Morgunblaðið - 13.02.1999, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Utför Þorsteins Hannessonar
ÚTFÖR Þorsteins Hannessonar, söngvara og
fyrrverandi tónlistarstjóra Rfldsútvarpsins, var
gerð frá Kópavogskirkju í gær að viðstöddu
fjölmenni.
Séra Hjalti Guðmundsson jarðsöng en einsöng
sungu Kristinn Sigmundsson og Guðmundur
Jónsson. Marteinn H. Friðriksson lék á orgel. A
myndinni má sjá kistu Þorsteins borna út úr
Kópavogskirkju en hana báru Páll Þorsteinsson,
Hannes Þorsteinsson, Gunnlaugur Þór Pálsson,
Sigurður Pálsson, Kolbeinn Marteinsson, Bjarni
Eiríksson, Kristófer Dignus Pétursson og Jóhann
Tómas Sigurðarson. Unnur Ragna Pálsdóttir, elsta
barnabarn Þorsteins, bar kransinn.
Samkomulag hefur tekist um almennan
ramma Þróunarsjóðs EFTA
Greiðslur í sjóð-
inn gætu lækkað
NÁÐST hefur samkomulag um al-
mennan ramma og fiest grundvall-
aratriði Þróunarsjóðs EFTA, sem
styrkt hefur fátækari svæði innan
Evrópusambandsins, að sögn Gunn-
ars Snorra Gunnarssonar, sendi-
herra Islands hjá ESB í Brussel.
Frágangi nokkurra atriða er þó
enn ólokið og ýmisíegt er enn óljóst
um hversu háar greiðslur í sjóðinn
verður að ræða. Gunnai- kveðst þó
gera ráð fyrir að niðurstaðan verði
sú að þær breytist lítið frá því sem
verið hefur en sagði ekki útilokað að
þær kynnu að lækka eitthvað.
Greiðslur Islendinga hafa verið um
100 milljónir króna á ári frá því
EES-samningurinn tók gildi 1994.
Þýðingarmikið fyrir íslenska
vísindamenn
Mikilvægi-i hindrun var rutt úr
vegi sl. fimmtudag þegar samþykkt
var í fastafulltrúanefnd ESB að ís-
land, Noregur og Lichtenstein
fengju fulla aðild að 5. rammaáætl-
un Evrópusambandsins um rann-
sóknir og tækniþróun en Spánverj-
ar höfðu hótað að standa í vegi fyrir
þátttöku Islands í rammaáætluninni
vegna deilnanna um Þróunarsjóð-
inn. Að sögn Gunnars er þetta mál í
góðum farvegi og á að vera hægt að
ganga frá því með formlegum hætti
í lok þessa mánaðar.
Island hefur tekið virkan þátt í
4. rammaáætluninni frá gildistöku
EES-samningsins og að sögn
Gunnars hafa Islendingar fengið
talsvert hærra hlutfall umsókna
sinna viðurkennt en velflest aðild-
arríki Evrópusambandsins. Gunn-
ar sagði mjög mikilvægt fyrh' Is-
lendinga að tengjast þessu Evr-
ópusamstarfi, ekki síst vegna stór-
aukinna tengsla íslenskra vísinda-
manna við vísindasamfélagið og
rannsóknir í Evrópu.
Inflúensufaraldur talinn í hámarki á höfuðborgarsvæðinu um þessar mundir
Margir óvenju mikið veikir
INFLÚENSUFARALDUR sem
lét fyrst á sér kræla skömmu eftir
áramót er talinn vera í hámarki um
þessar mundir. Atli Árnason, yfir-
læknir á heilsugæslustöðinni í
Grafarvogi, kveðst vonast til að há-
punkturinn hafi verið um seinustu
helgi á höíúðborgarsvæðinu en bú-
ast megi við að hans eigi eftir að
gæta enn frekar á landsbyggðinni
á næstunni.
„Mér skilst að fólk hafi orðið
óvenju veikt, ekki síst seinustu
tvær vikur þegar flensunnar hefur
gætt að ráði,“ segir Lúðvík Olafs-
son héraðslæknir í Reykjavík.
Hann segir helstu einkenni
flensunnar vera hefðbundin, þ.e.
hár hiti, beinverkir, nefrennsli, höf-
uðverkur, hósti og særindi fyrir
brjósti. „Einkennin eru tiltölulega
kunnugleg í flestum tilvikum en
fólk lætur frekar illa af sér og mér
heyrist á þeim sem veikjast að þeir
verði talsvert mikið lasnir."
Mikil forföll á sumum
vinnustöðum
Lúðvík segir að fólk sem sé
veikast fyrir áhrifum flensunnar,
gamalmenni og hjarta- og lungna-
veikir, sé oftast vel bólusett og því
sleppi sá hópur ágætlega að þessu
ÍSLENSKA pizzugerðin hf. hefur
fengið einkaumboð á Islandi fyrir
bandarísku pítsukeðjuna Little Ca-
esar’s. Ráðgert er að opna fyrsta
pítsustaðinn innan fáeinna mánaða.
Fyrirtækið Little Caesar’s var
stofnað í Bandaríkjunum fyrir 40 ár-
um af athafnamanninum Michael
Ilitch sem nú er meðal auðugustu
manna í Bandaríkjunum. Alls eru
tæplega 4.600 pítsustaðir innan keðj-
unnar í Bandaríkjunum og tíu öðrum
löndum en ísland er fyrsta landið í
Norður-Evrópu sem opnar Little
Caesar’s pítsustað.
Næststærsta pítsukeðja
Bandaríkjanna
Little Caesar’s eru með næstflesta
staði á eftir Pizza Hut í Bandaríkjun-
um.
sinni. Hins vegar gæti flensunnar
gjaman hjá börnum og ungu fólki.
„Á sumum vinnustöðum hefur
vantað mjög marga, en aðrir hafa
sloppið aðeins betur. Sjálfur hef ég
verið ritaralaus í viku og það skrif-
ast á reikning ílensunnar," segir
Lúðvík.
„Fólk á að fara vel með sig og
sleppa öllum mannalátum. Þegar
fólk er veikt verður það að miða líf-
ið við veikindin. Eina forvörnin er
bólusetning, enda mælir maður
ekki með því að fólk haldi sig frá
öðru fólki. Það geta ekki allir lagst
í einsemd.“
Arthur Löve, yfirlæknir rann-
sóknarstofu Landspítalans í veiru-
fræði, segir að fyrstu tilfellin hafi
verið greind í blábyrjun ársins. Þá
hafi tekið við um tvær tíðindalitlar
vikur áður en flensan fór á fullan
skrið.
Berst með námsmönnum
„Aðallega er um að ræða inflú-
ensu A af stofni sem við köllum
H3N2, en einnig er um að ræða in-
flúensu B. Þetta eru sömu stofnar
og við finnum í nágrannalöndum
okkar. Það er mjög algengt að
flensan berist skömmu fyrir jól
með námsfólki sem kemur heim í
Eigendur íslensku pizzugerðai--
innar hf. eru Eyþór Guðjónsson,
sem starfaði áður sem markaðs-
stjóri hjá myndbandadeild SAM-
bíóanna, Gunnar Gylfason, sem
starfaði áður sem sölu- og markaðs-
stjóri hjá Vífilfelli hf., og Skúli
Gunnarsson, eigandi Subway-veit-
ingastaðanna.
Eyþór segir að nú sé verið að leita
að hentugu húsnæði undir rekstur-
inn en gerðar séu miklar kröfur um
góða aðkomu og bílastæði. Málið hafi
átt sér langan aðdraganda en skrifað
var undir samning í nóvember síð-
astliðnum.
„Við teljum að það sé markaður
fyrir Little Caesar’s á íslandi og það
sé alltaf markaður fyrir góða vöru.
Þessi vara hefur verið kosin bestu
pítsukaupin af neytendum í Banda-
leyfí með sýkt börn sín og er sjálft
sýkt. Síðan dreifist þetta í jólaboð-
unum og gengur loks koll af kolli,
þó svo það taki nokkum tíma fyrir
flensuna að ná hámarks útbreiðslu.
Mest greinum við sýni frá smá-
börnum, en það er þó ljóst að við
greinum ekki nema tindinn af ís-
jakanum,“ segir Arthur.
Hann segir flensuna keimlíka
því sem gengið hefur undanfarin
ríkjunum síðastliðin ellefu ár og
neytendur eru bestu dómai-arnir.
Við munum koma með nýjung inn á
þennan markað þegai' við hefjum
starfsemina," segir Eyþór.
Hann segir að fyrirtækið muni
ár og virðist stofninn í bóluefninu
sem notað er eiga mjög vel við,
einkum fyrir H3N2. „Þeir sem
létu bólusetja sig ættu flestir að
sleppa, en þó ber að hafa í huga að
inflúensubóluefni eru ekki sögð
veita nema um 70% til 80%
vernd,“ segir hann.
Atli Árnason segir að miklar
annir hafi verið hjá Læknavaktinni
undanfamar vikur vegna inflú-
ensunnar. Fólk leiti ráða og margir
vilji meðferð, en fátt sé hægt að
gera. „Þetta er nokkuð sterk
flensa, en sem betur fer er margt
eldra fólk bólusett þannig að við
höfum ekki orðið mikið varir við að
það veikist. Börn, unglingar og
fullvinnandi fólk hefur hins vegar
orðið fyrir barðinu á flensunni. Það
nægii- að eitt nýsmitað barn komi
inn í skólastofu og hósti, til að sjö
börn verði veik daginn eftir,“ segir
Atli.
Gæta á vel að ungbörnum
„Það er mikilvægt að fylgjast
sérstaklega vel með ungbörnum
þegar faraldur sem þessi er í
gangi,“ segir hann. „Þau eru við-
kvæmari fyrir vökvatapi og öðru
slíku, þannig að það er betra að
skoða þau oftar en sjaldnar."
fara rólega af stað enda hefji það
rekstur í óvenjulegu markaðsum-
hverfi þar sem hlutdeild Domino’s
Pizza sé um 50%. Little Caesar’s og
Domino’s heyja harða samkeppni á
bandarískum pítsumarkaði.
Óhapp í Hval-
fjarðargöngum
• •
Okumaður
sofnaði
undir stýri
ÖKUMAÐUR fólksbifreiðar
telur að hann hafi sofnað und-
ir stýri er hann ók undir Hval-
fjörðinn í fyrrinótt.
Við það lenti bifreið hans
utan í gangaveggnum á þeim
stað þar sem göngin eru dýpst
og skemmdist það mikið að
lögreglan telur bifreiðina
ónýta.
Loka varð göngunum
Ökumaðurinn var fluttur á
slysadeild með sjúkrabifreið
með minniháttar meiðsli á öxl
og á fæti og mar á líkama. At-
vikið átti sér stað klukkan 4.15
aðfaranótt föstudags og því
var lítil umferð um göngin.
Loka varð göngunum í tæpa
klukkustund, á meðan sjúkra-
lið og lögregla athafnaði sig á
vettvangi.
Enn í
haldi fyrir
áreitni
LÖGREGLAN á Keflavíkur-
flugvelli rannsakar mál Pól-
verja á fimmtugsaldri, sem
handtekinn var við komu Flug-
leiðavélar til Keflavíkur frá
Lundúnum á fimmtudagskvöld
fyrir að hafa áreitt flugfreyjur
kynferðislega og ógnað þeim.
Pólverjinn gisti fanga-
geymslur lögreglunnar strax
um nóttina og var einnig í haldi
í nótt en honum verður ekki
sleppt strax, að sögn lögregl-
unnar. Verið er að yfirheyra
vitni að málinu.
Framferði mannsins var
slíkt, að nauðsynlegt þótti að
kalla til lögreglu þegar flugvél-
in lenti. Hann var mjög ölvað-
ur.
Flugfélög um allan heim hafa
tekið hart á farþegum sem hafa
verið með ósæmilega hegðan
um borð í flugvélum. Mörg
flugfélög hafa sett slíka farþega
á svartan lista og meinað þeim
að fljúga með vélum sínum.
Ný pítsukeðja
til Islands
FRÁ undirritun samningsins í Bandaríkjunum. F.v.: Eyþór Guðjóns-
son, hjá íslensku pizzagerðinni, Thomas Henry, yfirmaður þjálfunar-
deildar Little Caesar’s, Marian Ilitch, eigandi keðjunnar, og Harsha
Agadi stjórnarformaður.