Morgunblaðið - 13.02.1999, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 13.02.1999, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1999 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Svavar Gestsson fer til starfa í Kanada Flugleiðir um bilanir í þotum Tíðni bilana hrein tilviljun HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis- ráðherra hefur ákveðið að skipa Svavar Gestsson, alþingismann og fyrrverandi ráðherra, sendiherra í utanríkisþjónustunni frá 1. mars að telja og fela honum daglega yfir- umsjón með þeim verkefnum landafundanefndar á vettvangi, sem ríkisstjórnin hefur ákveðið að standa fyi’ir í Kanada um árþús- undamót. „Er þetta bæði gert til þess að tryggja að myndarlega verði staðið að því að minnast landafunda ís- lenskra manna vestanhafs fyrir þús- und ái-um og að 125 ár verða liðin ár- ið 2000 frá því fyrstu Vestur-íslend- Borgarstjórn Reykjavíkur Guðrún Agústsdótt- ir í leyfi í sumar GUÐRÚN Ágústsdóttir, forseti borgarstjómar, hyggst ílytja með eiginmanni sínum, Svavari Gests- syni, til Kanada eftir að setu henn- ar í forsetaemb- ættinu lýkur í júní. Svavar hefur verið skipaður sendi- herra. Guðnin sagði í samtali við Morg- unblaðið að þessi mál væru ekki frágengin, en hún byggist við að byrja á því að fara í leyfi frá störfum sínum á vegum borgarstjórnar. Þá kvaðst hún ekki vera farin að huga alvarlega að því hvað hún tæki sér íyrir hendur vestra. „Svavars bíður hins vegar stórt og mikið verkefni," sagði hún, „og ég á von á að koma að því með einum eða öðrum hætti, enda tengist það undirbúningi menningarborgar Evrópu árið 2000, sem ég hef unnið að.“ Reykjavíkurlistinn fékk átta borgarfulltrúa kjörna í kosningun- um vorið 1998. Níundi maður list- ans, Anna Geirsdóttir, hefur þegar tekið sæti í borgarstjórn í stað Hrannars B. Arnarssonar, á meðan skattamál hans eru til umfjöllunar hjá þar til bærum yfírvöldum. 10. maður listans er Árni Þór Sigurðs- son sem verður í framboði til Al- þingis í vor á lista Samfylkingar. 11. maður listans er Kristín Blöndal frá Kvennalista. -------------- Einn eftir í gæslu- varðhaldi ÞRIR mannanna fjöguiTa, sem handteknir voru vegna gruns um tryggingasvik í tengslum við Jagú- ai-bifreið, sem ekið var fram af NATO bryggjunni í Hvalfírði í lok janúar, eru lausir úr haldi. Gæsluvarðhald yfir fjórða mann- inum hefur verið framlengt. Hann er í ótímabundinni rannsóknar- gæslu og er hafður í einangrun á meðan rannsókn málsins heldur áfram. Jagúarbifreiðin var vátryggð fyr- ir um 1.800 þúsund krónur, en hún náðist á þurrt upp úr sjó og er nú geymd í tjónaskoðunarstöð trygg- ingafélagsins. ingarnir settust að í Kanada,“ segir í fí'étt frá ráðuneyt- inu. Skrifstofa opnuð í Winnepeg Þá segir að hlut- verk Svavars verði jafnframt að sfyrkja þau bönd sem binda saman Islendinga og fólk af íslenskum ættum sem nú býr í Kanada og skiptir a.m.k. tugum þúsunda. Sömuleiðis er ætlunin að leitast við að styrkja viðskiptatengsl landanna, ekki síst viðskiptatengsl FYRSTI veitingastaðurinn með pizzur, sem rekinn er sam- kvæmt forskrift Pizza 67 fyrir- tækisins á íslandi, var opnaður í gær, á degi hamingjunnar í Kfna. Veitingastaðurinn er í nýrri verslunarmiðstöð í helsta verslunarhverfi borgarinnar Ti- anjin, sem er þriðja stærsta borg Kína. Að sögn Gísla Gíslasonar, eins af forsvarsmönnum Pizza 67, hafði fyrirtækið verið að leita fyrir sér með frekari starfsemi erlendis þegar kínverskir aðilar höfðu samband og óskuðu eftir samstarfi um að opna pizzustað í Kína. Aðilar frá kínverska fyrir- tækinu höfðu snætt á einum af veitingastöðum Pizza 67 er þeir voru í viðskiptaerindum á ís- landi. Fyrirtækið nefnist Tianjin Leadar Group Co. Ltd. og er TILKYNNA á í dag um stofnun nýrra stjórnmálasamtaka sem ætla að bjóða fram til Alþingis í vor í Reykjavík og Reykjaneskjördæmi. Samtökin hafa fengið nafnið Fólk með hausverk, en meirihluti þeirra sem að samstökunum standa eru ungt fólk. Gegn boðum og bönnum í íslensku þjóðfélagi Valgeir Magnússon, viðskipta- fræðingur og einn af forsvarsmönn- um samtakannam, tekur þó fram að hér sé ekki á ferðinni grínframboð unglinga, heldur sé aðstandendum þess full alvara með framboði sínu. íslands við Manitóbafylki. í tengsl- um við þessa ákvörðun hefur verið ákveðið að opna sérstaka skrifstofu í Winnipeg í Kanada sem Svavar veiti daglega forstöðu. Skrifstofan mun heyra stjórnsýslulega undir sendiráð Isiands í Washington sem jafnframt er sendiráð Islands í Kanada. „Stofnun embættisins og ski-ifstof- unnar er gerð í náinni samvinnu við stjórnvöld í Kanada og forsvars- menn fólks af íslensku bergi brotið þar í landi og þær vinnunefndir sem það hefur skipað víða um landið í tO- efni þessara merku tímamóta," segir í fréttatilkynningunni. stórt almenningshlutafélag, sem meðal annars starfrækir verslan- ir, ferðaþjónustu og fjármála- starfsemi. Kínverjunum hafði verið bent á staðinn þar sem um væri að ræða íslenska pizzustaðakeðju. Fyrirtækið vann að uppbyggingu verslunarmiðstöðvarinnar í borg- inni Tianjin og var á höttunum eftir vestrænum veitingastöðum í hina nýju verslunarmiðstöð, sem ber nafnið International Market. Sagði Gísli að Tianjin Leadar Group hefði þegar lýst yfir áhuga á frekara samstarfi. Erfitt að útvega ost Rekstrarfyrirkomulag staðar- ins er með þeim hætti að Tianjin Leadar Group á og rekur veit- ingastaðinn að öllu leyti, en Pizza 67 sér fyrirtækinu fyrir Að sögn Valgeirs hafa samtökin það fyrst og fremst að markmiði að felld verði niðui- hin ýmsu boð og bönn í þjóðfélaginu. „Álls konar ráð og nefndir í þjóðfélaginu eru að passa upp á að Islendingar fari sér ekki að voða. Hér eru alls konar hlutir bannaðir sem eru leyfilegir BILANIR í þotum Flugleiða síð- ustu daga, sú síðasta í fyi’rakvöld, eru tilviljanir og hafa komið fram í báðum þotugerðunum sem fyrir- tækið rekur og eru af ýmsum toga, að sögn Einars Sigurðssonar, að- stoðarmanns forstjóra Flugleiða. Hann segir í engu hafa verið slakað á viðhaldi eða eftirliti með flugflota félagsins. Bilanahrinan hófst fyrir viku er Boeing 757-200 þota bilaði í Minn- eapolis áður en hún átti að halda til Islands. Varð af þeim sökum sólar- þjálfun starfsmanna, uppskrift- um og ýmsu er lýtur að útliti staðarins með rekstrarleyfís- samningi. Segir Gísli að upp- skriftir að pizzunum verði að öllu leyti þær sömu og á öðrum Pizza 67 stöðum. Að sögn Gísla gekk vel að útvega hráefni til rekstrar pizzustaðarins í Tianjin, að und- anskildu því að það hafi reynst snúið að finna ost á pizzurnar í Kína. Það hafðist þó að lokum með innfluttum osti frá Nýja-Sjá- landi. Veitingastaðurinn í Tianjin í Kina er fyrsti Pizza 67 veitinga- staðurinn sem opnaður er utan Evrópu. Fyrir eru staðir í Dan- mörku, Færeyjum og í Tékklandi og er einn veitingastaður í hveiju landi. Tuttugu og einn Pizza 67 staður er í rekstri á fs- landi. alls staðar í Evrópu og í Ameríku," segir hann. Unnið er að uppröðun á fram- boðslista samtakanna þessa dagana og er þegar frágengið hverjir skipa efstu sætin að sögn Valgeirs, en hann verður í fyrsta sæti á fram- boðslistanum í Reykjavík. Kristján hringstöf á hingaðkomu farþega og varð nokkur röskun í áætlun fé- lagsins í framhaldi af þessari bilun. Þá bilaði vél af sömu gerð í London í miðri viku og í fyrrakvöld bilaði 737-400 þota í Hamborg. Önnur Flugleiðaþota var þá á leið þangað og í stað þess að hún yrði þar yfir nótt var henni snúið til Kaupmannahafnar og Islands og gert við biluðu vélina í Hamborg sem komst þá inn í áætlun morg- uninn eftir. Komust farþegar tO Is- lands um klukkan 3 í fyrrinótt en hefðu réttu lagi átt að komast til landsins um klukkan 22. Einar Sigurðsson segir að í gær hafi verið farið yfir þessar bilanir sem eins og fyrr segir komu fram í báðum flugvélagerðum félagsins og voru af ýmsum toga. Ein hefði verið í eldsneytiskerfi, önnur í vængbörðum og sú þriðja í dælu- kerfi við vængbörð. Væri það mat manna að tíðni og eðli bilananna á þessum örfáu dögum væru hreinar tilviljanir. Sagði hann bilanatíðni vélanna lága enda væri eftirlit og viðhald þein-a eftir ströngustu kröfum framleiðanda og yfirvalda. Keikó sýnir miklar framfarir KEIKÓ líður mjög vel í kvínni sinni í Klettsvík, að sögn Jeff Foster þjálfai-a Keikós, og hef- ur náð sér eftir snert af maga- kveisu sem hann fékk í desem- ber. „Hann syndir mikið, étur vel og er í góðu formi,“ segir Foster sem er ánægður með frammistöðu Keikós og segir framfarir hans auka líkur á því að hægt verði að sleppa hon- um. „Vonandi munum við geta sett upp net með vorinu sem gefur Keikó möguleika á að synda um nánast alla Kletts- víkina. Það stækkar svæði hans margfalt og við sjáum betur hvernig hann spjarar sig á svo stóru svæði. Verkfræð- ingar okkar eru enn að rann- saka hvort hægt verði að setja upp slíkt net, sem stenst álagið við öll veðurskilyrði,“ segir Foster. Hann segir að enn sé margt óljóst um hvort hægt verði að sleppa Keikó, en áður en það verði gert þurfi að rannsaka marga þætti. Ástand Keikós lofi hins vegar góðu um fram- haldið. Jónsson, kynningarstjóri hjá Fínum miðli, í öðru sæti, Sigvaldi Kalda- lóns, dagskrárgerðarmaður á FM 95,7 í þriðja sæti og Valgerður Matthíasdóttir arkitekt í fjórða sæti. Sigurður Hlöðversson, mark- aðsstjóri hjá Aco, verður í fyrsta sæti á Reykjanesi og Þórhallur Sig- urðsson, Laddi, leikari í öðru sæti. Valgeir segir að samtökin muni nú hella sér út í kosningabaráttuna með látum og geri ráð fyrir að bar- áttusætin í vor verði 8. sætið í Reykjavík og 4. sætið á Reykjanesi. Samtökin verða formlega stofnuð í beinni útsendingu á sjónvarpsstöð- inni Skjá 1 í dag. FYRSTA Pizza 67 pizzan í Kína kemur út úr ofninum. Pizza 67 veitinga- staður opnaður í Kína Stjórnmálasamtökin Fólk með hausverk ætla að bjóða fram 1 tveimur kjördæmum Ungt fólk stend- ur að framboðinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.