Morgunblaðið - 18.02.1999, Síða 4

Morgunblaðið - 18.02.1999, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Una sér vel á Blönduósi RJÚPUR hafa iðulega gert sig heimakomnar á Blönduósi og þess- ar undu hag sínum vel í Fagra- hvammi, sem er rétt við Blöndu. Ti-úlega hefur þó bætt við snjóinn þar í nótt. Heimamenn kalla þær staðarrjúpumar, enda verpa þær við bæinn og eru ófeimnar við gesti og gangandi þar um slóðir. Oshlíð lokað vegna snjóflóða VEGINUM um Óshlíð var lokað klukkan tíu í gærkvöldi vegna snjó- flóðahættu, Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni á Isafirði féllu að minnsta kosti þrjú snjóflóð á veginn í gær- kvöldi. Vegna snjóflóðahættu um kvöldið var ákveðið að reyna ekki að opna veginn fyrr en nú í dag. Sam- kvæmt upplýsingum frá lögreglu skömmu fyrir miðnætti hafði þó dregið úr hættunni enda komið logn. Búist er við að leiðin verði opnuð fyrir hádegi ef veður leyfir og reynt verður að halda henni opinni fram á kvöld. Þá er búist við að veðrið versni til muna. Veðurstofan gerir ráð fyrir suð- austan stinningskalda með snjó- komu víða um land í dag. Búist er við hvassviðri eða stormi með snjó- komu eða skafrenningi norðvestantil síðdegis og um allt norðanvert land- ið í kvöld. Spáð er vetrarhörkum fram yfir helgi með ofanhríð og skafrenningi og um 10 stiga frosti. Framkvæmdir við Borgarfjarðarbraut Leyfí veitt fyrir lagningu vegar í landi Steðja HREPPSNEFND hins nýja sveit- arfélags í Borgarfirði (Sveitarfé- lags Borgarfjarðar) ákvað á fundi sínum í fyrri viku að leyfa vegagerð utan vegasvæðis í landi Steðja. Að sögn Auðuns Hálfdánarsonar deild- arstjóra hjá Vegagerðinni verður nú gengið til samninga við Stefán Eggertsson bónda á Steðjum um framhald framkvæmda og líklegt að hafist verði handa eftir u.þ.b. mánuð. Framkvæmdir við neðri hluta Borgarfjarðarbrautar hófust í lok nóvember en hreppsnefnd hafði ákveðið á fundi sínum 12. nóvember síðastliðið haust að afturkalla leyfi hvað varðar framkvæmdir í landi Steðja eftir að kæra hafði borist frá ábúanda þar, Stefáni Eggertssyni. Þegar hreppsnefnd ákvað að fresta afgreiðslu málsins var það í höndum úrskurðarnefndar skipu- lags- og byggingarlaga sem hefur þar af leiðandi ekki enn úrskurðað um kæruatriði. Þórunn Gestsdóttir sveitarstjóri sveitarfélagsins í Borgarfirði segir að fram hafi komið í úrskurði Skipulagsstofnunar, frá því 20. október 1998, að hreppsnefnd hafi gætt meðalhófs- og jafnræðisreglna varðandi málið. Stofnunin telji ekki ástæðu til sérstaks mats á um- hverfisáhrifum eða sérstakrar skipulagsmeðferðar. Auk þess hafi Náttúruvernd ríkisins ekki gert at- hugasemd við færslu vegarins á umræddum kafla. Vegagerðin hafi ennfremur upplýst hreppsnefnd um að hönnun vegarkaflans sé miðuð við 80 km ökuhraða á klst. „Vegna alls þessa samþykkti hreppsnefnd að veita Vegagerðinni framkvæmdaleyfi til að breyta legu Borgarfjarðarbrautar ofan Flóka- dalsár um svokallaða Steðjabrekku á um það bil 500 m kafla,“ segir Þórunn. Hún áréttar ennfremur að hreppsnefndin leggi áherslu á að Vegagerðin geri allt sem unnt er til að tryggja umferðaröryggi á áður- nefndum vegarkafla. Varðandi efnistöku úr landi Steðja, segir Þórunn að Vegagerðin hafi lýst vilja sínum tii að haga efn- istöku og frágangi við efnistökustað í sem mestu samráði við eiganda landsins. Þórunn segir hreppsnefnd hafa reynt að taka tillit til sjónarmiða allra aðila sem að málinu koma. „Við teljum að við höfum farið að öllu með gát. Það er búið að kanna alla snertifleti málsins og hvernig það snýr að þeim aðilum sem málið varðar. Og þetta er niðurstaðan sem hreppsnefndin hefur komist að.“ Morgunblaðið/Jón Sig. Síkveiki- búnaður Dornier-vél- arinnar ekki rétt stilltur RANNSÓKNARNEFND flug- slysa telur sig hafa komist að því hvers vegna drapst á öðr- um hreyfli Dornier-vélar skömmu eftir fiugtak á Sauð- árkróki á mánudagskvöldið. Að sögn nefndarmanna er ástæðan sú að svokallaður síkveikibúnaður vinstri hreyf- ilsins var ekki rétt stilltur mið- að við aðstæður. „Hreyflar vélanna era hann- aðir til að þola ísingu og fram- leiðendur þeiraa hafa sent frá sér upplýsingabréf með upp- lýsingum um hvemig eigi að stilla þá við svona aðstæður og síðast í desember var send út ítrekun um þetta. Það er ljóst að ísing hefur sest á loftinntak hreyflanna og við teljum víst að þar sem síkveikibúnaðurinn á vinstri hreyflinum var ekki stilltur í samræmi við aðstæður hafi drepist á honum,“ sagði Skúli Jón Sigurðarson formaður rannsóknamefndar flugslysa. Héraðsdómur segir Landsbanka skylt að afhenda upplýsingar um innstæður Ekki ólíklegt að málinu verði áfrýjað LANDSBANKI íslands hf. var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdur til að afhenda ríkisskatt- stjóra upplýsingar um innstæður, vaxtatekjur og afdregna stað- greiðslu 1.347 einstaklinga á árinu 1997. Hafði bankinn áður hafnað þessari beiðni ríkisskattstjóra og borið fyrir sig bankaleynd. Rök rík- isskattstjóra fyrir beiðninni eru þau að embættið geti vegna rannsóknar á skilaskyldu eða staðgreiðslu skatta krafist gagna frá ákveðnum aðilum, þar með talið bönkum. Halldór J. Kristjánsson, banka- stjóri og formaður Sambands ís- lenskra viðskiptabanka, segir mála- reksturinn gagnvart Landsbanka og sparisjóðum og því hafi Samband íslenskra viðskiptabanka annast málsvörn. Málið kemur til í fram- haldi af neitun banka og sparisjóða á beiðni skattyfirvalda um upplýs- ingar um viðskiptamenn. Hann kvaðst ekki hafa haft tækifæri til að kynna sér forsendur dómsniður- stöðunnar en taldi ekki ólíklegt að málinu yrði áfrýjað. „Bankamir vilja eiga gott sam- starf við skattyfírvöld en við höfum talið þetta alltof víðtæka upplýs- ingabeiðni af hálfu ríkisskattstjóra og því tók stjóm Sambands ís- lenskra viðskiptabanka þá ákvörðun að láta reyna á málið fyrir dómi. Þetta er það þýðingarmikið mál í augum banka að ég tel ekki ólíklegt að því verði áfrýjað," sagði Halldór en kvaðst ekki hafa haft tækifæri til að ræða dóminn við lögfræðing sambandsins í málinu og í stjórn SÍV. Afdráttarlaus niðurstaða „Það er afdráttarlaus niðurstaða dómsins að bankanum beri að af- henda þær upplýsingar sem óskað var eftir,“ sagði Indriði H. Þorláks- son ríkisskattstjóri í samtali við Morgunblaðið. Hann sagði ekki hafa verið tekna ákvörðun um hvort þetta þýddi að leitað yrði eftir upp- lýsingum frá fleiri fjármálastofnun- um. „Skattyfirvöld geta sinnt þessu eftirliti sem þeim er boðið að gera að lögum með því að fá upplýsingar sem þessar og það er afdráttarlaust í dóminum.“ Ríkisskattstjóri sagði þennan fjölda, 1.347 einstaklinga sem óskað væri upplýsinga um, ekki hátt hlut- fall því fjöldi framteljenda væri alls um 200 þúsund. „Þetta er mjög eðli- leg beiðni og skattyfirvöldum ber að fylgjast með þessum atriðum. Hér er ekki um neina heildarskoðun að ræða og þarna era skattyfirvöld að- eins að fylgjast með því sem þeim ber.“ Hann sagði skattyfirvöldum ekki berast neinar upplýsingar um einstaka framteljendur nema á framtölum og væri þessi ósk sett fram til að sjá samhengi milli þess sem greitt hefur verið og þess sem framtöl segja, þetta sé eina leiðin sem unnt sé að fara til að sannreyna upplýsingarnar. Ríkisskattstjóri höfðaði málið á liðnu hausti og krafðist upplýsinga frá Landsbankanum um það hvort einhverjir af tilgreindum 1.347 aðil- um sem valdir voru af handahófi hefðu átt innstæður þar í árslok 1997, þar með talið á stofnfjárreikn- ingum, húsnæðissparnaðarreikn- ingum, orlofsfjárreikningum og gjaldeyrisreikningum. Einnig var krafist upplýsinga um vaxtatekjur af innstæðum þessara einstaklinga á því ári og afdregna staðgreiðslu af þeim tekjum. Einnig krafðist stefn- andi þess að stefndi greiddi máls- kostnað eftir mati dómsins. Samkvæmt lagaheimild til skatteftirlits Rikisskattstjóri byggir kröfu sína á lagaheimild sem hann hafi til að sinna hlutverki sínu til skatteftirlits. Lög nr. 94/1996 um staðgreiðslu skatts af fjármagnstekjum séu liður í skatt- og tekjukerfi ríkisins og ætlast sé til þess af löggjafanum að stefnandi hafi eftirlit með því hvort lögunum sé réttilega framfylgt. Þess vegna sé nauðsynlegt fyrir stefnanda að athuga hvernig skatt- greiðendur hafi brugðist við nýjum lögum, hvort fjármagnstekjur séu réttilega tíundaðar í skattframtöl- um og hvort þau séu traust að þessu leyti. I rökstuðningi sínum vísar stefn- andi m.a. til þess að í skýrslu nefnd- ar um samræmda skattlagningu eigna og eignatekna frá árinu 1992 hafi komið fram að eignaskatts- stofnar samkvæmt framtölum væru verulega vantaldir miðað við aðrar heimildir og fullyrt að rúmlega 70 milljarða vantaði í framtöl. Einnig bendir hann á að ekki sé verið að opinbera viðskipti enda séu starfs- menn skattyfirvalda bundnir þagn- arskyldu. Frávik verði að skýra þröngt Landsbankinn vísar til laga nr. 113/1996 um viðskiptabanka og sparisjóði þar sem kveðið er á um þagnarskyldu varðandi hag við- skiptamanna. Frávik séu þó í viss- um tilvikum en þau verði að skýra þröngt, beita þeim varlega og hóf- lega og gildi það einnig varðandi rétt skattyfii'valda til slíkra upplýs- inga. Því er mótmælt að þessar upp- lýsingar þurfi til að hægt sé að kanna hvemig skattgreiðendur hafi brugðist við hinum nýju lögum um fjármagnstekjuskatt. Þá segir stefndi að kröfur stefnanda um að fá upplýsingar um 1.347 einstak- linga vegna almenns skatteftirlits ekki tengjast rannsókn á skattskil- um neins tiltekins aðila og að með kröfu sinni um svo víðtæka upplýs- ingagjöf virðist stefnandi vera að gera tilraun til að innleiða tilhögun upplýsingagjafar sem gagngert hefði verið hafnað þegar fjár- magnstekjuskattur var lögleiddur. Niðurstaða dómsins er sú að sam- kvæmt fyrirmælum 43. greinar laga nr. 113/1996 um viðskiptabanka og sparisjóði eigi fyrirmæli ákvæðisins um þagnarskyldu ekki við þegar skylt sé að veita upplýsingar lögum samkvæmt. Er vísað í 94. og '101. greinar laga nr. 75/1981 um rétt skattyfirvalda til að krefjast upplýs- inga og skyldu m.a. fjármálastofn- ana til að veita slíkar upplýsingar. Því telur dómurinn Landsbanka ís- lands hf. skylt að veita ríkisskatt- stjóra umbeðnar upplýsingar. Þá ákvað dómarinn að rétt væri að hvor aðili um sig bæri sinn kostnað af málinu. Málið dæmdi Hervör Þorvaldsdóttir héraðsdómari.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.