Morgunblaðið - 13.02.1999, Síða 28
28 LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Viðræður um frið í
Kosovo í hörðum hnút
París. Reuters.
FULLTRÚAR Serba í Kosovo-við-
ræðunum hóta að hætta þeim nema
albönsku fulltrúamir undirriti lista
yfir 10 ófrávíkjanleg grundvallarat-
riði. Lýsti Milan Milutinovic, forseti
Serbíu, þessu yfir í gær og neitaði
því jafnframt, að stjórnin í Belgrad
reyndi að tefja fyrir í friðarviðræð-
unum.
„Ef þeir undimta listann, mun-
um við halda viðræðunum áfram en
að öðrum kosti ekki,“ sagði
Milutinovic í viðtali við Reuters-
fréttastofuna í gær. Sagði hann, að
ríkin sex, sem mynda Tengslahóp-
inn svokallaða, hefðu sjálf lagt fram
umrædd grundvallaratriði þegar
s
Aratugur
frá dauða-
dómi yfir
Rushdie
Á MORGUN verða Iiðin tíu ár
frá því að Ayatoliah Ruhollah
Khomeini, erkiklerkur í Iran,
dæmdi rithöfundinn breska
Salman Rushdie til dauða sam-
kvæmt íslömskum lögum vegna
bókarinnar Söngvar Satans. I
gær mátti lesa á stórum borð-
um er strengdir höfðu verið
upp við moskur í Teheran, höf-
uðborg Irans, að dauðadadóm-
urinn, „fatwa“, væri enn í fullu
gildi, auk þess sem hvatt var til
þess að honum yrði fullnægt hið
fyrsta. Stjórnvöld í Iran hafa þó
lýst því yfir að þau muni ekki
beita sér opinberlega fyrir því
að Rushdie verði banað.
Hópur indverskra múslima
kom saman fyrir framan Jama
Masjid moskuna í Nýju-Dehlí í
gær og brenndu brúðu af Salm-
an Rushdie til þess að mótmæla
ákvörðun sljórnvalda um að
veita rithöfundinum vegabréfs-
áritun til Indlands.
þau boðuðu til viðræðnanna og sak-
aði hann Vesturlönd um óvild í garð
Serba.
„Þau standa vörð um Albani en
ráðast á okkur,“ sagði Milutinovic.
„Þessi grundvallaratriði eru frá
þeim komin, ekki okkur.“
Robert Cook, utanríkisráðherra
Bretlands, sakaði Serba í fyrradag
um að reyna að spilla viðræðunum
með því krefjast þess, að Albanir
undirrituðu umrædd gnmdvallarat-
riði. Meðal þeiiTa er, að engin breyt-
ing verði á landamærum Júgóslavíu;
haldnai’ verði frjálsar kosningar,
pólitískum föngum gefnar upp sakir
og réttindi minnihlutahópa ti’yggð.
Lagði Tengslahópurinn atriðin
fram sem umræðuramma en Serbar
líta svo á, að þau eigi að gilda um
alla framtíð en Albanir, að þau taki
aðeins til næstu þriggja ára. Að
þeim loknum vilja þeir, að efnt verði
til þjóðaratkvæðagreiðslu í Kosovo
um fullt sjálfstæði landsins.
Milutinovic sakaði vestrænu
milligöngumennina um að hafa
komið í veg fyrir, að fulltrúar Serba
og Albana ræddust við en því er vís-
að á bug. Ástæðan sé sú, að hvorug-
ir vilji ræða við aðra fyrr en fallist
hafi verið á tiltekin skilyrði. Serbar
veifi listanum með áðurnefndum
gi’undvallaratriðum en Albanir vilji,
að stjórnin í Belgrad lýsi strax yfir
vopnahléi í Kosovo.
Bosnía að veði?
Jiri Dienstbier, sérstakm’ ráðgjafi
Sameinuðu þjóðanna í málefnum Jú-
góslavíu fyiTverandi, sagði í gær í
Zagreb í Kiúatíu, að yrði ekki samið
um, að Kosovo yi’ði áfram innan
landamæra Júgóslavíu, væri mikil
hætta á, að Bosnía skiptist upp á
milli þjóðarbrotanna. Færu fulltiúai’
þeirra í sambandsstjóminni í Sai’a-
jevo sér mjög hægt við að byggja
upp sambandsríkið til að geta tekið
afstöðu með sinu fólki kæmi til þess,
að Kosovo fengi sjálfstæði.
Reuters
Stokkið frá
stjórnvelinum
GERHARD Schröder, kanzlari
Þýzkalands, stekkur hér niður úr
bflstjórasæti fyrsta benzínknúna
bfls heimsins, sem Karl Benz
smiðaði fyrir rúmri öld. Jiirgen
E. Schrempp, forstjóri Daim-
lerChrysler, framleiðanda
Mercedes Benz-bfla, býr sig und-
ir að stíga niður úr þessu merka
farartæki, sem geymt er í sögu-
safni Benz-verksmiðjanna í Stutt-
gart. Schröder var í óopinberri
heimsókn þar í gær.
-------------
Nýburar í
ESB aldrei
færri
NÝBURAR í aðildarlöndum Evr-
ópusambandsins (ESB) voru færri á
liðnu ári en nokkm sinni frá því eft-
ir lok síðari heimsstyrjaldar, eða
4.01 milljón. Árið 1997 fæddust 4,05
milljónir barna í ESB-löndunum 15.
Hagstofa ESB, Eurostat, greindi
frá þessu í gær.
í fréttatilkynningu frá stofnun-
inni segir, að útlit sé fyrir að í
næstu framtíð haldi fæðingum í
sambandinu áfram að fækka, þar
sem þá séu konur úr þeim stóru ár-
göngum sem fæddust á fyrri hluta
sjöunda áratugarins óðum að kom-
ast úr barneign. Þá verði meirihluti
kvenna á bameignaraldri fæddur á
árabilinu 1965-1975, en þessir ár-
gangar eru minni en þeir sem á
undan komu.
2000-2100
Samtök um betri byggð
ERINDI UM HOFUÐBORG NÆSTU ALDAR
Orn Sigurðsson, nrkitekt
Pétur H. Ármunnsson, orkitekt
Steinunn Jóhonnesdóttir, rithöfundur
GESTUR FUNDARINS
Friðrik Honsen Guðmundsson,
verkfræðingur kynnir tilboð
Vatnsmýrorinnar hf um byggingu
flugvallar í Skerjafirði og
íbúabyggð í Vatnsmýri
Stofnfundur Samtaka
um betri byggð
á höfuðborgarsvæðinu
verður í stofu 101
Hugvísindahúsi
Háskóla Islands
(Odda) sunnudaginn
14. februar kl. 14:00
Markmiö Samtaka um betri
byggð verður að móta nýjar hugmyndir
um umhverfis- og byggðamál meö
áherslu á þéttingu og endurnýjun byggóar
og hafa áhrif á mótun skipulagsstefnu til langs tíma.
Allir velkomnir!
Rannsóknin á spillingu iiman ESB
Gremja vegna
hás kostnaðar
HINIR fimm meðlimir sérfræðinga-
nefndarinnai’, sem skipuð var til að
rannsaka ásakanir um fjái’svik, spill-
ingu og einkavinavæðingu innan
framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins (ESB), fá samtals vel yfir
sex milljónir króna í laun fyrir verk-
efnið, sem tekur þá um fjórar vikur
að vinna. Danska blaðið Jyllands-
Posten greindi frá þessu í gær.
Mun hafa orðið vart við gremju
meðal Evi’ópuþingmanna vegna þess
hve háar greiðslur hinir fimm lög- og
hagfróðu sérfræðingar fá greiddar,
en þeim var falið að kanna til hlítar
þær ásakanir sem í byrjun ársins
urðu til þess að tillaga um vantraust
á framkvæmdastjórnina var borin
upp á Evrópuþinginu. Er þeim ætlað
að skila skýrslu um rannsóknina 15.
marz nk.
Segii’ Jyllands-posten iaun hvers og
eins í nefndinni vera yfir 1250.000
ísl.kr. fyrii’ mánaðai’vinnu. Þar fyrii’
utan fái þeir allan kostnað sem hlýzt
af vinnslu verkefnisins gi-eiddan.
Heildai’kostnaðm- verkefnisins verði
þannig vei yfir sex milljónum króna,
en samkvæmt óstaðfestum heimildum
eiga mennimir að fá mun meira í sinn
hlut. Nefndi franskt blað töluna 2,3
milljónir ísl.kr. á mann. Hafa nokkrir
Evrópuþingmenn beðið forseta þings-
ins, Jose Maria Gil-Robles, um að
staðfesta hver sé rétta upphæðin.
Hamalainen gagnrýnd
En það eru fleiri en Evrópuþing-
menn sem hafa eitthvað við greiðslur
til starfsmanna ESB að athuga.
Finnskir þingmenn og talsmenn
finnsku þjóðkirkjunnar gagnrýndu í
gær Sirkku Hamálainen, sem situr
fyi-ir hönd Finna í bankastjórn Evr-
ópska seðlabankans, íyrir að þiggja
rausnarleg eftirlaun sem fyi-rverandi
seðlabankastjóri Finnlands á sama
tíma og hún gegnfr vel launuðu starfi
í Frankfurt.