Morgunblaðið - 18.02.1999, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Minkar og hænsni.
V'1,
6
\i/, Ml ll
<$03-? Y? ?<?
-------------------
-— i «AA» 1 1 -
w. 7/,
■^Ér&^o—
LINUR eru óðum að skýrast um hvaða dýrategundir standa kjósendum
til boða í komandi kosningum.
Island taki þátt í friðar-
aðgerðum í Kosovo
RÍKISSTJÓRNIN hefur veitt Hall-
dóri Asgrímssyni utanríkisráðheira
umboð til að bjóða fram aðstoð Is-
lands við framkvæmd friðarsam-
komulagsins í Kosovo, sem vonast er
eftir að takist á næstu dögum. Hall-
dór sagði ekki hægt að fullyrða á
þessu stigi með hvaða hætti þessi að-
stoð yrði veitt af íslands hálfu.
„Það liggur fyrir að ef friðarsamn-
ingar takast er mjög líklegt að al-
þjóðlegt herlið þurfí að framfylgja
þeim. Það er gert ráð íyrir að hern-
aðariegum þætti í þeim drögum sem
tengslahópurinn hefur lagt fram.
Það liggur ljóst fyrir að engar aðrar
stofnanir en NATO hafa bolmagn til
að standa að aðgerðum af því tagi
sem þar er kveðið á um,“ sagði Hall-
dór.
„Það er skammur tími til stefnu,
en deiluaðilum hefur verið gert að
komast að samkomulagi í síðasta lagi
nk. laugardag. Það er fyrirsjáanlegt
að samstarfsríkjum Atlantshafs-
bandalagsins verður boðin þátttaka í
hugsanlegum aðgerðum og búist er
við að langflest ef ekki öll muni
leggja eitthvað af mörkum. Eg hef
lagt til að ísland taki þátt í hugsan-
legum friðaraðgerðum á vegum Atl-
antshafsbandalagsins í Kosovo. Með
hvaða hætti er ekki hægt að fullyrða
á þessu stigi, en ég taldi nauðsynlegt
að hafa umboð ríkisstjórnarinnar til
að koma því á framfæri að Islending-
ar væru tilbúnir að leggja sitt af
mörkum til að tryggja frið í Kosovo,“
sagði Halldór.
Þvottavél WG 935
• Tekur 5,0 kg
• Þvottakerfi 15
• Hitastillir stiglaus
• Vinduhraði 900 - 500 sn/mín.
• Sjálfvirk vatnsskömtun
• Öryggislæsing
• Tromla ryðtrí
• Mál: hxbxd 85x60x60 cm
Þú þarft ekki að bíða
eftir næsta tilboði
^indesi \ « |)ORMSSON Lógmúlo 8 • Sími 533 2800
KKAR TILBOÐSVERÐ E R KOMI Ð TIL AÐ VERA
Þjóðtrú tengd sjó og vötnum
Af hafmeyjum
og marbendlum
Dr. Jón Hnefill
Aðalsteinsson
*
IKVÖLD klukkan
20.30 heldur dr. Jón
Hnefill Aðalsteinsson
fyrh-lestur í Sjóminjasafn-
inu í Hafnai’firði um þjóð-
sögur og þjóðtrú sem
tengjast sjó og vötnum.
Þessi fyririestur er í boði
Rannsóknarseturs í sjáv-
arútvegssögu og Sjóminja-
safns Islands og er annar í
röð fjögurra slíkra. Teknar
verða m.a. til umræðu frá-
sagnir úr íslenskum forn-
ritum og reynt í því sam-
bandi að gera- grein fyrir
eðli og uppruna þessa
þjóðtrúarfyrirbæris. En
skyldu vera margvíslegar
frásagnir í þessum dúr í
fornsögunum?
- Þær eru ekki margar í
fomsögum, nema þetta
kemur fyrir í Grettissögu,
en í Landnámubók er
mjög athyglisverð saga um mar-
mennið eða marbendil. Marbendill
kemur víða fyrir í þjóðsögum
seinni tíma og honum er lýst sem
dvergvöxnum manni sem fiski-
menn gátu fengið á öngulinn og
það sem sérstakt var talið við
þessar verur var að þær höfðu
spásagnargáfu. Sá eiginleiki kem-
ur fram strax í þessari frásögn í
Landnámubók. Nokkrar sögur af
marbendlum eni í þjóðsögum Jóns
Arnasonar og þar er frægust sag-
an; marbendill hló. Hún er til í vís-
um:
Méreríminnistundin
þá marbendill hló;
blíð var baugahrundin
er bóndinn kom af sjó;
kyssti hún laufalundinn
lymskan undir bjó;
sinn saklausan hundinn
sverðabaldur sló.
I fornaldarsögu kemur fyrir
saga af marbendli og hann hlær
einnig þar þegar hann skynjaði
það sem aðrir sáu ekki.
Hvaða önnur fyrirbæri eru at-
hylgisverð í tengslum við sjó og
vötn?
-Þau eru geysimörg. Ef við
teljum þau upp í röð þá er annars
vegar marfólk í mannsmynd og
hins vegar kynjadýr og skrímsli.
Hafmeyjar eru frægar í sögum.
Þær eru með sporð yfirleitt en svo
eru aftur til selkonur sem kasta
ham en eru að öðru leyti eins og
mennskar konur. Stundum eru
teknar hliðstæður af þessum sæ-
búum og jarðneskum verum. Þá
eru hafmenn taldir hliðstæður
álfa, marbendlai’ hliðstæður
dverga, marstrambar hliðstæðir
jólasveinum og martröU hliðstæð-
ur trölla.
Hvað með skrímslin?
- Skrímslin geta verið með
margvíslegu móti. Oft eru lýsing-
ar óljósar í frásögum af skrímsl-
um. Þau minna stundum á hunda,
kindur, naut og hesta en svo eru
líka allskonar sérkenni sem eru
ólík öllum venjulegum dýrum á
landi. Stundum sögðust menn
hafa séð skrímsli sem voru eins og
tveir hestar fastir sam-
an á rössunum. Stund-
um höfðu þau burstir
upp úr hausnum,
stundum voru þau svo
langt fjarri allri dýra-
sköpum að þau litu út
eins og tunnur með botn eða
bumbu upp úr vatninu. Lýsing-
arnar sumar eru eins fráránlegar
og fráleitar og hugsanlegt er,
stundum eru skrímslin jafnvel
eins og gi’indverk.
Benda augljósar líkur til að um
ofsjónir hafí verið að ræða?
-Það virðist stundum liggja í
augum uppi. Það er fræg sagan af
Katanesdýrinu í Hvalfirði sem var
►Dr. Jón Hnefill Aðalsteinsson
er fæddur árið 1927 á Vað-
brekku í Hrafnkelsdal. Hann
lauk stúdentsprófi árið 1948 frá
Menntaskólanuni á Akureyri.
Hann tók fil.kand.próf frá há-
skólanum í Stokkhólmi árið 1958,
cand. theol. frá Háskóla íslands
1960, fil. lis. frá Uppsalaháskóla
1966 og fil. dr. frá Uppsalahá-
skóla 1979. Hann var blaðamað-
ur á Morgunblaðinu um árabil.
Prestur í EskiQarðarprestakalli
frá 1960 til 1966. Kennari við
Mennaskólann við Hamrahlíð ár-
in 1969 til 1988. Dósent og síðar
prófessor í þjóðfræði við Háskóla
íslands frá 1988 til 1997. Jón er
kvæntur Svövu Jakobsdóttur rit-
höfundi og fyrrum alþingismanni
og eiga þau einn son. Jón átti áð-
ur tvo syni.
mikið mál um á síðustu öld milli
1870 til 1880. Menn reyndu að
veiða það og fenginn var tO verks-
ins byssumaður, mikið var skrifað
um þetta en niðurstaðan varð sú
að það urðu málaferli út af reikn-
ingi skotmannsins. En dýrið virtist
hreinlega gufa upp eða hverfa þeg-
ar mannfjöldi kom á vettvang til
að leita þess.
Voru þessar sjávarskepnur vin-
samlegar fólki?
- Yfirleitt voru þær hættulausar
nema þær væru áreittar, einstöku
skrímsli gátu þó verið mannskæð.
En það var vissara að áreita þess-
ar skepnur ekki. Ein saga er til af
manni sem skaut á hafmann. Að
vísu sakaði hafmanninn ekki að
talið var en þegai’ maðurinn fór á
sjó daginn eftir fékk hann eitthvað
þungt á öngulinn og hvarf niður
með honum og hefur ekki sést síð-
an.
Voru þetta þá hrollvekjur þess-
ara tíma?
- Stundum, en það eru líka til
fallegar sögur. Prestur nokkur
reri einn og fékk unga stúlku upp í
bátinn. Hún var ákaflega döpur og
bað hann að setja sig í sjóinn sem
hann gerði. Eftir það fékk prestur-
inn alltaf fisk á miðunum þar sem
hann hafði veitt stúlk-
una og sleppt henni.
Stúlkan sú var eins og
fólk er flest að allri
náttúru og sköpulagi
en kunni þó betur við
sig í sjó en á landi. Það
eru til skýringar á því hvernig
þessai’ verur hafi orðið til, t.d.
hvernig íyrsta margýguiinn fór í
sjóinn og hvernig aðrar urðu til út
af henni. Þær eru mjög stórvaxnar
en syngja afar fallega. Svo eru til í
erlendum heimildum ýmsar upp-
runasagnir um hvemig ýmsar
þessar sjóskepnur hafa orðið til
eða nokkurs konar heildarskýring
á öllum þessum fyrirbærum.
Vissara var að
áreita ekki
þessar
skepnur