Morgunblaðið - 13.02.1999, Blaðsíða 69
MORGUNB LAÐIÐ
_______________________________LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1999 69-
FÓLK í FRÉTTUM '
Léttklæddar á Jómfrúreyjum
I VIKUNNI kom sundfatahefti
tímaritsins „Sports Illustrated"
út en talið er að yfir 58 milljón-
ir manna í Bandaríkjunum ein-
um muni skoða blaðið. Við opin-
bera athöfn sem haldin var í
New York af þessu tilefni
smellti þýska fyrirsætan Heidi
Klun kossi á kinn Rebeccu
Romijn-Stamos en hún er for-
siðustúlka tímaritsins þetta ár-
ið. Allar myndir blaðsins voru
teknar á hinum bresku Jóm-
frúreyjum.
Ríkur
strák-
HINN ungi auðjöfur,
Richie Stachowski, fékk
nýlega að sleppa sögu-
túna í skólanum til að
ganga frá sölu á fyrirtæki
sínu „Short Stack“ til Ieik-
fangaframleiðandans „Wild
Planet Toys“. A myndinni er
Richie ásamt tíkinni sinni
Abagail og leikfangi
sem fyrirtæki hans
framleiddi. Fyr-
ii’tækið sem
hann stofnaði
árið 1996 er
metið á marg-
ar milljónir
dala.
Upprifjun á skelfingartíð
A MANUDAG boðaði ríkis-
kassinn þáttaröð um kalda stríðið,
sem ætti að vera flestu miðaldra
fólki í fersku minni með öllu sínu
samsafni af lygum, hótunum,
manndrápum og njósnum, sem yf-
ir Vesturlönd gengu á þeirri tið.
Ekkert getur raunar bætt fyrir þá
skelfingartíð, þegar almenningur
lifði við ógnir aðvífandi atóm- eða
vetnisprengja, samkvæmt því
ógnarjafnvægi, sem atómveldin
tvö, Bandaríkin og Sovétríkin
komu á legg upp úr 1947. Þá hafði
vísindamönnum og sovéskum
njósnurum tekist
að gera Sovét-
mönnum kleift að
koma sér upp
atómsprengju, en í kjölfarið komu
svo fleiri þjóðir eins og Kínverjar
og þjóðir á Indlandsskaga. Vís-
indamenn vonj nefnilega alteknir
þeirri kenningu, sumb' hverjir, að
Sovétmenn yrðu að fá atóm-
sprengju til að koma á jafnvægi.
Þá óraði aldrei fyrir því hvernig
það jafnvægi varð.
Eflaust er gagnlegt að fá sjón-
varpsþætti um kalda stríðið, sem
sagðir eru unnir samkvæmt bestu
vitund færra manna. Margur mun
þó vera þeirrar skoðunar að bíða
hefði mátt enn um sinn með heim-
ildarmyndir úr kalda stríðinu á
meðan hin tilbúna pólitiska heift
væri að renna af mönnum. Rétt er
að sósíalisminn eða kommúnism-
inn hefur nokkuð runnið af fólki
enda kýs hann nú að fara aðrar
leiðir að mannshuganum en áður.
Þar sem fyrr þótti sjálfsagt að
drepa alla andstæðinga og réttar-
kerfi heilla þjóðlanda var sniðið að
þörfum morðóðra fólkstjóra, ríkir
samhugur á yfirborðinu. Hér á
landi hefur löngum verið talið að
væri heimkynni síðasta kommún-
istans í Evrópu. Hann álítur að
hans tími sé kominn með einskon-
ar samfylkingaræði, sem á að vera
dauðahaldið þangað til rofar aftur
með nýju mafíuríki í gamla sovét
eða stóriðjuboðum (ál) frá Kína.
Til þess að þeim verði tekið þarf
auðvitað sigur samfylkingar.
Kalda stríðið var fyrst og
fremst hugarástand og ótti við
tortímingu. Þessi
ótti er enn fyrir
LAUGARDEGI hcndí. ®ins °g.í
--------------------- samskiptum vio
írak. Átök kalda stríðsins voru
SJONVARPA
margvísleg. Þau birtust í Berlín-
armúmum, þau komu í ljós í átök-
unum út af Kúbu, þegar skipsför-
um af eldflaugum Sovét var snúið
við á Atlantshafi og þau birtust í
átökum í Arabalöndum, þar sem
kennt var að hata Bandaríkja-
menn sérstaklega. Margt fleira
mætti telja. Enn hefur ekki fennt
í spor kalda stríðsins. Þess vegna
verður það að kallast nokkuð
bráðlæti að birta þætti um þetta
stríð nú strax, einkum þegar haft
er í huga, að helsta vopn öfgaafl-
anna í þessu stríði var þagnarlyg-
in. Henni hefur ekki verið aflétt
enn.
Ágætt er hjá sjónvarpsstöðvun-
um að reyna eftir megni að halda
úti gamanþáttum í stað kelerís og
söngvamynda, sem hafa af ein-
hverjum óskaplegum misskilningi
verið kallaðar „gamanmyndii'“.
Það var svolítið um hreina gaman-
semi í síðustu viku fyi’ii' utan Enn
eina stöðina. Þar má nefna Bean
(Atkinson) á Stöð 2 á fostudag og
Draugabana á ríkisrásinni á laug-
ardag. Þótt maður hafi alist upp
við öðruvísi draugatrú en fram
kemrn- í Draugabönum má hafa
gaman af myndinni. Þarna vonj
ákaflega tæknilegir draugar
sprottnir úr brellum kvikmynda-
vera og engin Ábæjarskotta sást í
þeim hópi, hvað þá Þorgeirsboli,
sem naut þeirrar frægðar að
lenda á málverki. Bean er oft
mjög fyndinn en það var eins og
hann næði sér ekki á strik í sam-
nefndri mynd á fóstudagskvöldið.
Hann gerði að vísu eins og hann
gat og hafði uppi tilkomumiklar
munngeiflur, en það þarf fleira til.
Sýndur var næstsíðasti þáttur
Foi-nbókabúðarinnar á Stöð 2 á
sunnudagskvöld. Þátturinn var
skemmtilegur og virðist hópurinn
sem sér um Búðina stöðugt sækja
í sig veðrið. Hann sýnir að hægt
er að vera innilega fyndinn án
þess að djöflast um með ærslum.
Það slys varð að bytjað var að
sýna áður sýndan þátt áður en
nýja púðrið kom. Eftir það gekk
allt vel þótt kannski ríki nokkur
óvissa um faðerni barnsins, sem
hafði komið undir hálfum mánuði
áður. En taktar konunnar voru
ekta. Hún át allt sem tönn á festi,
svo mann gæti grunað að stór-
aukning í matvörumörkuðum
væri óléttufaraldri að kenna (eða
þakka).
Indriði G. Þorsteinsson
ori/lame
Náttúrulegar sænskar snyrtivörur
Gæða snyrtivörur
á góðu verði.___
29 ár á ísiandi.
kSími 567 7838 - fax 557 3499
e-mail raha@islandia.is
www.xnet.is/oriflame
Þetta vil ég sjá
Kári Stefánsson velur listaverk
Næstsíðasta sýningarhelgi.
Szymon Kuran leikur
sími 567 4070 af fingrum fram og breytir
myndlist í tónlist kl. 15.00
í dag, laugardag og sunnu-
daginn 14. febrúar.