Morgunblaðið - 13.02.1999, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1999
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Þúsund fermetra fræhöll verður byggð á Vöglum í Fnjóskadal
Aukin skógrækt skapar þörf
fyrir öruggt og gott fræ
FRÆHÖLL verður byggð að Vögl-
um í Fnjóskadal en samningar um
byggingu hússins voru undirritaðir
á Akureyri í gær. Fræhöllin verður
1.000 fermetrar að stærð og ólík
venjubundnum gróðurhúsum að því
leyti að hún verður allt að 8 metra
há. Bygging fræhallarinnar mun
tryggja skógi'æktarstöðina að Vögl-
um til framtíðar og skapa nokkra at-
vinnu í sveitarfélaginu.
Jón Loftsson skógræktarstjóri
sagði að byggingin myndi skjóta
styrkari stoðum undir skógrækt í
héraðinu og í kjölfar hennar yrði
hrundið af stað verkefninu Norður-
landsskógum.
Rússalerki og íslenskt birki eru
þær trjátegundir á íslandi sem mest
er gróðursett af, saman eru þær um
helmingur allrar gróðursetningar í
landinu og er útlit fyrir að svo verði
áfram. Aidrei hefur verið hægt að
treysta á að rússalerkifræ frá heppi-
legum stöðum í Rússlandi fáist
þannig að síðustu ár hefur Skóg-
rækt ríkisins keypt allt slíkt fræ frá
finnskum frægörðum. Lerki þroskar
aðeins fræ stöku sinnum hér á landi
og því ekkert sem hægt er að
byggja á. Undanfarin tvö ár hefur
ekki fengist nægilegt fræ frá
fínnsku frægörðunum og hefur því
þurft að notast við lítt þekkt og ef til
vill illa aðlöguð kvæmi sem er óvið-
unandi ástand.
Birki sem hægt er að nota í allt að
400 metra hæð, eins og á Hólasandi,
Hólsfjöllum og Haukadalsheiði
fínnst í Mývatnssveit, við Hvítár-
vatn og fleiri stöðum en það þroskar
ekki fræ nema á 10 ára fresti.
Fræskortur hefur því háð því að
hægt sé að nota birki meira í land-
græðsluskyni á hærri svæðum.
Einnig þykir ástæða til að reyna að
kynbæta íslenskt birki til að auka
vaxtarhraða þess og gera það að
verðmeiri tegund til nytja. Úr þess-
um vandamálum er hægt að bæta
með frærækt í gróðurhúsum, en
hægt er að búa til vel aðlagaðan
heimastofn af lerki, beinvaxið ís-
lenskt birki til viðarframleiðslu og
birki til landgræðslunota.
Hvergi annars staðar
í heiminum
Tilraun með lerkifrærækt hefur
staðið yfir í gróðurhúsi á Vöglum frá
árinu 1993 og sýna nýjustu tölur að
gera megi ráð fyrir framleiðslu á
a.m.k. 1.000 spírunarhæfum fræjum
á hvern fermetra í lágu gróðurhúsi.
Því gæti þurft 2.000 fermetra gróð-
urhússpláss til að framleiða allt það
lerkifræ sem notað er á Islandi ár-
lega. Lerkifrærækt í gróðurhúsi
með það að markmiði að hámarka
fræmagn og gæði er ekki stunduð
annars staðar í heiminum, en Finnar
hafa ræktað birkifræ í gróðurhúsum
í 25 ár og eru aðferðir við það vel
þekktar.
Heppilegast þykir að trjákynbóta-
og fræræktarstöð sé inn til dala á
Norður- eða Austurlandi vegna
stöðugrar vetrarveðráttu og sum-
arsólfars. Uppbygging slíkrar stöðv-
ar á Vöglum eykur einnig á fjöl-
breytni atvinnutækifæra á staðnum.
í stöðinni þar er þegar hafin fræ-
rækt á rússalerki og þremur kvæm-
um af íslensku birki en í framtíðinni
gætu fleiri tegundir bæst við, s.s.
lerkiblendingur fyrir Suðui'land,
hengibjörk og grenitegundir. Jafn-
vel skapast möguleiki á að flytja út
fræ á markað til útlanda. I fræhöll-
inni verður einnig aðstaða til að
þreskja, hreinsa og geyma fræið.
Heildarkostnaður
13 milljónir
Samið hefur verið við fyrirtækið
Grím ehf. á Húsavík um fyrsta
áfanga byggingarinnar og er gert
ráð fyrir að grind hússins verði reist
nú í sumar. Heildarkostnaður við
allt verkefnið er um 13 milljónir
króna. Áætlanir gera ráð fyrir að
fjórum árum eftir að byggingin hef-
ur verið tekin í notkun geti tekjur af
sölu fræs numið allt að fjóram millj-
ónum ki’óna á ári.
Á síðasta ári veitti landbúnaðar-
ráðherra eina milljón ki’óna til und-
irbúnings verkefnisins og á þessu
ári eru 4 milljónir króna áætlaðar til
þess. Guðmundur Bjarnason land-
búnaðarráðheiTa sagði það mikið
ánægjuefni að ráðist yrði í þetta
verk, enda væri afar mikilvægt að
Islendingar réðu sjálfír ferðinni
hvað fræöflun varðar. Aukinn áhugi
á skógrækt leiddi til þess að tryggt
þyrfti að vera að ævinlega væri til
nægt fræ í landinu.
Samið um ræktun trjáplantna
Um leið og skrifað var undir
samning um byggingu fi’æhallarinn-
ar var samningur Skógræktar ríkis-
ins við Gróðrarstöðina Grísará í
Eyjafjarðarsveit um ræktun trjá-
plantna framlengdur um eitt ár. Á
Grísará verða þannig framleiddar
295 þúsund trjáplöntur fyrir Skóg-
rækt í-íkisins en verðmæti samn-
ingsins er 7,5 milljónir króna.
Verslunarmiðstöð á Akureyrarvöllinn?
RÚMFATALAGERINN vill byggja
12.000 fermetra verslunarmiðstöð á
Akureyrarvellinum og er heildarkostn-
aður við framkvæmdir á svæðinu áætl-
aður um einn milljarður króna. Rúm-
fatalagerinn og Kaupfélag Eyfirðinga
vilja setja þar niður verslanir og munu
bæjaryfirvöld svara erindi þeirra í
næsta mánuði. Verði svar bæjaryfir-
valda jákvætt er stefnt að því að hefja
verslunarrekstur á vellinum í ágúst á
næsta ári.
Ráðgert er að í húsnæðinu verði Rúm-
fatalagerinn, KEA Nettó, minni sér-
verslanir og veitingasala.
Þegar er búið að teikna upp fyrstu
hugmyndir um uppbyggingu svæðisins,
12.000 fermetra hús og bílastæði fyrir
500 bfla. Tillöguna unnu Haraldur Áma-
son tæknifræðingur og Halldór Jóhanns-
son landslagsarkitekt en til ráðgjafar
var Pétur Bolli Jóhannesson arkitekt.
OPIÐ LAUGARDAG OG SUNNUDAG KL. 12-15
l SELTJARNARNES - EINBÝLISHÚS
i Skrifstofa okkar hefur kaupanda að góðu einbýlishúsi á Seltjarnamesi. í húsinu þurfa að vera i
| minnst 4 góð svefnherbergi. Afhending mætti vera eftir 6 til 9 mánuði. Skipti á glæsilegu \ ■
| stærra einbýlishúsi á Seltjarnarnesi koma til greina. 2856
VÆTTABORGIR - FRÁBÆRT ÚTSÝNI
| Raðhús á tveim hæðum á frábærum útsýnisstað. Innbyggður bílskúr. Stofur og eldhús uppi |
| og 3 svefnherb. niðri ásamt aukarými. Skilast tilbúin að utan en fokheld að innan. Lóð |
l grófjöfnuð. Til afhendingar strax. 1523
Stjörnuspá á Netinu
<g) mbl.is
^ALLTAF= GITTH\SAÐ NÝTT
Aðsendargreinar
á Netinu
<§> mbUs
_ALLTAF FI7~TH\SA£f NÝTT
Morgunblaðið/Margrét Þóra
,■ . •
Dal víkur kir kj a
Skáta-
messa og
vígsla
SKÁTASTARF hjá Landvætt-
um á Dalvík er í miklum blóma
um þessar mundir. Skáta-
messa verður í Dalvíkurkirkju
á morgun, sunnudaginn 14.
febrúar, kl. 14 og við hátíðlega
athöfn verða 56 skátar vígðir,
ýmist sem skátar eða ylfingar.
Á eftir verður veglegt kaffi-
hlaðborð með rjómabollum og
öðrum kræsingum í safnaðar-
heimilinu. Þar gefst gestum
kostur á að koma og njóta
góðra veitinga og styrkja
þannig skátana til farar á
Landsmót skáta á Úlfljótsvatni
í júlí í sumar, en þangað fara
66 skátar úr Landvættum á
aldrinum 10 til 15 ára og er
undirbúningur hafinn af fullum
krafti.
Þorsteinn
Gauti
leikur á
tónleikum
ÞORSTEINN Gauti Sigurðsson
píanóleikaii heldur einleikstón-
leika í Safnaðarheimili Akureyr-
arkirkju á morgun, sunnudag-
inn 14. febrúar, kl. 20.30.
Þorsteinn Gauti er tónlistar-
kennari í Reykjavík og stundaði
nám þar, í Bandaríkjunum og á
Italíu. Hann hefur haldið tón-
leika víða um lönd Evrópu og
Norður-Ameríku og unnið til
tónlistarverðlauna. Einnig hefur
hann tekið þátt í frumflutningi
samtímatónlistar og ný tónverk
verið samin sérstaklega fyrir
hann. Á tónleikum Tónlistarfé-
lags Akureyi-ar annað kvöld
leikur hann verk eftir Gershwin,
Beethoven, Chopin, Barber og
Satie.
Bingó
BINGÓ verður spilað á Bjargi
við Bugðusíðu 1 á morgun,
sunnudaginn 14. febrúar, og
hefst það kl. 14. Spilaðar verða
12 til 14 umferðir og sérstakt
barnabingó að auki. Vinningar
eru veglegir og allir velkomnir.
Aglow-
fundur
AGLOWSAMTÖKIN, Kristi-
legt félag kvenna, halda fund í
félagsmiðstöðinni Víðilundi 22 á
mánudagskvöld, 15. febrúar kl.
20. Ræðukonur verða Sólveig
og Björg úr landsstjórn Aglow.
Söngur, lofgjörð, fýrirbæna-
þjónusta og bollukaffi.
Reyndu að
grípa gæsina!
ÞÆR urðu heldur betur hissa
systumar Monika og Rakel þegar
allt í einu kom vappandi að þeim
risastór gæs þegar þær vom úti
að leika sér. „Eg er búin að gefa
henni fimm brauð, ég er líka
fimm ára,“ sagði Monika en síðan
bættu þær tveimur brauðsneiðuin
við og pakksödd gæsin hefur ef-
laust verið ánægð með móttök-
urnar í Skarðshlíðinni. Fuglinn
var gæfur og þáði brauðið nánast
úr lófa systranna, þannig að lík-
legast er að hann hafi af ein-
hverjum ástæðum villst af Anda-
polli bæjarins og út fyrir Glerá.