Morgunblaðið - 18.02.1999, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 18.02.1999, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 18. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Stjórnarandstæðingar gagnrýndu hálendisrit ríkisstjórnarinnar „Skilur lesandann eftir snarringlaðan“ STJÓRNARANDSTÆÐINGAR gagnrýndu harðlega við utandag- skrárumræður á Alþingi í gær, kynningarbækling ríkisstjórnar- innar um hálendi Islands, sem dreift var meðal landsmanna fyrir skömmu. Umræðan fór fram að ósk Hjörleifs Guttormssonar, sem sagði bæklinginn vera áróðursrit ríkisstjórnarinnar. „I stað þess að vera skilmerki- legt fræðslurit um þá löggjöf sem nú gildir um óbyggðir höfum við fengið í hendur yfírborðslegan hrærigraut, þar sem saman ægir hástemmdum náttúrufarslýsing- um, lagatilvísunum, skírskotunum um ákvarðanir, sem þegar hafa verið teknar, og aðrar sem eru hálfkaraðar eða eru ennþá hugar- fóstur útgefendanna. Útkoman verður moðsuða sem skilur lesand- ann eftir snai-ringlaðan, í stað þess að vera skilmerkilegur leiðarvísir um það hvemig löggjafar- og fram- kvæmdavald hefur búið að þessum fjársjóði þjóðarinnar og hvað enn skortir til að leikreglur séu skýr- ar,“ sagði Hjörleifur. Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði að við gerð bæklinga af þessu tagi væri vandratað meðal- ALÞINGI hófíð. „Það var skýrt frá því við umræður um þau fern lög sem þarna komu mest við sögu, og mik- il umræða varð um, að það stæði til af hálfu ríkisstjórnarinnar að reyna að kynna þau fyrir almenn- ingi með einhverjum hætti sem skýr mætti vera. Það voru engar athugasemdir gerðar við þær fyr- irætlanir úr þessum ræðustól," sagði Davíð. Dregur úr verulegum misskilningi Hann sagði bæklinginn draga úr verulegum misskilningi sem uppi hefði verið við meðferð þeirra laga sem um ræðir varðandi hálendis- málefnin og sagðist ekki hafa orðið annars var en að þeir sem hefðu fengið bæklinginn í hendur teldu sig vera betur setta með hann en án hans. Á að vekja hughrif ættjarðarástar „Ríkisstjómin tók stórar ákvarð- anir varðandi þessa sameign síð- astliðið vor. Ríkisstjómin er í vörn í þessu máli og þess vegna gefur hún út þennan fallega bækling, sem á að vekja hughrif ættjarðar- ástar þegar honum er flett,“ sagði Rannveig Guðmundsdóttir. Fleiri stjómarandstæðingar sem til máls tóku gagnrýndu innihald bæklings- ins og kölluðu hann kosningaplagg, sem byggði á ósannindum. Nokkrir stjórnarþingmenn tóku til máls og fögnuðu útgáfu bæk- lingsins. Kristján Pálsson sagði hann til fyrirmyndar og að með út- gáfu hans hefði verið slegið á þá ómálefnalegu gagnrýni sem sam- fylkingarþingmenn höfðu uppi á seinasta þingi gegn þjóðlendu- frumvarpinu, frumvarpinu um nýt- ingu á auðlindum í jörðu og fram- varpi um breytingar á sveitar- stjórnarlögum. Jón Kristjánsson tók í sama streng og sagði útgáfu hans af hinu góða. _ Morgunblaðið/Ásdís VIÐA var komið við í umræðum á Alþingi í gær og margir þingmenn tóku til máls. Alþingi Útboð Flugleiða á EES-svæð- inu gæti tekið 7-8 mánuði STARFSHÓPURá vegum samgönguráðuneytisins undirbýr nú út- boð á Evrópska efnahagssvæðinu á nokkrum flugleiðum til dreifðra byggða á Vestfjörðum og Norðurlandi eystra. Fram kom í svari Halldórs Blöndal samgönguráðherra á Álþingi í gær við fyrirspurn Sighvats Björgvinssonar að útboðið tæki sennilega 7-8 mánuði. Birta verður útboðsgögn á ellefu tungumálum. Skv. svari sem ráðuneytinu hefur borist frá Sainkeppnisstofnun er ótvírætt að öll flugfélög á EES-svæðinu geta tekið þátt í útboð- inu án sérstakra skilyrða og sagði Halldór að þau flugfélög sem halda nú þegar uppi áætlunarflugi til Vestfjarða geti tekið þátt í út- boðinu án sérstakra íþyngjandi skilyrða. Fram kom í máli Halldórs að íslandsflug hefur nú þegar hafið áætlunarflug milli Isafjarðar og Bíldudals án styrkja. „Það eitt dugir til þess að útilokað er að taka þessa flugleið með í framangreint útboð. Nú hefur borist bréf frá íslandsflugi þar sem fram kemur að félagið muni ekki sjá sér fært að halda úti þessu flugi til aprílloka án styrkja. Ákvörðunar er að vænta fljótlega í ráðuneytinu um þetta flug fram á vorið. Hafa verið haldnir fundir með Ríkiskaupum og er verðkönnun Ríkiskaupa þegar hafín en haft verður samband við flugrekstraraðila um þetta flug og sömuleiðis um flug til Norður-Þingeyjarsýslu," sagði Halldór. Hann sagði jafnframt að tvö flugfélög hefðu sýnt því áhuga að sinna flugleiðinni frá Vestur-Barðastrandarsýslu til ísafjarðar en þau eru flugfélagið Jói-vík og íslandsflug. Verður leitað verðtilboða hjá báðum þessum félögum, sagði samgönguráðherra. Eftirlit með vændi „ER ástæða til að ætla að hafin sé „útgerð“ á erlendum stúlkum hér á landi, einkum frá Austur-Evrópu?" segir í fyrirspurn sem Kristín Ástgeirsdóttir hefur beint til dómsmálaráðherra á Alþingi um eftir- lit með vændi. Kristín spyr m.a. að því hvernig fylgst sé með umfangi og eðli vændis hér á landi og hvort fyrirhugaðar séu Iagabreytingar eða sérstakar aðgerðir til að sporna við vændi, samanborið við nýlega löggjöf í Svíþjóð, sem banni m.a. kaup á blíðu kvenna og karla. Einfaldari skattframtöl GEIR H. Haarde fjármálaráöherra segir að haldið verði áfram við að þróa véltæk skil á skattframtölum og stækka þann hóp sem geti hagnýtt sér þau. Þá er verið að undirbúa áritun á framtöl fyrir ákveðna hópa sem hafa lítið umleikis, s.s. lífeyrisþega og ungmenni, en talið hefur verið að 30-40 þúsund framteljendur geti vandræða- laust fallið að einfaldari framtalsgerð en verið hefur. Þessir framteljendur þurfi ekki að færa inn aðrar upplýsingar á skattframtöl sín en um fjármagnstekjur. Unnið er að undirbúningi þessa en óvíst er hvenær unnt verður að hrinda því í framkvæmd. Þetta kom fram kom í máli fjármálaráðherra við fyrirspurn Guð- mundar Áma Stefánssonar á Alþingi í gær. Spilafíkn eykst jafnt og þétt FÉLAGASAMTÖK og stofnanir höfðu 1.120 milljónir kr. í tekjur úr söfnunarspilakössum á árinu 1997. Ögmundur Jónasson hélt því fram á Alþingi í gær að þessir aðilar væra með sama hætti og spilafíklar orðnir háðir þessari fjáröflun. Hann sagði að árið 1996 hefðu 85 einstaklingar verið innritaðir í stuðningshóp SÁÁ- spilafíkla. Árið eftir var talan komin yfir 90 og að sögn þingmanns- ins hafa nýlegar rannsóknir á vegum SÁÁ leitt í Ijós að spilafíkn eykst jafnt og þétt á Islandi, sérstaklega hjá ungu fólki. Þetta kom fram í máli Ögmundar þegar hann beindi fyrirspurn til Þorsteins Pálssonar dómsmálaráðherra um livað liði aðgerðum ríkisstjórnarinnar í framhaldi af samþykkt Alþingis sl. vor um að visa lagafrumvörpum um bann við fjárhættuspilum til ríkisstjórnar- innar. Þorsteinn sagði að Alþingi hefði lýst því yfir að það sæi ekki ástæðu til að álykta annað í málinu en að vísa því til ríkissfjórnar- innar. Hann sagði að fyrir ári hefði ríkisstjórnin samþykkt, að til- lögu sinni að skipa nefnd á vegum ráðuneyta til að fjalla um málefni happdrætta og kvaðst hann eiga von á að nefndin skilaði niðurstöð- um slnum á næstu dögum. „Ég hef ekki verið reiðubúinn að beita mér fyrir því að svipta þau félagasamtök sem njóta tekna með þess- um hætti þessum mikilvægu fjáröflunarleiðum og niun ekki gera það,“ sagði Þorsteinn ennfremur. Kvörtunarnefnd ferðaskrifstofa hefur eftirlit með gæðum og þjónustu 1 w i i 14 kærumál vegna vanefnda á fimm árum KVÖRTUNARNEFND ferðaskrif- stofa hefur fengið 14 kæramál til meðferðar vegna meintra vanefnda ferðaskrifstofa á síðastliðnum fímm árum. Átta málum lauk á þann veg að kæranda vora greiddar bætur, í fjórum tilvikum var ekki fallist á kvörtun kæranda og tveimur mál- um var lokið án afskipta nefndar- innar. Þetta kom fram í svari Hall- dórs Blöndal samgönguráðherra á Alþingi í gær við fyrirspum Guð- mundar Hallvarðssonar um hvemig háttað væri eftirliti með að gæði og þjónusta hótela og hótelíbúða væru í samræmi við auglýsingar ferða- skrifstofa. Fram kom í máli Halldórs að samgönguráðuneytið gerði kröfu um að allar ferðaskrifstofur leggi fram tryggingu fyrir starfsemi sinni. Komi til rekstrarstöðvunar eða gjaldþrots ferðaskrifstofu skal tryggingin standa undir heim- flutningi farþega erlendis frá og þeim innborgunum sem viðskipta- vinir ferðaskrifstofunnar kunna að hafa greitt inn á ferð sem ekki var farin. Ráðuneytið fékk mál fjögurra ferðaskrifstofa til meðferðar Halldór sagði að á sl. fímm árum hefði ráðuneytið haft til meðferðar fjögur mál þar sem ferðaskrifstofur hefðu hætt rekstri og ráðuneytið orðið að grípa til fyrrgreindrar tryggingar. Umræddar ferðaskrif- stofur era: Bingo-Wihlborg Rejser, Istravel, Ferðaskrifstofan Ratvís og Ferðaskrifstofan GCI. „Þegar Bingo-Wihlborg Rejser hætti starfsemi sinni í maí 1996 hafði á annað hundrað farþega hafíð ferð á hennar vegum. Ráðuneytið hafði undir höndum tryggingu að upphæð átta milljónir króna vegna starfseminnar og fór töluverður hluti tryggingafjárins í greiðslu á heimflutningi farþega. Ráðuneytið auglýsti eftir kröfum í fyrrgreint ti-yggingafé og barst umtalsverður fjöldi krafna og voru allar lögvarðar kröfur greiddar að fullu. Málinu lauk með því að allir farþegar voru fluttir til síns heima auk þess að all- ar lögvarðar kröfur voru greiddar," sagði samgönguráðherra í svari sínu. Fram kom í máli hans að Ferða- skrifstofan Istravel lagði inn leyfi sitt í ágúst 1996 og hafði ráðuneytið sex milljóna króna tryggingu vegna rekstrar hennar. Mikill fjöldi far- þega var þá enn erlendis á vegum hennar. „Brýnasta verkefni ráðu- neytisins var að flytja þá farþega aftur til síns heima. Ljóst var að tryggingin hrykki vart til frekari greiðslu en helmings flutnings far- þega. í ljós kom að farþegar erlend- is vora 275 og tóku Flugleiðir að sér að flytja þá heim gegn greiðslu sex milljóna króna. Ekki var unnt að greiða aðrar kröfur vegna ferða- skrifstofunnar Istravel og auglýsti samgönguráðuneytið ekki eftir kröfum. Engu að síður barst nokk- ur fjöldi kröfulýsinga til ráðuneytis- ins og var þeim öllum hafnað. Mál- inu lauk með því að allir farþegar vora fluttir til síns heima en ekkert * fékkst upp í aðrar kröfur. Ferðaskrifstofan Ratvís lagði inn leyfí sitt í nóvember 1996 eftir að ráðuneytið hafði haft töluverð af- skipti af starfsemi hennar. Engir farþegar vora erlendis á hennar vegum. Ráðuneytið auglýsti eftir kröfum í tryggingafé ferðaskrifstof- unnar 19. desember 1996 og bárust | örfáar kröfur vegna innborgana á | ferðir. Málinu lauk með því að allar 1 lögvarðar kröfur voru greiddar. Ferðaskrifstofan GCI lagði inn leyfi sitt í febrúar 1997. Trygginga- fé ferðaskrifstofunnar var ein millj- ón króna. Þessi ferðaskrifstofa hafði ekki með höndum farseðlaútgáfu heldur einvörðungu sölu svokallaðr- ar orlofshlutdeildar í hótelum er- lendis. Hún sá því aðeins um miðlun gistiiýmis. Ráðuneytið auglýsti eft- k ir kröfum í tryggingaféð og bárust I nokki-ar kröfulýsingar. Málinu lauk | með því að allar lögvarðar kröfur vora greiddar," sagði samgönguráð- herra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.