Morgunblaðið - 13.02.1999, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1999 25
gerðu ki-öfu um að sjóðurinn breytti
fjárfestingarstefnu sinni mjög snar-
lega. Petta þýddi hömlur fyrir sjóð-
inn bæði á innlendum og erlendum
markaði, og því væri það augljóst
mál að á meðan ekki mætti fjárfesta
nema 35% í hlutabréfum hlyti að
verða mikil breyting á fjárfestingar-
stefnu sjóðsins núna á þessu ári.
„Eg vil undirstrika að það er
nauðsynlegt að gera breytingar á
þessu og það fyrr en seinna. Fyrir
ári voru menn að tala um að lífeyiis-
sjóðirnir yrðu kannski komnir í
þessi mörk árið 2010 en þetta gerist
miklu hraðar, og ég óttast að laust
fjármagn lífeyrissjóðanna á þessu
ári vérði margfalt meira en framboð
á hlutabréfum og skuldabréfum hér
innanlands. Menn hljóta því að
verða að fá að setja fjármunina í
farveginn til útlanda, sem ég tel
vera mjög mikilvægan kost, því við
erum að afla fjár fyrir íslenska þjóð
og fyrir íslenska ríkið jafnt með
fjárfestingum erlendis sem annars
staðar. Við erum ekkert síðri í að
afla gjaldeyristekna með ávöxtun
fjármuna erlendis en sjávarútveg-
urinn íslenski," sagði Jón.
Frelsi til fjárfestinga
mikilvægt
Á fundinum gerði Mark Reinisch,
varaforseti Scudder Kemper In-
vestments, grein íyrir því hvernig
eignasamsetningu lífeyrissjóða væri
háttað í ýmsum löndum og bar sam-
an lífeyrisfyrirkomulag í Bretlandi,
Þýskalandi og Danmörku. Scudder
Kemper er meðal stærstu fjárfest-
ingarfyrirtækja í heiminum og er
það með aðalstöðvar í Boston og
New York. VÍB hefur séð um sölu á
verðbréfasjóðum fyrirtækisins hér
á landi og einnig hefur Lífeyrissjóð-
ur verslunarmanna átt bein við-
skipti við fyrirtækið.
I máli Reinisch kom fram að í
Evrópu væri mjög mismunandi eftir
löndum hvernig fjárfestingum líf-
eyrissjóða væri háttað. I Bretlandi
fjárfestu þeir um 53% í innlendum
hlutabréfum og um 9% í innlendum
verðbréfum, um 22% í erlendum
hlutabréfum og um 6% í erlendum
verðbréfum. Fjárfestingar í fast-
eignum væru þar um 2% og aðrar
fjárfestingar og peningaeign væri
um 8%. I Þýskalandi væri annað
uppi á teningnum því þar væru fjár-
festingar lífeyrissjóða í innlendum
hlutabréfum aðeins um 6%, en hins
vegar um 71% í innlendum verð-
bréfum. Þá væru fjárfestingar í er-
lendum hlutabréfum aðeins um 3%
og um 4% í erlendum verðbréfum,
en fjárfestingar í fasteignum um
13% og um 3% af eignum sjóðanna
væru í öðrum fjárfestingum eða
peningum. Enn eitt fyrirkomulag
væri svo að finna í Danmörku þar
sem fjárfestingar í innlendum
hlutabréfum væru um 17% og í inn-
lendum verðbréfum um 65%, en í
erlendum hlutabréfum næmi fjár-
festingin um 7% og í erlendum
verðbréfum aðeins 1%. Fjárfesting-
ar í fasteignum væru þar um 8% og
aðrar fjárfestingar og peningar um
2%.
Mark Reinisch greindi frá því
sjónarmiði að reglusetningar um
fjárfestingar lífeyrissjóða ættu full-
an rétt á sér. Þær yrðu hins vegar
að vera skýrar og stuðla að þvi að
lífeyrissjóðirnir næðu settum mark-
miðum, og afskipti af því hvernig
þeir höguðu fjárfestingum sínum
væru líkleg til að leiða til óhagræð-
ingar og aukinnar áhættu. Hann
sagði að niðurstaða sín væri sú að
frelsi til fjárfestinga væri greinilega
mikilvægt, og á þeim mörkuðum
þar sem fjárfestingar hefðu verið
háðar takmörkunum yrðu væntan-
lega sinnaskipti hvað varðar við-
hoi-fið til áhættufjárfestinga. Því
yrði í auknum mæli horfið frá ör-
uggum fjárí'estingum í átt til
áhættusamra fjárfestinga, en þetta
krefðist aukins skiinings á sam-
bandinu á milli áhættutöku og
hagnaðarvonar. Þá þyrfti skattaum-
hverfið að vera hagstætt og til þess
þyrfti hæfur eftirlitsaðili að vera til
staðar. Þannig sagðist hann telja að
hæfileg blanda reglusetninga og
lágmarkstakmarkana væri það sem
hentaði best fyrir lífeyrissjóða-
markaðinn.
VIÐSKIPTI
í yfirliti Mark Reinisch um horf-
umar á stærstu hlutabréfamörkuð-
unum á næstu misserum kom fram
að á síðasta ári hefði verið tæplega
25% ávöxtun að meðaltali í heimin-
um, en lökust hefði hún verið í
Kyrrahafslöndunum, eða tæplega
4%. Þegar skyggnst væri undir yfir-
borðið kæmi t.d. í ljós að í Banda-
ríkjunum þar sem ávöxtunin var
28,5% hefði hækkunin í tæknifyrir-
tækjum verið 79% en 9% lækkun í
íyrirtækjum í þungaiðnaði. Þá hefði
verið 30% lækkun í Noregi vegna olí-
unnai-, en 123% hækkun í Finnlandi
og þá fyrst og fremst vegna vel-
gengni Nokia.
Hvað varðar horfurnar á einstök-
um svæðum í heiminum sagði hann
að í Bandaríkjunum væri það já-
kvætt hve mikið væri þar af pening-
um í umferð og menn teldu að þar
yrði áfram mjög rúm lausafjárstaða
sem styrkti hlutabréfamarkaðinn.
Þá væri þess að vænta að tæknifyrir-
tæki myndu blómstra enn frekar en
á síðasta ári. Fram kom að Scudd-
er hefur mikla trú á endurskipulagn-
ingu fyrirtækja í Evrópu og sam-
runa, og einnig á tilkomu evrunn-
ar. Reinisch var jákvæður í garð
þróunarinnar í Japan þar sem fyrir-
tæki væru nú á góðu verði og hagn-
aðarstaðan betri en álitið hefur ver-
ið. Hins vegar tæki langan tíma að
snúa dæminu við í japanska efna-
hagslífinu. í löndum Austur-Asíu
sagði hann að hátt gengi á japanska
jeninu hefði orðið til hjálpar þar sem
útflutningur landanna til Japan hefði
orðið hagstæðari. Þessi ríki væru
hins vegar mörg hver skuldum vafin
og ekki búin að aflétta miklum höft-
um.
AUGLYSINGADEILD
Sími: 569 1111, Bréfsími: 569 1110
Netfang: augl@mbl.is
mbl.is
\LLT>\f= 6/777/1^10 A/Ý7~7~
JTÓRKOSTLEQ Sh,f:T N'io/0
^ febrúar
á raftækjum og eldhúsáhöldum úr sýningareldhúsum
Kælir/frystir
Mál: 141x55x60 sm.
Rétt verð kr. 48.400
Kælir/frystir **
Mál: 160x60x60 sm.
Rétt verð kr. 64.600
.w.i.iijrau. ■ nuu. rHinvau u ny.
Mál: 180x60x60 sm. Mál: 155x60x60 sm. Rétt verð 35.500
Rétt verð kr. 68.900 Rétt verð kr. 58.900
Vifta. Háfar-Vortice.
260 m3 310 m3
Rétt verö kr. 7.300 Rétt verð kr. 15.900
Rykusugur
Rétt verð kr. 9.900.
Hitakönnur
með 50% afslætti.
Grill, hellur,
djúpsteikingarpottar
til niðurfellingar í borð
750 gr. brauð-
bökunarvél
Rétt verð kr. 17.900
*ÖII verð eru staðgreiðsluverð
OPIÐ LAUGARDAG TIL KL.
LITIÐ UTLITSGALLAÐ:
KFS 3120 kælir/frystir
Glæsilegir franskir Rétt verð Verð nú kr. 29.900
stalpottar og KF$ 23gi kæ|jr/frysljr
Rétt verð 4fr5h400 Verð nú kr. 34.900
ponnur
með 50 - 75% afslætti.
IsF
16.00
Einar
Farestveit&Cohf
Borgartúni 28 U 562 2901 og 562 2900
Ofn með blæstri, Ofn með
klukku, glerhelluborði blæstri, klukku og
og viftu, hvítur. glerhelluborði, stál.
Rétt verð kr. 98.800. Rétt verð kr. 109.300
Ofn HEO 620 með
grilli og helluborði,
hvítur.
Rétt verð kr. 73.000