt síð- an Lycos-leitarfyrirtækið keypti FTP Search og hefur rekið það í tengslum við sitt vefsetur undanfarið. Leit að mp3-ski'ám er áþekk og leit að ski'ám á ftp-setrum almennt, enda eru skrárnar yfírleitt aðgengilegar með ftp-ski’áaflutningi hvort eð er. Það má því segja að ekki hafi vakið ýkja mikla athygli meðal mp3-áhuga- manna að Lycos skyldi setja upp mp3-leit, sjá slóðina mp3.lycos.com/, en þess meiri hjá höfundarréttareig- endum og framámönnum í baráttunni gegn mp3-dreifingu. Reyndar eru starfræktar mp3-leitarvélar víða um heim, en enginn hefur sér til stuðn- ings eins öflugt fyrirtæki og Lycos, sem er með helstu leitarfyrirtækjum á Netinu. Höfundarréttarsamtök vestan hafs hafa krafist þess að Lycos loki fyrir mp3-leitina, en litlar líkur eru á að það takist, enn sem komið er að minnsta kosti. Til gamans má geta þess að leit að lögum eftir Björk Guðmundsdóttur í mp3-leit Lycos skilaði 725 lögum, vissulega oft sama laginu á mismun- andi stöðum, en þar á meðal var grúi af tónleikaupptökum og óútgefnum lögum og lög af fyi-stu plötu Bjarkar, til að mynda Arabadrengurinn og Jó- hannes Kjarval. Leit að Sykurmolun- um skilaði 13 lögum, en að Mezzofor- te engu. aCCetit 1500 cc vél, 9o hestöfl 50% afsláttur af sjálfskiptingu l.'i HHI V#rídjimi, Áccent 3|« dyr*. ijálfíkiptur: 4Sk Wmjm HYunom ÁrwúU tj SIlHi J/5 1100 Söturfeild 5/5 nu www.bl.it Stjörnuspá á Netinu <|> mbUs Aðsendar greinar á Netinu __ALLTAÍ= eiTTH\&K£J tJÝTT __ALL7?W= 6/777/1^0 tJÝTT Nintendo vélin, flottur stýripinni og Super Mario 64 leikur Skeifunni 11 • 108 Rvk 220 Hafnarfirði • Sími 550 4020 Sími 550 4444 • Reykjavíkurvegi 64
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.