Morgunblaðið - 13.02.1999, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 13. FEBRÚAR 1999 83
í þessari litlu dæmisögu sjáum
við megineinkenni fælni eins og
hún birtist hjá mönnum. Það þarf
bara að lenda í einhverjum aðstæð-
um einu sinni til þess að þróa með
sér fælni. I sögunni er einnig lykill-
inn að meðhöndlun kvillans."
Orsökin skiptir ekki máli
Fælni er, eins og áður segir,
meðhöndlanleg í nánast öllum til-
fellum. Eiríkur segir að fyrst í stað
verði að komast að því að hverju
óttinn beinist, við hvaða aðstæður
fælnin komi fram og hvaða afleið-
ingai- hún hafi. „Orsökin í sjálfu sér
skiptir ekki máli. Það þarf að búa
einstaklinginn undir að takast á við
fælnina og vandann í framtíðinni.
F ælnin lagast ekki þó að maður viti
hugsanlega orsök.
Viðkomandi eru síðan kennd við-
brögð í stað þessara svonefndu
„geigviðbragða“ sem hann hefur
tileinkað sér: hann þarf einkum að
læra að takast á við þær hugsanir
sem tengjast þeim kringumstæð-
um sem framkalla fælnina. Þá þarf
hann að takast á við hin líffræði-
legu viðbrögð. En þá eru fólki
t.a.m. kennd viðbrögð sem ekki
samrýmast þeim viðbrögðum, t.d.
með slökun. Þegar viðkomandi hef-
ur lært að höndla hugræn og lík-
amleg viðbrögð þá er að takast á
við aðstæðumar og atferlið sjálft.“
Lyftufælni er dæmigerð en lík-
lega hefur hinn fælni orðið fyrir því
að lokast inni í lyftu. Eiríkur kveður
það mjög bagalegt og óþægilegt að
geta ekki farið í lyftu. „Hinum fælna
líður illa fyrir framan lyftuna og vel-
ur að ganga upp stigann. Við þá
hliðrun fínnur hann til léttis en jafn-
framt veit hann að hann hefur beðið
Fælni í
hnotskurn
FÆLNI einkennist í senn
af 1) hugsunum; t.d. ótta við
að missa stjórn á sjálfum
sér og gera sjálfan sig að at-
hlægi, 2) atferli; flóttavið-
brögð og/eða „hliðrun", 3)
og lífeðlislegum viðbrögð-
um; „hrökkva eða stökkva"
. viðbrögðin einkennast af _
svita, hitakófi eða
hrollkulda, hjartsláttaró-
reglu eða örum hjartslætti,
andnauð eða andþrengslum,
yfirliðstilfínningu, almennri
vanlíðan, handskjálfta, að
eiga erfitt um mál og al-
mennri vanlíðan.
Heimildir eru m.a. fengnar úr grein
dr. Eiriks Arnar Amarssonar í
íslensku sálfrædibúkinni. Mál og
menning 1993.
hefur hún náð tökum á fælninni
að miklu leyti, með sfnum að-
ferðum. Þegar hún fer til læknis
í dag skýrir hún viðkomandi frá
fælninni og spyr hvort hann sé
reiðubúinn að taka við sér á
þeim forsendum. Hún segist
einnig setja skilyrði í sambandi
við meðferðina sem langflestir
gangi að.
„Eg fer fram á að viðkomandi
læknir segi mér hvað hann ætli
að gera, og ég samþykki það eða
ekki. Sem ég geri alltaf," segir
Lára og hlær við. „Hann þarf
líka að áætla tíma og segja mér
þegar hann tekur hvert skref
fyrir sig og ég læt hann vita
hvenær hann má byrja. Og þá er
þetta ekkert mál.
Ég er bara nokkuð ánægð með
mig í dag. Ég er t.d. steinhætt að
finna fyrir óþægindum í sam-
bandi við lyftur. Fyrir nokkrum
árum var gert við tönn í mér í
fyrsta skipti eins og ekkert væri.
Ég sveif niður Laugaveginn og
sagði öllum sem ég hitti að það
hefði verið gert við tönn í mér.
Að vonum skildi enginn nema
mamma af hverju ég var svona
upp með mér,“ segir Lára að
lokum og brosir.
alast upp með einhverjum sem er
fælinn en þá tOeinkar viðkomandi
sér einkenni þess sem haldinn er
fælni. Barn skynjar auðvitað ákaf-
ar tilfinningar foreldris.
Einnig er hægt að verða fælinn
af því að sjá fælniviðbrögð hjá ein-
hverjum, t.d. í kvikmynd eða á leik-
sviði. En fælni sem þannig er til-
komin er kannski óalgengust."
Dr. Eiríkur leggur áherslu á að
bregðast verði við fælni því hún
geti ágerst og færst yfir á önnur
svið og kringumstæður. „Því bregð-
ur við að fólk vilji halda í óttann
sem tengist fælninni til að fá stað-
festingu á því að óttinn sé rökrænn.
Flugfælnir lesa t.d. um flugslys í
fjölmiðlum og eru sérfræðingar á
því sviði. Svona sértæk athygli er
tO þess fallin að viðhalda fælninni,"
segir dr. Eiríkur að lokum.
ósigur því óttinn við lyftuna lagast
ekki við að velja stigann. Því oftar
sem menn velja stigann því betur
festist óttinn í sessi. A endanum get-
ur hinn fælni ekki undir neinum
ki-ingumstæðum farið í lyftu.
Þarna eru þessi sömu viðbrögð
og hjá hestinum. 1. lenda í erfiðum
aðstæðum; 2. hliðra sér hjá kring-
umstæðunum; 3. sýna ákveðin ótta-
viðbrögð. I raun er um að ræða
samspil fjögurra þátta; sterk lífeðl-
isleg viðbrögð; hugsanir sem tengj-
ast kringumstæðunum; atferlið þ.e.
hliðrunin; í fjórða lagi óttatilfinn-
ingin sem tengist þessu.“
Margar ástæður fælni
Morgunblaðið/RAX
VÍÐÁTTUFÆLINN einstaklingur óttast m.a. að vera innan um fólk.
Ekki þarf alltaf raunverulegan
atburð eða slæma reynslu til að
verða fælinn, að sögn dr. Eiríks.
„Hægt er að verða fælinn af því að
NÚ |R HANN
YFIR TUTTUOU MILUÓNIR
f FYRSTA VINNINGl
Ekki láta þetta einstaka tækifæri renna þér úr greipum.
Ekki standa fastur í biðröð með vinningstölurnar þegar sölustöðum verður lokað.
Tryggðu þér miða strax!
JokeR
Tak-fo Jókermn mcá,
Kawerah^gnjiHjón/
/ þágu öryrkia.