Morgunblaðið - 13.02.1999, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1999 31
VÍGBÚNAÐUR EÞÍÓPÍU OG ERÍTREU
i
Grannríkin Erítrea og Eþíópía, sem eitt sinn voru bandamenn, hafa vígbúiz
mjög frá því í maí á síðasta ári, þegar deila um landamæri ríkjanna óx í
stríð. Hlé varð á átökum í júní en þau hófust á ný um síðustu helgi.
Á fimmtudag höfnuðu stjórnir beggja rikja áskorun öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna um að hætta átökunum.
Russnesk MiG-29
RAUÐAHAF
Zalambessa
Adigrat
Nýleg
átðk
Svæði sem
deilt er um
Frá þvi i mai 1998 hafa yfir 52.000 Eritreumenn verið reknir
frá Eþíópiu og um 22.000 Eþíópíumenn hafa yfirgefið Eritreu,
flestir eftir að hafa misst atvinnu. Allt að 250.000 manns
hafa neyðzt til að yfirgefa heimili sin vegna átakanna.
Eþíópía 100.000 Hermenn t Erítrea 46.000
64 Herflugvélar 20-25
39 MiG-21 8
16 MiG-23 2
5 MiG-27
- MiG-29 5-10
4 SU-27 -
- MB-339 5
24+ Herþyrlur V-4- 4
131 millj. (2,02%) Útgjöld til vamarmála* 65 millj. (8,33%)
• Áætlað fyrirárið 1998 iBandarikjadölum og sem hlutfall af vergri landsframleiðslu 199
Heimildir: IISS, Jane’s Information Group, Amnesty Internationí
Varað við fyrsta
„hátæknistríði“
Afrrkubúa
Nairobi. The Daily Telegraph.
MOHAMED Sahnoun, sendimaður
Sameinuðu þjóðanna, varaði á
fímmtudag við því að átök Eþíópíu-
manna og Erítreumanna vegna
landamæradeilu þeirra gætu orðið
að „fyrsta hátæknistríði Afríku“.
Sahnoun sagði að þessi
„heimskulegu“ átök hefðu hafíst
vegna mikillar hernaðaruppbygg-
ingar í Afríkuríkjunum, sem hafa
eytt hundruðum milljóna króna í
nýjar vígvélar frá því deilan bloss-
aði upp í maí. Hætta væri á „alls-
herjarstríði með hryllilegri eyði-
leggingu og skelfilegum afleiðing-
um í þessum heimshluta".
Bandarískir ríkisborgarar
hvattir til að hafa sig á brott
Öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna hefur samþykkt ályktun þar
sem öll ríki heims eru hvött til að
„binda strax enda á alla vopna-
sölu“ til Afríkuríkjanna tveggja.
Ráðið bannaði þó ekki vopnasöl-
una og líklegt er að ályktunin
komi of seint til að hindra alls-
herjarstríð, sem hvorugar þjóð-
irnar hafa efni á.
Bandaríkjastjórn hefur hvatt
alla bandaríska borgara í báðum
löndunum að fara þaðan vegna
átakanna.
Erítreumenn sökuðu í gær
Eþíópíumenn um að hafa drepið
yfír tug óbreyttra borgara í
sprengjuárásum á þorp nærri
landamærabænum Zalambessa,
sem ríkin tvö deila um yfirráðin
yfir.
Suzuki Vilara jepparnir
voru þeir vinsælustu og
mest keyptu í Evrópu árið
1998 (eins og 1997).*
Crand Vitara 2,0L 2.179.000 kr.
Crand Vitara
Exclusive 2,5L, V6 2.589.000 kr.
Vitara JLXSE, Sd 1.830.000 kr.
Vitara Diesel Sd 2.180.000 kr.
$ SUZUKI
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
Heimasíða: www.suzukibilar.is
Frekari
snjóflóð
í Olpunum
FIMM fórust í snjóflóðum í
frönsku Olpunum í gær og er
því tala látinna vegna snjóflóða
í Frakklandi í þessari viku
komin í átján en þrettán munu
hafa farist í snjóflóðinu mann-
skæða á þriðjudag. Fórust þrír
í snjóflóðum í Les Arcs í gær
og tveir í Val d’Isere en snjó-
koma hefur verið afar mikil á
þessu svæði upp á síðkastið.
Jarðskjáifti
í Afganistan
TALIÐ er að fimmtíu manns
hafí látið lífíð og 200 særst er
öflugur jarðskjálfti reið yfír
Kabúl, höfuðborg Afganistan,
og nærliggjandi svæði á
fimmtudagsnótt, samkvæmt
heimildum frá útvarpsstöð Ta-
lebana á svæðinu. Enn er óvíst
um endanlegan fjölda látinna,
en talsverðar skemmdir hafa
orðið á eignum. Jarðskjálftinn
mældist 5,5 á Richterskvarða.
Tveir öflugir jarðskjálftar urðu
í norðausturhluta Afganistan í
fyrra, sem urðu um 8.000
manns að bana og lögðu mörg
þorp í eyði.
Folksfjöldi
fer vaxandi
SAMEINUÐU þjóðirnar (SP)
hafa birt sláandi tölur um vax-
andi íbúafjölda á jörðinni. í>ví
er spáð að jarðarbúar verði um
sex milljarðar í október 1999.
A hverju ári fæðast um 78
milljónir manna, sem jafngildir
íbúafjölda Frakklands, Grikk-
lands og Svíþjóðar samanlögð-
um. Þrátt fyrir að fæðingar-
tíðni fari minnkandi, hefur það
ekki áhrif á aukninguna því
fleiri fæðast en deyja ár hvert.
Með þessu áframhaldi verður
íbúafjöldi kominn í 10,7 millj-
arða árið 2050. Hins vegar spá
SÞ að frjósemi fólks minnki
verulega sem minnki fjöldann
niður í 8,9 milljarða.
Pólland aðili
að NATO
PÓLLAND mun formlega
verða aðili að varnarsambandi
Atlantshafsbandalagsins,
NATO, 12. mars á þessu ári,
sagði Pawel Dobrowolski, tals-
maður pólska utanríkisráðu-
neytisins, sl. fimmtudag. Aðild
að NATO er beðið með eftir-
væntingu í Póllandi, þar sem
hún er af mörgum talin trygg-
ing þess að landið verði aldrei
framar undir stjórn Rúss-
lands.
Tuttugu þúsund
Angólar flýja
ALLT að 20.000 manns hafa
nú flúið yfir til Lýðveldisins
Kongó og Sambíu vegna stríðs-
átaka í Angóla sem brutust út í
desember á síðasta ári, að því
er fram kom hjá Sameinuðu
þjóðunum (SÞ) í gær. Átök
brutust enn á ný út milli
stjórnarhersins og UNITA-
skæruliða í desember á síðasta
ári en friðarsamkomulag hafði
verið gert milli stríðandi aðila
árið 1994. Mikill meirihluti
flóttamanna er í Lýðveldinu
Kongó, en einnig eru nokkur
hundruð í Sambíu og á flótta í
eigin landi.