Morgunblaðið - 13.02.1999, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.02.1999, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR 2000 vandinn Ríkisstofn- anir almennt tilbúnar RÍKISSTOFNANIR eru almennt tilbúnai- að takast á við 2000 vand- ann, samkvæmt könnun Gallups. I könnuninni kemur fram að for- stöðumenn flestra ríkisstofnana, eða um 80%, hafi fjallað mikið eða nokk- uð um umfang og eðli 2000 vandans hjá stofnuninni. Allir forstöðumenn- irnir sögðust ætla að ljúka endurbót- um og aðgerðum íyrir 1. janúar árið 2000 en 19% fyrir 1. apríl í ár. Um helmingur forstöðumannanna sagð- ist ekki gera ráð fyrir að verja nein- um fjánnunum í verkefni tengd vandanum. Nærri 72% þeirra stofn- ana sem hringt var í hafa hafið at- hugun á vandanum en um 8% þeirra hafa ekki hafið athugun á honum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Velta ÍSAL var 18,6 millj- arðar króna á síðasta ári Metár í veltu og framleiðslu Ziirích. Morgunblaðið. VELTA Islenska álfélagsins hf. á síðasta ári var um 18,6 milljarðar ki-óna, sem er mesta velta fyrirtæk- isins frá upphafi. Framleiðsla þess nam rúmum 162.000 tonnum þrátt íyrir orkuskerðingu írá Landsvirkj- un í lok ársins. Þetta er rnesta árs- framleiðsla fi-á upphafi enda fyrsta heila árið sem kerskáli 3 er í rekstri. Methagnaður var hjá Algroup móð- urfélagi Alusuisse, eða 26,5 milljarðai- króna á síðasta ári sem er 14,5% hækkun frá árinu á undan. Rannveig Rist, forstjóri ISAL, segir að hagnað- m- ÍSAL á síðasta ári sé góður og álit- legur hluti af heildarhagnaði Algroup. Velta álsviðs Alusuisse jókst um 13% á síðasta ári þrátt fyrir lágt ál- verð og minni hráálsnotkun á heimsmarkaði. Fyrirtækið gat dregið úr neikvæðum áhrifum lækk- andi álverðs með tímabundnum verðsamningum. Verð á áli er nú lægra en það hefur verið undanfarin fjögur ár. Kurt Wolfensberger, framkvæmdastjóri álsviðs Alusuis- se, býst ekki við að verðið fari hæþkandi á næstunni. Agóði á álsviði Alusuisse jókst um 14% árið 1998 og var 341 milljón svissneskra franka. Rekstur Algi’oup, móðurfyrirtæk- is Alusuisse, gekk álíka vel. Ágóði fyrirtækisins alls árið 1998 var 530 milljónir svissneskra franka. Algi’oup verður sameinað þýska fyrii’tækinu Viag á þessu ári og hlut- hafar fyrirtækjanna taka endanlega ákvörðun um sameininguna á aðal- fundum þeirra í Miinchen og Ziirich 20. maí næstkomandi. Nýr kerskáli gjörbreytti aðstæðum Rannveig Rist, forstjóri ÍSAL, sagði að eðlilegar ástæður Iægju að baki metframleiðslu og -veltu hjá fyrirtækinu á síðasta ári. Kerskáli 3 hefði verið tekinn í notkun á árinu og hefði það gjörbreytt aðstæðum hjá félaginu. „Þetta er eðlilegt því þetta var fyrsta rekstrarárið eftir fulla stækkun álversins, þótt við höfum reyndar ekki getað nýtt stækkunina að fullu vegna raforku- skerðingar Landsvirkjunar í haust,“ sagði Rannveig. Aðspm’ð hve stór hluti hagnaðar Alusuisse væri ÍSAL að þakka sagði Rannveig að ekki mætti upplýsa um það fyi’r en eftir aðalfund félagsins næsta sumar. „Ég get þó sagt að við erum með góða afkomu og góðan hagnað á síðasta áii sem er álitlegur hluti af heildarhagnaði móðurfélags- ins. Hagnaðurinn verður þó ekki jafn mikill og 1997 þegar hann var 2,8 milljarðar." Hún segir að hagnaður ISAL hafi verið góður fyrri hluta ársins í fyrra en syrt hafi í álinn síðari hlutann sökum efnahagskreppunnar í Asíu og lækkandi álverðs í kjölfarið. Útsölulok ÞAÐ er gaman að gramsa í stöfl- um af peysum, buxum, bolum og skyrtum þegar flíkurnar fást á niðursettu verði. Um þessar mundir eni útsölulok í fullum gangi í Kringlunni og slógu verslanir botninn í útsölu- tímabilið með því að koma með vörumar út á göngugötuna og halda götumarkað sem lýkur í dag. Starfsfólk verslana í Kringlunni átti fullt í fangi með að afgreiða viðskiptavini í gær sem greinilega voru ánægðir með götumarkaðinn. -------------- Prédikar í sex föstu- messum DOKTOR Sigur- bjöm Einarsson biskup prédikar í föstumessum í Hallgrímskirkju næstu sex miðviku- dagskvöld. Verður sú fyrsta miðviku- daginn 17. febrúar næstkomandi. „Þeir fundu nú upp á þessu, prest- arnir, að bjóða mér þetta og ég gat ekki annað en þegið svona gott til- boð,“ sagði Sigurbjörn biskup í sam- tali við Morgunblaðið í gær. Prestar Hallgrímskirkju eru séra Sigurður Pálsson og séra Jón Dalbú Hró- bjartsson, prófastur í Reykjavíkur- prófastsdæmi vestra. Hlutverk Sig- urbjöms verður prédikun í hverri föstumessu sem verða alls sex. „Þarna verður náttúrlega söngur og prestarnir annast alla aðra þjónustu sem fer fram í guðsþjónustunum.“ Sigurbjörn hefur margoft prédik- að, flutt fyrirlestra og annast ýmsar athafnir eftir að hann lét af biskups- embætti. Nú síðast var hann með fyrirlestraröð í haust á vegum End- urmenntunarstofnunar Háskólans sem milli 80 og 90 manns sóttu. Tekinn á 148 km hraða LÖGREGLAN á Blönduósi hafði tekið yfir tug ökumanna fyrir of hraðan akstur síðdegis í gær. Þar af var einn tekinn á 148 kílómetra hraða á Hrútafjarð- arhálsi. Sá missti ökuskírteinið samstundis. Umferðarþungi jókst talsvert í Húnavatnssýslunni í gær eftir því sem leið á daginn og sagði lögreglan færið mjög gott, en ökumenn yrðu að gæta að hrað- anum. Lögreglumenn um allt land hafa fylgst með ökuhraða und- anfarnar vikur og í ljós hefur komið að mjög margir ökumenn hafa ekki virt settar reglur í þeim efnum. Leiguíbúðum á höfuðborgarsvæðinu fækkar vegna mikillar sölu Slegist um lausar íbúðir VEGNA mikillar sölu á fasteigna- markaði hefur framboð á leiguíbúð- um á höfuðborgarsvæðinu farið minnkandi á undanförnum mánuð- um. Biðlistar hafa lengst, leiga hef- ur hækkað og aukin harka færst í viðskipti á leigumarkaði. Leigumiðlarar sem rætt var við voru sammála um að hörgull væri á leiguíbúðum og ástandið hefði versnað á undanförnum mánuðum. Væri slegist um þær íbúðir sem í boði væru. Fækkun leiguíbúða er einkum rakin til þess að sala hefur glæðst í vetur. Björgúlfur Björgúlfsson hjá Fasteignasölunni Ársölum telur að aukna eftirspum nú eftir íbúðum megi einkum rekja til fólksflóttans af landsbyggðinni á suðvesturhomið. „Núna eftir áramótin kemur það líka til að það er töluvert stór hópur sem hefur haldið að sér höndum frá því í fyrrahaust til að sjá til með íbúða- lánasjóð, hvemig hann kæmi út. Og það fólk bætist inn á markaðinn núna.“ Þótt ástandið sé slæmt og fólk á biðlistum segir Björgúlfur að einhver hreyfing sé. „Það tínast inn hjá okkur 3—1 íbúðir í viku hverri og fara út í einum grænum. Á síðasta ári jókst eftirspurnin með vaxandi þunga frá áramótum allt árið en nú er greinilega minna framboð en fyr- ir ári. Og eftirspurnin töluvert meiri.“ Brynja Baldursdóttir hjá Stúd- entaráði segir að töluvert framboð sé af herbergjum fyrir stúdenta en minna af íbúðum. „Tveggja til þriggja herbergja íbúðir eru illfáan- legar. Ég er þá aðallega að miða við hverfin hérna í námunda við há- skólasvæðið." Brynja taldi ástandið þó ekki áberandi verra nú í vetur en undanfarin ár. Svart ástand „Það er svart,“ segir Jón Kjai-t- ansson hjá Leigjendasamtökunum um ástandið á leigumarkaðinum. „Á.standið hefur farið jafnt og þétt versnandi frá því í fyrra. Það hefur verið slæmt lengi en farið versnandi núna.“ Ástæðuna fyrir ástandinu segir Jón aukna íbúðasölu. „Það hefur til dæmis verið leigt mikið af húsnæði undanfarin ár sem ekki hefur selst, fyrr en nú. Síðan í haust hefur hús- næði verið að seljast eftir undan- gengna sölutregðu eiginlega allan þennan áratug.“ Jón telur hörku í viðskiptum á leigumarkaði hafa aukist. „Það eru mikil brögð að því að kaupandi, selj- andi eða jafnvel fasteignasalinn beiti ýmsum aðferðum til að koma fólki út úr leiguhúsnæði. Það hringja hingað 4-5 á dag út af svona málum. Segja má að flestum hugs- anlegum úrræðum sé beitt til að reyna að fá fólk út. Menn semja kannski um að afhenda húsnæði án þess að tillit sé tekið til leigusamn- ings.“ Jón kveður ástandið á hinum fé- lagslega leigumarkaði hafa versnað til muna og að margt fólk hafi nú engin úrræði. „Þar er neyðin nátt- úrlega mest. Um 2.000 manns eru á biðlistum eftir félagslegu leiguhús- næði. Þetta fólk ræður ekki við markaðsleigu." Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is Gulidrengurinn Lasse Kjus vann annað gullið/B2 Þrír grunaðir um að hafa átt við flóðljósin á The Valley/B1 ð í dag LAUGARDÖGUM 1 1 LIjöDö MOIUilJNBLAÐSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.