Morgunblaðið - 13.02.1999, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1999
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
UR VERINU
Morgunblaðið/Hafdís
LOÐNU er nú landað á höfnuni ura nánast allt land, frá Akureyri og austur, suður og vestur um til Akraness.
Hér eru loðnubátar að landa á Djúpavogi.
Kosningar á Grænlandi eftir helgina
Lítið fylgi
stj órnar flokka
Nuuk. Reuters.
STJÓRNARFLOKKARNIR á
Grænlandi, Siumut-flokkur jafnað-
armanna undir forystu Jonathans
Motzfeldts og Atassut-flokkur
frjálslyndra, tapa fylgi samkvæmt
niðurstöðum skoðanakönnunar sem
birtar voru í gær. Kosið verður til
grænlenzka heimastjórnarþingsins
á þriðjudag.
Samkvæmt könnuninni, sem
stofnunin HS Analyse gerði og birt-
ist í grænlenzka dagblaðinu
Sermitsiak, hefur vinstriflokkurinn
Inuit Ataqatigiit, sem er í stjórnar-
andstöðu, einnig tapað nokkru fylgi
meðal þeirra kjósenda sem gert
hafa upp hug sinn frá því sambæri-
leg könnun var gerð í nóvember sl.
Kosningabandalag óháðra fram-
bjóðenda hefur hins vegar næm
tvöfaldað fylgi sitt.
Um 30% aðspurðra í könnuninni
voru ennþá óákveðin, sem sam-
kvæmt frásögn Sermitsiak sýndi að
síðustu dagar kosningabaráttunnar
kunna að hafa úrslitaáhrif á hvern-
ig fer á kjördag.
I kosningabaráttunni hefur meg-
ináherzlan verið lögð á skattamál,
einkavæðingu og byggðamál. Hinir
39.000 kjósendur Grænlands hafa úr
200 frambjóðendum að velja, af list-
um hefðbundnu flokkanna þriggja
auk hins nýja bandalags óháðra.
Ekkert tilefni enn til
að auka loðnukvótann
TÖLUVERÐUR uggur er nú í
mönnum vegna þess hve lítið finnst
af loðnu og hve smá sú loðna er sem
nú veiðist fyrir Suðurlandi. Leit
rannsóknaskipsins Ama Friðriks-
sonar hefur lítinn árangur borið og
enn er ekkert sem gefur tilefni til
aukingar á kvóta. Mörg skip eru bú-
in með kvóta sinn eða eru að ljúka
honum, meðal annars öll skip Hrað-
frystihúss Eskifjarðar.
Verði engin breyting á er ljóst að
vertíðin verður afar léleg og fryst-
ingin skilar litlu sem engu. Það er
mikið áfall fyrir þau fyrirtæki, sem
byggja afkomu sína að verulegu
leyti á frystingu loðnu og sfldar, en
þar má nefna Tanga hf. á Vopna-
firði, Síldarvinnsluna í Neskaup-
stað, Hraðfrystihús Eskifjarðar,
Borgey á Höfn í Homafirði og
Vinnslustöðina og ísfélagið í Vest-
mannaeyjum. Pá vekur það athygii
hve illa haldin elzta loðnan, sú fjög-
urra ára er, og hafa vísindamenn
litlar skýringar á því.
Þónokkur loðnuskip era búin með
útgefinn kvóta og lifa menn í von-
inni um að aukið verði við loðnu-
kvótann. Hjálmar Vilhjálmsson,
leiðangursstjóri á hafrannsókna-
skipinu Árna Friðrikssyni, sagði við
Morgunblaðið í gær að ekki væri
enn tilefni til að bæta við en enn á
eftir að veiða um 232.000 tonn af um
688.000 upphafskvóta.
„Við teljum að loðnan eigi eftir að
„Ætli við förum
ekki á bæinn“
koma í nægilegum mæli. Það er
bara verst hvað hún er smá blessun-
in,“ segir Freysteinn Bjamason, út-
gerðarstjóri Sfldarvinnslunnar í Nes-
kaupstað. „Þegar skipin fóm út fyrst
eftir áramótin fundu þeir töluvert af
stórri loðnu langt í austur og hún á al-
veg eftir að skila sér. Það þýðir ekk-
ert að fara á taugum út af frysting-
unni. Það breytir engu. Við verðum
bara að taka þessu eins og verða vill.
Það er kannski frekar að japönsku
kaupendumir fari fyrr á taugum en
við og fáist ekkert nema smá loðna,
kaupa þeir hana. Þeir kaupa smærra
og smærra sfli eftir því sem dagamir
h'ða,“ segir Freysteinn.
Hann segir að það séu oftast nær
einhver leiðindi við þetta. Nú sé áta
í loðnunni og það hafi í raun bara
verið eitt ár, sem allt hafi gengið
upp, annars hafi alltaf verið eitt-
hvað til ama. „Við vonumst auðvitað
eftir kvótaaukningu, en emm ann-
ars sæmilega settir. Við eigum um
15.000 tonn eftir og getum þráazt
við í frystingunni eitthvað enn,“
segir Freysteinn Bjamason.
Sást lítið annað en sfld
Ámi Friðriksson var við loðnuleit
austur af Stokksnesi í gærkvöldi en
að sögn Hjálmars sást lítið annað en
sfld. Leiðindaveður var á svæðinu
og svo fór að siglt var til Reyðar-
fjarðar þar sem skipið var í nótt.
„Því er ekkert nýtt í stöðunni og
ekki efni til þess að auka kvótann
ennþá,“ sagði Hjálmar. „Næst ligg-
ur fyrir að komast aftur út og at-
huga málin héma fyrir austan.“
Eins og Morgunblaðið greindi frá
í gær varð Amþór EA var við
loðnutorfu austur af Rauða torginu
fyrr í vikunni. Hjálmar sagðist hafa
farið um svæðið í byrjun janúar og
orðið var við loðnu sem renndi stoð-
um undir fund Amþórs en hins veg-
ar væri ekki hægt að staðfesta neitt
fyrr en að skoðun lokinni.
„Þetta er búið
Bátar Hraðfrystihúss Eskifjarðar
fengu milli 55.000 og 60.000 tonna
kvóta og í gær átti eftir að veiða um
1.700 tonn af honum. „Þetta er búið,
við sendum bara einn bát út aftur,“
sagði Magnús Bjarnason fram-
kvæmdastjóri en um 600 tonn hafa
farið í frystingu á nýliðnum dögum.
„Þetta er afskaplega smá loðna og
óhentug, um 65 til 70 stykki í kílói.
Hún er rýrari en verið hefur á þess-
um tíma, um 2% minni fita.“
Hraðfrystihúsið hefur tekið á
móti um 30.000 tonnum af loðnu síð-
an veiði hófst á dögunum en Magn-
ús sagði að framhaldið væri í hönd-
um ráðamanna. „Við getum ekkert
frekar gert því nú er þetta undir
fiskifræðingunum komið."
Jón Kjartansson SU var á loðnu-
miðunum vestarlega í Meðallands-
bugt í gær og fékk um 150 tonn í
fyrsta kasti. „Það er talsvert af
loðnu hérna, sagði Grétar Rögn-
valdsson skipstjóri, en hann landaði
um 1.000 tonnum í síðasta túr og
um 1.500 tonnum þar á undan. „Nú
er hábjargræðistíminn en þetta er
síðasta ferð okkar. Reyndar verðum
við að vona að það verði bætt við
þetta því þeir virðast alltaf vera að
finna loðnu og við höfum á tilfinn-
ingunni að nóg sé af henni. En það
er ekki nóg, þótt mörg skip séu orð-
in kvótalaus.“
Allt upp urið
Guðni Ólafssonj stýrimaður á
Guðmundi Ólafi ÓF, tók í sama
streng. „Nú er allt uppurið og ætli
við fómm ekki á bæinn. Það verður
einhver að sjá fyrir okkur. Það er
ekkert fast í hendi og enn er enginn
kvóti í boði. Við voram búnir í nóv-
ember, burjuðum aftur 2. febrúar
og nú stefnir í bið þar til síldin kem-
ur í maí. Þetta er mjög alvarlegt
mál en við verðum að spenna greip-
ar og vona að úr rætist."
Ný myndbönd
fyrir sjófrystingu
Á sjófrystifundi er haldinn var ný-
lega var öllum framleiðendum SH
færðar myndbandsspólur sem
sýna framleiðsluferli um borð í
frystiskipi á helstu afurðum sem
frystiskipin framleiða. Alls em
þetta 7 myndbandsspólur þar sem
tekin er fyrir vinnsla á þorsk-,
ýsu-, ufsa- og karfaflökum,
heilfrystum karfa, heilfrystri grá-
lúðu sem og skelrækju, bæði
hrárri og soðinni.
Hvert myndband er 20-25 mín-
útur og er vinnsluferlið allt tekið
fyrir, frá því að troll er tekið inn
fyrir þar til varan er fullfrágengin
og komin í frystilest. Með því að
skoða myndböndin geta þeir er
koma að framleiðslunni séð hvem-
ig vinnubrögð skuli viðhöfð og
þeim er ætlað að útskýra nánar
pökkunarreglur og gæðahandbæk-
ur sem SH frystiskip fara eftir.
„Þannig er betur tryggt að
ávallt sé framleidd sú gæðavara
sem kaupendur Icelandic-vöru-
merkisins treysta á að fá. Einnig
eiga þessi myndbönd að nýtast
vel við uppfræðslu nýliða um
borð í frystiskipum," segir í frétt
frá SH.
Reuters
Enn leitað í rústunum
BJÖRGUNARMENN voru enn
að störfum í rústum lögreglu-
stöðvar í borginni Samara í Mið-
Rússlandi í gær en þar fórust að
minnsta kosti tuttugu og níu í
miklum eldsvoða á miðviku-
dagskvöld. Á fjórða tug manna
var ennþá saknað. Hafði það
tekið slökkvilið fimmtán
klukkustundir að ráða niðurlög-
um eldsins og er byggingin talin
gjörónýt.
Færeyingar huga
að úrbótum í
samgöngumálum
Þdrshöfn. Morgunblaðið.
í SKÝRSLU nefndar á vegum at-
vinnu- og samgöngumálaráðherra
færeysku landstjórnarinnar er lagt
til að eigi samgöngur milli færeysku
eyjanna 18 að vera með viðunandi
hætti, verði á næstu tíu til fimmtán
ámm að fjárfesta fyrir tæpan millj-
arð danskra króna í gangagerð og
áætlunarsiglingum. Skýrslan sem
er tilkomin vegna áherslu land-
stjómarinnar á nauðsyn langtíma-
stefnumótunar í málum sem varða
uppbyggingu innra skipulags í
Færeyjum, verður tekin til umfjöll-
unar í færeyska þinginu í næstu
viku.
Samkvæmt skýrslunni er talin rík
nauðsyn á að framtíðarfjárfesting
taki til kaupa á nýjum áætlunarferj-
um þar sem margar þeirra sem fyr-
ir era, em bæði komnar til ára
sinna og uppfylla ekki öryggiskröf-
ur Alþjóðasiglingamálastofnunar-
innar (IMO). Finnbogi Arge, land-
stjórnarmaður úr færeyska Fólka-
flokknum, leggur þó áherslu á að
það beri ekki að líta á skýrsluna
sem endurtekningu á fyrri öldu
fjárfestinga landstjórnarinnar í
vega-, hafnar- og gangagerð, sem
átti sinn þátt í að efnahagsþreng-
ingar Færeyja urðu eins miklar og
raun bar vitni í upphafi áratugarins.
En sú efnahagskreppa varð einmitt
tilefni mikillar gagnrýni frá dönsk-
um stjórnvöldum.
Landstjórnarmaðurinn leggm’
áherslu á að samgönguskýrslan sé
unnin í því augnamiði að Færeying-
ar geti lagt fram langtlmaáætlanir
þegar kemur að fjárfestingum. „Við
viljum ekki fjárfestingar í sam-
göngumannvirkjum, sem ekki eru
liður í víðtækara skipulagi innan-
lands. Markmiðið með skýrslugerð-
inni er að við geram okkur skýra
grein fyrir því hvar nauðsyn er á
fjárfestingum, þannig að ákveðinn
grannur sé til staðar þegar kemur
að ákvarðanatöku."
I skýrslunni er bent á að brýn
nauðsyn sé á að Færeyingar fjár-
festi í fleiri nýjum áætlunarferjum
og er sérstaklega bent á áætlunar-
ferjuna Smyril í því samhengi.
Færeyski ferjuflotinn er orðinn
gamall þar sem meðalaldur skipa er
um þrjátíu ár. Samkvæmt Finnboga
Arge nær Smyrill ekki að uppfylla
öryggiskröfur og siglir ferjan því
með undanþágu í nokkur ár til við-
bótar. Á annarri ferjuleið, milli
Sandeyjar og Straumeyjar, eru
áætlunarferðir einnig háðar undan-
þágu þangað til ný ferja verður til-
búin til notkunar á næsta ári.
I