Morgunblaðið - 13.02.1999, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 13.02.1999, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1999 61 KIRKJUSTARF Safnaðarstarf Árbæjarkirkja - Styrkar stoðir fjölskyldunnar SR. Þorvaldur Karl Helgason bisk- upsritari verður með fyrirlestur á sunnudag kl. 13 um „Styrkar stoðir fjölskyldunnar". Verður hann hald- inn í safnaðarheimili Árbæjar- kirkju. Munið sunnudagaskólann kl. 13 á sama tíma uppi í kirkjunni. Hvetj- um við alla þá sem láta sig fjöl- skylduna og fjölskyldulíf varða að koma og eiga stund í safnaðarheim- ili kirkjunnar. Kvennakirkjan sex ára KVENNAKIRKJAN heldur guðs- þjónustu í Háteigskirkju sunnudag- inn 14. febrúar kl. 20.30. Þennan dag á Kvennakirkjan sex ára af- mæli en stofndagurinn miðast við fyrstu messuna sem haldin var í Kópavogskirkju 14. febrúar 1993. Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir pré- dikar. Anna Sigríður Helgadóttir syngur einsöng. Kór Kvennakirkj- unnar leiðir almennan söng undir stjóm Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. Á eftir verður kaffí í safnaðarheim- ilinu og aðalfundur Kvennakirkj- unnar. Messur Kvennakirkjunnar eru með frjálslegu formi, sungin eru létt sálmalög og bænastund með tónlistarívafi er fastur liður. í bænastundinni eru m.a. lesnar upp bænir sem kirkjugestir hafa skrifað á miða og sett í bænakörfu. Allir eru velkomnir í messur Kvenna- kirkjunnar. Trú og vísindi í Hallgrímskirkju DR. Jóhann Axelsson prófessor mun flytja erindi á sunnudagsmorg- un kl. 10 um trú og vísindi á fræðslumorgni í Hallgrímskirkju. Oftar en ekki hefur þessu tvennu verið stillt upp sem ósættanlegum andstæðum. Verður án efa fróðlegt að heyra hvað dr. Jóhann, sem er lífeðlisfræðingur, hefur að segja um þetta efni. Á eftir érindi hans gefst viðstöddum færi á að varpa fram fyrirspurnum. Fræðslumorgnarnir eru öllum opnir og þeim lýkur með molasopa fyrir messu sem hefst kl. 11. Létt sveifia í kvöldmessu í Hafnarfjarðar- kirkju LETT sveifla og fjörleg tónlist mun einkenna kvöldmessu, sem fer fram í Hafnarfjarðarkirkju á sunnudag og hefst kl. 20.30. Hljómsveitin Játning, sem er skipuð sex ungum mönnum, mun leika og syngja létta kristilega tón- list og frískleg lofgjörðarlög. Þess er sérstaklega vænst að fermingarbörn sæki kvöldmessuna ásamt fjölskyldum sínum, en hún er opin öllum, einkum þó þeim sem kunna vel að meta léttleika og nýja tóna í kirkjunni. Strandberg, safn- aðarheimili kirkjunnar, er opið eft- ir messuna. Prestar verða sr. Gunnþór Ingason og sr. Þórhallur Heimisson. Guðsþjónusta fer einnig fram um morguninn sem hefst kl. 11. Prestur þá er sr. Þór- hildur Ólafs. Prestar Hafnarfjarðarkirkju. Þorrahátíð eldri borgara í Grensáskirkju ÞORRAHÁTÍÐ kirkjustarfs aldr- aðra í Grensáskirkju verður næst- komandi miðvikudag, 17. febrúar. Hátíðin hefst kl. 12 á hádegi með helgistund í kirkjunni en að henni lokinni verður matur borinn fram í safnaðarheimilinu. Kvenfélagskonur sjá um fram- reiðsluna og á borðum er margvís- legt góðgæti sem hæfir árstíman- um, þorranum. Maturinn kostar aðeins 1.000 kr. á mann. Að sjálfsögðu eru allir vel- unnarar Grensáskirkju að fornu og nýju innilega velkomnir en þátttöku þarf að tilkynna fyrirfram, í síðasta lagi mánudaginn 15. febrúar. Samverustundir eldri borgara eru annars í Grensáskirkju alla mið- vikudaga kl. 14. Þangað eru líka all- ir velkomnir. Erindi í Kirkjuhvoli SR. Tómas Guðmundsson flytur er- indi um missi í Kirkjuhvoli mánu- dagskvöldið 15. febrúar kl. 21. Þetta er annað erindið sem sr. Tómas flytur í Kirkjuhvoli um sorgina. Mætum vel og heyrum fróðlegt er- indi. Sr. Hans Markús Hafsteinsson. Neskirkja. Biblíulestur kl. 10.30. Lesið úr Matteusarguðspjalli. Allir velkomnir. Sr. Frank M. Halldórs- son. Fella- og Ilólakirkja. Opið hús fyrir unglinga kl. 21. Ilafnarfjarðarkirkja. Kl. 11-12.30 opið hús í Strandbergi. Trú og mannlíf, biblíulestur og samræður. Leiðbeinendur sr. Gunnþór Ingason og Ragnhild Hansen. KEFAS, Dalvegi 24, Kópavogi. Al- menn samkoma kl. 14. Ræðumaður Björg R. Pálsdóttir. Allir hjartan- lega velkomnir. Akraneskirkja. Kirkjuskóli yngri barna (6 ára og yngri) kl. 11. TTT- starf í safnaðarheimilinu Vinaminni kl. 13. Krossinn. Unglingasamkoma kl. 20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomn- ir. BRIDS úmsjón Arnór G. Ragnarsson Bridsfélag Borgarfjarðar NÚ ER lokið aðalsveitakeppni fé- lagsins. 6. sveitir mættu til leiks og vora spilaðar tvær umferðir. Stormsveit Airnar í Miðgarði tók þegar í upphafi forystuna og í raun varð keppnin aldrei spennandi, svo mikhr vora yfirburðirnir. Keppnin um annað sætið var hins vegar hörð og munaði ekki nema sjónar- mun þegar upp var staðið. Ánnars urðu úrslit þessi: Stormsveitin 201 Stórsveit Sigurðar Einarsson 155 Steinasveitin 154 I Stormsveitinni spiluðu Örn í Miðgarði, Kristján í Bakkakoti; Jón á Kópa og Baldur í Múlakoti. I Stórsveitinni spiluðu Ketill á Ár- bakka, Haraldur í Munaðarnesi, Þorvaldur á Kleppjárnsreykjum og Sveinbjörn í Hvannatúni. Steina- sveitina, sem án efa er ein reynslu- mesta bridssveit landsins, skipuðu Steini á Hömram, heiðurshjónin Dóra og Jón í Reykholti og Unnur í Deildartungu. Bridsfélag Akureyrar Vetrarstarf félagsins stendur nú sem hæst. Akureyrarmót í sveita- keppni með þátttöku tólf sveita er langt komið, aðeins ein umferð eft- ir. Eftir spilamennsku síðasta þriðjudagskvöld var staðan þessi: 1. Sv. Stefáns G. Stefánssonar 224 2. Sv. Jónasar Róbertssonar 199 3. Sv. Bjðms Þorlákssonar 192 4. Sv. Sveinbjöms Sigurðssonar 167 Segja má að Stefán og félagar hafi tryggt sér Akureyrarmeist- aratitilinn, en tvær efstu sveitirnar eiga að spila saman í síðustu um- ferð. Fræðilega gæti Jónas þó unn- ið 25:0, jafnað metin og sigrað á unnum innbyrðis leik! Næsta þriðjudag verður spilaður ein- menningur og sveitakeppninni lýk- ur viku síðar. Ástæða þessa er sú að margir spilarar verða að spila á Bridshátíð Flugleiða og Bridssam- bands Islands um helgina og fram á mánudag. Svona kappar þurfa að vísu enga hvíld, en af fenginni reynslu gætu þeir orðið veður- tepptir! Bridsfélagið minnir einnig á sunnudagsbrids. Þar er hægt að spila kvöld og kvöld eftir hentug- leikum og allir eru hjartanlega vel- komnir. Spilað er í Hamri, félags- heimili Þórs við Skarðshlíð, og hefst spilamennska kl. 19:30. ef pantað f febrúar lr m'Am±4'A\+Am 10% afsláttur Frikirkjan I Reykjavik Guðsþjónusta kl. 14.00 í Safnaðarheimilinu. Barn borið til skírnar. Kaffisopi í guðsþjónustulok. Organisti Guðmundur Sigurðsson. Allir hjartanlega velkomnir. Hjörtur Magni Jóhannsson, fríkirkjuprestur. FRÉTTIR Kynningarfundur fyrir Rauðakrosshús og Vinalínu VINALÍNAN og Rauðakrosshús halda sameiginlegan kynningarfund um starfsemi sína í Sjálfboðamið- stöð R-RKÍ á Hverfisgötu 105, sunnudaginn 14. febrúar kl. 20 fyrir verðandi sjálfboðaliða. Rauðakrosshúsið er neyðarat- hvarf og símaþjónusta fyrir börn og unglinga 18 ára og yngri. Rauða- krosshúsið er opið allan sólarhring- inn og þar er veitt aðstoð og ráðgjöf við börn og aðstandendur þeirra. Hlutverk sjálfboðaliða er að svara í trúnaðarsímann og starfa með ung- lingum í húsinu. Vinalínan er símaþjónusta ætluð öllum 18 ára og eldri sem opin er öll kvöld kl. 20-23. Hlutverk sjálfboða- liða Vinalínunnar er að vera til stað- ar, hluta og gera sitt besta í að lið- sinna þeim sem hringja. Sjálfboðaliðum er boðið upp á námskeið í tengslum við starfsemi og handleiðslu í starfi. Að þjálfun lokinni er ætlast til að sjálfboðaliðar skili 10-12 tíma vinnuframlagi á mánuði. Aðsendar greinar á Netinu VD mbl.is ^U-Ltaf= errrH\sAÐ /vvtt Húsbréf Innlausnarverð húsbréfa Innlausnardagur 15. febrúar 1999. 1. flokkur 1989: Nafnverð: 500.000 kr. 50.000 kr. 5.000 kr. Innlausnarverð: 1.136.321 kr. 113.632 kr. 11.363 kr. 1. flokkur 1990: Nafnverð: Innlausnarverð: 500.000 kr. 1.003.232 kr. 50.000 kr. 100.323 kr. 5.000 kr. 10.032 kr. 2. flokkur 1990: Nafnverð: Innlausnarverð: 1.000.000 kr. 2.008.609 kr. 100.000 kr. 200.861 kr. 10.000 kr. 20.086 kr. 2. flokkur 1991: Nafnverð: Innlausnarverð: 1.000.000 kr. 1.867.050 kr. 100.000 kr. 186.705 kr. 10.000 kr. 18.670 kr. 3. flokkur 1992: Nafnverð: Inniausnarverð: 5.000.000 kr. 8.239.332 kr. 1.000.000 kr. 1.647.866 kr. 100.000 kr. 164.787 kr. 10.000 kr. 16.479 kr. 2. flokkur 1993: Nafnverð: Innlausnarverð: 5.000.000 kr. 7.601.371 kr. 1.000.000 kr. 1.520.274 kr. 100.000 kr. 152.027 kr. 10.000 kr. 15.203 kr. 2. flokkur 1994: Nafnverð: Inntausnarverð: 5.000.000 kr. 6.795.475 kr. 1.000.000 kr. 1.359.095 kr. 100.000 kr. 135.909 kr. 10.000 kr. 13.591 kr. 3. flokkur 1994: Nafnverð: Innlausnarverð: 5.000.000 kr. 6.671.248 kr. 1.000.000 kr. 1.334.250 kr. 100.000 kr. 133.425 kr. 10.000 kr. 13.342 kr. Innlausn húsbréfa fer fram hjá íbúðalánasjóði, í bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum og Liggja þar einnig frammi upplýsingar um útdregin húsbréf íbúðalánasjóður | Suðurlandsbraut 24 | 108 Reykjavík j Simi 569 6900 | Fax 569 6800
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.